Morgunblaðið - 05.12.2019, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 05.12.2019, Blaðsíða 39
FRÉTTIR 39Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 2019 Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Larry Page og Sergey Brin hafa látið af daglegum störfum á vett- vangi Alphabet, móðurfélags Go- ogle. Þeir stofnuðu fyrirtækið í kringum rannsóknarverkefni fyrir rúmum tveimur áratugum en það varð síðar þekkt undir nafni leit- arvélarinnar Google. Page og Brin voru á þeim tíma nemendur við Stanford-háskóla í Bandaríkjunum. Þrátt fyrir hina breyttu stöðu munu Page og Brin áfram sitja í stjórn Alphabet en þeir stýra sam- eiginlega um 51% atkvæða á hluta- hafafundum fyrirtækisins. Alpha- bet er í dag númer 17 á lista yfir stærstu skráðu fyrirtæki heims samkvæmt samantekt Forbes. Markaðsvirði félagsins nemur tæp- um 900 milljörðum dollara, jafnvirði tæplega 11 þúsund milljarða króna. Hinn gríðarlegi vöxtur fyrir- tækisins á síðustu árum hefur skot- ið þeim félögum, sem urðu 46 ára fyrr á þessu ári, upp á lista yfir rík- ustu menn í heimi. Samkvæmt lista sem Forbes heldur úti yfir auðug- asta fólk veraldar verma þeir sæti 10 og 14. Þannig eru auðæfi Page metin á 50,8 milljarða dollara, jafn- virði 6.200 milljarða króna og eignir Brin eru litlu minni eða 49,8 millj- arðar dollara, jafnvirði tæplega 6.100 milljarða króna. Þetta er ekki fyrsta skrefið sem stofnendur Google taka í þeirri við- leitni að afhenda keflið áfram til nýrra stjórnenda. Þannig var Sund- ar Pichai kynntur til sögunnar sem nýr forstjóri Google árið 2015 þegar Page lét af því starfi og tók við for- stjórastöðunni hjá Alphabet, móð- urfélaginu. Nú hefur Pichai einnig tekið við stjórnartaumunum í Alphabet. Í sameiginlegri tilkynn- ingu frá Page og Brin í tengslum við vistaskiptin sögðu þeir m.a. að þeir hefðu „aldrei verið uppteknir af því að halda í stjórnunarstöður þegar við teljum að betri leiðir séu færar til þess að reka fyrirtækið“. Pichai tók við forstjórastarfinu fyr- ir ríflega fjórum árum þegar talið var að fyrirtækið þyrfti á nýrri for- ystu að halda. Page var sem for- stjóri lítt upptekinn af daglegum rekstri fyrirtækisins og fól ábyrgð- ina á þeim málum í miklum mæli lægra settum stjórnendum. Hann lagði í starfi sínu meiri áherslu á víðtækari stefnumótun fyrir fyrir- tækið, m.a. fyrirætlanir þess um landvinninga á sviði sjálfkeyrandi bifreiða. Þá greinir FT frá því að Brin hafi á sama tíma varið orku sinni í verkefni sem ekki tengdust starfsemi Google með beinum hætti. Þar er m.a. nefnd þróun Glass, sem eru snjallgleraugu sem hægt er að beita í svokölluðum blandveruleika (e. augmented rea- lity) en einnig hægt að taka upp myndbönd með. Sergei Brin er fæddur í Sovétríkjunum. Hann fluttist með fjölskyldu sinni til Bandaríkjanna þegar hann var sex ára gamall. Hann er bandarískur ríkisborgari. Larry Page er fæddur í Michigan Bandaríkjunum, af bandarísku for- eldri. AFP Nánir samstarfsmenn Larry Page og Sergey Brin hafa lengi starfað sam- an. Myndin var tekin af þeim 2004 þegar Google var við það að taka flugið. Stofnendur Google stíga til hliðar  Sergey Brin og Larry Page láta af daglegum störfum  21 ári frá stofnun félagsins  Í hópi ríkustu manna heims  Ráða enn lögum og lofum í móðurfélaginu, Alphabet Úrvalsvísitala Kauphallarinnar hækkaði um 7,7% í nóvember sam- kvæmt viðskipta- yfirliti Nasdaq. Hún hefur hækk- að um 32% það sem af er ári og stendur nú í 1.978 stigum. Í nóv- ember námu heildarviðskipti með hlutabréf 64,3 milljörðum króna, sem nemur tæp- um 3,1 milljarði króna á dag og er það 12% meira en í sama mánuði í fyrra og 46% hækkun frá fyrri mán- uði er viðskipti námu 2,1 milljarði króna á dag. Viðskipti með hlutabréf Marels voru mest, 8,6 milljarðar. Næst komu viðskipti með bréf Fest- ar og Arion banka, 5,9 milljarðar, en velta með bréf Símans nam 4,9 millj- örðum og bréf Haga 4,1 milljarði. Á aðalmarkaði Kauphallarinnar var Ís- landsbanki með mestu hlutdeildina, 22,9%, Arion banki með 22,6% og Kvika banki 14,2%. Heildarmark- aðsvirði á aðalmarkaði og First North nam 1.233 milljörðum króna. Úrvalsvísi- talan hækk- aði um 7,7%  64 milljarða velta Velta jókst um 46% á milli mánaða. TM, Síðumúla 24, 108 Reykjavík · 515 2000 · tm.is Umsókn um að ný hlutabréf verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland Forgangsréttarútboð og almennt útboð á 93.750.000 nýjum hlutum í TM Heildarfjöldi útgefinna hluta í TM hf. (“TM”) er 678.142.669 og hyggst félagið gefa út 93.750.000 nýja hluti til viðbótar. Hver hlutur er 1 króna að nafnverði og hafa hlutirnir verið gefnir út í samræmi við íslensk lög. Viðskipti með hina nýju hluti verða í kerfum Nasdaq Iceland undir auðkenninu TM (ISIN: IS0000000586). Bæði forgangsréttarútboðið og almenna útboðið lúta reglum laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti varðandi almenn útboð. Í auglýsingu þessari er hugtakið “útboð” notað sem samheiti um útboðin tvö. Útboð 9.-12. desember TM hf. hyggst selja nýja hluti í útboðinu. Markmið útboðsins er fjármögnun á kaupum TM á öllu hlutafé Lykils fjármögnunar hf. Stærð útboðsins nemur 93.750.000 hlutum eða sem nemur 13,8% af útistandandi hlutafé í félaginu. Heildarsöluandvirði útboðsins mun nema 3,0 milljörðum króna, fáist áskrift að öllum þeim hlutum sem boðnir eru til sölu í útboðinu. Útboðið nær til nýrra hlutabréfa í félaginu og skiptist í tvennt: 1. Forgangsréttarútboð til hluthafa í TM 2. Almennt útboð til íslenskra fjárfesta Allir hlutir í útboðinu verða seldir á sama útboðsgengi sem verður 32,0 kr. á hlut eða sem samsvarar 9,1% afslætti af dagslokaverði hlutabréfa TM á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. þann 3. desember 2019. Forgangsréttar- hafar að hinum nýju hlutum TM eru þeir aðilar sem skráðir eru hluthafar TM kl. 17:00 (GMT) þann 12. desember 2019 og þeir aðilar sem fengið hafa forgangsrétt framseldan til sín og tilkynnt hafa um framsalið fyrir þann tíma samkvæmt reglum útboðsins. Seljandi mun fyrst úthluta hinum nýju hlutum til þeirra aðila sem njóta forgangs- réttar. Verði enn nýjum hlutum í TM óúthlutað eftir úthlutun til forgangsréttar- hafa, verður þeim úthlutað í almenna útboðinu og mun útgefandi einhliða ákveða hvernig úthlutun þessara hluta verður háttað. Gert er ráð fyrir að niðurstöður útboðsins verði birtar opinberlega 13. desember 2019. Eindagi kaupverðs í útboðinu er áætlaður þann 17. desember 2019 og er gert ráð fyrir að hinir nýju hlutir verði teknir til viðskipta og að viðskipti með þá hefjist þann 18. desember 2019. Arion banki hefur umsjón með útboðinu og er einnig söluaðili í útboðinu. Helstu skilmálar útboðsins: Engin lágmarksfjárhæð er á áskriftum í forgangsréttarútboðinu Hver áskrift í almenna útboðinu skal vera að lágmarki 100.000 kr. Tekið verður við áskriftum á vef Arion banka hf. (www.arionbanki.is/ tm-utbod) frá 9. desember 2019 kl. 10:00 (GMT) til 12. desember 2019 kl. 17:00 (GMT) Fjárfestar hafa heimild til að bæta við áskrift sína eða fella hana niður á útboðstímabilinu Aðstoð vegna útboðsins má nálgast hjá verðbréfa- og lífeyrisráðgjöf Arion banka í síma 444-7000 milli kl. 09.00 og 16.00 dagana 9. desember til 12. desember 2019 og tölvupóstfanginu tm-utbod@arionbanki.is Minnt er á að fjárfesting í hlutabréfum felur í sér áhættu og að áskrift í útboðinu er bindandi við lok útboðstímabilsins. Fjárfestar eru hvattir til að kynna sér vel upplýsingar um TM og skilmála útboðsins í lýsingu TM og er sérstaklega bent á kafla um áhættuþætti, bæði er varðar rekstur TM og almenna áhættu sem er samfara því að fjárfesta í hlutabréfum. Nánari upplýsingar: Útgefandi lýsingar er TM hf., kt. 660269-2079, Síðumúla 24, 108 Reykjavík. Nánari upplýsingar um TM, hlutabréf félagsins og skilmála útboðsins má finna í lýsingu félagsins sem dagsett er 4. desember 2019 og birt er á www.tm.is/fjarfestar. Þar má nálgast lýsinguna næstu 12 mánuði. Reykjavík, 5. desember 2019 Stjórn TM hf. TM HF. BIRTIR LÝSINGU Í TENGSLUM VIÐ:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.