Morgunblaðið - 05.12.2019, Síða 54

Morgunblaðið - 05.12.2019, Síða 54
54 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 2019 Mig minnir að það hafi verið um miðjan sjöunda áratug síðustu aldar að við Kristján Kristjánsson kynntumst. Hafði að vísu hitt hann aðeins áður, en þá kom hann um borð í Gunnar SU-139 þar sem ég var skipverji. Okkur varð fljótt vel til vina, höfðum svipuð áhuga- mál og aðstæður svolítið líkar, jafngamlir og eiginkonur okkar komu úr sama umhverfi og báðir að stofna fjölskyldu og þegar þetta var áttum við samtals orðið fimm dætur sem voru á svipuðum aldri. Það var því um ýmislegt til að spjalla þegar við vorum tveir saman á næturvöktum og hann var að reyna að kenna mér að spila canasta. Það var líka eftir að ég kynntist honum að ég öðlaðist nýj- an skilning á þeirri göfugu íþrótt brids en Kristján var góður og vandvirkur bridsspilari og lærði ég mikið á því að spila við hann. Og ég man vel eftir því og var frekar upp með mér þegar hann bað mig um að leysa sig af á sjón- um sem vélstjóri þegar von var á Kollu dóttur hans og Heiðu í heim- inn. Við Kristján tókum ekki upp fastan makkerskap fyr en á tíunda áratug síðustu aldar, vorum reyndar búnir að spila heilmikið saman áður og sá félagsskapur hélst meðan báðir stunduðu þessa íþrótt að einhverju marki. Spila- félagarnir gerðu stundum góðlát- legt grín að okkur þegar báðir voru í trúnaðarembættum fyrir Kristján Kristjánsson ✝ Kristján Krist-jánsson fæddist 9. nóvember 1941. Hann lést 18. nóv- ember 2019. Útför Kristjáns fór fram 3. desem- ber 2019. Minning- arathöfn verður í Kópavogskirkju 6. desember klukkan 15. bridshreyfinguna, hann sem forseti Bridgesambands Ís- lands sem hann gegndi í nokkur ár og ég í forsvari fyrir Bridgesamband Austurlands, og köll- uðu þetta forseta- borðið. Þær voru orðnar ansi margar ferðirnar sem við áttum saman um landið þvert og endilangt til að spila ásamt félögum okkar og yf- irleitt alltaf mjög skemmtilegar hvernig sem úrslitin urðu. Kannski var ein sú eftirminnileg- asta þegar við fórum vestur á firði til að spila bikarleik, þriggja daga ferð og töpuðum með 1 impa. Og ekki síður rúbertuspilamennskan í heimahúsum við þá félaga Alla og Sölva og fleiri góða kunningja, alltaf einhverjir aurar á punktinn og gjarnan lagt á horn fyrir rú- bertuna. Og það var ekki síður gott að eiga hann að vini ef eitt- hvað bjátaði á, alltaf tilbúinn að leggja til farsælar lausnir. Og þó að samverustundum hafi fækkað síðan við hættum að mestu að spila var þó hittingur á hverjum morgni í Sammakaffi ef báðir voru á staðnum. Kæri vinur, kannski eigum við eftir að hittast í sumarlandinu og þá verða væntanlega teknar nokkrar rúbertur og lagt duglega á horn. Við Inga sendum Heiðu, dætrum og fjölskyldum þeirra okkar innilegustu samúðarkveðj- ur. Ásgeir Metúsalemsson. Don Kristján vaknar snemma, hellir upp á kaffi og sker niður epli fyrir ömmu sem finnst best að hvíla sig lengur. Hann skellir sér niður á Olís í karlakaffið og ræðir heimsmálin, kemur svo aftur heim og við setjumst saman niður í morgunkaffi. Verkefni dagsins eru fjölbreytt; skutlast eftir hinu og þessu, húsbíllinn, tæknivanda- mál, lagfæringar, smíðastörf eða annað sem til fellur. Skítugar hendur, spilastokkur, meira kaffi, möndlur og alltaf afakex. Það er ætíð nóg að gera hjá afa Kristjáni. Fullt hús af dætrum, tengdason- um, barnabörnum og barnabarna- börnum. Nóg um að vera. Hann dregur sig í hlé niður í bílskúr en horfir með aðdáun á litla afkom- endur í stússi bernskunnar. Dag- urinn líður og drífa þarf mat á borð því að alls ekki má missa af kvöldfréttum sjónvarpsins. Það er engin tilviljun að þú kvaddir okk- ur á slaginu sjö. Þetta var þinn heilagi tími og það var falleg til- hugsun að þú hafir horft á frétt- irnar í Sumarlandinu. Með aldrinum varðstu meyrari og þakklátari. Tilfinningarnar komu fram í orðum en ekki bara hugsunum. Tár á vanga yfir söng, gleði, fallegum orðum og litlum af- komendum. Nýjasta Soffían var hið fallegasta og besta barn sem þú hafðir augum litið. Þú sagðir það sjálfur. Þú kvaddir þakklátur fyrir lífið og varst sáttur við Guð og menn. Þið amma eruð fyrir- myndir okkar allra. Þó að þið vær- uð eins ólík og hægt væri að hugsa sér voru þið ein órjúfanleg eining. Það var óendanlega dýrmætt að fá að vera með þér síðustu stundirnar í þínu lífi. Þú fékkst svo sannarlega að kveðja í faðmi ást- vina þinna. Sorgmædd en óendan- lega þakklát fyrir allar góðar minningar, sérstaklega nýliðnar samverustundir, fáum við okkur spaghetti Carbonara þér til heið- urs. Við elskum þig. Þín stærsta Soffía og Gosar, Álfheiður, Ingvi Rafn og Eysteinn Þorri. Komdu sæll, frændi sæll. Á þessum orðum hófust flest símtöl okkar síðustu áratugina. Ég er þakklátur forsjóninni fyrir að hafa fengið að kynnast og vera vinur og næstum sem bróðir Kristjáns Kristjánssonar í 77 ár eða alla mína ævi. Drengskapar hans og vináttu þeirra Álfheiðar konu hans mun ég alltaf minnast og bera með mér alla tíð. Sérstak- lega er minnisstætt hvernig þau reyndust okkur Kolfinnu og fjöl- skyldunni þegar áfallið reið yfir okkur á Reyðarfirði 1984. Þakka fyrir öll samskiptin og skemmtilegar heimsóknir á báða vegu, til Reyðarfjarðar, Wagrain og margar heimsóknir þeirra til okkar Kolfinnu í Laholm. Innilegar samúðarkveðjur til Álfheiðar og fjölskyldu. Vertu sæll, kæri vin og frændi sæll. Þorsteinn Johansson. Við kveðjum hér kæran vin okkar Kristján Kristjánsson með nokkrum fátæklegum orðum. Við vorum svo heppin að kynnast Kristjáni og Álfheiði konu hans þegar við fluttumst til Reyðar- fjarðar haustið 2005. Kristján reyndist okkur og drengjunum okkar strax frá upphafi sannur vinur. Hann var ávallt boðinn og búinn að rétta okkur hjálparhönd og vera okkar stoð og stytta í hví- vetna. Það var alltaf gaman að hitta Kristján. Hann tók okkur innilega og fagnandi, reifst svo og skammaðist um málefni líðandi stundar og kvaddi okkur svo með kossi. Þó Kristján hefði sterkar skoðanir var hann um leið mikill húmoristi. Þegar við kynntumst Kristjáni var hann hættur að vinna en var þó langt frá því að vera sestur í helgan stein. Hann var alltaf með eitthvert verkefni að vinna að enda var hann athafnamaður fram á dauðadag. Við erum ákaflega þakklát fyrir þau ár sem við feng- um að fylgja Kristjáni, vináttu hans og allar góðu og skemmti- legu stundirnar sem við áttum með honum. Við eigum eftir að sakna hans sárt. Við sendum elsku Álfheiði, dætrum og fjölskyldum þeirra okkar innilegustu samúðarkveðj- ur, Guð blessi ykkur öll. Minning um góðan mann mun lifa í hjörtum okkar að eilífu. Hólmgrímur Elís og Guðlaug. ✝ Hafþór ViðarGunnarsson fæddist á Akureyri 6. mars 1963. Hann lést í faðmi fjölskyldunnar á Landspítalanum við Hringbraut 23. nóvember 2019. Hafþór var son- ur hjónanna Gunn- ars Jakobssonar, f. 23. mars 1943, d. 12. október 2009, og Guðrúnar Helgadóttur, f. 3. febrúar 1944. Systir Hafþórs er Kristín Gunnarsdóttir, fædd 15. desem- ber 1966. Hafþór giftist ástinni sinni, Önnu Björk Ívarsdóttur, f. 15. október 1968, 8. mars 2003. Synir þeirra eru Helgi Már, f. 25. desember 1986, eiginkona hans Laufey Hansen. Ragnar Máni, f. 25. júlí 1991, sambýlis- kona hans Tanja Ýr Einisdóttir. Úlfar Logi, f. 22. maí 1996. Afastrákur Hafþórs, sonur Helga Más, er Bjarki Stefán, f. 16. október 2009. Hafþór ólst upp á Akureyri þar sem hann bjó alla tíð umvaf- inn fjölskyldu og vinum. Útför Hafþórs fer fram í Ak- ureyrarkirkju í dag, 5. desem- ber 2019, klukkan 13.30. Það er erfitt að trúa því að elsku vinur okkar Hafþór sé far- inn. Við hjónin urðum þeirrar gæfu aðnjótandi að kynnast Önnu og Haffa í einni af fjölmörgum heim- sóknum okkar til Akureyrar til Gunna Nella og Röggu. Anna og Haffi bjuggu þá í næstu íbúð og kynnti Gunni þau fyrir okkur sem „sambýlingana“. Eftir það urðum við öll góðir vinir og höfum brallað ýmislegt saman í gegnum árin. Þegar Addi varð fimmtugur komu fjórmenningarnir frá Akur- eyri suður í afmælisveislu. Þá var mikið leynimakk með gjöfina og mátti Addi ekkert vita. Þeim datt í hug að gefa honum sérhannaðan arin, sem var smíðaður af Haffa sjálfum, og nefndu þau hann að sjálfsögðu ARNAR í höfuðið á af- mælisbarninu. Við munum alltaf hugsa til hans Haffa þegar við kveikjum upp í „arnari“ úti á palli. Fyrsta utanlandsferðin okkar með Önnu og Haffa var að sjálf- sögðu til Liverpool, þar sem strákarnir fóru á fótboltaleik og við stelpurnar versluðum aðeins á meðan og áttum við öll skemmti- legan tíma saman. Síðastliðið vor fórum við síðan með þeim í sigl- ingu á Karíbahafi. Það var mikið ævintýri og töluðum við um að skella okkur aftur saman í fram- tíðinni. Við eigum því dýrmætar minningar frá ferðum okkar út fyrir landsteinana og ekki síður í sumarbústaðinn eða þær fjöl- mörgu ferðir sem við fórum um landið í fellihýsunum okkar. Það er óraunverulegt að hugsa til þess að Haffi komi ekki með okkur í fleiri ferðir. Það verður erfitt að fylla í skarðið hans Haffa okkar en minningin lifir. Elsku Anna og fjölskylda, okk- ar innilegustu samúðarkveðjur. Guð veri með ykkur. Gerða og Guðmundur Arnar (Addi). Hvernig á maður að trúa því sem gerist þegar það á ekki að gerast svona skyndilega og svona fljótt? Sannleikurinn er ekki alltaf sanngjarn og dauðinn heimsækir okkur þegar síst varir. Hafþór Gunnarsson, Haffi frændi, var sóttur allt of snemma, löngu fyrir mjaltir og löngu áður en við áttum að gefa hænunum eða moka flór- inn. Við Haffi urðum vinir á Stafni í Reykjadal, Þingeyjarsýslu, en þar var okkar staður og þar voru okk- ar góðu stundir á sjöunda og átt- unda áratug síðustu aldar. Báðir vorum við viljugir til verka að mig minnir, hið minnsta vorum við til í að vera sífellt til staðar, enda allt Stafnsfólkið okkur gott. Afi og amma Haffa í forsæti sem urðu jafnframt afi og amma mín frá fyrsta degi. Inn á milli og alla tíð átti leikurinn hug okkar allan, með öllum hinum frændsystkinum okkar enda flest á sama aldri. Krakkarnir á Völlum og efri bæj- um gerðu þennan ramma upp- vaxtaráranna að ógleymanlegum stundum. Haffi er órjúfanlegur hluti af þeirri vegferð minni til betri manns og með honum á lífs- ferilsmyndinni verða minningarn- ar ennþá hjartnæmari. Nú er allur þessi barnahópur á sextugs- og sjötugsaldri. Sumir samt farnir í leitirnar löngu og Haffi nú kominn með þeim til starfa, kröftugur og ljúfur kunnáttumaður. Reykjadalsáin með sitt djúpa gil á köflum, Laugagrófina og hið margrómaða Austurgil, var einnig okkar sumarstaður, löngu áður en veiðileyfi og sleppingar þvældust í orðabækur. Haffi var eðlislægur og afar lunkinn veiðimaður, en til að byrja með lærðum við hvor af öðrum, þekktum alla staðina út og inn, alla steinana, pollana, bugð- urnar og beygjurnar. Ég get farið um ána í huganum eins og um ljóð sé að ræða. Haffi er með mér í þeirri hugsun, alltaf til staðar, traustur og sannur vinur og frændi. Hann var svo öflugur að geta haldið á öllum aflanum þegar við komum vestur af heiði, frá Arn- arvatni, enda var Haffi miklu miklu miklu sterkari en ég, gat jafnhent mjólkurbrúsa löngu fyrir ferm- ingu. Um allt það sama gilti ástúðin um stundirnar sem ég fékk að vera með Haffa á Akureyri hjá Gunnu, Gunna og Diddu systur. Þau fjögur leyfðu mér að vera sem einn af hópnum, jafnvel í skemmtilegustu hringferð minni um landið, rétt eft- ir opnun Skeiðarársands. Með Haffa var svo hlaupið niður á Nið- ursuðubryggju eða Togarabryggju og stokkið inn á Eiðsvallagötuna til afa og ömmu Haffa með aflann. Já Haffi og veiði var líkt og spegil- mynd hvort af öðru og veiðimað- urinn Haffi hélt áfram allt sitt líf, sannur sigurvegari, alltaf til í veiði og alltaf til í að styðja Þór og Liver- pool með vonina að vopni. Kæra Anna Björk, strákarnir Helgi Már, Ragnar Máni og Úlfar Logi, Gunna frænka, Kristín og þið öll hin sem kveðjið saman sannan ástvin, traustan og trúfastan, meg- ið þið njóta stuðnings hvert frá öðru og frá minningunum sem eng- inn frá ykkur tekur. Megi allt hið góða sem Hafþór ykkur gaf aldrei vera frá ykkur tekið. Hafþór Gunn- arsson gerði líf mitt fallegra og ég mun alltaf minnast hans með vænt- umþykju og kærleik. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Hvíl í friði, kæri vinur. Gunnar Svavarsson. Ennþá einu sinni erum við minnt á hversu hverfult lífið er og enginn veit hver er næstur. Ég kynntist Hafþóri við veiðar í Blöndu vormorgun einn árið 1990. Við fundum strax báðir að áhugamál og viðhorf fóru saman og þar kynnti Haffi fyrir mér sjó- stangaveiðina. Hann fræddi mig um búnað og beitur og tók mig svo með á mót. Hafþór var gríð- arlega öflugur veiðimaður í Sjó- stangaveiðifélagi Akureyrar, SJÓAK. Þau voru ófá skiptin að nafn hans var lesið upp við verð- launaafhendingar á lokahófum sjóstangamótanna. Leiðir okkar Haffa lágu svo saman æ oftar upp úr þessu og varð hann einn af stofnendum veiðiklúbbsins Óríon. Þar nutum við félagar hans margra ánægju- legra samverustunda með honum í veiðiferðum og uppákomum í gegnum árin. Haffi var skemmtilegur félagi, heill í gegn, fylginn sér og sínum skoðunum og ósjaldan kom það fyrir í rökræðum að hann skaut niður öll rök okkar hinna með hnitmiðuðum óvægnum setning- um, oftast blönduðum hæfilegu gríni. Ófáum brosum og hlátra- sköllum bar hann ábyrgð á í okk- ar hópi. Það er sárt þegar góðir vinir kveðja fyrir aldur fram en í hjört- um okkar lifir vonin um að við hittumst aftur á hinum eilífu veiðilendum handan regnbogans. Elsku Anna, synir og fjöl- skylda Hafþórs öll, við félagar hans vottum ykkur okkar dýpstu samúð. Skarphéðinn Ásbjörnsson og veiðifélagarnir í veiðiklúbbnum Óríon. Góður starfsfélagi okkar, Haf- þór Viðar Gunnarsson eða Haffi eins og hann var alltaf kallaður, er fallinn frá, langt um aldur fram. Haffi kom til starfa á lager Norðurorku í febrúar 2018. Það er skrítið til þess að hugsa hve stutt er síðan því okkur starfs- fólkinu finnst hann alltaf hafa verið hluti af okkur þar sem hann hafði frá fyrsta degi svo mikil og góð áhrif á vinnustaðinn. Þvottamál höfðu lengi verið hálfgert olnbogabarn í rekstri Norðurorku og vinsælt þrætu- epli. Illa gekk að láta fólk merkja vinnufatnaðinn sinn og erfitt var að hafa eftirlit með því að það sem færi í þvott skilaði sér á rétta staði að honum loknum. Haffi var ekki lengi að breyta þvottaum- ræðunni, hjá honum voru aldrei nein vandamál, hann sá ekki til- gang í tuði og svaraði undantekn- ingarlaust með „ekkert mál“ þegar hann var beðinn um eitt- hvað. Málunum var komið í lag á örskömmum tíma þegar hann tók þau í eigin hendur. Þvotti var skilað inn á lager til Haffa, hann lét fólk merkja og hugsa um dótið sitt með þeim vinsamlegu orðum: „Mamma þín vinnur ekki hér, þú verður bara að sjá um þetta sjálf- ur, vinur minn.“ Haffa varð sjaldan misdægurt og þegar hann fór heim úr vinnu með lungnabólgu hvarflaði ekki að neinum að hann ætti ekki aft- urkvæmt til starfa. Það er sárt fyrir okkur starfs- fólk Norðurorku að sjá á eftir góðum félaga og samstarfs- manni. Við vottum Önnu Björk, eig- inkonu Haffa, sonum þeirra og fjölskyldu samúð fyrir hönd stjórnar og starfsfólks Norður- orku. Helgi Jóhannesson. Hafþór Viðar Gunnarsson Ástkær sambýliskona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, INGIBJÖRG EINARSDÓTTIR, Imma í Runnum, lést laugardaginn 30. nóvember. Útför hennar fer fram frá Reykholtskirkju laugardaginn 7. desember klukkan 11. Guðni Kristján Sörensen Sigrún A. Ámundadóttir Sigurður Hermannsson Einar Ámundason Sigríður Sigurðardóttir ömmu- og langömmubörn Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, ÞÓRDÍS S. RAFNSDÓTTIR, Sléttuvegi 31, Reykjavík, lést miðvikudaginn 27. nóvember á Droplaugarstöðum. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 10. desember klukkan 13. Friðgeir Eiríksson Lára Erlingsdóttir Guðmundur Ólafsson Gunnar Erlingsson barnabörn og barnabarnabörn Elsku maðurinn minn og besti vinur, faðir okkar og sonur, PÁLL HEIMIR PÁLSSON, Jörfagrund 9, Kjalarnesi, lést á heimili sínu 24. nóvember. Útförin fer fram frá Háteigskirkju föstudaginn 6. desember og hefst klukkan 13. Bryndís Skaftadóttir Unnur Aníta Stefán Birgir Benedikt Arnar Hrafn Jökull Regína Gréta Páll Jökull Páll Friðriksson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.