Fréttablaðið - 19.02.2020, Blaðsíða 10
G-rjómi geymist vel
Laktósalaus G-rjómi er tilbúinn
til notkunar þegar þér hentar.
gottimatinn.is
Af þeim fimmtán
knatthúsum sem reist hafa
verið á Íslandi undanfarin
tuttugu ár eru átta með
keppnisvöll í fullri stærð.
FÓTBOLTI Justin Fashanu, fyrsti og
eini atvinnuknattspyrnumaðurinn
sem hefur komið út úr skápnum,
verður tekinn inn í frægðarhöll
enska boltans í dag. Frænka hans,
Amal, mun taka við viðurkenn-
ingunni fyrir hans hönd en Fashanu
framdi sjálfsmorð 1998 þegar hann
var aðeins 37 ára.
Fashanu varð fyrsti þeldökki leik-
maðurinn sem kostaði yfir milljón
pund þegar Nottingham Forest
splæsti í guttann 1981 frá Norwich,
þar sem hann hafði slegið í gegn. Þá
var Forest eitt besta lið Englands og
eitt af stóru liðunum í Evrópu.
Fashanu var einn efnilegasti leik-
maður Englands og átti 11 landsleiki
fyrir U-21 árs liðið og var búinn að
skora í þeim fimm mörk. Tímabilið
1980-1981 skoraði hann 19 mörk
sem gat þó ekki bjargað Norwich
frá falli og því ljóst að Fashanu
myndi fara til einhverra af stóru
liðunum.
Hann náði sér aldrei á strik í Nott-
ingham enda var kynhneigð hans
eitthvað að þvælast fyrir stjóranum,
Brian Clough. Sjálfstraust hans var
lítið og hann skoraði aðeins þrjú
mörk fyrir félagið. Í ævisögu sinni
sagði Clough að hann skildi ekki
lífsstíl Fashanu því ef menn vildu
brauð þá færu menn til bakara. Ef
menn vildu kjöt þá færu þeir til
slátrarans og hvers vegna hann
væri þá að heimsækja hommabari.
Fashanu fór á mikið flakk í kjölfarið
og spilaði meðal annars í Bandaríkj-
unum. Þar var hann sakaður um
kynferðisbrot gegn 17 ára unglingi
og flúði til Bretlands þar sem hann
framdi sjálfsmorð þann 3. maí 1998.
Í bréfi sem hann skildi eftir sagði
hann að kynlífið hefði verið með
samþykki beggja.
Fashanu kom út úr skápnum í
viðtali við The Sun árið 1990 sem
vakti gríðarleg viðbrögð. Bróðir
hans, John, afneitaði honum um
tíma og sagði hann aðeins vera
að sækjast eftir athygli. Hann dró
þau ummæli síðar til baka. Dóttir
Johns, Amal, stýrir nú Justin Fas-
hanu Foundation sem einbeitir sér
að því að berjast gegn mismunun.
Hún sagði við Sky Sport að frændi
hennar hefði verið snortinn af þess-
ari viðurkenningu. „Þetta er frábær
stund því það er verið að viður-
kenna hann sem fótboltamann en
ekki aðeins sem fyrsta og eina fót-
boltamanninn sem hefur verið sam-
kynhneigður. Hann hafði frábæra
hæfileika og þess vegna varð hann
fyrsti þeldökki leikmaðurinn sem
kostaði milljón pund,“ sagði hún.
Þörf á sýnileika
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, formaður
Samtakanna ᾿78, segir að sýnileiki
skipti máli og því sé þetta mikil-
vægt skref. „Það er þörf á sýnileika
því strákar sem hafa komið út úr
skápnum eru af skornum skammti
– sérstaklega þeir sem eru enn að
spila.“
Þorbjörg bendir á að ÍSÍ sé að
mynda sér stefnu um hinsegin börn
í íþróttum og hún finni fyrir mikl-
um vilja þar á bæ. Þá fái KSÍ sam-
tökin í heimsókn á sín þjálfaranám-
skeið. „Þótt stór hópur myndi fagna
þeim strák sem kæmi út opinberlega
núna og liti á hann jafnvel sem hetju,
þá veit maður líka að það er grunnt á
fordómum og ranghugmyndum um
hinsegin fólk í íþróttum. En þetta er
hægt og rólega að breytast.“
benediktboas@frettabladid.is
Fashanu tekinn inn í frægðarhöllina
Justin Fashanu verður tekinn inn í frægðarhöll enska boltans í dag, 30 árum eftir að hann varð fyrsti knattspyrnumaðurinn þar í
landi til að koma út úr skápnum. Hann er enn sá eini. KSÍ vinnur með samtökunum ᾿78 og ÍSÍ vinnur að stefnu um hinsegin börn.
Fashanu þótti mikið efni og raðaði inn mörkum fyrir Norwich. Hann verður
annar leikmaður félagsins sem tekinn er inn í frægðarhöllina. MYND/GETTY
1 9 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R10 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
FÓTBOLTI Í dag eru tuttugu ár
síðan Reykjaneshöllin var form-
lega opnuð við hátíðlega athöfn
þegar Kef lavík mætti úrvalsliði
sem var þjálfað af Atla Eðvalds-
syni. Það var í fyrsta sinn sem sér-
stök knattspyrnuhöll var byggð á
Íslandi og var um byltingu að ræða
sem setti fordæmi fyrir önnur félög
næstu árin. Í dag eru knatthúsin
orðin fimmtán og f leiri væntanleg
á næstu árum. Undanfarin ár hafa
fjölmörg félög einnig kosið að vera
með upphitað gervigras á aðal-
velli félaganna og hafa aðstæður til
knattspyrnuiðkunar að vetri til því
stórbatnað á þessum tveimur ára-
tugum.
Ákveðið var að ráðast í fram-
kvæmdir að sumri til árið 1999
og var höllin tilbúin f ljótlega eftir
áramótin 2000. Húsið var fyrsta
fjölnota íþróttahús landsins og
stuttu síðar var ákveðið að ráðast í
framkvæmdir við að byggja Fífuna
í Kópavogi og Egilshöll í Reykjavík
sem voru tilbúin árið 2002.
Undanfarna tvo áratugi hafa
hjólin haldið áfram að snúast og
voru tvær nýjar hallir vígðar í fyrra.
Afturelding í Mosfellsbæ opnaði sitt
fyrsta knatthús í nóvember síðast-
liðnum og FH opnaði sitt þriðja
knatthús síðasta haustið á 90 ára
afmæli félagsins.
Þá er ÍR að reisa nýtt fjölnota
íþróttahús sem mun nýtast sem
knatthús og eru fjölmörg félög með
það í framtíðaráætlunum sínum að
reisa knatthús á næstu árum. Fyrr
á þessu ári var samþykkt að reisa
knatthús á Ásvöllum og þá hafa
viðræður staðið yfir um að reisa
knatthús í Garðabæ, á KR-svæðinu,
Valssvæðinu, Vestfjörðum og á Sel-
fossi. – kpt
Tuttugu ár frá vígslu
fyrsta knatthússins
Reykjaneshöllin hefur reynst Keflavík og Njarðvík vel. MYND/REYKJANESBÆR