Morgunblaðið - 05.12.2019, Side 51

Morgunblaðið - 05.12.2019, Side 51
MINNINGAR 51 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 2019 vinir, þeirra vinskapur stóð um sextíu ár og ekki minnist ég þess að skugga hafi borið á þann vin- skap nokkru sinni. Ég kynntist Tedda þegar ég var ungur drengur, þá bjó fjöl- skyldan i Hafnarfirðinum, mér eru sérstaklega minnisstæð slags- málin þegar ég og Haddi sonur hans vorum stanslaust að tuskast í honum og hann pakkaði okkur saman, en við risum upp jafnóð- um, fórum í hann aftur og aftur, en hann hafði greinilega gaman af þessum glímum enda nautsterkur og við höfðum auðvitað ekki roð við honum. Hann var gríðarlega handsterkur. Teddi stundaði sjó- mennsku um langa hríð og það fór ekki á milli mála að sjómennskan átti huga hans allan, hann var al- vöru jaxl hann Teddi. Teddi kallaði pabba aldrei ann- að en bróður sinn, sennilega vegna þess að þegar aldurinn færðist yf- ir urðu þeir keimlíkir. Einhverju sinni var pabbi á spítala og ein- ungis náskyldir fengu leyfi til að heimsækja hann en Teddi mætti að sjálfsögðu og sagðist vera bróð- ir pabba sem var auðvitað ekki rengt af hjúkrunarfræðingnum því að það voru margir sem í raun héldu að þeir væru bræður. Menn hittast alltaf um síðir. Nú eru þeir félagarnir sennilega að spila og ræða málin, það hafa orðið fagnaðarfundir hjá þeim vinunum. Ég votta aðstandendum Tedda innilega samúð. Hvíl í friði, minn kæri. Sævar Jónsson. Theodór Jónsson var einstakur maður. Hann var pabbi hennar Margrétar, fyrrverandi sam- starfskonu minnar, og bestu vin- konu til fjöldamargra ára. Þau feðginin voru afar náin og áttu ein- stakt samband sín á milli. Þakk- læti kemur upp í hugann, þakk- læti fyrir að hafa kynnst þessum kærleiksríka manni og fólkinu hans fyrir um það bil 35 árum. Upp í hugann koma dýrmætar og skemmtilegar minningar; við ásamt fullt af öðrum fjölskyldu- meðlimum að mála, hann og mamma Margrétar að koma fær- andi hendi niður í skóla með ljúf- fengar og fallegar jólasmákökur, hann skellihlæjandi í leikhúsinu og málefni líðandi stundar rædd yfir kaffibolla; gjarnan á léttu nót- unum. Hann að gleðjast yfir unn- um sigrum barna sinna og barna- barna. Hann að lifa lífinu og taka stóran þátt í lífi annarra. Í huganum hef ég afar skýra mynd af pabba hennar vinkonu minnar. Myndin er af stórum manni með hlýtt og traust hjarta. Hann hefur sterkar hendur og hlýjan faðm. Hann er með mikla rödd, með blik í augum, brosmild- ur og hlær hátt. Hann er hjálp- samur og umhyggjusamur. Hann er dugnaðarforkur. Fjölskyldan er honum allt. Þetta er mynd af manni sem gott var að tala við í trúnaði, manni sem mundi tímana tvenna og var umfram allt góður drengur. Nú þegar kveðjustundin er runnin upp trúi ég að Theodór hafi verið hvíldinni feginn. Hann var búinn að standa sína vakt; til sjós og lands, með sóma og gat með stolti litið yfir farinn veg. Elsku Margrét og þið öll, við Sigfús vottum ykkur innilega samúð og vitum að minningin lifir í hjörtum ykkar. Guð blessi minningu Theodórs Jónssonar. María Solveig Héðinsdóttir. Ungum manni er sýnt mikið traust. Hann siglir skipi sínu um fjarlæg mið til að draga björg í bú. Það er allra veðra von. Það gerir fárviðri og það hleðst ísing á skip- in á miðunum. Unga manninum tekst að sigla skipi sínu úr kalda sjónum í hlýrri sjó þar sem veðrið er það sama en skipið heldur sjó og tekur ekki á sig ísingu. Að lok- um siglir ungi maðurinn skipi sínu öruggur í höfn. Síðar siglir maðurinn um miðj- an aldur sálarfleyi sínu í strand. Þegar hann nær landi hittir hann fyrir annan strandkaftein. Báðir sigldu fleyjum sínum heilir í höfn. Með þessum mönnum tókst vin- átta sem stóð í full 30 ár. Stundum var fjörður á milli. En aldrei slitn- aði vinar- og hugarþelið. Nú hefur skipstjórinn siglt fleyi sínu inn í eilífðina, inn í fegurð himinsins. Ég þakka skipstjóranum vin- áttuna. Verði hann guði falinn. Megi minningin um skipstjór- ann heiðrast í vitund þinni. Vilhjálmur Bjarnason. Fyrsta minningin um Theodór Jónsson, Tedda, er frá því ég lík- lega um fjögurra ára aldur er að flytja honum einhverjar merkileg- ar fréttir um kartöflu þar sem ég stóð við tröppurnar á Hlunnavogi 10. Orðið „kartafla“ vafðist fyrir þeim stutta og man ég að Teddi brosti góðlátlega að talæfingunni, en klapp á kollinn og hughreyst- ing fylgdi sem auðveldaði að vinna úr tungubrjótnum. Teddi var hluti af stórum vina- hópi foreldra minna heitinna sem myndaðist með frumbýlingum í Hlunnavogi 10 og 12 í Reykjavík á sjötta áratug síðustu aldar. Þar hóf þetta ágæta fólk ungt búskap sinn en fjölskyldurnar stækkuðu hratt og örugglega og þrengdist því eðlilega um í húsi hjá sumum. Þannig liðu ekki mörg ár þar til fjölskyldurnar fóru að sundrast í búsetu en vinaböndin voru tryggð fyrir lífstíð. Við börnin nutum auð- vitað góðs af samskiptunum við þetta góða fólk og hvert við annað, ýmist á heimilum okkar, í sumar- húsum, veiðiferðum eða ógleym- anlegum útilegum innanlands. Það er ekki laust við að manni finnist að þessar minningar verði dýrmætari með árunum og fyllist þakklæti fyrir að hafa verið hluti af þessum einstaka hóp. Þrátt fyrir að hafa ekki um- gengist Tedda þannig að rétt væri að segja að hann hefði verið hluti af daglegu lífi mínu finnst mér alltaf að hann hafi verið mér í ákveðinni merkingu nálægur. Kannski var hluti skýringarinnar að hin síðari ár talaði hann oft um pabba sem „bróður“ sinn sem fljótt varð gagnkvæmt hjá þeim vinunum. Þeir voru ekki alveg ólíkir í útliti en líklega var þetta fyrst og fremst vitnisburður um einlæga vináttu þeirra. Viðbrögð Tedda við jarðeplatalinu, sem áð- ur er getið, varð vísir að því við- móti sem hann sýndi mér alla tíð, allt til síðasta samtals sem við átt- um degi eftir 90 ára afmælisdag hans síðsumars. Þá bar hann sig vel að vanda, afskaplega þakklát- ur fyrir hlutskipti sitt í lífinu, minnugur á eldri tíma og einlægur sem fyrr, en eðlilega var aldurinn svolítið farinn að kroppa í þennan sterka mann. Í öðru símaspjalli okkar var mér sérstaklega ljúft að heyra ferðalýsingu hans á Anfield í Liverpool, en þangað hafði hann þá nýlega sótt knattspyrnuleik með sínum nánustu og hafði aug- ljóslega notið hverrar mínútu. Frásögnin var lifandi eins og vænta mátti en öll var hún jafn- framt til vitnis um það hversu mjög hann elskaði fjölskyldu sína og hvað hún hefði fyllt hann stolti og þakklæti í gegnum tíðina. Teddi hafði sterka og hljóm- fagra rödd sem virkaði alltaf mild, enda minnist ég ekki annars en að hún hafi jafnan tjáð jákvæðni og hressleika. Get rétt ímyndað mér að þessi hljómmikla rödd hafi gagnast skipstjóranum Tedda vel, t.d. þegar gaf á bátinn og koma þurfti skilaboðum til áhafnar á dekki. Teddi hafði góða nærveru og fannst mér ég ávallt njóta vænt- umþykju hans. Fátt er manni gef- ið verðmætara og ég vona innilega að mér hafi auðnast að endur- gjalda að einhverju leyti þá tilfinn- ingu. Blessuð sé minning Theodórs Jónssonar. Ólafur Haukur Jónsson. ✝ Arnþóra Hall-dóra Sigurðar- dóttir (Adda) fædd- ist í Reykjavík 25. september 1925. Hún lést á Land- spítalanum 25. nóv- ember 2019. For- eldrar hennar voru Kristrún Krist- geirsdóttir verka- kona, f. 20. apríl 1892 á Nesjum í Grafningi, d. 1. feb. 1986, og Sigurður Jónsson ölgerð- armaður, f. 15. mars 1892 á Akranesi, d. 13. janúar 1977. Systkini Arnþóru voru: Jón Har- aldur, f. 20. jan. 1920, d. 31. mars 1951, Sigurður Þórir, f. 23. okt. 1921, d. 18. feb. 1942 og Auður, f. 23. sept. 1924, d. 7. apríl 2005. Hinn 1. desember 1956 gengu Adda og Bjarni J. Bjarnason klæðskeri, f. 27. okt. 1928 í Reykjavík, í hjónaband. Bjarni er sonur hjónanna Halldóru Jó- hönnu Sveinsdóttur húsmóður, f. í Reykjavík 28. nóvember 1895, d. 26. janúar 1984 og Bjarna Jónssonar, f. í Reykjavík 3. júní 1889, d. 31. desember 1974, lengst af skipstjóra á skipum Eimskipa- félags Íslands. Adda og Bjarni eignuðust dótt- urina Auði, f. 14. september 1965, sem er gift Tryggva Hafstein, f. 21. júlí 1965 og þeirra sonur er Bjarni Þór Hafstein, f. 11. febrúar 2000. Adda ólst upp í miðbæ Reykjavíkur. Ung að árum hóf hún störf í verslun og starfaði alla tíð sem verslunarkona í Reykjavík, lengst af í tísku- vöruversluninni Gullfoss. Adda og Bjarni ráku í félagi við systur Öddu, mágkonu og bróður hennar verslunina Dragtina á Skólavörðustíg ásamt sauma- stofu um árabil. Útför Öddu fer fram frá Dóm- kirkjunni í dag, 5. desember 2019, og hefst athöfnin klukkan 15. Ástkær tengdamóðir mín, Adda, er látin. Það er óhætt að segja það að maður velur sér vini og maka en ekki foreldra, skyldmenni eða tengdaforeldra. Lánið lék við mig þegar leiðir okkar Auðar, einka- dóttur Öddu og Bjarna, lágu sam- an fyrir tæplega 30 árum. Betri og samrýndari hjón er erfitt að finna, gagnkvæm ást, virðing og væntumþykja skein af þeim hvar og hvenær sem var. Adda var Reykvíkingur í húð og hár, fæddist og ólst upp í mið- bænum og bjó í Reykjavík alla tíð. Hún var yngst fjögurra systkina. Þegar Adda var um fimm ára gömul skildi leiðir foreldra henn- ar og systkinin ólust upp hjá móð- ur sinni sem var verkakona í Reykjavík. Þetta fjölskyldu- mynstur hafði sterk áhrif á Öddu og hafði mótandi áhrif á allt henn- ar lífsviðhorf. Réttlæti, jafnrétti, ósérhlífni, kærleikur og um- hyggjusemi voru hennar gildi í líf- inu. Öddu var sérstaklega um- hugað um þá sem næst henni stóðu og fylgdist hún vel með og spurði reglulega frétta af fjöl- skyldu og vinum og lagði sitt af mörkum við að treysta fjölskyldu- böndin og rækta samband. Adda var snillingur þegar kom að veisluhöldum, hún var einstak- lega smekkleg og handbragð hennar leyndi sér ekki, enda yf- irleitt fengin á heimili okkar til að setja punktinn yfir i-ið þegar mik- ið stóð til. Fyrir vikið varð allt glæsilegra. Adda hafði einstaka frásagnar- gáfu og gott minni. Hún sagði frá löngu liðnum atburðum á þann máta að þeir voru sem ljóslifandi fyrir þeim sem á hlustuðu. Adda og Bjarni kunnu svo sannarlega að njóta lífsins á hverju æviskeiði, það þurfti ekki mikið til, göngu- túrar, bíltúrar og samverustundir með fjölskyldu og vinum gáfu líf- inu gildi. Adda var ávallt glöð og kát, já- kvæð með dillandi og smitandi hlátur sem tekið var eftir. Hún var hreinskilin, átti sérstaklega auðvelt með að halda uppi sam- ræðum við hvern sem er og hafði þægilega nærveru, hún hafði ákveðnar skoðanir á málefnum og fylgdi sínum skoðunum vel eftir. Adda starfaði í verslun allan sinn starfsferil, hún hafði gaman af fólki, fallegum flíkum og hlut- um, fylgdist vel með tísku og tíð- aranda og sölumennska var henni í blóð borin. Hún átti sérstaklega auðvelt með að ráðleggja við- skiptavinum af heilum hug og um- gangast þá á þann hátt að þeim liði vel í návist hennar. Hún átti tryggan og góðan viðskiptavina- hóp. Lengst af starfaði hún í tískuvöruversluninni Gullfoss, en þau Bjarni ráku um árabil eigin tískuvöruverslun, Dragtina, og saumastofu í félagi við aðra í fjöl- skyldunni. Þegar starfsævi Öddu lauk helgaði hún sig fjölskyldunni og heimilinu enn frekar, sonur okkar Auðar, Bjarni Þór, fékk óskipta athygli hennar. Engillinn, eins og hún kallaði hann ávallt, var henni afar kær. Hún og Bjarni voru fyrstu dagforeldrar Bjarna Þórs og þar kom ást og umhyggjusemi Öddu enn betur í ljós. Amma Adda og Bjarni Þór voru góð sam- an, þau spiluðu mikið saman á spil, fyrst var það ólsen-ólsen, seinna meir rommý og vist og auðvitað gat stráksi platað ömmu í fótbolta, hún gerði allt fyrir hann. Þau Bjarni voru ávallt til staðar fyrir okkur fjölskylduna. Það eru mikil forréttindi og ómetanlegt fyrir okkur að hafa búið við ást og væntumþykju Öddu. Hún var engum lík. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson) Takk fyrir allar yndislegu sam- verustundirnar, elsku Adda mín. Minning þín lifir með okkur. Tryggvi Hafstein. Elsku amma mín, Adda, er lát- in. Hún var sterkur persónuleiki, jákvæð, hlý og yndisleg mann- eskja. Amma var ávallt tilbúin að ræða við mig, hlusta og styðja með ráðum og dáð. Velferð mína vildi hún sem mesta og lagði ríka áherslu á að ég myndi mennta mig og efla mig í því sem ég hefði áhuga á. Uppgjöf var ekki til í orðabók ömmu, erfiðleikar væru til að sigrast á og brosandi ætti maður að takast á við lífið, það skiptust alltaf á skin og skúrir. Amma gaf mér gott veganesti inn í framtíðina, hún brýndi fyrir mér að sýna heiðarleika og dugnað í verki, treysta á sjálfan mig og ekki síst að vera góður maður. Ég mun sakna Öddu ömmu enda- laust. Athvarf hlýtt við áttum hjá þér ástrík skildir bros og tár. Í samleik björt, sem sólskinsdagur samfylgd þín um horfin ár. Fyrir allt sem okkur varstu ástarþakkir færum þér. Gæði og tryggð er gafstu í verki góðri konu vitni ber. Aðalsmerkið: elska og fórna yfir þínum sporum skín. Hlý og björt í hugum okkar hjartkær lifir minning þín. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Takk fyrir allar yndislegu sam- verustundirnar og gleðina og hlýjuna sem þú veittir mér. Ég veit að þú fylgist með mér úr fjarska. Minning þín er mér ljóslifandi, hvíl í friði. elsku amma mín. Bjarni Þór Hafstein. Þegar litið er um öxl og lífið skoðað festist hugurinn við ein- stakar konur og menn og atburði sem á einhvern hátt hafa haft áhrif. Adda uppáhaldsfrænka mín sem nú er fallin frá er ein af þeim sem eru ofarlega í huga, sérstak- lega þegar komið er að þeim krossgötum sem nú er staðið á. Hún hefur verið hluti af lífi mínu svo lengi sem ég man. Hún var sterk, dugleg, skynsöm, trygg- lynd og blíð kona sem lagði sig í framkróka um að halda fjöl- skyldusögunni í fortíð og nútíð til haga þannig að við vissum hvaðan við komum. Í raun er það svo að án uppfræðslu Öddu væri þekk- ing mín á skyldmennum í föður- ætt takmörkuð og ég því mun fá- tækari um vitneskjuna um hver ég er. Við vorum systkinabörn, pabbi minn og mamma hennar, Kristrún, voru systkini. Á milli systkinanna voru sterk bönd, svo sterk að þegar mamma mín og pabbi ákváðu að gifta sig upplýsti pabbi mömmu um að börn Krist- rúnar væru sem hans eigin börn. Samhugur var því mikill. Adda giftist Bjarna, þessum öðlingi. Fá hjón ef nokkur hef ég þekkt sem eru samrýndari en þau, full virðingar og elsku hvort fyrir öðru. Heima hjá mér er það þannig að þau eru alltaf nefnd saman, Adda og Bjarni: Adda og Bjarni hringdu, Adda og Bjarni komu í heimsókn o.s.frv. Og svo kom Auður, sem nú tekur við hlutverkinu sem uppáhalds- frænka mín. Margs er að minnast en þó mest velvildar og vináttu Öddu í minn garð og minna. Sumar- kvöldin þegar ég var lítill og Adda og Bjarni komu í heimsókn, ég úti að leika mér í miðjum leik með fé- lögunum en hætti og fór inn til þess að vera með. Það var spjall- að, hlegið, drukkið kaffi, borðaðar kökur, spilað á spil og alltaf var samveran góð og stóð lengi. Heimsókn til Öddu og Bjarna í Granaskjól, Hvassaleiti, Breið- holt og Miðleiti, þessi ótrúlega fínu og hlýlegu heimili sem báru þeim sem þar bjuggu frábært vitni, marengstertan, ostabotninn og súkkulaðitertan með kaldri mjólk, maður lifandi var hægt að biðja um meir. Umhyggjan og velvildin þegar pabbi féll frá þeg- ar ég var tíu ára, göngutúr út á Álftanes þar sem ég synti í sjón- um í fyrsta sinn og gamlárs- kvöldin með flugeldum og gleði. Áhugaverð og upplýsandi sam- vera og símtöl við Öddu í gegnum lífið og fram á það síðasta eru hluti af lífsmynd minni sem ekki gleymist og er mér og mínum mikilvægt. Við Þóra og börn okkar kveðj- um Öddu með söknuði og þakk- læti. Við vottum Bjarna, Auði, Tryggva og Bjarna yngri okkar dýpstu samúð. Guð blessi Öddu. Ágúst Þór Jónsson. Fyrir rúmum sjötíu árum kom ungur drengur frá Ísafirði með foreldrum sínum í heimsókn til föðursystur á Lokastígnum, rétt fyrir neðan Skólavörðuholtið. Í minningunni geisla hinar tvítugu heimasætur af gleði og lífskrafti; Reykjavíkurdömur sem þrátt fyr- ir fátæka móður og hennar strit báru með sér stíl hefðarkvenna. Adda frænka hélt ætíð fasinu og léttleikanum, reisn og fágun sem ég skynjaði ungur í hinni litlu íbúð á Lokastígnum; allt til síð- ustu vikna þegar hún og Bjarni fóru ásamt sínum nánustu í af- mælismálsverð á einu af bestu veitingahúsum höfuðborgarinnar. Þar sátu þau hlið við hlið og kær- leikurinn skein af þeim báðum; klæðnaðurinn hefði eins og ætíð sómt sér vel á bresku aðalssetri. Adda var sú í fjölskyldu Gríms sem fylgdi mér lengst og frænd- rækni hennar var einstök; áhug- inn á hag mínum og vegferð ein- lægur og lifandi; sá í dætrum mínum samhengið við æviskeið Kristrúnar móður sinnar og bræðranna Jóns og Gríms; systk- inanna sem komu fátæk með Guð- nýju móður sinni frá Gilsstreymi í Lundarreykjadal þegar síðasta öld var enn ung að árum. Hún sá Reykjavík breytast úr þorpi í borg; vann lengi í þekktri verslun í Aðalstræti þar sem allar helstu frúrnar keyptu sér föt og treystu dómgreind Öddu. Hún var glöggur mannþekkjari sem líka sá hið skoplega í fari fólks og óvenjulegum aðstæðum. Hógvær ummæli hittu oft naglann á höf- uðið. Það varð svo gæfa hennar að giftast Bjarna og saman urðu þau eitt; leiddust í gegnum lífið allt til hinstu stundar. Líkt og Kristrún náði Adda háum aldri og báðar héldu and- legri reisn og lifandi áhuga þótt ævi beggja yrði talin í nær hundr- að árum. Við ferðalok kemur í hugann síðasta heimsókn hennar til okkar á Bessastaði þegar hún kom og gaf dóttur minni púða sem móðir mín Svanhildur hafði saumað þegar hún var sjúklingur á Vífils- stöðum og hafði fært Kristrúnu á Lokastíg. Sú stund lýsti Öddu vel og mun ætíð fylgja okkur; minn- ing um góða konu, kæra frænku og vin. Ólafur Ragnar Grímsson. Eftir notalegar samræður og fyrirtaks kaffiveitingar á heimili Öddu og Bjarna móðurbróður okkar var kveðja Öddu við úti- dyrnar iðulega „Þú lætur endi- lega sjá þig fljótlega aftur“. Kveðjur verða varla hlýlegri, enda fórum við endurnærðar af þeirra fundi. Umræðuefni skorti ekki og stutt var í gamansemi en alltaf á jákvæðum nótum. Þau Bjarni gengu saman lífsins braut í yfir 60 ár og voru alla tíð einstaklega samhent hjón. Gerðu allt saman og hver hlutur á heim- ili þeirra var valinn af kostgæfni. Vel meðvituð um tískustrauma og sígilda hönnun. Í íbúð sem þau áttu á sínum tíma í Hvassaleitinu var einn veggur málaður dökk- blár fyrir næstum hálfri öld. Þetta þótti okkur ótrúlega flott, en framandi. Þá sást slíkt hvergi annars staðar. Oft fylgdi húsmun- unum saga, sem sýndi m.a. sam- hug þeirra hjónanna við valið og aldrei var neitt keypt nema fyrir því væri innstæða. Þau komu ár sinni vel fyrir borð saman í lífinu af þrautseigju og dugnaði við vinnu. Adda var glæsileg dama, alltaf elegant. Klassísk og nútímaleg í fatavali sínu. Hún starfaði lengst af í vönduðum fataverslunum, rak um tíma sjálf slíka verslun sem hét Drífa og var við Klapparstíg. Adda var félagslynd og lét sér annt um fjölskyldu sína og vini. Börn löðuðust að henni. Ákveðin og sterk, réttsýn og skemmtileg. Víðsýn og öguð. Á síðustu árum fékk hún eins og aðrir heilsufars- lega skelli, en stóð alltaf keik upp aftur og missti aldrei virðulegt fasið. Við kveðjum góða konu, sem lifði lífinu lifandi, átti einstaklega gott líf með Bjarna sínum, með Auði og Tryggva, og ekki síst augasteininum sínum, barna- barninu Bjarna Þór. Við systur og fjölskyldur okkar vottum þeim öllum innilegustu samúð og þökkum hlýhuginn, gestrisnina, hjálpsemina og skemmtilegheitin á liðnum árum. Minningar um gott fólk lifa. Ásdís J. Rafnar, Halldóra J. Rafnar. Arnþóra Halldóra Sigurðardóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.