Morgunblaðið - 05.12.2019, Síða 67
DÆGRADVÖL 67
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 2019
kassagerd.is kassagerd@kassagerd.is Klettháls 1, 110 Reykjavík +354 545 2800
Vandaðar vörur þurfa hágæða umbúðir til að komast ferskar í hendur
kröfuharðra kaupenda. Hver sem varan þín er þá höfum við umbúðirnar sem
henta henni.
Áralöng reynsla og sérþekking okkar tryggir að við finnum bestu lausnina
sem hentar fyrir þinn rekstur, hratt og örugglega. Við bjóðum breitt úrval
umbúða frá traustum og öflugum samstarfsaðilum. Þannig getum við tryggt
þér lausnir sem auka árangur þinn í rekstri, í sátt við umhverfi og náttúru.
Ef þú hefur spurningar varðandi umbúðir þá höfum við svörin. Hafðu
samband eða kíktu í kaffi og leyfðu okkur að hjálpa þér að finna
lausnirnar sem henta þínum þörfum. Spjöllum um umbúðir.
UmBúÐiR eRu oKkAr fAg
„ÞETTA MÁTTU EKKI GERA. ÞETTA ER
EKKI Í RÁÐNINGARSAMNINGNUM OG HÉR
ER EKKERT SVIGRÚM TIL BREYTINGA.”
„FARÐU OG SEGÐU MÖMMU AÐ PABBI HAFI
GLEYMT LYKLUNUM SÍNUM.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar þið eruð eitt.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ERTU AÐ VERÐA 41
ÁRS? VÁ, ÞAÐ ER
GAMALT
MÁTTU ENN
KEYRA?
FARÐUNEI, ALLS
EKKI
ÉG ÞARF EINHVERN JAFN
HUGAÐAN OG LJÓN! ÉG ER ÞAÐ!
GOTT! FARÐU INN OG SEGÐU HELGU
AÐ ÉG SJÁI EFTIR ÞESSU!
LÖGFRÆÐI-
SVIÐ
5.7. 1893, d. 5.10. 1970, húsmóðir.
Didda og Magnús hófu búskap sinn
á Smiðjustíg 9 en fluttust síðar bú-
ferlum að Ásgarði 51 árið 1957, þar
sem hún bjó allt til ársins 2008 þegar
hún flutti á Hrafnistu í Hafnarfirði.
Niðjar Diddu og Magnúsar eru nú
57 talsins.
Börn Diddu og Magnúsar eru: 1)
Jón Halldór, f. 8.7. 1941, lögmaður,
maki: Hanna Guðmundsdóttir, þau
eru búsett í Reykjavík; 2) Helgi
Kristinn, f. 15.11. 1943, strætis-
vagnabílstjóri, búsettur í Reykjavík;
3) Sesselja, f. 20.11. 1944, maki: Sig-
urður Örn Guðmundsson, búsett í
Reykjavík; 4) Sigurður Einar, f.
19.8. 1947, d. 27.1. 2013, strætis-
vagnabílstjóri; 5) Guðrún Kristín, f.
14.1. 1952, hárgreiðslumeistari, bú-
sett í Mosfellsbæ; 6) Erlendur
Magnús, f. 10.8. 1958, strætisvagna-
bílstjóri, maki: Lilja Petra Ásgeirs-
dóttir, þau eru búsett í Mosfellsbæ.
Systkini Diddu: Halldóra, f. 18.8.
1918, d. 27.5. 2010, húsfreyja í
Reykjavík; Ragnheiður Lára, f. 13.7.
1921, d. 29.12. 1984, húsfreyja á
Flateyri og í Reykjavík; Jón Magn-
ús, f. 2.9. 1922, d. 21.2. 1999, kaup-
félagsstjóri, síðast búsettur í Mos-
fellsbæ; Þrúður, f. 15.7. 1924, d. 28.9.
2000, húsfreyja á Hvammi í Ölfusi;
Sigurður Einar, f. 19.5. 1926, d. 27.4.
1927; Sigurður Árni, f. 4.1. 1928,
prentari, búsettur í Reykjavík; Har-
aldur, f. 7.5. 1932, d. 14.6. 2012, verk-
fræðingur og framkvæmdastjóri í
Hafnarfirði.
Foreldrar Diddu voru hjónin
Lovísa Pálína Árnadóttir Blöndal, f.
21.12. 1897, d. 2.3. 1973, húsfreyja í
Reykjavík, og Sigurður Einar Ingi-
mundarson, f. 21.8. 1895, d. 12.4.
1979, sjómaður og bræðslumaður í
Reykjavík.
Sigríður Kristín
Sigurðardóttir
Kristín Jónsdóttir
húsfreyja á Stóru-Hámundarstöðum á Árskógsströnd
Hallgrímur Hallgrímsson
bóndi á Stóru-
Hámundarstöðum á
Árskógsströnd
Kristín Hallgrímsdóttir
húsfreyja á Seyðisfi rði, síðar vinnukona á Raufarhöfn
Lovísa Pálína Árnadóttir
húsfreyja í Reykjavík
Árni Pálsson
sjómaður á Seyðisfi rði,
drukknaði ungur
Kristín Þorgrímsdóttir
vinnukona á
Melrakkasléttu
Páll Illugason
vinnumaður á Melrakkasléttu
Guðríður Jónsdóttir
húsfreyja á Búastöðum
Sigurður Torfason
hreppstjóri og sjávarbóndi á
Búastöðum í Vestmannaeyjum
Sigríður Sigurðardóttir
húskona í Reykjavík
Ingimundur Pétursson
rak saltfi skverkunarstöðina
Litla Haga í Reykjavík
Júlíana Jónsdóttir
húsfreyja á Brekkuvöllum og
Ytri-Hreggstöðum
Pétur Guðmundsson
bóndi í Haukabergi, á Brekkuvöllum og Ytri-Hreggstöðum á Barðaströnd
Úr frændgarði Sigríðar Kristínar Sigurðardóttur
Sigurður Einar Ingimundarson
sjómaður og bræðslumaður í Reykjavík
Friðrik Steingrímsson sendi mérþessa mynd norðan úr Mý-
vatnssveit og ég get ekki stillt mig
um að birta hana í Vísnahorni svo
falleg sem hún er. „Myndin er tekin
um hádegisbil, þannig að sólin er
ekki hátt á lofti þannig séð,“ sagði
Friðrik. „Þetta var 28. nóvember.
Það var 14 stiga frost og hafði
frostið verið svipað í nokkra daga.
Þess vegna var svona stífhélað.“
Myndinni fylgdi þessi staka:
Þegar frostið fer með völd
frekar verður tíðin köld.
Úti í hólma hélugrá
híma tré og fölnuð stá.
Þegar Friðrik var á ferðinni um
Mývatnsöræfi í september blasti
Herðubreið við honum og hann
hreifst af fjallasýninni:
Öræfanna óravídd
innst við landsins hjarta
geymir fjöll sem fönnum prýdd
fegurð sinni skarta.
Móðurafi Friðriks, Egill Jón-
asson frá Húsavík, orti „Frostnótt“:
Grár er himinn, grá er jörð,
grá eru móðurhárin.
Náttúran er níðingshörð,
nú eru frosin tárin.
Nú er svalt um háloft heið,
heimsins valt er gönguskeið.
Nú er allt á niðurleið,
nú er kalt á Herðubreið.
Stefán Þorláksson mennta-
skólakennari fór oft með þessa
stöku Egils, sem hann orti þegar
hann kom að Laxá litaðri af leirlosi
úr Mývatnssveit:
Áður rann Laxá hrein í haf
við hrifningu Þingeyinga.
Nú lyppast hún áfram lituð af
leirburði Mývetninga.
Jón Þorsteinsson á Arnarvatni
orti:
Sýndu oss aftur almátt þinn
eins og fyrr við sjóinn;
vak þú hjá oss, Herra minn,
hastaðu nú – á snjóinn!
„Miðlun“ kallar Jón þessa stöku:
Það er nú svona sitt á hvað:
Sólskin er öðrumegin,
en nepjustælingur norðan að.
– Nú verð ég miðlun feginn.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Stífhélað í Mývatnssveit
Stífhélað í Mývatnssveit