Morgunblaðið - 05.12.2019, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 05.12.2019, Qupperneq 18
BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Staða efnahagsmála hefur breyst mikið á síðustu tólf mánuðum. At- vinnuleysi hefur aukist mikið og halli verður á rekstri ríkissjóðs. Fall flugfélagsins WOW air er ein helsta orsökin. Sumarið 2018 var erf- ið staða félagsins orðin ljós. Eigandi félagsins, Skúli Mogensen, efndi til skuldabréfaútboðs og leitaði eftir samstarfi við Icelandair. Úr því varð ekki. Undir lok síðasta árs virtist hins vegar kom- inn skriður á við- ræður WOW air við Indigo Partn- ers en um leið var ráðist í sársauka- fulla aðlögun. Þot- um WOW air var fækkað úr 20 í 11 og á fjórða hundr- að manns misstu vinnuna vegna nið- urskurðar sem greint var frá 13. des- ember í fyrra. Voru aðgerðirnar sagðar hluti af skilyrðum Indigo Partners. Það slitnaði hins vegar upp úr við- ræðunum og fimmtudaginn 28. mars hætti WOW air starfsemi. Spáin reynst rétt Hálfum mánuði fyrir gjaldþrotið fól Skúli Mogensen Reykjavík Economics að meta efnahagsleg áhrif af falli flugfélagsins. Magnús Árni Skúlason, hagfræð- ingur og framkvæmdastjóri Reykja- vík Economics, segir álitsgerðina hafa verið rétta í meginatriðum en Kári S. Friðriksson hagfræðingur var meðhöfundur álitsgerðarinnar. Reykjavík Economics áætlaði að verg landsframleiðsla gæti dregist saman um 0,9-2,7% í ár. Samkvæmt nýrri þjóðhagsspá Hagstofunnar stefnir í 1,9% minni hagvöxt í ár en útlit var í febrúar síðastliðnum. Þá töldu sérfræðingar Reykjavík Economics „afar ólíklegt […] að önnur flugfélög geti aukið, svo nokkru nemi, við framboð sitt í sum- ar með svo skömmum fyrirvara“. Horft var til kyrrsetningar Boeing Max-þotna sem kom hart niður á Icelandair. Magnús Árni segir aðspurður að Icelandair hafi náð góðum árangri í að fjölga farþegum. Jafnframt dvelji ferðamenn nú lengur á Íslandi í ferð- um sínum en áður. Á hinn bóginn er niðurstaðan sú að í stað 2,5 milljóna erlendra ferðamanna stefnir í 2 milljónir ferðamanna í ár. Nýju hótelin voru byggð til að mæta fyrirhugaðari fjölgun. Jafnframt spáðu skýrsluhöfundar því að gengi krónunnar myndi gefa eftir með falli WOW air. „Ef til brottfalls WOW air kæmi eru allar líkur á að krónan myndi veikjast. Slík veiking kæmi fram í hækkun innflutningsverðs og aukinni verð- bólgu með tilheyrandi áhrifum á verðtryggð lán heimila og fyrir- tækja,“ skrifuðu skýrsluhöfundar. Raunin er hins vegar að gengi krónu var á þriðjudaginn skráð 2% sterkara en daginn sem WOW féll. Vextir hafa lækkað og verðtryggð lán aldrei verið hagstæðari. Sú spá Reykjavík Economics að veikara gengi gæti komið ferðaþjón- ustunni og öðrum útflutningsgrein- um til góða hefur því ekki ræst. Að sögn Magnúsar er helsta ástæða þess að gengið gaf ekki eftir sterk erlend staða þjóðarbúsins en hrein staða við útlönd nam 24,5% af VLF í lok þriðja ársfjórðungs, skv. tölum Seðlabanka Íslands. Áframhaldandi jákvæður viðskiptajöfnuður og traust erlendra aðila á íslenska hag- kerfinu, sbr. nýlegt lánshæfismat Standard & Poors, styðji við gengið. Yrði högg fyrir hótelin Þá höfðu skýrsluhöfundar uppi varnaðarorð varðandi hótelgeirann. „Ef dregur snögglega úr sæta- framboði til landsins er ljóst að það myndi kreppa að í hótelrekstri. Verið er að reisa fjölda hótela á höfuðborgarsvæðinu og er áætlað að um 1.300 hótelherbergi séu í bygg- ingu,“ skrifuðu þeir og bentu á möguleg áhrif á verslunarrekstur, bílaleigur og tengdar atvinnugrein- ar. Eins og fram kom í Morgun- blaðinu 19. nóvember hefur framboð á gistingu verið umfram eftirspurn og það leitt til verðlækkana. Tvö stór hótel koma á markað í Reykjavík á næsta ári, á Héðinsreit og við Hörpu, og mun samkeppnin því að óbreyttu harðna enn frekar. Þá hefur rekstri verslana í mið- borginni verið hætt og bílaleigur sameinast eða farið í þrot vegna minnkandi eftirspurnar. Eftirspurn- in reyndist undir væntingum. Birtist þetta ef til vill skýrast í því að störfum í ferðaþjónustu hefur fækkað um rúmlega 2.500 í ár. Sú fækkun er í takt við miðspá Reykjavík Economics. Fyrirtækið fjallaði jafnframt um möguleg áhrif á markað með at- vinnuhúsnæði. Áföll á þeim markaði gætu haft áhrif á fjármálastöðug- leika og efnahag bankakerfisins. Má segja að áhrifin af falli WOW air hafi mögulega birst með skýrari hætti á markaði með íbúðarhúsnæði í miðborginni. Seðlabankinn vísaði í haustbyrjun til fjölda óseldra, nýrra íbúða í miðborginni þegar gerð var grein fyrir enn einni vaxtalækkun. En eins og Magnús Árni hefur bent á hafði fall WOW air mikil áhrif á Airbnb-markaðinn á svæðinu. Áhrifin af falli WOW í takt við spá  Spá Reykjavík Economics um samdrátt í landsframleiðslu vegna falls flugfélagsins hefur gengið eftir  Sama gildir um vinnumarkaðinn  Hins vegar hefur gengið ekki gefið eftir með falli flugfélagsins Morgunblaðið/Hari Kólnun Þota WOW air, TF SKY, á Keflavíkurflugvelli. Fall félagsins leiddi til kólnunar í hagkerfinu. Áhrifi n af falli WOW air Spá Reykjavík Economics og staðan nú *Launþegum í einkennandi greinum ferðaþjónustu fækkaði úr 31.380 í 28.840, eða um 2.540, skv. Hagstofunni. **Breyting á gengisvísitölu frá 28.3.2019 til 3.12.2019. Krónan styrktist um 2%. Magnús Árni Skúlason 18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 2019 Samkvæmt tölum Vinnumálastofn- unar mældist 3,4% atvinnuleysi á Suðurnesjum í október í fyrra. Var það mesta atvinnuleysið á landinu. Alls voru 4.235 einstaklingar á atvinnuleysisskrá í mánuðinum. Samkvæmt októberskýrslu Vinnumálastofnunar í ár voru þá 7.039 einstaklingar án vinnu. Atvinnuleysi var mest á Suður- nesjum í október eða 7,3% og jókst um 1 prósentustig milli mánaða. Staðan í landshlutanum sem þjónustar Keflavíkurflugvöll hefur því versnað mikið á einu ári. Meðal annars hefur fyrirtækið Airport Associates þurft að rifa seglin en það þjónustar flugfélög. Skýrsluhöfundar RE rifjuðu upp að AA sagði upp 237 af 500 starfs- mönnum í nóvember 2018 vegna óvissu um rekstur WOW air. Það endurréð svo 156 í janúar sl. en fækkaði svo fólki við fall WOW. Aðflutningurinn jókst Eins og fram kom í Morgun- blaðinu 5. nóvember hafði gjald- þrot WOW air minni áhrif á bú- ferlaflutninga en jafnvel var talið. „Flugfélagið WOW air hætti starfsemi 28. mars sl., eða í lok fyrsta ársfjórðungs. Aðflutningur erlendra ríkisborgara dróst svo saman á öðrum fjórðungi sem benti til viðsnúnings í þessu efni. Aðflutn- ingurinn jókst hins vegar um 50% á þriðja fjórðungi, fór úr 2.070 í 3.050 erlenda ríkisborgara. Virðist niður- sveiflan því ekki ætla að hafa merkjanleg áhrif á áhuga erlendra ríkisborgara á að flytja til lands- ins,“ sagði í frétt blaðsins. Um 7.500 erlendir ríkisborgarar fluttu til landsins fyrstu 9 mánuði ársins og voru aðfluttir 4.200 fleiri en brottfluttir á tímabilinu. Morgunblaðið/Eggert Við Leifsstöð Starfsmaður Airport Associates afgreiðir flugfarangur. Áhrifin á aðflutning minni en talið var  Fjölgun innflytjenda eftir fall WOW Opið virka daga kl. 11-18, laugardaga kl. 12-16Listhúsinu við Engjateig, 105 Reykjavík, sími 551 2050 LISTHÚSINU Fallegar aðventuskreytingar og hurðakransar
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.