Morgunblaðið - 05.12.2019, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 05.12.2019, Qupperneq 16
VIÐTAL Guðrún Hálfdánardóttir guna@mbl.is Jón Atli Benediktsson, rektor Há- skóla Íslands, segir að vanda verði til verka ef stýra þarf aðgengi að skól- anum og þá myndi samræmt stúd- entspróf vera betri kostur en svokall- að A-inntökupróf sem notað hefur verið á undanförnum árum. Háskóli Íslands hefur á undan- förnum árum náð góðum árangri samkvæmt alþjóðlegum mælikvörð- um og sækir fram bæði á sviði rann- sókna og kennslu. Tryggja þarf að fjármögnun Háskóla Íslands sé í takt við það sem gerist í nágrannalöndum okkar eigi hann að standa undir þeim kröfum sem gerðar eru til hans sem alþjóðlegs rannsóknarháskóla, segir Jón Atli. Um mitt næsta ár rennur út skip- unartími hans í embætti rektors og hefur Jón Atli ákveðið að gefa kost á sér í embættið áfram. Hann segir ástæðuna bæði vera þá að vel hafi gengið og að mörg verkefni séu í gangi sem hann hefur áhuga á að sinna áfram. Ekki spilli fyrir að skól- inn sé á góðri siglingu og starfið skemmtilegt. Jón Atli Benediktsson er prófessor í rafmagns- og tölvuverkfræðideild og hefur starfað við Háskóla Íslands frá árinu 1991. Hann tók við embætti rektors Háskóla Íslands 1. júlí 2015. Vantar 12 milljarða Að sögn Jóns Atla er gott samstarf milli Háskóla Íslands og stjórnvalda. „Ríkisstjórnin stefnir að fjármögnun háskólastigsins sem er í samræmi við meðaltal OECD-ríkjanna og svo síð- ar meðaltal Norðurlandanna. Þegar hafi verið stigin mikilvæg skref. Auk- ið fjármagn inn í háskólakerfið und- anfarin ár var gríðarlega mikilvægt því háskólastigið var hreinlega í krísu eftir efnahagshrunið. En nú er brýnt að taka frekari skref til að upp- fylla ákvæði í sáttmála ríkisstjórn- arinnar, það er að árið 2025 verði framlög á hvern nemanda sambæri- leg við meðaltal Norðurlanda.“ Jón Atli bendir á að það sé nokkuð flókið verkefni því útfærslurnar eru ólíkar eftir löndum. „En okkar út- reikningar benda til þess að það skorti um 12 milljarða kr. ef miðað er við óbreyttan nemendafjölda til að ná þessu markmiði.“ Hann bætir við að miðað sé við að HÍ leggi sjálfur til einn þriðja af fjármögnun skólans í sjálfsaflafé, svo ríkisframlagið sé um 8 milljarðar. Þótt útreikningarnir séu flóknir bendir Jón Atli á að það sé þó óum- deilt að Ísland sé eftirbátur hinna Norðurlandanna þegar kemur að fjárfestingu í háskólastiginu. Sam- keppnishæfni Íslands er undir og fyrir Háskóla Íslands er algjörlega nauðsynlegt að við förum þangað. Gagnrýnisraddir hafa heyrst þar sem þetta er útgjaldamarkmið en Jón Atli segir: „Við getum ekki þróast áfram á meðan við erum hálf- drættingar eða jafnvel annað verra miðað háskóla sem eru sambærilegir okkar annars staðar á Norð- urlöndum, svo sem Háskólinn í Berg- en.“ Tveir af þekktustu matslistunum yfir bestu háskóla heims, Times Hig- her Education World University Rankings og Shanghaí-listinn svo- kallaði, hafa í haust staðfest alþjóð- legan styrk HÍ og stöðu hans sem rannsóknarháskóla. Háskóli Íslands hefur aldrei verið á fleiri listum Tim- es Higher Education yfir fremstu skóla heims á afmörkuðum fræða- sviðum, eða átta talsins. Háskóli Ís- lands er eini skólinn hér á landi sem kemst bæði Times Higher- og Shanghai-listana, samkvæmt upplýs- ingum á vef Háskóla Íslands. „Stóru fréttirnar hér eru að öll fræðasvið eru að mælast hátt á þess- um listum. Það er mjög mikilvægt fyrir íslenskt samfélag að hér sé svo stór og breiður háskóli með svo öfl- ugan hóp vísindamanna í fjölmörgum fræðigreinum, ekki síst nú þegar sí- fellt meiri áhersla er lögð á þver- fræðilegar rannsóknir. Við hjá Há- skóla Íslands verðum að halda áfram að ná árangri fyrir íslenskt sam- félag,“ segir Jón Atli og hann segir að leitað sé til skólans víða að auk þess sem margir óski eftir samstarfi við skólann. Orðið brýnt að gera betur Undanfarin ár hefur nemendum við Háskóla Íslands fjölgað jafnt og þétt, en stytting stúdentsprófsins hefur þýtt að stórir árgangar hafa verið að koma inn í skólann. Á sama tíma hefur nemendum í meistara- námi fjölgað gríðarlega í sumum greinum enda ekki lengur boðið upp á embættispróf í ákveðnum greinum heldur BA/BS og síðan meistaranám, alls fimm ár. „Það er orðið tímabært að við hlú- um betur að meistaranáminu við Há- skóla Íslands. Munur á doktors- og meistaranámi felst einkum í því að doktorsnámið er einstaklingsmiðað. Það þarf að taka fleiri námskeið á meistarastigi en einnig þar þarf tölu- verða sérhæfingu. Þetta þýðir að við þurfum bæði að fjölga námskeiðum og vera í alþjóðlegu samstarfi.“ Hann segir að þröngur kostur Há- skóla Íslands hafi komið í veg fyrir að hægt hafi verið að þróa meist- arastigið nægilega og nú sé það orð- ið brýnt. „Ég hef sagt að það sé mjög æski- legt að fólk fari til útlanda í nám þar sem það skilar aukinni fjölbreytni en við verðum að vera með þann val- kost að fólk geti menntað sig hér á landi. Auk þess erum við að fá hing- að fólk í nám erlendis frá í gegnum alþjóðlegt samstarf sem við erum í. Meistarnámið er afar mikilvægt námsstig hjá okkur og það þarf að efla,“ segir Jón Atli. Eitt af því sem mjög er rætt er stytting framhaldsskólans í þrjú ár sem tók gildi við flesta framhalds- skóla haustið 2015. Stytting náms- tíma til stúdentsprófs með því að stytta framhaldsskólann um eitt ár, er einhver mesta breyting sem gerð hefur verið á íslenska framhalds- skólakerfinu. Í nýrri skýrslu Samtaka atvinnu- lífsins er lagt til að skólaárum grunnskólans verði fækkað í níu með lengingu skólaársins. Það muni bæta námsrárangur, minnka umönn- unarbil, draga úr kennaraskorti, hækka ævitekjur, vega á móti nei- kvæðum afleiðingum öldrunar þjóð- arinnar, auka hagvöxt og stuðla að betri nýtingu fjár í kerfinu. Á sama tíma sýnir PISA- könnunin að árangur íslenskra ung- menna fer síst batnandi í alþjóð- legum samanburði. „Auðvitað er þetta áhyggjuefni. Þjóðir keppast við að fjárfesta í menntun til að stuðla að framþróun og tryggja lífsgæði. Við viljum að sjálfsögðu vera þjóð sem gerir slíkt hið sama og vísbendingar um að við þurfum að gera betur ber að taka mjög alvarlega. Sem betur fer höf- um við margt með okkur. Háskólar og stjórnvöld eru sem dæmi sam- stillt í átaki sínu til að auka aðstókn í kennaranám, en vel menntaðir kennarar eru algjör lykill í því að tryggja gæði kennslu á öllum skóla- stigum. Einnig held ég að sóknar- færi felist í því smæðinni, við höfum mörg tækifæri til að vinna vel saman á milli skólastiga og við þurfum að nýta þau tækifæri vel.“ Þurfum að hlúa betur að menntun  Ef Háskóli Íslands á að uppfylla þær kröfur sem gerðar eru til alþjóðlegra rannsóknarháskóla þarf hann aukið fé  Er í dag hálfdrættingur á við sambærilega skóla annars staðar á Norðurlöndum Ljósmynd Háskóli Íslands/Kristinn Ingvarsson Háskóli Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, ætlar að gefa kost á sér í embættið áfram þegar skipunartími hans rennur út á næsta ári Mikilvægi menntunar » Þjóðir keppast við að fjár- festa í menntun til að stuðla að framþróun og tryggja lífsgæði. Við viljum að sjálfsögðu vera þjóð sem gerir slíkt hið sama og vísbendingar um að við þurfum að gera betur ber að taka mjög alvarlega. » Samstillt átak hefur skilað aukinni sókn í kennaranám en vel menntaðir kennarar eru al- gjör lykill í því að tryggja gæði kennslu á öllum skólastigum. 16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 2019  Hægt er að lesa lengri útgáfu af viðtalinu við Jón Atla á mbl.is. Allar starfsstöðvar ríkisskattstjóraverða lokaðar föstudaginn6.desembervegna starfsmannafundar. StarfsstöðináEgilsstöðumverðureinnig lokuð fimmtudaginn5.desember. Viðskiptavinumer bent á að gagnlegar upplýsingar er að finna á rsk.is Til viðskiptavina ríkisskattstjóra
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.