Morgunblaðið - 05.12.2019, Page 41

Morgunblaðið - 05.12.2019, Page 41
FRÉTTIR 41Erlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 2019 LA MOLLLA Skartgripalína frá ítalska arkitektinum Tiziana Redavid Mörkin 6 - 108 Rvk. s: 781-5100 Opið: Mán-fös: 11-18 lau: 11-15 - Fallegu gjafabréfin okkar eru einnig tilvalin í jólapakkann! - Ágúst Ásgeirsson agas@mbl.is Mikilfengleg ylböð sem á sínum tíma voru hönnuð til að vera gim- steinn Pompei voru opnuð gestum í fyrsta sinn í síðustu viku. Þau eyði- lögðust er borgin ítalska hvarf und- ir ösku er eldfjallið Vesúvíus gaus árið 79 eftir Krists burð. Rústir hennar hafa verið grafnar upp á undanförnum áratugum en það var svo fyrst í byrjun vikunnar sem gestir áttu þess kost á að skoða böðin tilkomumiklu. Gerð þeirra var ekki að fullu lokið þegar hamfaragosið mikla reið yfir og færði Pompei á kaf í ösku og eim- yrju og uppgröftur baðanna hefur verið tímafrekt vandaverk. Marmarasúlur og flísar liggja þar sem þær lágu er gjóskubergið frá Vesúvíusi færði borgina skammt frá Napoli í kaf. Fornleifa- fræðingarnir fundu einnig fórn- arlömb hamfaranna, beinagrind barns sem leitað hafði árangurs- laust í skjól. Ylböð Nerós keisara í Rómaborg veittu arkitektum baðanna í Pom- pei innblástur. Nema hvað sal- arkynni þar skyldu verða stærri og bjartari, með laugum gerðum úr marmara, sagði Massimo Osanna, framkvæmdastjóri fornleifasvæð- isins í Pompei, við frönsku frétta- stofuna AFP. Miðborgarböðin eru á svæði sem endurreist hefur verið undir svo- nefndu Stór-Pompei-verkefni sem hrundið var úr vör árið 2012 eftir hrun tvö þúsund ára gamallar „Hallar skylmingaþrælanna“. Sætti það hneykslan um heim allan og þótti svívirða. Tilgangur verkefn- isins frá 2012 var að bjarga svæð- inu sögufræga. Alberga Martellone, fornleifa- fræðingur sem fór fyrir hópi mann- fræðinga, jarðfræðinga og eldfjalla- fræðinga við uppgröft baðanna, sagði að það hefði verið tilfinn- ingarík vinna að grafa upp bein barnsins fyrrnefnda. Hafði það ver- ið á bilinu 8-10 ára er það hvarf undir gjóskubergið 79 eftir Krist. „Hann eða hún leitaði skjóls en gekk í opinn dauðann,“ sagði Mar- tellone. Lífsrof Uppgröfturinn var „einnig til- finningum þrunginn frá bygging- arfræðilegu sjónarhorni séð þar sem óvenjulegt er að finna svo stóra byggingu með svo rúmgóðum salarkynnum í svo þéttbyggðri borg. Það stafa frá henni áhrif stór- fengleika,“ bætti Martello við. Byggingarsvæðið með litlu beina- grindinni sagði hún á marga vegu vera „tákn um röskun lífs“. Upphafleg almenningsböð borg- arinnar voru minni, myrkari og oft- ast yfirfull af baðgestum. Nýju böð- in sem í byggingu voru voru mun íburðarmeiri fyrir alla þá sem höfðu efni á að sækja þau. Það áttu flestir borgaranna en þrælum var úthýst úr þeim. Margur tilkomumikill fornleifa- fundur hefur átt sér stað við upp- gröft í Pompei síðustu misserin. Þar á meðal áletrun sem fannst í fyrra og staðfestir að Pompei hafi orðið jarðeldinum að bráð 17. októ- ber árið 79, en ekki 24. ágúst eins og áður var talið. Í nýliðnum október fundu forn- leifafræðingarnir við uppgröftinn fjörlega fresku af vopnum búnum skylmingaþræl sem stendur sig- urreifur yfir blæðandi andstæðingi. Freskan var máluð á vegg kráar sem var hluti af vistarverum bar- dagaþrælanna og gleðikvenna. Ásamt böðunum geta gestir í Pompei frá því sl. mánudag einnig skoðað lítið hús sem skartar líflegri fresku af rómverska guðinum Júpí- ter í svansgervi vera að barna hina goðsagnakenndu grísku drottningu Ledu. Handan steingötunnar Via del Vesuvio hefur hið sláandi hús ást- arguðanna verið opnað að nýju eftir endurgerð mósaíkgólfa þess. Mesta áskorunin Um aldir hefur fólk í fjársjóðsleit farið ránshendi um Pompei. Hefur það aðallega verið á höttunum eftir verðmætu skarti og listaverkum. Enn eru stór svæði borgarinnar undir gjósku sem fornleifafræð- ingar eiga eftir að grafa í við rann- sóknir sínar. Sérhver fundur auð- veldar sagnfræðingum skilning, segir Massimo Osanna. Ekki bara á daglegu lífi í fornborginni heldur og hvað gerðist átakamiklu klukku- stundirnar í lok borgarlífsins er eldur og aska fylltu himininn og spúðu eimyrju yfir Pompei. Stór-Pompei-verkefninu, sem Evrópusambandið (ESB) fjármagn- aði að hluta, lýkur formlega um komandi áramót. Verkinu er þó ekki lokið og hefur ítalska rík- isstjórnin eyrnamerkt því 32 millj- ónir evra til viðbótar til að halda uppgreftri áfram. „Ofsaveður af völdum loftslags- breytinga eru okkar helstu áskor- anir,“ sagði Osanna. Í nýrri bók, „Pompei – endurheimt tímans“, lýs- ir hann kapphlaupinu við að vernda hið berskjaldaða svæði sem er á heimsminjaskrá UNESCO. „Að staðaldri eru 50 manns við rann- sóknir og vernd hér, sérfræðingar í minjavernd, fornleifafræðingar, arkitektar, verkfræðingar. Þeir rýna í svæðið og grafa og skerast í leikinn ef þörf krefur. Sá hópur stækkar í 70 manns á næsta ári,“ bætti Osanna við. Túristar leggja margir leið sína til borgarrústanna á Suður-Ítalíu. Í ár voru þeir rétt tæpar fjórar millj- ónir við síðustu mánaðamót. Aðeins stóra hringleikahúsið Colosseum í Róm, sem fullgert var árið eftir að Vesúvíus gaus, státar af fleiri gest- um. Böðin glæstu leyndu harmleik Nýfundin veggmynd Leda og svanurinn í faðmlögum. Freskan kom í ljós við uppgröft í Pompei í nóvember fyrir ári en almenningur getur nú skoðað hana eins og fleiri muni og byggingar. Hreinsað hof Hús ástarguðanna í Pompei hefur verið opnað fyrir gestum eftir hreinsun og við- gerð mósaíklagðra gólfa þess. Fornleifafræðingar eiga enn eftir að rannsaka þar stór svæði. AFP Helgidómur Gestur skoðar helgidóm Apollós í Pompei í síðustu viku. Nýir fornleifafundir á svæðinu sýna fram á, að eldgosið í eldfjallinu Vesúvíusi, sem eyddi borginni, varð 17. október árið 79 fyrir Krist en ekki 24. ágúst.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.