Fréttablaðið - 19.02.2020, Blaðsíða 40
RITSTJÓRN
ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD
auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN
Torg. ehf
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 550 5000
Bjarna
Karlssonar
BAKÞANKAR
buzzador®
Er það ekki með þig, líkt og mig, að stundum þegar þú þarft að sjá alveg skýrt þá
lokar þú augunum? Innri sjónin
gegnir mikilvægu hlutverki í
lífi okkar. Með henni getum við
skotist hingað og þangað, skrollað
fram og aftur yfir samskipti og
atburði og raunar horfið hvert sem
er í tíma og rúmi. Prófaðu bara að
skreppa í huganum inn í gamla
herbergið þitt frá unglingsárum.
Ef að er gáð finnur þú jafn vel
lyktina, hjóðvistina, gömlu tilfinn-
inguna … Sumt sem maður geymir
í þessu hlaðvarpi sálarinnar, innri
sjóninni, varðveitist í ótrúlegri
háskerpu áratugum saman.
Kannski er sjón augnanna
ofmetin og jafnvel ofnotuð í menn-
ingu okkar. Í stað lesturs og talaðs
máls eru komin tákn og myndir;
alls konar endalaus myndskeið,
appelsínugular viðvaranir, þumlar
og emoj. Sjónáreitið virðist aukast
í öfugu hlutfalli við samtalið sem
vekur sálarlífið.
Stundum í prestsstarfi mínu
þegar ég horfi á syrgjendur leggja
dúkinn yfir ásjónu látins ástvinar
í hinsta sinn hugsa ég til þess hve
skýra mynd ég á í huganum af
honum Flosa bróður mínum sem
lést fyrir rúmum 6 árum. Þótt
kistulokið falli eru ástvinir okkar
ekki farnir lengra en svo að oft
höfum við þau ljóslifandi fyrir
hugskotssjónum og tökum jafnvel
heilu samtölin!
Þriðja fimmtudag í hverjum
mánuði fæ ég að leiða samtal í
Píetahúsinu að Baldursgötu 7 þar
sem karlar koma saman til að rifja
upp og muna ástvini sem féllu
fyrir eigin hendi. Þar er rætt um
gleði og sorgir, þakklæti, reiði og
allt hitt sem tengist sjálfsvígum.
Hópurinn heitir Feður, bræður,
synir og vinir. Þar er gott að hlusta
og frjálst að tala ef maður vill. Það
er fundur á morgun, fimmtudag,
klukkan 16.30 – 18.
Hlaðvarp sálar
COKE
ÁN SYKURS
500 ML
169
KR/STK
Leggðu í
Stæði með
Síminn Pay
siminnpay.is
Með Stæði í Síminn Pay appinu getur þú
greitt fyrir bílastæði á öllum gjaldsvæðum
Bílastæðasjóðs Reykjavíkur.
50%
afslá
ttur
–í fe
brúa
r–