Morgunblaðið - 05.12.2019, Blaðsíða 28
28 FRÉTTIRTækni
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 2019
VILTU TAKAVIÐ
GREIÐSLUMÁNETINU?
KORTA býður uppá fjölbreytta þjónustu sem hentar
bæði minni og stærri fyrirtækjum. Kannaðu málið.
Suðurlandsbraut 30, 108 Reykjavík, 558 8000 / korta@korta.is / korta.is
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Sjö ár eru liðin frá því bandaríski
flugvélaframleiðandinn Boeing
hleypti af stokkunum verkefni undir
yfirskriftinni ecoDemonstrator
(ecoD). Felst það í að fyrirtækið tek-
ur þotu úr smiðju sinni undir rann-
sóknastarf sem ætlað er að auka hag-
kvæmni í flugrekstri og draga úr
neikvæðum umhverfisáhrifum af
völdum þess.
Allt frá upphafi hefur verkefnið
verið rekið í samstarfi við fjölda fyr-
irtækja og frumkvöðla sem vinna að
þróun tæknibúnaðar sem nýst gæti
til að ná fyrrgreindum markmiðum.
Þannig telja stjórnendur Boeing að
með því að leiða saman ólíka hags-
munaaðila og hugvit víðs vegar að,
megi finna lausnir á flóknum áskor-
unum, sem ekki væru líkur til að
fyrirtækið gæti eitt og sér, þrátt fyr-
ir mikil umsvif og mannauð, leyst
jafn vel af hendi.
Fimm þotur fram að þessu
Fyrsta árið var verkefnið unnið í
samstarfi við American Airlines sem
lagði til Boeing 737-800-vél. Það ár
var vélin nýtt til prófana á 14 tækni-
nýjungum sem taldar voru geta lagt
lóð á vogarskálar verkefnisins. Þar
var m.a. notast við eldsneyti sem
blandað var sjálfbæru flugvélaelds-
neyti (e. sustainable aviation fuel).
Tveimur árum síðar tók fyrirtækið
787 Dreamliner undir verkefnið og
voru þá 35 tækninýjungar prófaðar
og var þar meðal annars horft til
tækni sem dregur úr hljóðmengun
frá vélunum. Ári síðar var notast við
Boeing 757-vél sem komin var til ára
sinna. Með útgerðinni það árið voru
20 tækninýjungar prófaðar. Að próf-
ununum loknum var vélin rifin og
90% þess sem þar féll til var endur-
unnið.
Árið 2016 efndi Boeing til sam-
starfs við brasilíska flugvélaframleið-
andann Embraer og voru þá sex
verkefni prófuð á E170-vél. Tveimur
árum síðar keypti Boeing fyrirtækið.
Í fyrra notaðist Boeing við 777-
breiðþotu frá FedEx Express sem
sömuleiðis var samstarfsaðili að
verkefninu. Þar voru 37 mismunandi
tækninýjungar prófaðar og var það í
fyrsta sinn sem farþegavél var flogið
á 100% blöndu af sjálfbæru þotuelds-
neyti.
Ný þota en gömul þó
Nú hefur Boeing ýtt nýrri rann-
sóknarþotu úr vör. Þar er reyndar á
ferðinni gömul 777-breiðþota sem áð-
ur var í þjónustu kínversks flug-
félags. Vélinni var í liðinni viku flogið
frá Seattle í Bandaríkjunum til
Frankfurt í Þýskalandi og fékk
blaðamaður Morgunblaðsins tæki-
færi til að kynna sér þotuna og þær
prófanir sem hún mun stunda á ýms-
um tækninýjungum á komandi mán-
uðum.
Tæknin skilar sér alla leið
Í samtali við Doug Christensen,
einn af forsvarsmönnum verkefn-
isins, kom fram að af þeim 112 tækni-
lausnum sem prófaðar hafa verið
hefur Boeing ákveðið að taka 41 í
notkun. 50 verkefni eru enn til skoð-
unar en fallið hefur verið frá frekari
rannsóknum á 21 verkefni. Segir
hann að í því felist mjög jákvæð tíð-
indi hversu mörg tilraunaverkefni
hafi sannað sig. Það gefi vonandi fyr-
irheit um framhaldið.
Byltingarkenndar lausnir
Meðal þess sem verið er að prófa í
ecoD að þessu sinni er ný tegund
hvirfla (e. vortex generators). Þeir
hafa þá eiginleika að í flugtaki og
lendingu er loftinu sem leikur um
vænginn að ofanverðu beint í gegn-
um þá. Við það rofnar loftflæðið við
vænginn aftar en ella hefði verið.
Með því eykst lyftigeta vængsins til
muna.
Sá ókostur fylgir hvirflunum að
þeir auka loftmótstöðu á meðan vélin
heldur fullri flughæð. Af þessum sök-
um hefur Boeing nú til prófunar
hvirfla sem eru gæddir þeim eig-
inleikum að þeir leggjast niður og að
vængnum þegar komið er upp í hita-
stig háloftanna (mínus 50-70 gráður
á celsíus).
Málmblandan sem þeir eru gerðir
úr breytir um lögun (e. shape me-
mory) þegar komið er í mikinn kulda
með fyrrgreindum afleiðingum.
Telja sérfræðingar Boeing að þessir
byltingarkenndu hvirflar muni
draga úr eldsneytisnotkun og að
sennilega muni þessi tækni nýtast á
flestum ef ekki öllum tegundum flug-
véla sem á annað borð notast við
hvirfla.
Minnka afföll í fraktflutningum
Viðkvæm vara af ýmsu tagi er
gjarnan flutt með flugvélum. Á það
ekki síst við um matvöru sem hefur
stuttan endingartíma. Þar á meðal
má nefna ávexti og grænmeti og
ferskan fisk en hvort tveggja er flutt
í miklum mæli með flugi til og frá Ís-
landi.
Lengi hefur sá Akkilesarhæll fylgt
þessari flutningsleið að hitabreyt-
ingar hafa kostað talsverð afföll af
því sem flutt er. Nefna sérfræðingar
Boeing að slík afföll nemi í sumum
tilvikum allt að 30% af heildar-
umfangi flutninganna.
Því er til mikils að vinna ef hægt
er að þróa búnað sem tryggir jafnt
og rétt hitastig vörunnar, alveg frá
því að hún er afhent á flugvelli, henni
komið um borð og þar til hún kemst í
hendur viðtakenda að flugi loknu.
Meðal þeirra tækninýjunga sem til
prófunar eru í EcoD-vélinni að þessu
sinni eru flutningsgámar (sem oftast
er notast við í stærri þotum á borð
við 777- og 767-þotur á borð við þær
sem Icelandair er með í þjónustu
sinni).
Fjölmargar aðrar tækninýjungar
eru til prófunar að þessu sinni.
Nokkrum þeirra eru gerð frekari
skil í grein á mbl.is.
Vilja draga verulega úr losun
Boeing leitar leiða til þess að draga úr umhverfisáhrifum af völdum farþegaflugs Fimmta rann-
sóknarvélin komin í loftið Af gerðinni Boeing 777 Prófa 50 tækninýjungar sem talið er að geti nýst
Boeing 777-breiðþotan er engin smásmíði. Vélin var áður í þjónustu kínversks flugfélags en hefur
nú verið breytt til þess að þjóna ecoDemonstrator-verkefninu. Innanrýmið vitnar þar helst um.
Morgunblaðið/Stefán E. Stefánsson
777 Vélin er hlaðin búnaði. Meðal þess sem nú er prófað eru geislar sem afla upplýsinga og
gera Boeing betur kleift að hámarka orkunýtingu og draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum.
Verkefnið í
hnotskurn
Frá árinu 2012 hefur
ecoDemonstrator tekið
112 tækninýjungar
til prófunar í fimm
flugvélum.
Ríflega þriðjungur
þeirra nýjunga sem
prófaðar hafa verið
um borð í ecoDemon-
strator eru nú
skilgreindar tilbúnar
til notkunar.
Í ecoDemonstrator 2019 verða
50 tækninýjungar prófaðar á Boeing 777
breiðþotu. Meðal þeirra eru…
18 snjalllausnir sem
ætlað er að auka
skilvirkni og þægindi
farþega.
13 nýjar tæknilausnir
fyrir flugstjórn og
flugstjórnarbúnað sem
auka öryggi og afköst.
7 nýjar tæknilausnir er
varða efnisnotkun um
borð í vélum sem ætlað
er að gera flugvélar
léttari og umhverfis-
lega betri.
4 tækninýjungar sem
ætlað er að bæta
loftflæði og stjórnbúnað
flugvéla og draga með
því úr orkunotkun.
Boeing í leit að lausnum