Morgunblaðið - 05.12.2019, Side 62
62 BÆKUR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 2019
Suðið í honum
Þau þrjú eru í burtu yfir helgina
og hann reynir að láta sér detta í hug
eitthvað að gera, endar svo í Húsa-
smiðjunni. Þar fer hann að skoða
handklæðaofn sem er freistandi að
kaupa því þá væru handklæðin alltaf
heit eftir sturtuna. Á meðan hann
reynir að ákveða
hvort hann eigi að
kaupa ofninn,
birtist náungi
sem virðist vera
að leita að ein-
hverju í búðinni
og hann hugsar:
þessi.
Þeir heilsast og
spyrja hvort það
sé ekki allt gott bara. Og jújú það er
það bara. Á eftir fylgir hik og jájá og
akkúrat en síðan segir hinn – þessi
sem hann kannast við – að þannig sé
það ekki hjá einhverjum öðrum sem
hann man óljóst eftir. En hlýtur að
vera sameiginlegur kunningi þeirra
beggja. Þeir ræða aðeins um þá erfðu
stöðu sem sá virðist lentur í og báðir
vona að allt verði í lagi, kveðjast síð-
an.
Þegar hann er að aka frá búðinni
rifjast upp fyrir honum að hann ætl-
aði jafnvel að heimsækja einhvern
eða renna bílnum í gegnum þvotta-
stöð? Hann keyrir niður í Skeifu án
þess að vita af hverju. Hugsanlega
vegna þess að þar fæst svo margt, ef
honum dytti eitthvað í hug sem hann
vantar. Þótt hann muni ómögulega
hver náunginn í búðinni er, þykir
honum líklegt að handklæðaofninn sé
of stór fyrir baðherbergið.
Í Skeifunni ríkir hversdagurinn yf-
ir öllu og Reykjavík lætur sér fátt um
finnast þótt þetta sé um helgi. Það
hvarflar að honum að höfuðborg Ís-
lands sé varla staður. Að hún hafi
engin einkenni, önnur en rigningu,
rok og myrkur. Sjálf er hún bara
þarna, hlutlaus og grá. Að eyða þess-
um degi í henni er kannski eins og að
reyna við konu sem sýnir engan
áhuga á móti. Hann ekur áfram og
reynir að skilja hana, ná einhverju
sambandi við hana.
Hugsanlega eru það sveiflurnar
frekar en annað. Síbreytilegt veður
og vindáttir, skjannabirtan og
svartamyrkrið. Hann hugsar um
fleiri einkenni; stöðugt flugvélar og
sjófuglar fyrir ofan mann, bensín-
stöðvar, barnavagnar og kettir alls-
staðar. Á milli bárujárnsklæddra
húsa glittir í fjöll og á góðum degi má
standa í miðbænum og virða fyrir sér
jökul. En samt ekki, það er eitthvað
annað en þetta sem einkennir
Reykjavík sterkar, að honum finnst.
Síðan fær hann hugmynd að glæpa-
sögu.
Honum hefur alltaf liðið vel í Skeif-
unni. Þessu forljóta umhverfi sem
segir svo satt. Þessari uppsprettu
hversdagsins sem rennur um Grens-
ásveg, Suðurlandsbraut, Ártúns-
brekku, Breiðholtsbraut – og út í öll
önnur hverfi borgarinnar. Á meðan
hann leggur bílnum í einu af hinum
ótalmörgu stæðum, hugsar hann um
glæpasöguna. Það er nefnilega þann-
ig sem hugurinn virkar. Þegar hann
stendur frammi fyrir flatneskju og
grámyglu reynir hann að flýja með
því að ímynda sér æsilegri viðburði.
Þess vegna er svona mikið skrifað af
krimmum á Norðurlöndum. Hann
stígur út úr bílnum og er um leið
minntur á eitt einkenni Reykjavíkur
– láréttu rigninguna. Þennan við-
bjóðslega hryssing sem ræðst stund-
um á mann af svo mikilli hörku að
erfitt er að taka því ekki persónu-
lega.
Hvað ætlaði hann að gera í Hag-
kaup? Hann fer inn í búðina og sér að
þar eru seldar glæpasögur. Hann
grautar í þeim og með hverri síðunni
teiknast upp líf hans sem glæpa-
sagnahöfundar. Stöðug ferðalög á
milli bókmenntahátíða þar sem hann
les upp og veitir viðtöl um mikilvægi
hins samfélagslega þáttar í slíkum
bókum. Að í raun rúmist allt innan
glæpasögunnar! Að það sé kominn
tími til að taka hana alvarlega sem
bókmenntagrein. Hann mun ekki
veita viðtöl í íslenskum fjölmiðlum.
Og kápurnar á krimmunum hans
munu verða miklu fallegri en á þess-
um sem fást í Hagkaup. Ætti hann að
kaupa ofninn? Hann drífur sig út úr
búðinni.
Þegar hann er að keyra út úr
stæðinu rekur hann augun í Café
Mílanó og ákveður að fá sér eitthvað
að borða, ekur því yfir planið og legg-
ur aftur við kaffihúsið. Eins nálægt
því og hægt er. Líklega er þetta eina
kaffihúsið í borginni þar sem enn er
þjónað til borðs og Bylgjan spiluð í
hátölurum. Hann pantar kaffi og lít-
ur í kringum sig. Á næsta borði situr
fólk yfir smurbrauði og allt þarna
inni minnir á Reykjavík eins og hún
var. Áður en hún varð eins og hún er
í dag – hvernig sem hún er.
„ … engin einkenni, önnur
en rigningu, rok og myrkur“
Bókarkafli Í Sólarhringli veltir Huldar Breið-
fjörð fyrir sér sambandi Íslendinga við umhverfið
og hvernig skammdegið liti líf okkar.
Morgunblaðið/Hari
Skammdegi Í Sólarhringli
leggur Huldar Breiðfjörð
land undir fót til að skoða
samband Íslendinga við
umhverfi sitt.
SÖLUAÐILAR
Reykjavík: Gullbúðin, Bankastræti 6 s: 551-8588 · Gilbert úrsmiður, Laugavegi 62 s: 551-4100 · Meba Kringlunni s: 553-1199 · Michelsen Úrsmiðir, Kringlunni s: 511-1900
Kópavogur: Klukkan, Hamraborg 10 s: 554-4320 · Meba Smáralind s: 555-7711 · Hafnarfjörður: Úr & Gull, Firði-Miðbæ Hafnarfjarðar s: 565-4666 · Keflavík: Georg V. Hannah úrsmiður,
Hafnargötu 49 s: 421-5757 · Akureyri: Halldór Ólafsson úrsmiður, Glerártorgi s: 462-2509 · Akranes: Guðmundur B. Hannah úrsmiður, Suðurgötu 65 s: 431-1458
Egilsstaðir: Klassík Selási 1 s: 471-1886 · Selfoss: Karl R. Guðmundsson úrsmiður, Austurvegi 11 s: 482-1433 · Vestmannaeyjar: Geisli, Hilmisgötu 4 s: 481-3333