Morgunblaðið - 05.12.2019, Síða 68

Morgunblaðið - 05.12.2019, Síða 68
68 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 2019 England Chelsea – Aston Villa ............................... 2:1 Leicester – Watford ................................. 2:0 Manchester Utd – Tottenham................. 2:1 Southampton – Norwich.......................... 2:1 Wolves – West Ham................................. 2:0  Leik Liverpool og Everton var ekki lokið þegar blaðið fór í prentun en staðan 4:2. Gylfi Þór Sigurðsson var fyrirliði Everton í leiknum. Sjá mbl.is/sport/enski Frakkland Dijon – Montpellier.................................. 2:2  Rúnar Alex Rúnarsson kom í mark Dijon á lokamínútu fyrri hálfleiks. Búlgaría Bikarkeppnin, 16-liða úrslit: Levski Sofia – Cherno More................... 1:0  Hólmar Örn Eyjólfsson lék allan leikinn með Levski. Grikkland Bikarkeppnin, 16-liða, seinni leikur: Larissa – Kalamata ................................. 1:0  Ögmundur Kristinsson varði mark Lar- issa í leiknum.  Kalamata áfram, 3:1 samanlagt. KNATTSPYRNA KÖRFUKNATTLEIKUR Geysisbikar karla, 16-liða úrslit: Ísafjörður: Vestri – Fjölnir.................. 19.15 MG-höllin: Stjarnan – Reynir S .......... 19.15 Sauðárkrókur: Tindastóll – Álftanes.. 19.15 Origo-höllin: Valur – Breiðablik.......... 19.30 Enski boltinn á Síminn Sport Sheffield United – Newcastle.............. 19.30 Arsenal – Brighton............................... 20.15 Í KVÖLD! HANDBOLTI Þýskaland Bikarkeppnin, 8-liða úrslit: RN Löwen – Hannover Burgdorf...... 30:31  Alexander Petersson skoraði 2 mörk fyr- ir Löwen. Kristján Andrésson þjálfar liðið. Spánn Cuenca – Barcelona ............................ 28:39  Aron Pálmarsson skoraði eitt mark fyrir Barcelona. Danmörk Bjerringbro/Silkeborg – Aarhus ...... 29:32  Þráinn Orri Jónsson skoraði ekki fyrir Bjerringbro/Silkeborg. Kolding – Aalborg............................... 29:32  Hvorki Ólafur Gústafsson né Árni Bragi Eyjólfsson náði að skora fyrir Kolding.  Janus Daði Smárason skoraði 5 mörk fyrir Aalborg en Ómar Ingi Magnússon er frá keppni vegna meiðsla. Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari liðsins. GOG – Nordsjælland ........................... 34:21  Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði 2 mörk fyrir GOG og Arnar Freyr Arnarsson 2. Viktor Gísli Hallgrímsson lék ekki með. Noregur Elverum – Fyllingen ........................... 43:28  Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði 2 mörk fyrir Elverum. Svíþjóð Kristianstad – IFK Ystad ................... 25:20  Teitur Örn Einarsson skoraði 5 mörk fyrir Kristianstad en Ólafur Guðmundsson lék ekki með. HM kvenna í Japan B-riðill: Ástralía – Suður-Kórea........................ 17:34 Þýskaland – Frakkland ....................... 25:27 Danmörk – Brasilía .............................. 24:18  Suður-Kórea 7, Þýskaland 6, Frakkland 5, Danmörk 5, Brasilía 1, Ástralía 0. C-riðill: Kasakstan – Spánn............................... 16:43 Svartfjallaland – Rúmenía................... 27:26 Ungverjaland – Senegal ...................... 29:20  Spánn 8, Svartfjallaland 8, Ungverjaland 4, Rúmenía 4, Senegal 0, Kasakstan 0. Dominos-deild kvenna KR – Skallagrímur ............................... 83:60 Snæfell – Grindavík.............................. 87:75 Keflavík – Valur.................................... 92:90 Breiðablik – Haukar............................. 83:92 Staðan: Valur 11 10 1 956:728 20 Keflavík 11 8 3 836:780 16 KR 11 8 3 848:737 16 Skallagrímur 11 7 4 763:734 14 Haukar 11 6 5 755:753 12 Snæfell 11 3 8 740:837 6 Breiðablik 11 2 9 702:858 4 Grindavík 11 0 11 701:874 0 Meistaradeild Evrópu Zaragoza – Brindisi ............................ 71:71  Tryggvi Snær Hlinason skoraði ekki og tók 2 fráköst á tíu mínútum hjá Zaragoza.  71:71 að loknum venjulegum leiktíma. Framlenging stóð yfir þegar blaðið fór í prentun. KÖRFUBOLTI SUND Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Anton Sveinn McKee átti hreint út sagt frábæran dag á Evrópu- meistaramótinu í 25 metra laug í Glasgow í gær. Hann stakk sér þrisvar til sunds í 50 metra bringu- sundi, setti Íslandsmet í öll skiptin og hafnaði í sjöunda sæti í greininni þegar upp var staðið. Ársgamalt met Antons sem hann setti á heimsmeistaramótinu í Hongzhou í Kína í desember 2018 var 26,74 sekúndur. Það féll í und- anrásunum í gærmorgun þar sem Anton náði sjötta besta tímanum á nýju Íslandsmeti, 26,43 sekúndum. Anton varð sjötti í undanrásunum og fór auðveldlega áfram en sextán bestu komust í undanúrslit. Þar var synt síðdegis í gær og aft- ur sýndi Hafnfirðingurinn styrk sinn. Hann bætti metið á ný, og varð að gera það til að komast í úrslita- sundið. Anton synti á 26,28 sek- úndum, var 6/100 úr sekúndu á eftir næsta manni og var áttundi og síð- astur inn í úrslitin. Í úrslitasundinu ríflega klukkutíma síðar var Anton enn ferskur og klár í slaginn. Hann bætti metið enn, synti á 26,14 sek- úndum og endaði í sjöunda sæti í greininni. Vladimir Morozov frá Rússlandi sigraði með yfirburðum á 25,51 sekúndu, sem er Evrópumet í greininni. Anton mætir á ný í laugina í Glas- gow í dag þegar hann keppir í 200 metra bringusundi. Keppni hefst klukkan 9.58 að íslenskum tíma og Anton er í fjórða og síðasta riðli, í þeim sterkasta. Hann keppir síðan í þriðja og síð- asta sinn á mótinu á morgun og þá í 100 metra bringusundi. Eygló komst ekki áfram Eygló Ósk Gústafsdóttir keppti í 100 metra baksundi á mótinu í Glas- gow í gær. Hún hafnaði í 24. sæti í undanrásunum á 1:00,38 mínútum og komst því ekki áfram en fjögurra ára gamalt Íslandsmet hennar í greininni er 57,42 sekúndur. Eygló á eftir að keppa í 200 metra og 50 metra baksundi á morgun og laug- ardag. Magnaður miðvikudagur  Anton þríbætti Íslandsmetið á EM Ljósmynd/SSÍ Glasgow Anton Sveinn McKee var að vonum brosmildur eftir að hafa þrí- bætt Íslandsmetið í 50 m bringusundi á Evrópumeistaramótinu. Frakkland og Danmörk eru í hópi sigursælustu þjóða heims í hand- knattleik kvenna, Frakkar eru ríkjandi heimsmeistarar og Danir fyrrverandi heimsmeistarar, en nú er ljóst að önnur þeirra kemst ekki í milliriðlakeppni heimsmeistara- mótsins í Japan. Eftir að Frakkar unnu Þjóðverja og Danir unnu Brasilíumenn í gær eru bæði liðin með 5 stig fyrir loka- umferðina sem fer fram á morgun og þar mætast þau í hreinum úrslita- leik um hvort þeirra fylgir Suður- Kóreu og Þýskalandi áfram úr B- riðli keppninnar. Frökkum nægir jafntefli vegna betri markatölu. Tapliðið fer í Forsetabikarinn þar sem leikið er um 13. sætið. Spánverjar og Svartfellingar fara áfram úr C-riðli, það varð endanlega ljóst í gær, en Svartfellingar lögðu þá Rúmena í spennuleik, 27:26. Þar með mætast Rúmenía og Ungverja- land í hreinum úrslitaleik um sæti í milliriðli á morgun. vs@mbl.is Fara heimsmeistararnir í Forsetabikarinn? Ljósmynd/IHF Frakkar Orlane Kanor fagnar marki í lokin gegn Þjóðverjum í gær. José Mourinho mátti þola sitt fyrsta tap sem knattspyrnustjóri Totten- ham í gærkvöld en þá heimsótti hann Manchester United, félagið sem rak hann fyrir ári. Marcus Rashford skoraði bæði mörk Manchester United í 2:1 sigri, sigurmarkið úr vítaspyrnu sem hann krækti í sjálfur, en áður hafði Dele Alli jafnað metin fyrir Totten- ham. United fór með sigrinum upp fyrir Tottenham og í sjötta sæti deildarinnar.  Leicester endurheimti annað sætið með því að sigra botnlið Wat- ford, 2:0, og er á ný þremur stigum á undan Manchester City. Jamie Vardy og James Maddison skoruðu mörkin.  Tammy Abraham og Mason Mo- unt skoruðu fyrir Chelsea sem lagði Aston Villa að velli á Stamford Bridge, 2:1, og er þremur stigum á eftir Manchester City í fjórða sæti.  Liverpool var yfir gegn Ever- ton, 4:2, en leiknum var ekki lokið þegar blaðið fór í prentun í gær- kvöld. vs@mbl.is AFP Endurkoma José Mourinho í kröppum dansi á hliðarlínunni í gær. Fyrsti ósigurinn kom á Old Trafford Íslands- og bikarmeistarar Vals töpuðu í gærkvöldi fyrsta leik sín- um í Dominos-deild kvenna í körfu- knattleik á þessu tímabili. Valskonur fóru til Keflavíkur og léku án Helenu Sverrisdóttur. Engu að síður virtist sem Valur myndi landa sigri en liðið hafði tíu stiga forskot þegar nokkrar mínútur voru eftir. Svo fór þó ekki og Emelía Ósk Gunnarsdóttir knúði fram framlengingu fyrir Keflavík þegar hún skoraði þrjú stig tæpri hálfri mínútu fyrir leikslok. Skor- aði og fékk víti að auki sem hún nýtti. Emelía skoraði 15 stig í leikn- um. Í framlengingunni hafði Kefla- vík betur 92:90 og varð því fyrsta liðið til að leggja Val að velli í vet- ur. Keflavík er með 16 stig eins og KR í 2. og 3. sæti en Valur er með 20 stig eftir ellefu umferðir. Dani- ela Wallen Morillo var stigahæst hjá Keflavík með 26 stig en Kiana Johnson skoraði mest fyrir Val eða 23 stig. KR vann öruggan sigur gegn Skallagrími 83:60 í Vesturbænum og eru Borgnesingar tveimur stig- um á eftir KR og Keflavík. Sanja Orazovic skoraði 21 stig fyrir KR og Keira Robinson annað eins fyrir Skallagrím. Eftir jafnan leik í Smáranum þar sem Breiðablik var yfir lengi vel tókst Haukum að ná í bæði stigin. Haukar sigruðu 92:83 en liðið var sterkara í síðasta leik- hlutanum. Danni Williams átti stór- leik fyrir Breiðablik en hún skoraði 35 stig og tók 18 fráköst. Í Stykkishólmi hafði Snæfell bet- ur gegn Grindavík 87:75. Gunn- hildur Gunnarsdóttir skoraði 27 stig fyrir Snæfell og Ólöf Rún Óla- dóttir 26 stig fyrir Grindavík. Fyrsta tapið hjá Valskonum Morgunblaðið/Árni Sæberg Góðar Sigrún Sjöfn Ámundadóttir og Hildur Björg Kjartansdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.