Morgunblaðið - 05.12.2019, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 2019
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Nýliðinn nóvember var óvenjuhæg-
viðrasamur. Vindur á landsvísu var
1,7 m/s undir meðallagi og hefur
meðalvindhraði ekki verið eins lítill
síðan í nóvember 1952, eða í 67 ár.
Austlægar áttir voru ríkjandi í mán-
uðinum. Þetta kemur fram í tíðar-
farsyfirliti Veðurstofunnar.
Íbúar á höfuðborgarsvæðinu og á
Akureyri urðu vel varir við afleið-
ingar hins stillta veðurs.
Mikil svifryksmengun mældist
Grá mengun var áberandi í
Reykjavíkur og styrkur köfnunar-
efnisdíoxíðs var yfir heilsuvernd-
armörkum nokkra daga í röð seinni
hluta nóvember. Klukkutímagildi
efnisins á mælistöðinni við Grens-
ásveg var 152,5 míkrógrömm á rúm-
metra en heilsuverndarmörkin mið-
að við sólarhring eru 75 míkró-
grömm á rúmmetra. Til að draga úr
mengun hvatti Reykjavíkurborg
fólk til þess að draga úr notkun
einkabíla og börn og fólk með við-
kvæm öndunarfæri áttu að halda sig
fjarri fjölförnum götum.
Svifryksmengun á Akureyri hefur
ítrekað mælst yfir heilsuverndar-
mörkum og meiri en annars staðar á
landinu. Bæjaryfirvöld hafa unnið að
því hörðum höndum að draga úr
svifryksmengun. Hún á m.a. rætur
að rekja til bílaumferðar, en notkun
nagladekkja er óvíða meiri en á
Akureyri.
Mörg þurrkamet voru slegin
Eins og áður hefur komið fram í
fréttum var óvenjuþurrt um landið
norðanvert og var mánuðurinn víða
þurrasti nóvembermánuður um ára-
tugaskeið, segir Veðurstofan. All-
mörg nóvember-þurrkamet féllu.
Úrkoma á Akureyri mældist að-
eins 4,6 millimetrar, sem eru tæp
10% af meðalúrkomu áranna 1961 til
1990. Þetta er næstþurrasti nóv-
embermánuður frá upphafi sam-
felldra úrkomumælinga á Akureyri
1927. Þurrara var í nóvember 1952
þegar úrkoman mældist 3,0 mm. Í
Reykjavík mældist úrkoman 73,1
mm sem er jafnt meðaltali áranna
1961 til 1990. Úrkoman í Stykkis-
hólmi mældist 36,1 mm sem er um
helmingur af meðaltali áranna 1961
til 1990. Dagar þegar úrkoma mæld-
ist 1,0 mm eða meiri á Akureyri voru
aðeins þrír, átta færri en í meðalári.
Í Reykjavík mældist úrkoma 1,0 mm
eða meiri 13 daga, jafnmarga og í
meðalári.
Að tiltölu var kaldast á Norðaust-
urlandi en hlýrra vestan til á landinu
í nóvember. Meðalhiti í Reykjavík í
nóvember var 2,4 stig og er það 1,2
stigum yfir meðallagi áranna 1961 til
1990 en -0,3 stigum undir meðallagi
síðustu tíu ára. Á Akureyri var með-
alhitinn -0,8 stig, -0,5 stigum undir
meðallagi áranna 1961 til 1990 en
-1,8 stigum undir meðallagi síðustu
tíu ára. Telst mánuðurinn vera í 94.-
95. sæti af þeim 139 árum sem mæl-
ingarnar ná yfir. Í Stykkishólmi og í
Höfn í Hornafirði var meðalhitinn
2,0 stig.
Jákvætt hitavik miðað við síðustu
tíu ár var mest á Skarðsheiði, 1,3
stig, og 1,2 stig á Þverfjalli. Nei-
kvætt hitavik var mest á Sauðár-
króksflugvelli, -2,9 stig. Meðalhiti
mánaðarins var hæstur í Surtsey,
5,2 stig. Lægstur var hann -5,6 stig í
Sandbúðum. Í byggð var meðalhit-
inn lægstur í Möðrudal, -4,7 stig.
Hæsti hiti mánaðarins mældist
10,7 stig á Skjaldþingsstöðum hinn
15. Mest frost í mánuðinum mældist
-19,7 stig á Setri hinn 18. Mest frost í
byggð mældist -19,0 stig í Möðrudal
hinn 18. og í Svartárkoti hinn 27.
Í yfirlitinu kemur fram að snjólétt
var í mánuðinum. Alhvítt var einn
morgun í Reykjavík, sex færri en að
meðaltali 1971 til 2000. Á Akureyri
voru alhvítir dagar fjórir, ellefu
færri en í meðalári.
Mesta hægviðri á landinu í 67 ár
Meðalvindhraði í nóvember hefur ekki mælst minni síðan 1952 Jafnlangt er liðið síðan úrkoma á
Norðurlandi var jafn lítil og nú Meðalhiti í Reykjavík í nýliðnum nóvember var vel yfir meðallagi
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Svifrik Suma daga nóvember var svifryk langt yfir heilusfarsmörkum og þótti því yfirvöldum ástæða til að vara fólk við að vera nálægt umferðaræðum.
Hitamet fyrir desember féllu ræki-
lega í hlýindunum sem gengu yfir
landið á mánudag og þriðjudag í
þessari viku. Trausti Jónsson veð-
urfræðingur hefur gert metahrinuna
upp á Hungurdiskum á Mogga-
blogginu.
Nýtt hitamet fyrir desember var
sett á Kvískerjum í Öræfum á mánu-
dag, 19,7 stig. Gamla metið er frá
2001, sett á Sauðanesvita vestan
Siglufjarðar, 18,4 stig. Á mánudag-
inn fór hitinn í 19,0 stig í Bakkagerði
á Borgarfirði eystra og 18,7 stig í
Vestdal við Seyðisfjörð.
Dægurmet féllu á meira en 200
stöðvum – sumar stöðvanna hafa að
vísu athugað aðeins í örfá ár, segir
Trausti.
Desemberhitamet féllu eða voru
jöfnuð á 53 sjálfvirkum stöðvum sem
athugað hafa í tíu ár eða meira – og á
þremur mönnuðum.
Á Akureyri hefur hámarkshiti
verið mældur í um 80 ár. Hæsti hiti í
desember til þessa mældist þar 15,1
stig 21. desember árið 1964, en fór í
15,5 stig nú. Á sjálfvirku stöðinni við
Krossanesbraut á Akureyri fór hiti
nú í 16,5 stig. Hitamet desem-
bermánaðar féll einnig á Gríms-
stöðum á Fjöllum. Hiti á mönnuðu
stöðinni fór nú í 12,0 stig, en 12,4 stig
á þeirri sjálfvirku. Hæsti hiti til
þessa í desember mældist á Gríms-
stöðum þann 14. árið 1997, 11,5 stig.
Á fáeinum stöðum, þar sem nú eru
aðeins sjálfvirkar mælingar, var áð-
ur mælt á hefðbundinn hátt. Hiti fór
nú í 13,5 stig á Blönduósi, en hafði
hæst farið í 12,6 á mönnuðu stöðinni
sem lengi var þar. Met var sett á
sjálfvirku stöðinni á Brú á Jökuldal,
11,3 stig, en þar hafði hiti á mönnuðu
stöðinni farið í 12,0 stig. Svipað á við
um Fagurhólsmýri, metið á sjálf-
virku stöðinni þar nú (10,5 stig)
hreyfði ekki við gömlu meti þeirrar
mönnuðu (11,0 stig), segir Trausti.
sisi@mbl.is
Hitametin féllu
tugum saman
Nýtt hitamet í desember 19,7 stig
Morgunblaðið/Skapti
Skoraði hátt Frægur mælir á Ráð-
hústorginu á Akureyri fór í 15 stig.
sp
ör
eh
f.
Flórens, Sorrento, Amalfíströndin, eyjan Caprí og Assisi eru sannkallaðar
draumaperlur Ítalíu en kynngimögnuð fegurð þessara staða umvefur okkur í þessari
glæsilegu ferð. Við upplifum skemmtilega daga á meðan við fræðumst um sögu,
listir og mannlíf svæðisins. Skoðum m.a. eina af frægustu fornminjum veraldar í
Pompei og siglum til klettaeyjunnar Caprí og í Bláa hellinn.
Verð: 366.600 kr. á mann í tvíbýli. Mjög mikið innifalið!
Fararstjóri: Hólmfríður Bjarnadóttir
Vor 6
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 Reykjavík
8. - 21. apríl
Páskar í Flórens & Caprí