Morgunblaðið - 05.12.2019, Page 22

Morgunblaðið - 05.12.2019, Page 22
Ljósmynd/Lovísa Tómas Í fánalitunum Lovísa hefur verið aðalhönnuður Siggu Kling í þrjú ár og hannaði meðal annars þennan glæsilega fánakjól og hattinn með. Morgunblaðið/Eggert Klæðskerinn Sigga lofar Lovísu Tómas, klæðskerann sinn í hástert, en hún var að opna klæðskerabúð á Laugavegi ásamt Írisi vinkonu sinni. SVIÐSLJÓS Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is „Ég elska jólin og allt sem tengist þeim“ segir spákonan Sigríður Kling, eða Sigga eins og hún er oft- ast kölluð. Hún segir að áður fyrr hafi jólatíðin hennar hafist 24. októ- ber, og hún hafi byrjað að skreyta húsið þá og jafnvel boðið til jóla- veislu, þó að enn væru tveir mánuðir til jóla. „Ég bauð upp á hangikjöt og malt og appelsín,“ segir Sigga og bætir við að heimili hennar hafi verið mikið skreytt í tilefni jólanna, líkt og Rammagerðin í Hafnarstræti var í gamla daga. Hún bætir við að hún hafi nú aðeins dempað sig niður í seinni tíð. „Ég skreytti svona mikið því ég elska ljósið og elska að hafa ljós í kringum mig. Ég hef alltaf svo of- boðslega mikið af ljósum í kringum mig að ég held að ég borgi hæsta rafmagnsreikninginn á Álftanesi, allavegana miðað við höfðatölu á hús,“ segir Sigga. „Og ég spila jólalög hvenær sem ég vil komast í gott skap,“ segir hún, en jólalög Baggalúts eru nú í uppá- haldi, sem og gömlu góðu jólalögin sem hún syngur með barnabörn- unum sínum. „Þegar maður syngur og hlusta á eitthvað skemmtilegt lyftist brúnin, og ég fer jafnvel að taka til þegar ég heyri jólalag, jafn- vel þótt það sé um hásumar!“ segir Sigga og spyr hvort það sé yfirhöfuð hægt að vera í vondu skapi þegar hlustað er á jólalög. Alltaf reiðubúin í afmæli Það fylgir auðvitað jólunum að klæða sig upp á, og það getur skipt máli að eiga réttu fötin. Sigga segir það ekki vandamál fyrir sig, því hún sé alltaf tilbúin til að fara í fimm- tugsafmæli. „Ég er alltaf í spariföt- unum, því það er minn sparidagur og spariklukkutími.“ Sigga segir að vinkona sín, Lovísa Tómas, hafi reynst henni ómetanleg stoð og stytta. „Hún er 26 ára klæð- skeri sem var að opna búð á Lauga- veginum ásamt Írisi vinkonu sinni, og þegar ég kem þangað til að láta hana hanna á mig eitthvað skemmti- legt og skrýtið, get ég líka fengið förðun og hárgreiðslu,“ segir Sigga og lætur mjög vel af, en Lovísa hefur verið aðalhönnuðurinn hennar síð- ustu þrjú árin og er að sögn Siggu einstaklega lunkin að búa til hatta. „Þær gera þetta svolítið öðruvísi,“ segir Sigga um búðina á Laugaveg- inum. Það sé töfrum líkast að koma þar við, fá sér piparkökur, láta hanna kjól og fá förðun og hár á sama stað. „Þetta konsept er svo skemmtilegt og ég elska alla sem gera líf mitt aðeins skemmtilegra, og þar er hún Lovísa í fyrsta sæti.“ Eigum að taka lífinu með ró Sigga er líklega þekktust fyrir spásagnargáfu sína, en hún sér nú um hina mánaðarlegu stjörnuspá mbl.is. Jólaspáin er nú komin inn á vefinn og það er því ekki úr vegi að spyrja Siggu hvernig jólamánuður- inn desember líti út í spákortunum. „Þar sem fullveldisdagur Íslend- inga er 1. desember, þá kemur út úr talnaspekinni talan 7, sem er hjá mörgum talin heilög tala. Það segir okkur landsmönnum að taka lífinu bara með ró í þessum mánuði, og Með hæsta rafmagns- reikninginn  Sigga Kling elskar jólin  Fær fötin sín hjá Lovísu Tómas  Jólaspáin segir að við eigum að taka jólunum með ró Morgunblaðið/Eggert Tilbúin í jólin Sigríður Kling er mikið jólabarn og því fylgir að fara í réttu jólafötin, líkt og þennan „sveinkukjól“. njóta mínútunnar sem þú lifir í,“ segir Sigga. „Allt sem tengist ást, fjölskyldu, samveru og að gefa tímann sinn er það sem skiptir máli í þessum mán- uði,“ segir Sigga og leggur áherslu á gildi þolinmæðinnar. „Allur hraði og mikil græðgi getur hreinlega gefið okkur erfiðleika sem við þurfum alls ekki á að halda í þessum dásamlega jólamánuði.“ Hún bætir við að fólk eigi til að hugsa um of fram í tímann í þessum mánuði og jafnvel valda sér óþarfa áhyggjum vegna þess. „Í hverju á ég að vera og hvert á ég að fara? En þetta kemur allt ef við sleppum tök- unum,“ segir Sigga, „og skreytum 24. október“ bætir hún við með bros á vör. Þá skipti ekki öllu máli að eyða sem mest í flottar gjafir. „Þetta kemur allt, og maður finnur alltaf hvað á að gefa, jafnvel þótt fjárráðin séu ekki mikil,“ segir Sigga og bætir við að dýrmætustu gjafirnar sem hún hafi fengið frá börnunum sínum hafi verið handskrifuð bréf sem þau römmuðu inn og gáfu móður sinni. „Ég hef átt þessar gjafir alla mína ævi, því að orð eyðast aldrei, en dýr- asta dótið, það endar sem drasl,“ segir Sigga, en hún var að opna nýja vefsíðu, siggakling.is, fyrir þá sem vilja hafa samband. 22 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 2019 m. POWERSTATE™ mótor. REDLINK PLUS™ yfirálagsvörn. REDLITHIUM-ION™ rafhlaða. Sveigjanlegt rafhlöðukerfi sem virkar með öllum Milwaukee® M18™ rafhlöðu M18 FCS66 Alvöru hjólsög fráMilwaukee vfs.is VERKFÆRASALAN • SÍÐUMÚLA 9, REYKJAVÍK • DALSHRAUNI 13, HAFNARFIRÐI • DALSBRAUT 1, AKUREYRI • S: 560 8888

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.