Morgunblaðið - 05.12.2019, Qupperneq 37
Einstakt Margt af því sem finna má í búðinni
fæst hvergi annars staðar á landinu.
Þegar Yusuf Koca opnaði matvöruverslunina
Istanbul Market í Ármúla grunaði hann að
samfélag Tyrkja á Íslandi væri ekki nógu
stórt til að geta borið uppi heila verslun.
Hann breikkaði því vörumframboðið og bætti
við matvælum frá Balkanskaganum, og segir
það hafa legið beinast við enda má finna
marga sameiginlega þræði í matarmenningu
þessara þjóða. Það sem Yusuf hafði ekki
reiknað með, var hvað Íslendingar myndu
vera duglegir að heimsækja búðina:
„Ætli tyrknesk vara myndi ekki í kringum
helminginn af vöruúrvalinu, og Íslendingar
mynda hér um bil helminginn af við-
skiptavinahópnum,“ segir Yusuf sem kom
fyrst til Íslands árið 2001. Föðurbróðir hans
hafði þá búið á Íslandi um langt skeið og fór
svo að Yusuf skaut hér líka rótum. Konan
hans, hún Negla, fylgdi Yusuf til landsins og
skipta þau með sér verkum í búðinni.
Rekstur Istanbul Market hófst árið 2011
og hefur starfsemin gengið prýðilega. Komið
er að tímamótum hjá búðinni því fram undan
eru flutningar í stærra húsnæði á Grens-
ásvegi 10. „Verslunarrýmið stækkar úr u.þ.b.
150 fermetrum upp í liðlega 220 og fyrir vikið
munum við geta fjölgað vörutegundum okkar
úr 500 eða 600 upp í rúmlega 800,“ segir Yu-
suf og hlakkar m.a. til að auka framboðið á
baklava-bakkelsi og ostum. „Hver veit nema
flutningarnir skapi líka réttar forsendur til að
flytja inn og selja kjötvöru,“ segir hann.
Þekking og fræðsla
Íslensku viðskiptavinirnir virðast einkum á
höttunum eftir geitaosti, hunangi, ólífum og
kryddum. „Sumir hafa ferðast til Tyrklands
og kynnst þar tyrkneskri matargerð, en aðrir
hafa rambað á uppskriftir og vantar hráefni
sem ekki er hlaupið að því að finna í venju-
legri íslenskri matvöruverslun,“ segir Yusuf
og hreykir sér góðlátlega af því að leitun sé
að búð þar sem finna má annað eins úrval af
tei og kryddi í hæsta gæðaflokki – og það á
mjög hagstæðu verði.
En er ekki hætt við því, ef sérverslun með
matvöru gengur svona vel, að stórmark-
aðirnir einfaldlega bæti við hjá sér einum hill-
urekka af tyrkneskum ostum og öðru hnoss-
gæti og sölsi þannig undir sig allan
markaðinn? Yusuf segir alls ekki að því
hlaupið fyrir aðra að selja þessa vöru svo vel
sé. Hann nefnir sem dæmi tahini-mauk, sem
gert er úr sesamfræjum og er ómissandi hrá-
efni í rétti á borð við hummus, baba ganoush
og halva. „Það má finna tahini í öðrum versl-
unum, en það sem við seljum er langbest.
Fólk sem hefur smakkað okkar vöru og það
sem aðrir selja finnur muninn mjög greini-
lega og gildir það um allt okkar vöruframboð
að það eru gæðin og gott verð sem tryggir að
fólk leggur leið sína til okkar aftur og aftur,“
segir hann. „Við þekkjum vörurnar út og inn
og getum leiðbeint viðskiptavinum og frætt
þá t.d. um geitaostsframboðið og hvernig má
matreiða úr ostinum – sem er þjónusta sem
fólk fær ekki við ostakælinn í lágvöruverðs-
verslun.“
Þá er ekki auðvelt að flytja sérvöruna inn
og hluti af starfi Yousefs að greiða úr flókn-
um vef framleiðenda og birgja og glíma um
leið við alls kyns innflutningshindranir. Þann-
ig þætti honum gaman að flyta inn fleiri osta,
en umstangið er mikið og tollarnir háir. Þá
væri gaman að selja áfenga drykki eins og
tyrkneska þjóðardrykkinn raki, en lögin leyfa
ekki sölu áfengis í matvöruverslunum auk
þess sem opinber gjöld myndu margfalda
verðið á flöskunni. „Við erum oft spurð um
halal-kjötvöru, en illgerlegt er að flytja inn
þannig landbúnaðarvöru. Væri samt gaman
að geta boðið upp á þó ekki væri nema halal-
kjúkling, og kannski pastirma-álegg úr nauta-
kjöti.“ ai@mbl.is
Helmingur viðskiptavina Íslendingar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Framboð Negla og Yusuf undirbúa núna flutninga í stærra húsnæði þar sem bætt verður við vöruúrvalið. Verslunin þjónar breiðum hópi fólks.
FRÉTTIR 37Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 2019
n getur minnkað
gum, hvarmabólgu og
ð áhrif á augnþurrk,
roða í hvörmum/
og vanstarfsemi í
.
stu apótekum og Eyesland gleraugnaverslunum
Augnhvíla
þreytu í au
haft jákvæ
vogris, rós
augnlokum
fitukirtlum
Augnheilbrigði
Fæst í hel
Augnhvíla
Dekraðu við augun
Margnota
augnhitapoki
Frábær
jólajöf