Morgunblaðið - 05.12.2019, Qupperneq 64

Morgunblaðið - 05.12.2019, Qupperneq 64
64 BÆKUR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 2019 Fundur G4 í Sviss [...] Við bankahrunið þurrkaðist gjaldeyrisforði Seðlabankans út. Hann varð að endurnýja. Okkur vantaði erlendan gjaldeyri til þess að styrkja krón- una og sjá fram á að geta opnað markaðina að nýju. Íslenskur skopmyndateikn- ari var með þetta á tæru: „Það er aðeins ein leið til að leysa skulda- vandann. Meiri skuld.“ Þetta var ekkert grín. Nú vantaði nýtt fjármagn, að minnsta kosti til þess að draga úr högginu. Við Stein- grímur fórum í hnattferð í fjáröfl- unarskyni. Fyrsti áningarstaðurinn var Þórshöfn í Færeyjum. Færeyjar eru nánast miðja vegu milli Skotlands og Íslands. Við sáum eyjarnar rísa iðjagrænar úr hafi þegar við nálguðumst. Í Þórshöfn varð okkur Steingrími ljóst að við vorum í góðra vina hópi. Ríkisstjórn landsins og 48 þúsund íbúar þess vildu allt fyrir okkur gera. Færeyingar höfðu sjálfir lent í kreppu upp úr 1990. Skuldsetning einkageirans var þá orðin allt of mikil. Þá bættist við að efnahags- starfsemi hægði á sér á heimsvísu og ofan á allt annað brást aflinn. Í kjöl- farið kom bankakreppa og ríkið varð að koma bönkunum til bjargar svo um munaði. Þá fjölgaði þeim snar- lega sem fluttust burt og kreppa varð í ríkisfjármálum. Þá kom Ís- land til hjálpar og liðkaði fyrir því að Færeyingar fengju aukinn fisk- veiðikvóta. Færeyingar og Íslendingar und- irrituðu lánssamning 23. mars 2009. Allt lánið átti að greiðast út til okkar í heilu lagi strax. Engin skilyrði voru sett og hvergi var minnst á Alþjóða- gjaldeyrissjóðinn, Norðurlönd eða Icesave. Þá settu Færeyingar lága vexti á lánið, ekki nema 0,15 prósent. Lánið var heilar 300 milljónir danskra króna. Meira en 1.200 doll- arar frá hverjum Færeyingi. Við ræddum brosandi um það hver fengi að halda á töskunni hans Steingríms heim til Íslands. Sumar verslanir í Reykjavík buðu Færeyingum sérstök afsláttarkjör en sagt var að í sumum búðum fengju Bretar ekki afgreiðslu. Hinn fyrsta júlí 2009 voru til við- bótar undirritaðir fjórir samningar um lán, milli Íslands og Danmerkur (27 prósent af láninu), Noregs (27), Finnlands (18), og Svíþjóðar (28). Heildarfjárhæð lánsins var 1.775 milljónir evra. Í fyrstu höfðu Svíar lagst gegn láninu en síðan skipt um skoðun og krafist þess að leggja fram hæsta skerfinn. Það var tákn- rænt fyrir þá stöðu sem þeir telja sig hafa sem leiðandi Norðurlandaþjóð. Norðurlöndin kröfðust þess eigi að síður að Alþjóðagjaldeyrissjóð- urinn (AGS) gætti hliðsins og því voru lánagreiðslurnar skilyrtar við endurskoðun AGS. Ef ekki fengist samþykki AGS fengjust engir pen- ingar. Norðurlöndin urðu aðal- uppspretta fjármagns fyrir áætlun AGS. „Opinberlega voru engin tengsl milli áætlunar AGS og kröfu Hol- lendinga og Breta í sambandi við Icesave. Í áætluninni var engin klausa um skilyrði varðandi Ice- save,“ segir fyrrverandi starfsmaður AGS. Aftur á móti gerði áætlun AGS ráð fyrir fjárhagslegum trygg- ingum. Áætlunin varð að vera fjár- mögnuð að öllu leyti.“ Þetta var allt hringstreymi. Nor- rænu lánin voru háð AGS, sem var háð norrænu lánunum. Hvor aðilinn um sig gat, með réttu eður ei, kennt mótaðilanum um. Hjá AGS var atkvæðavægi Breta og Hollendinga þyngra en vægi allra atkvæða frá Afríku. Bretar og Hol- lendingar skárust í leikinn og kröfð- ust endurgreiðslu á fé sem þeir höfðu greitt innstæðueigendum í viðkomandi löndum. Önnur ríki ESB studdu þessa kröfu þeirra. Svíþjóð var í forsæti ESB á fyrra misseri ársins 2009 og hampaði áliti ESB. Svíar voru líka talsmenn Norður- landabúa innan Alþjóðagjaldeyris- sjóðsins og hefðu að öllu jöfnu verið stuðningsmenn íslensku áætlunar- innar. Því var ekki að heilsa í þetta sinn. „Ef upp hefði komið sú staða að norrænn forseti hefði ekki stutt áætlun í einu Norðurlandanna hefði það þótt sæta miklum tíðindum,“ segir viðmælandi með áralanga reynslu af starfi AGS. „Endur- skoðun var frestað. Nýjum kröfum var bætt við. Það hefði mátt leggja áætlunina fyrir til atkvæðagreiðslu. Kannski hefðu ESB-ríkin beðið lægri hlut. En talið var að slík at- kvæðagreiðsla gæti valdið mikilli sundrung.“ Dominique Strauss-Kahn, sem þá var yfirmaður AGS, skrifaði þetta 13. nóvember 2009: „Icesave-deilan hafði óbein áhrif á tímasetningu fyrstu endurskoðunarinnar á áætl- uninni, þar sem hún tafði fyrir nauð- synlegri fjármögnun frá Norður- löndunum (þar sem lausn deilunnar var skilyrði fyrir henni).“ Á ársfundi Alþjóðagjaldeyris- sjóðsins í Istanbúl dagana 6. og 7. október 2009 reyndi Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra að leysa málin. Breski ráðherrann Alistair Darling hafði hins vegar engan tíma aflögu fyrir Íslendinga. „Hollenski ráðherrann Wouter Bos var aftur á móti prýðismaður,“ segir Steingrímur. Við gátum rætt við hann. Það bar þó ekkert til tíð- inda en þeir hjá AGS voru farnir að vera vandræðalegir. Ísland stóð sig vel. Samt var allt fast.“ Pólverjar gengu svo fram fyrir skjöldu og buðu ótilhvattir fram að- stoð sína við Ísland. Pólland bauð 630 milljónir pólskra zloty, sem sam- svaraði 200 milljónum bandaríkja- dollara. Norðurlandaþjóðirnar settu það sem skilyrði fyrir láni sínu að samið yrði við Breta og Hollendinga en Pólverjar settu ekki fram neina slíka kröfu. Þvert á móti. „Við höfum ekkert við slíkan samning að gera,“ sögðu þeir. „Ekki gefast upp fyrir Bretum,“ sögðu sumir Pólverjar á ganginum. Í leit að gjaldeyri Bókarkafli Í bókinni Í víglínu íslenskra fjármála lýsir Svein Harald Øygard fyrrv. seðlabankastjóri örlaga- ríkum tíma í Íslandssögunni á árunum eftir hrun. Morgunblaðið/Kristinn Ögurstund Norski hagfræðingurinn Svein Harald Øygard var var ráðinn sem tímabundinn seðlabankastjóri á Íslandi í byrjun árs 2009. Bláu húsin v/Faxafen Sími 553 7355 • www.selena.is • Selena undirfataverslun • Næg bílastæði Fallegir Bambus sloppar í jólapakkann Opið alla daga til jóla
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.