Morgunblaðið - 25.11.2019, Page 23

Morgunblaðið - 25.11.2019, Page 23
DÆGRADVÖL 23 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. NÓVEMBER 2019 Heill frumskógur af gæludýrum... Í fiskana mig langar svo að setja í búrið stóra mamma segir þú færð tvo en pabbi segir fjóra. Kauptúni 3 | Garðabæ | Sími: 564 3364 | fisko.is Opið laugardag 10-18 sunnudag 12-18 L i f and i v e r s l un kíktu í heimsókn Hundar Kettir Fiskar Fuglar Nagdýr Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „KORT HVERS VILTU – BARÐA HÓLMFJÖRÐ, JÓNU JÓNSDÓTTUR EÐA SÉRA HELGA GUÐMANNSSONAR?” Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að vera ómögulegur án hennar. ÞAÐ ER EITT VANDAMÁL VIÐ ÞAÐ AÐ FARA NIÐUR ÚR TRÉ ÞYNGDAR- LÖGMÁLIÐ ÞÚ ÁTT VIÐ ALVARLEGAN HEILSUBREST AÐ STRÍÐA! ERU EINHVER RÁÐ VIÐ HONUM? HÆTTU AÐ BORÐA FEITAN MAT OG HÆTTU ÖLLU BJÓRSULLI! HA HA HA HA! ÉG SKIL! HLÁTUR ER BESTA MEÐALIÐ! „STJÓRNIN SAGÐIST MYNDU SENDA ALGERAN ÞRÆLAPÍSKARA EF VIÐ NÆÐUM EKKI SÖLUMARKMIÐUNUM ENN EINU SINNI.” finnst einnig notalegt að eiga stundir í sumarbústaðnum sem við hjónin eigum í Úthlíð í Biskupstungum.“ Fjölskylda Eiginmaður Hönnu er Vigfús Ólafsson, f. 25.12. 1946, fyrrverandi bankastarfsmaður. Þau eru búsett í Kópavogi. Foreldrar Vigfúsar voru hjónin Fanney Guðsteinsdóttir, f. 31.1. 1913, d. 8.1. 1972, húsfreyja áÞverá á Síðu, og Ólafur Vigfússon, f. 5.2. 1917, d. 2.2. 1996, bóndi. Börn Hönnu og Vigfúsar eru: 1) Hjörtur Freyr, f. 31.8. 1971, mark- aðsstjóri, sambýliskona hans er María Rúnarsdóttir, f. 22.8. 1978, fjárfestir. Synir hans með fyrrver- andi eiginkonu, Jónínu Birnu Björnsdóttur, f. 20.10. 1971, við- skiptafræðingi, eru Sigurður Tómas, Hjörtur Björn og Hannes Ágúst; 2) Ólafur Fannar, f. 7.5. 1975, yfir- klippari á markaðsdeild Stöðvar 2, sambýliskona hans er Kristrún Jónsdóttir, f. 18.2. 1973, kennari. Þeirra synir eru Vigfús Máni og Sindri Jón; 3) Vignir Snær, f. 7.7. 1979, tónlistarmaður, kona hans er Þorbjörg Sæmundsdóttir, f. 2.5. 1979, rekstrarstjóri. Synir þeirra eru Hrafnkell Daði, Arnaldur Logi og Egill Hrafn. Systkini Hönnu eru Hannes Hjartarson, f. 6.2. 1953, læknir, búsettur í Kópavogi, og Elín Hjart- ardóttir, f. 17.2. 1948, ljósmóðir og hjúkrunarfræðingur, búsett í Reykjavík. Foreldrar Hönnu voru hjónin Vigdís Magnúsdóttir, f. 16.1. 1920, d. 17.9. 2012, húsfreyja á Herjólfsstöð- um og Hjörtur Hannesson, f. 14.3. 1921, d. 29.7. 2006, bóndi og land- póstur. Hanna Sigríður Hjartardóttir Hjörtur Bjarnason bóndi á Herjólfsstöðum Elín Jónsdóttir ljósmóðir og húsfreyja á Herjólfsstöðum Hannes Hjartarson bóndi á Herjólfsstöðum Hjörtur Sigurður Hannesson bóndi og landpóstur á Herjólfsstöðum Signý Þorkelsdóttir húsfreyja á Herjólfsstöðum Þorkell Árnason bóndi í Skálmarbæjarhraunum og víðar Signý Bárðardóttir húsfreyja í Skálmarbæjarhraunum í Álftaveri og víðar Tómas Tómasson bóndi í Hrútafelli Katrín Jónsdóttir húsfreyja í Hrútafelli undir Eyjafjöllum Magnús Tómasson bóndi í Steinum Elín Bárðardóttir húsfreyja og ljósmóðir í Steinum undir Eyjafjöllum Bárður Pálsson bóndi á Raufarfelli Ólöf Ólafsdóttir húsfreyja á Raufarfelli undir Eyjafjöllum Úr frændgarði Hönnu S. Hjartardóttur Vigdís Marta Magnúsdóttir húsfreyja á Herjólfsstöðum í Álftaveri Ásta Binnu Dolla segir svo frásjálfri sér á Leir að hún hafi stúderað bragfræði af kappi hér áð- ur fyrr og sé skúffuskáld. Fyrir áhugasama bætir hún við: „Klambra er blendingur úr glömbru og flumbru. Þá er bæði glambrað og flumbrað í sömu vís- unni: Það var flumbra í bréfinu falin, og mér fannst hún ekki svo galin að ég lét hana fara og lét hana vera eins og laglega lausmálsþulu. Þarna er ekki lengur flumbrað í skammlínu heldur glambrað og ein- ungis flumbrað í lokin sem sé klambrað. – Innan þessara marka má svo auðvitað hafa ýmis tilbrigði. Það má t.d. flumbra í 2. línu og al- ríma síðan á móti í lokalínu. Það yrði þá flumbra þótt skammlínur hefðu alrím, en klambra ef glamrað væri í skammlínum.“ Bjarni Sigtryggsson birtir á Boðnarmiði úrklippu þar sem segir að undirliggjandi arðsemi bank- anna sé langt undir því sem eðlilegt geti talist. Bankarnir okkar bera á fati í besta falli krónu með gati. En allt er það háð ef að er gáð undirliggjandi arðsemismati. Guðmundur Þorsteinsson segir að komið sé fram á Alþingi frum- varp um breytingar á löggjöf um fíkniefni og fái misjafnar viðtökur: Margt er nú reifað og rætt og rifist og jagast og þrætt hvort fólk’ upp til hópa sé heimilt að dópa en Alþingi afglapavætt. Guðmundur Arnfinnsson yrkir og kallar „Kattaþvott“: Þvottavélar þarf nú góðar, það er augljóst, nema hvað, Katrínar svo kattasóðar komist strax í ærlegt bað. Pétur Stefánsson yrkir: Þó mig kvelji stundum stress, stríð og allur fjárinn, brölti ég lífið býsna hress og brosi gegnum tárin. Arnþór Helgason dregur upp þessa náttúrumynd: Sólin lágt á lofti er, leiðir ylinn inn um gluggann. Bráðum hún að hátta fer og hamast við að lengja skuggann. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Glambrað, flumbrað og síðan klambrað

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.