Morgunblaðið - 05.12.2019, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 05.12.2019, Blaðsíða 50
50 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 2019 ✝ Theodór Jóns-son fæddist í Reykjavík 21. ágúst 1929. Hann lést á líknardeild Landspítalans 19. nóvember 2019. Foreldrar Theo- dórs voru Jón Ottó Magnússon, f. 6. okt. 1887, d. 4. mars 1938, og Mar- grét Magnúsdóttir, f. 27. mars 1906, d. 23. nóv- ember 1971. Systur Theodórs eru Halldóra Edda Jónsdóttir, f. 8. júlí 1933, gift Sigurði Þ. Árnasyni, f. 15. mars 1928, og Jóna Jónsdóttir, f. 4. okt. 1938, gift Njáli Þorbjörnssyni, f. 27. ágúst 1937. Theodór var giftur Ernu Rafn Jónsdóttur, f. 24. des. 1925, d. 9. janúar 2010, þau slitu samvistir 1995. Börn Theodórs og Ernu eru: 1) Mar- grét, f. 1954, sambýlismaður Margrétar er Ágúst Ingi Jóns- son, f. 1951. Margrét var gift Friðbert Pálssyni, f. 1951, þau slitu samvistir 2002. Synir Mar- grétar og Friðberts eru: a) Guðmundur Páll, f. 1974, kvæntur Sigurborgu Pálínu Hermannsdóttur, f. 1972, synir þeirra: Sævar Snær, f. 2007, og Egill Arnar, f. 2009. b) Theo- dór, f. 1981, kvæntur Guðrúnu Höllu Hafsteinsdóttur, f. 1980, synir þeirra: Leon Freyr, f. 2007, Hafsteinn Þór, f. 2009, og Theodór Berti, f. 2018. Börn Ágústar Inga eru Ólafur Bjarki, f. 1979, og Anna Dröfn, 1965, þau eiga Hrafndísi Báru, f. 2009. Börn Ottós eru Benjam- in Otto, f. 1993, og Ólafur Arn- ar, f. 1995. Guðbjörg Íris var áður gift Halldóri Erni Svans- syni, f. 1971, þeirra börn eru: a) Marteinn Örn, f. 1991, í sambúð með Dóróteu Arnarsdóttur, f. 1989, þeirra börn eru Marín Rós, f. 2014, Melkorka Mist, f. 2014, og Ásta Sóllilja, f. 2017, b) Bergþór Atli, f. 1999, er í sambúð með Anitu Ciullo. 2) Birna Sif, f. 1973, gift Guðjóni Helga Ólafssyni, f. 1971. Börn þeirra: a) Rannveig Ágústa, f. 1991, sambýlismaður Kristinn Arnar Ormsson, f. 1991, dóttir þeirra er Margrét Kría, f. 2018, b) Egill Helgi, f. 1999, sambýlis- kona hans er Þorgerður Sól Ívarsdóttir, f. 1999, c) Sólveig Lilja, f. 2004, d) Aðalheiður Sif, f. 2008. 3) Sigríður María, f. 1977, gift Sigurjóni Birgissyni, f. 1972. Börn þeirra: a) Sæunn Júlía, f. 1998, b) Birgir Freyr, f. 2005, c) Atli Hrafn, f. 2007. 4) Pálmi Þór, f. 1978, giftur Elínu Guðmannsdóttur, f. 1977. Börn þeirra: a) Embla Sif, f. 2003, b) Þórdís Edda, f. 2011, c) Birnir Magnús, f. 2014. Theodór Jónsson fæddist í Reykjavík en var átta ára gam- all þegar faðir hans drukknaði með færeysku skútunni Fossa- nesi suður af Vestmannaeyjum. Eftir slysið flutti fjölskyldan að Auðkúlu við Arnarfjörð. Um 10 ára aldur fór Theodór að vitja grásleppuneta og sækja sjó með Magnúsi afa sínum. Sjórinn átti hug hans lengst af starfsævinni. Sem unglingur sótti Theodór bæði þorsk, síld og smokkfisk í gjöfulan Arn- arfjörðinn og var ungur að ár- um meðal annars á Eldborgu og Gylfa frá Patreksfirði. Theodór lauk námi í Stýri- mannaskólanum og fékk skip- stjórnarréttindi vorið 1951. Theodór réð sig til Bæjarút- gerðar Reykjavíkur um það leyti sem nýsköpunartog- ararnir komu til landsins og varð stýrimaður á bv. Pétri Halldórssyni RE 207 og varð skipstjóri á Skúla Magnússyni RE 202 og síðar Þorsteini Ing- ólfssyni RE 206, en hætti störf- um hjá Bæjarútgerðinni upp úr 1960. Togaraárin á sjötta ára- tugnum voru Theodór eftir- minnileg, en auk Íslandsmiða veiddu togararnir á þessum tíma við Austur- og Vestur- Grænland og Nýfundnaland. Um tíma var Theodór á síld- arbátum og var síðan með ýmsa báta, stóra og smáa, m.a. með Kristján Guðmundsson frá Súg- andafirði. Um tíma ráku þau Erna sölu- turn við Skólavörðustíg. Þá var Theodór í nokkur ár stýrimað- ur á flutningaskipunum Ísnesi og Akranesi. Eftir að hann kom í land starfaði hann meðal ann- ars hjá Álverinu í Straumsvík, Háskólabíói og ÁTVR. Eftir að hafa stofnað heimili bjó Theo- dór í Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði, Súgandafirði og Mosfellsbæ. Þau Sólveig hófu sinn bú- skap á Tálknafirði árið 1999, síðan lá leiðin til Selfoss þar sem þau bjuggu þar til á síðasta ári er þau fluttu í Mörkina við Suðurlandsbraut í Reykjavík. Útför Theodórs fer fram frá Langholtskirku í Reykjavík í dag, 5. desember 2019, klukkan 13. f. 1985, gift Guðna Valberg, f. 1980, þeirra dætur eru Inga Bríet, f. 2013, og Iðunn Ása, f. 2016. 2) Halldór Jón, f. 1958, kvænt- ur Ingibjörgu Leifsdóttur, f. 1960. Börn þeirra: a) Erna Rún, f. 1988, sambýlis- maður hennar er Jakob Krolykke Hólm, f. 1987, þeirra börn eru Harpa Rakel, f. 2015, og óskírður drengur, f. 2019, b) Helgi Rúnar, f. 1990, sambýliskona hans er Sigríður Guðrún Elíasdóttir, f. 1989, þau eiga Theodór, f. 2019. c) Hauk- ur Örn, f. 1992, unnusta hans er Áslaug Ýr Þórsdóttir, f. 1995. 3) Sigrún Edda, f. 1968, sam- býlismaður Sigrúnar Eddu er Karl K.Á. Ólafsson, f. 1963. Dætur Sigrúnar Eddu eru: a) Margrét Hulda Karlsdóttir, f. 1989, í sambúð með Inga Hrafni Þórssyni, f. 1984, b) Rosalie Rut Sigrúnardóttir, f. 2000. Börn Karls eru: a) Kristín Björg, f. 1991, gift Friðberg Reyni Traustasyni, f. 1990; þeirra börn: Friðberg Davíð, f. 2013, Ástrós Elía, f. 2016, og Harpa Dagný, f. 2019, b) Helga Mar- grét, f. 1993, c) Jóhann Karl, f. 1996, d) Ólafur Viðar, f. 1999, e) Kristján Helgi, f. 2003. Sambýliskona Theodórs er Sólveig Júlía Baldursdóttir, f. 27. okt. 1941. Börn hennar eru Atlabörn 1) Guðbjörg Íris, f. 1972, gift Ottó Sverrissyni, f. Kvaddur er í dag kær sambýlis- maður og minn besti vinur. Takk, Teddi minn, fyrir allar góðu stundirnar á Tálknafirði, Selfossi og nú síðast í Mörkinni þótt þú nytir þeirra síðustu ekki sem skyldi. Takk fyrir allar skemmtilegu ferðirnar um vegi og vegleysur fyrir vestan að leita að fjallagrös- um eða tína ber. Við vorum kannski svolítið stórtæk stundum í berjatínslunni. Takk fyrir veiðiferðirnar á Litla Sæla þar sem ég átti alltaf erfitt með að hætta að veiða. Takk fyrir ferðirnar fyrir Sléttanes. Ég minnist fyrstu ferð- arinnar með Siggu og Sigurjóni þegar þú komst með Sæunni til mín á sokkaleistunum og settir hana hjá mér við berjaþúfu. Önn- ur ferð síðar með Birnu og Guð- jóni þegar vegurinn var nánast horfinn úr fjörunni og sjórinn sull- aðist upp á bílinn en áfram hélstu svolítið svalt. Börnin spurðu úr hverju hann afi væri eiginlega gerður. Takk fyrir allar Kanaríeyja- ferðirnar. Við ætluðum að fara eina enn en því miður gekk það ekki eftir. Ég sendi þér lítið ljóð í staðinn: Spor í sandi Kenndu mér að vera hljóðlát í svörtum sandinum þar sem sporin okkar verða aðeins greinanleg örskamma stund en verða þar þó áfram. Þar sem ég lærði að elska hljóðlát í svörtum sandinum. (Anna S. Björnsdóttir) Hittumst á ströndinni hinum megin og hver veit hvort ekki verði tekið dansspor í sandinum. Þín Sólveig. Kveðjustundin er komin, stundin sem ég hef kviðið fyrir næstum alla ævi. Litla pabba- stelpan var alltaf áhyggjufull ef það var vont veður þegar pabbi var á sjó. Stór og sterk sjómannshönd hélt gjarnan þétt um litla stúlku- hönd. Það var gjarnan farið á höfnina, að kíkja um borð, hitta kallana, fara í slippinn, einu sinni jafnvel í sjórétt og fékk mikið hrós. Hann tók upp á að kalla mig Maggý. Endað á Hressó, fékk ís í stálskál á fæti, súkkulaðisósa yfir. Skildi ekkert í því að Teddinn fékk sér bara kaffi, ekki ís! Fann fyrir stolti pabba míns, skipstjórans, sem ég hef alltaf litið svo mikið upp til – nema á ung- lingsárunum. Mikið rætt um fiski- miðin, aflann, siglingar til útlanda. Mackintosh og alls kyns gotterí kom í kössum, fínir skór og föt. Hljómflutningstæki voru keypt í einni siglingunni. Louis Arms- trong, Duke Ellington, Ella Fiz- gerald, Elly og Raggi Bjarna voru sett á fóninn, stillt hátt. Sungið með. Hafði dúndrandi raddstyrk sem nýttist óspart í brúnni og víð- ar. Tókst jafnvel að fella hross um koll með raddstyrknum einum saman. Oft stjórnsamur, gat alveg látið okkur krakkana hlýða með augnaráðinu einu saman. Sextíu og fimm ára samfylgd skilur eftir sig hafsjó minninga. Stórbrotinn karakter, fyrirferðar- mikill, skemmtilegur og einstak- lega hlýr. Stóð með mér í blíðu og stríðu, var einstakur afi strákanna minna, Palla og Tedda. Það var dýrmætt fyrir fjölskylduna mína að hafa afa og ömmu í sama húsi í nokkur ár í Mos. Átti sín erfiðu ár þegar hann stjórnaði drykkjunni sinni ekki vel en stóð uppi sem sigurvegari eftir að hafa tekist á við vandann og varð ennþá betri maður. Var einn- ig stórreykingamaður en tók þá ákvörðun þegar ég gekk með nafna hans að hætta áður en hann fæddist 1981. Gerði það með stæl! Var alltaf stórtækur í meira lagi á margvíslegum sviðum: Með- an venjulegar vatnsslöngur nýtast ágætlega til þrifa, þá notaði hann helst háþrýstitæki, venjulegur sápulögur var oft alls ekki nóg, heldur klór! Hann tók sig til á vet- urna og bræddi bílaplan og stéttar við húsið með heitu vatni ... og þannig má lengi telja. Allt frekar stórt í sniðum. Mjög flinkur í mat- seld og var höfðingi heim að sækja og einstakt snyrtimenni, alveg þangað til hann dó, það get ég vitnað um. Við systkinin og fjölskyldur okkar varðveitum minningar um stórbrotinn pabba, afa og langafa sem lifði það að eignast þrjá nafna, fyrir það var hann afar þakklátur. Síðustu árin notaði hann flest tækifæri til að sýna okkur þakk- læti og væntumþykju. Ég sendi Sólveigu sambýliskonu pabba til 20 ára og fjölskyldu hennar hlýjar samúðarkveðjur. Það var fallegt að sjá væntumþykju þeirra í garð pabba. Faðmurinn hans var bestur af öllu, hlýr, umvefjandi, stundum stórkarlalegur en alltaf ómót- stæðilegur, eins og hann sjálfur í öllu sínu veldi. Sé hann nú taka sjópokann sinn og fara brosandi um borð í gullskipið sem hann sá í draumi þegar pabbi hans drukkn- aði þegar hann var á níunda ári. Nú sigla þeir saman. Kem til með að sakna hans alla tíð. Ætla að hafa hann með mér í hjartanu alla ævi. Margrét Theodórsdóttir. Teddi hafði sögur af sjónum á hraðbergi. Báðum fannst okkur þær skemmtilegri þegar sagt var frá góðu fiskiríi. Stundum sagði hann sömu söguna aftur í næstu heimsókn. Varð bara betri við það. Verst hvað fátt var fest á blað. Um 60 ár liðin frá mestu æv- intýrunum. Togaraárin sveipuð bláma fjarlægðarinnar. Halamið, Austur- og Vestur-Grænland. Stundum um 50 karlar um borð og nóg að hugsa um. Gengið í aðgerð ef því var að skipta. Nýsköpunar- togararnir bylting í atvinnulífi þjóðarinnar. Róður í Arnarfirði á unglings- árum samt ein merkasta sjóferðin. Drekkhlóð skektu afa síns svo móðurforeldrunum á Auðkúlu fannst nóg um. Ungur skipstjóri sem bjargaði félaga sínum sem féll útbyrðis á Vestfjarðamiðum. Stakk sér bara á eftir honum í kaldan sjóinn. Það kom ekki ann- að til greina en að reyna. Hvor- ugum varð meint af svo heitið gæti. Viðurkenndi að stundum hefði lítið fiskast. Ekki alltaf drekkhlað- ið skip. Þannig er jú lífið sjálft. Ég varð þeirrar gæfu aðnjót- andi að fá að vera samferð Tedda í rúmlega áratug. Naut þeirra sam- vista og dáðist að þeim eiginleika hans að hrósa og hvetja. Sterk hönd og hlýr faðmur. Þakka góð kynni af heilum hug og góðleik í minn garð og minna. Í guðs friði. Ágúst Ingi Jónsson. Í dag kveð ég tengdapabba minn til margra ára, Theodór Jónsson. Teddi var einstakur maður. Maður sem hafið og sjómennskan hafði meitlað. Hrjúf rödd en blítt og fallegt hjarta. Hann eyddi mestum tíma starfsævinnar sem skipstjóri, lengi hjá Bæjarútgerð Reykjavík- ur. Hann sagði mér frá þeim tím- um þegar mannekla var á togur- unum og stundum þurfti að þvinga ógæfumenn til skips og það kom nokkrum sinnum fyrir að hann þyrfti að fleygja sér í hafið á eftir þeim til að bjarga þeim þegar áfengisvíman bráði af þeim. Þessi upplifun markaði stór og djúp spor í líf hans. Við áttum margar góðar stund- ir saman, fyrst í Súgandafirði og síðan í Reykjavík og víðar. Ég fékk að fara með honum til sjós og einnig fórum við stundum saman í lax- og silungsveiði. Þetta er ógleymanlegur tími. Stóri sterki togaraskipstjórinn sem allt gat og þekkti var tilbúinn að til- einka sér fínlegu veiðiaðferðirnar sem lax- og silungsveiði kallaði eftir. Þar átti hann margar góðar stundir, bæði með fjölskyldunni og nánum vinum sínum. Teddi eignaðist þrjú frábær börn með Ernu konu sinni, sem er látin fyrir allnokkrum árum. Á seinni hluta ævinnar var hann svo lánsamur að kynnast Sólveigu. Þau áttu afar góðar stundir saman og góða daga. Þegar ég horfi til baka finnst mér ég ekki bara vera að kveðja tengdapabba og vin heldur mann sem átti stóra og djúpa sögu í lífi íslenska sjómannsins, sjómanns sem oftast lét vinnuna ganga fyrir. Þegar hann var á togurum Bæj- arútgerðarinnar kom oft fyrir að veiðitúrinn tæki sex til átta vikur. Þetta þekkist varla í dag, sem bet- ur fer. Í mörg ár var þetta hans hlutskipti. Nú er hann lagður af stað í sína síðustu sjóferð, í þetta sinn móti ljósinu. Sólveigu, börnum hans og fjöl- skyldu allri votta ég mína einlæg- ustu samúð. Þegar ég horfi til baka er ég bæði glaður og þakklátur. Góður Guð geymi minningu Tedda. Með honum er stór per- sóna gengin. Friðbert Pálsson. Í tuttugu ár hef ég átt að vini Theódór Jónsson skipstjóra; Tedda, eftir að leiðir hans og Sól- veigar tengdamóður minnar fóru að liggja saman. Teddi fluttist ungur til móður- foreldra sinna að Auðkúlu í Arn- arfirði eftir að faðir hans fórst í hafi og mér varð fljótt ljóst að staðurinn sá var heimahöfn og núllpunktur, þaðan voru strikin dregin á sjókortum lífs hans, reyndar mörg þeirra með kross- punkt á Bíldudal þar sem heitir á Jaðri. Teddi eyddi fleiri dögum ævinnar en færri til sjós og byrj- aði snemma, var afa sínum á Auð- kúlu til aðstoðar á kænu hans við veiðar og flutninga og minntist þeirra daga með hlýju og gleði. Teddi var sögumaður góður, með afbrigðum minnugur og þótt frásagnirnar færu stundum í ör- litla króka til að geta komið að þessum og hinum bátsmanninum eða skipstjóranum frá gamalli tíð var ætíð unun á að hlýða. Ég á eft- ir að sakna þess að fá ekki eina krassandi stórfiskiríssögu, frá því fyrir vökulögin, yfir barmafullum kaffifanti. Já, sá gamli skenkti æv- inlega alveg upp að brún og út- skýrði það þannig að í þröngum bátsmessa þýddi ekkert að vera að rápa endalaust í könnuna eftir smáslettu. Ég skil svona lógík. Þau Teddi og Sólveig hófu sína sambúð vestur á Tálknafirði og þegar þau fóru að horfa suður á bóginn eftir framtíðarbúsetustað fór ég með margar og langar framboðs- og söluræður þess efnis að hagstætt væri að flytja austur á Selfoss og hvort sem þær höfðu áhrif eða ekki varð það úr. Þau keyptu vandað hús í Vallholti 43 af foreldrum góðrar vinkonu okkar Birnu og undu sér hið besta þar; nóg pláss fyrir öll barnabörnin og náttúrubarnið Sólveig fékk útrás fyrir ræktunaráhuga sinn í stórum garði. Kveðjustundin er runnin upp, hana flýr enginn. Í sumarlandinu er örugglega spegilsléttur Arnar- fjörður og þar siglir sá gamli frá Tjaldanesi með byr í gaffalsegli, keipar við stýrið og skimar eftir því hvort fuglinn sé nú sestur á straumskilin; „þá nefnilega tekur hann, kall minn!“ Guðjón Helgi Ólafsson. Þá hefur Teddi farið sína síð- ustu sjóferð. Ég minnist þess þeg- ar ég var að kynnast honum fyrir um tuttugu árum að ég ávarpaði hann sem Theodór. Hann leit á mig og sagði, kallaðu mig bara Tedda, síðan kallaði ég hann Tedda, eins og aðrir. Hann var fæddur í Reykjavík en missti föður sinn ungur eða níu ára gamall. Faðir hans var sjó- maður og starfaði sem fiskilóðs á færeyskri skútu sem fórst hér við land með allri áhöfn. Þá flutti móð- ir hans með börnin vestur í Auð- kúlu við Arnarfjörð þar sem hann ólst upp til fimmtán ára aldurs er leiðin lá á sjóinn. Hann minntist veru sinnar í Auðkúlu með hlýhug. Hann hóf sína sjómennsku fjórtán ára gamall á Eldborginni þar sem móðurbróðir hans var skipstjóri. Hann var frá unga aldri staðráð- inn í að feta í fótspor föður síns. Hann hafði aðeins eitt markmið þegar hann fór á sjóinn. Safna peningum til að geta farið í skóla og menntað sig. Hann fékk skóla- vist í Héraðsskólanum á Núpi í Dýrafirði og lauk þaðan námi. Þaðan lá leiðin í Sjómannaskólann og lauk hann þaðan námi sem stýrimaður með ágætum því Teddi var góður námsmaður. Að námi loknu lá leiðin til Bæjarútgerðar Reykjavíkur, þar stundaði hann sjómennsku á tog- urum sem stýrimaður og skip- stjóri um árabil. Teddi var ákaf- lega fengsæll skipstjóri og vel látinn af áhöfninni enda sanngjarn og réttsýnn. Eftir veru sína hjá Bæjarútgerðinni lá leiðin á minni fiskiskip og endaði hann sinn sjó- mannsferil á fraktskipum í nokkur ár, má þar nefna Ísnesið sem hann vitnaði oft í. Teddi var sögumaður og hafði ágæta frásagnargáfu. Það var allt- af stutt í sögur af sjónum þegar við hittumst og ávallt nýjar sögur. Hann var alltaf skipstjóri þó hann væri löngu hættur á sjónum, alveg til dauðadags. Síðast þegar ég hitti hann var hann að plana sum- arið þar sem hann ætlaði að heim- sækja mig í Loðmundarfjörð. Hann hafði mikinn áhuga á að fylgjast með því sem fólkið í kring- um hann var að gera. Hann fylgd- ist náið með búskapnum á Sléttu og fékk um hann skýrslu haust og vor. Teddi fylgdist einnig vel með þjóðmálum og hafði gaman af að ræða um þau. Hann var sannur sjálfstæðismaður lengst af ævi sinnar, en undir það síðasta átti hann ekki samleið með sínum gamla flokki og var kominn inn á miðjuna eins og svo margir aðrir. Það var fyrir um tuttugu árum sem Sólveig systir mín og Teddi tóku upp sambúð. Fyrstu árin bjuggu þau á Tálknafirði þar sem honum bauðst vinna, þá kominn á eftirlaunaaldur. Eftir nokkur ár á Tálknafirði fluttu þau á Selfoss þar sem þau keyptu sér einbýlis- hús og áttu þar yndisleg ár og fal- legt heimili. Þar kom ég oft þegar ég átti leið um og einnig þess utan. Alltaf fékk ég höfðinglegar mót- tökur því Teddi var höfðingi heim að sækja og alltaf var stutt í sögur. Hann var eins og sagt er góður kall. Ég er ekki í vafa um að litlu börnin bæði hans megin og barna- börn Sollu systur eiga eftir að sakna hans því hann var barn- elskur maður. Hans verður sárt saknað. Sendi mínar samúðarkveðjur til fjölskyldunnar, til þín Solla og þinnar fjölskyldu og barna og systkina Tedda og fjölskyldna þeirra. Einar Baldursson. Kæri Teddi. Mig langar að kveðja þig með einu af mínum uppáhaldsljóðum. Þetta ljóð finnst mér lýsa svo fallega æviskeiði manns sem heldur alltaf í gleðina og barnið í sér þrátt fyrir að árin færist yfir. Þannig finnst mér þú hafa lifað þínu lífi, alltaf stutt í gleðina og hláturinn. Sjórinn og ströndin átti svo stóran hluta af þínu hjarta og við fengum að deila því með þér. Farðu sæll, kæri Teddi. Ég geymi síðustu orðin þín til mín og kveð þig með þessum. Ég var lítið barn og ég lék mér við ströndina. Tveir dökkklæddir menn gengu fram hjá og heilsuðu: Góðan dag, litla barn, góðan dag! Ég var lítið barn og ég lék mér við ströndina. Tvær ljóshærðar stúlkur gengu fram hjá og hvísluðu: Komdu með, ungi maður, komdu með! Ég var lítið barn og ég lék mér við ströndina. Tvö hlæjandi börn gengu fram hjá og kölluðu: Gott kvöld, gamli maður, gott kvöld! (Steinn Steinarr) Sigríður María Atladóttir. Teddi eins og hann var ávallt kallaður var einn af þessum mönn- um sem ná til manns, skemmti- legur, reffilegur, sterkbyggður og glæsilegur maður með góða nær- veru. Hann og pabbi voru perlu- Theodór Jónsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.