Morgunblaðið - 05.12.2019, Qupperneq 45
45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 2019
Kærleikur Snjó kyngdi niður á Klambratúni í gær, á meðan kærleikskúla þessa árs var afhent á Kjarvalsstöðum, á vegum Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra.
RAX
Fyrir áhugafólk um
ríkissjóð er alltaf
áhugavert að fylgjast
með afgreiðslu fjár-
laga. Að þessu sinni
var þó fremur dauft yf-
ir allri umræðunni og
hið sama má segja um
tvö mikilvæg tekju- og
skattafrumvörp ríkis-
stjórnarinnar. Allt
sigldi þetta fremur ró-
lega og átakalítið í gegnum þingið.
Ég er ekki viss um að slíkt sé gott –
ekki fyrir ríkisstjórn eða stjórn-
arandstöðuna og alls ekki fyrir
skattgreiðendur, sem njóta yfirleitt
ekki mikils skjóls í aðdraganda jóla.
Fyrir þann sem hér skrifar var á
margan hátt erfitt að afgreiða fjár-
lög með þeim hætti sem gert var.
Þótt staðan í efnahagsmálum sé góð
– öfundsverð í augum flestra ann-
arra þjóða – verður ekki um það
deilt að útgjöld hafa aukist gríð-
arlega á síðustu árum. Aukningin á
sér í mörgu eðlilegar skýringar en
augljóst er að það hefur slaknað á
kröfum sem gera verður um hag-
kvæma ráðstöfun sameiginlegra
fjármuna. Varla er hægt að komast
að annarri niðurstöðu en að vandi
ríkissjóðs liggi ekki í skorti á fjár-
magni heldur í því með hvaða hætti
fjármunirnir eru nýttir.
Gríðarleg aukning útgjalda
Meirihluti fjárlaganefndar dregur
fram í nefndaráliti að frá 2017 til
komandi árs hafi útgjöld ríkissjóðs
hækkað um 158 millj-
arða sem er 18,9% að
raungildi. Mesta aukn-
ingin hefur verið til vel-
ferðarmála; heilbrigð-
iskerfisins,
tryggingakerfisins og
fjölskyldumála. Þá er
mikil og skynsamleg
aukning í fjárfest-
ingum, ekki síst í vega-
málum.
Samkvæmt fjár-
lögum sem samþykkt
voru áður en nóvember
var úti munu ríkisútgjöld nema að
meðaltali rúmlega 19 milljörðum
króna í hverri einustu viku komandi
árs – alls rétt tæpum eitt þúsund
milljörðum í heild.
Eins og svo oft áður voru ekki allir
sáttir við að útgjöld ykjust ekki enn
meira. Samfylkingin var á kunnug-
legum slóðum við afgreiðslu fjárlaga:
Útgjöld skal auka. Fulltrúi flokksins
í fjárlaganefnd lagði til 18,5 milljarða
aukningu og undirstrikaði þar með
góðmennsku sína. Flokkur fólksins
bauð enn betur. Auka skyldi útgjöld
um 39 milljarða frá frumvarpi – sem
er fimm milljörðum hærri fjárhæð en
framlög til allra framhaldsskóla
landsins.
Yfirboð af þessu tagi eru fylgi-
fiskar fjárlagagerðar og að líkindum
ekki til annars en „heimabrúks“.
Jafnvel fjölmiðlar eru hættir að veita
þeim mikla eftirtekt.
Skattalækkun – en samt
En þrátt fyrir mikla aukningu út-
gjalda er hægt að gleðjast yfir því að
tekist hefur að tryggja verulega
skattalækkun til einstaklinga. Í
nefndaráliti meirihluta efnahags- og
viðskiptanefndar vegna breytinga á
lögum um tekjuskatt kemur fram að
á næsta ári lækki tekjuskattur ein-
staklinga um 5,5 milljarða og 21
milljarð árið 2021. Gangi áformin
eftir er ljóst að uppsöfnuð lækkun
tekjuskatts einstaklinga er um 31,6
milljarðar króna á kjörtímabili rík-
isstjórnarinnar.
Hitt skal játað að nokkur skuggi
fellur á þessa verulegu skattalækk-
un. Skattþrepum verður fjölgað að
nýju í þrjú. Þetta þýðir að verið er
að flækja skattkerfið að nýju, þvert
á það sem ég hef barist fyrir. Mark-
mið breytinganna er að tryggja að
tekjulægstu hóparnir njóti hlutfalls-
lega meiri ávinnings af skattalækk-
uninni en aðrir hópar. Þessu mark-
miði hefði hins vegar verið hægt að
ná með því að innleiða flatan tekju-
skatt með stiglækkandi persónu-
afslætti eftir því sem tekjur hækka.
(Ég gerði grein fyrir nýju tekju-
skattskerfi m.a. á síðum Morg-
unblaðsins 24. janúar 2018).
Flatur tekjuskattur með stig-
lækkandi persónuafslætti þjónar
betur markmiði sínu en margþrepa
skattkerfi sem tekur við á nýju ári.
Það er einfaldara og staða láglauna-
stétta og millitekjuhópa er sterkari.
Ýtt er undir fólk í stað þess að berja
það niður með háum jaðarsköttum
með tilheyrandi tekjutengingum og
hærra skattþrepi. Ekki skiptir
minna máli að flatur tekjuskattur,
eins og ég hef talað fyrir, er líklegri
til að hemja skattaglaða stjórn-
málamenn. Það verður pólitískt erf-
iðara fyrir þá sem líta á skattgreið-
endur sem hlaðborð fyrir ríkissjóð að
hækka skattprósentuna sem allir
þurfa að greiða en þegar skattpró-
sentan er misjöfn eftir tekjum.
Ég vona að fórnarkostnaðurinn
(flóknara skattkerfi) við að tryggja
verulega lækkun tekjuskatts ein-
staklinga reynist ekki of mikill þegar
upp verður staðið.
Afleiðing góðrar stöðu?
Tilþrifalítil umræða um fjárlög og
umfangsmiklar kerfisbreytingar á
tekjuskattskerfinu eru ef til vill af-
leiðing af góðri stöðu í efnahags-
málum, þrátt fyrir áföll – gjaldþrot
WOW og loðnubrest. Við slíkar að-
stæður getur lífið í stjórnarandstöðu
verið erfitt, jafnvel svo óbærileg að
ekki er talin ástæða til að skila inn
nefndarálitum um helstu tekju-
frumvörp ríkisstjórnarinnar.
Eitt helsta markmið hagstjórnar
er að búa svo um hnútana að hag-
kerfi geti tekist á við það óvænta,
ekki síst efnahagslega erfiðleika. Ís-
lenska þjóðarbúið hefur siglt í gegn-
um alvarleg áföll síðustu mánuði og
flest bendir til að þegar á næsta ári
taki efnahagslífið við sér. OECD spá-
ir 1,6% hagvexti á næsta ári og 2,6%
árið 2021. Stjórnvöldum hefur því
tekist ágætlega að ná markmiðum
hagstjórnar. Þar skiptir samspil
peningastjórnar og ríkisfjármála
ekki síst máli.
Samkvæmt bráðabirgðayfirliti
Seðlabankans námu erlendar eignir
þjóðarbúsins 3.870 milljörðum í lok
september en skuldir 3.156 millj-
örðum. Hrein staða við útlönd var
því jákvæð um 714 milljarða eða
24,5% af vergri landsframleiðslu.
Staðan hefur aldrei verið betri og
sýnir þann styrk sem íslenskt sam-
félag býr yfir.
Verðbólga er lág og vextir hafa
ekki verið lægri. Í fyrsta skipti í ára-
tugi eru óverðtryggð fasteignalán
raunhæfur kostur fyrir launafólk.
Lífskjarasamningar almenna vinnu-
markaðarins hafa lagt grunn að
frekari kjarabótum. Frá 2011 hefur
launavísitalan hækkað um 78% en
neysluverðsvísitalan aðeins um 28%.
Meirihluti fjárlaganefndar fullyrðir
að hér sé um einsdæmi að ræða í
hagsögu landsins, þ.e. að laun hækki
svona mikið umfram verðlag yfir
margra ára tímabil.
Stjórnarandstaða sem stendur
frammi fyrir þessum efnahagslegu
staðreyndum er ekki í öfundsverðri
stöðu. Hitt er svo annað að þótt
stjórnarandstaðan eigi erfitt með að
kljást við umfangsmestu mál rík-
isstjórnarinnar – fjárlög og tekju- og
skattafrumvörp – gerir það starf
stjórnarþingmanns ekki léttara.
Eftir Óla Björn
Kárason »Ég vona að fórnar-
kostnaðurinn
(flóknara kerfi) við
að tryggja verulega
lækkun tekjuskatts
einstaklinga reynist
ekki of mikill þegar
upp verður staðið.
Óli Björn Kárason
Höfundur er alþingismaður
Sjálfstæðisflokksins.
Tilþrifalítil, róleg og þróttlítil umræða