Fréttablaðið - 19.02.2020, Blaðsíða 39
Aðalfundur
Sjóvá-Almennra trygginga hf.
12. mars 2020
Drög að dagskrá fundarins eru svohljóðandi:
1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á liðnu starfsári.
2. Endurskoðaðir reikningar félagsins fyrir síðastliðið
reikningsár lagðir fram til samþykktar.
3. Ákvörðun um greiðslu arðs og meðferð hagnaðar á
síðastliðnu reikningsári.
4. Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu félagsins.
5. Tillaga um lækkun hlutafjár vegna kaupa á eigin hlutum.
6. Tillögur um breytingar á samþykktum félagsins.
a. Tillaga stjórnar sem lýtur að breytingu á 4. gr.
í tengslum við tillögu stjórnar um lækkun hlutafjár.
b. Tillaga stjórnar sem lýtur að breytingu á 2. og 3. mgr.
18. gr. í tengslum við störf tilnefningarnefndar.
7. Tillögur tilnefningarnefndar um breytingar á starfsreglum
nefndarinnar.
8. Kosning stjórnar félagsins.
9. Kosning endurskoðanda eða endurskoðunarfélags.
a. Ekki liggur fyrir tillaga um kosningu endurskoðanda þar
sem KPMG ehf. var kjörið endurskoðandi til fimm ára
á aðalfundi 2018.
10. Kosning nefndarmanna í tilnefningarnefnd.
11. Ákvörðun um þóknun stjórnar félagsins og
tilnefningarnefndar.
12. Tillaga um heimild til kaupa á eigin hlutabréfum.
13. Önnur mál, löglega upp borin.
Hluthafar eiga rétt á að leggja fram mál og/eða ályktunartillögur
fyrir fundinn ef gerð hefur verið skrifleg eða rafræn krafa um
það eigi síðar en 10 dögum fyrir fund, þ.e. eigi síðar en kl. 15:00
mánudaginn 2. mars 2020. Hafi hluthafar krafist þess að tiltekið
mál eða ályktun verði tekið fyrir verða endanleg dagskrá og
tillögur uppfærðar á vef félagsins eigi síðar en þremur dögum
fyrir aðalfundinn. Hægt er að senda tillögur eða ályktanir fyrir
fundinn á veffangið stjorn@sjova.is.
Hluthafar geta einnig lagt fram spurningar er varða auglýsta
dagskrárliði á aðalfundinum sjálfum. Nánari upplýsingar um
réttindi hluthafa er að finna á vef félagsins,
www.sjova.is/um-okkur/fjarfestar/adalfundur-2020/.
Ekki er gert ráð fyrir að atkvæðagreiðslur á aðalfundinum
verði skriflegar nema einhver fundarmanna krefjist þess eða
fundarstjóri úrskurðar um annað. Stjórnarkjör skal þó vera
skriflegt ef fleiri eru í kjöri til stjórnar en kjósa skal. Kveðið er
nánar á um stjórnarkjör í samþykktum félagsins en kosið er eftir
hlutfallskosningu. Athygli er þó vakin á ákvæðum samþykkta um
hlutfall kynja í stjórn félagsins.
Ekki verður hægt að greiða atkvæði með rafrænum hætti á
fundinum. Hluthafi getur látið umboðsmann sækja hluthafafund
fyrir sína hönd. Umboðsmaður skal leggja fram skriflegt eða
rafrænt umboð og skal það dagsett. Rafræn umboð má senda á
veffangið stjorn@sjova.is.
Aðalfundur er lögmætur, án tillits til fundarsóknar, ef löglega
er til hans boðað.
Sérstök tilnefningarnefnd er að störfum í samræmi við sam-
þykktir félagsins. Hluthafar og aðrir sem óska eftir tilnefningu
nefndarinnar til framboðs til stjórnar á aðalfundi hafa átt
þess kost að koma áhuga sínum, og eftir atvikum framboði,
á framfæri við nefndina. Samkvæmt fyrirliggjandi tillögu
tilnefningarnefndar gerir hún tillögu um að þau Björgólfur
Jóhannsson, Guðmundur Örn Gunnarsson, Hildur Árnadóttir,
Ingi Jóhann Guðmundsson og Ingunn Agnes Kro verði kjörin til
setu sem aðalmenn í stjórn og þau Erna Gísladóttir og Garðar
Gíslason verði kosin sem varamenn.
Frestur til að tilkynna framboð til stjórnar lýkur fimm
sólarhringum fyrir upphaf aðalfundar, þ.e. laugardaginn
7. mars 2020 kl. 15:00, en vegna eðlis og umfangs starfa
tilnefningarnefndar er mælst til þess að framboð til stjórnar
berist nefndinni skemmst tveimur vikum fyrir aðalfund, þ.e. fyrir
kl. 15:00 fimmtudaginn 27. febrúar 2020. Framboð skulu berast
á netfangið tilnefningarnefnd@sjova.is. Framboðseyðublöð
er hægt að nálgast á vefsvæði félagsins. Breytist tillaga
nefndarinnar frá því er fram kemur í fundarboði þessu verður
endurskoðuð tillaga birt eigi síðar en 10. mars 2020. Upplýsingar
um alla frambjóðendur verða birtar á vefsvæðinu www.sjova.
is/um-okkur/fjarfestar/adalfundur-2020/ að lágmarki tveimur
dögum fyrir aðalfund.
Tilkynningum um framboð til tilnefningarnefndar félagsins
skal skilað fyrir kl. 15:00 laugardaginn 7. mars 2020 á netfangið
stjorn@sjova.is. Framboðseyðublöð er hægt að nálgast
á vefsvæði félagsins. Upplýsingar um frambjóðendur til
tilnefningarnefndar verða birtar á vefsvæði félagsins eigi síðar
en tveimur dögum fyrir aðalfund.
Endanleg dagskrá aðalfundar og fundargögn, þ. á m. tillögur
stjórnar, sem lögð verða fyrir aðalfund verða birt á vefsvæði
félagsins www.sjova.is/um-okkur/fjarfestar/adalfundur-2020/
og liggja frammi á skrifstofu þess í Kringlunni 5, 103 Reykjavík.
Hluthafar og umboðsmenn geta skráð sig á aðalfundinn á
fundarstað frá kl. 14:30 á aðalfundardag og fengið fundargögn
afhent. Aðalfundur og fundargögn verða á íslensku.
Tilnefningarnefnd leggur til að Kristín Edwald hrl. verði kosin
fundarstjóri.
Reykjavík 18. febrúar 2020.
Stjórn Sjóvá-Almennra trygginga hf.
Sjóvá 440 2000
sjova.is
Stjórn Sjóvá-Almennra trygginga hf. boðar
til aðalfundar í félaginu sem haldinn verður
í fundarsal félagsins, Kringlunni 5, 103 Reykjavík,
fimmtudaginn 12. mars 2020 og hefst kl. 15:00.