Morgunblaðið - 05.12.2019, Qupperneq 70
70 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 2019
www.gilbert.is
VERÐ AÐEINS:
29.900,-
við kynnum NÝTT
arc-tic Retro TUNGL
GÆÐA ÚR Á GÓÐU VERÐI
42mm 316L stálkassi
Hvít skífa, Leður ól
Svissneskt quartz gangverk
ÍSLENSK HÖNNUN
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
„Á fögrum haustdegi austur á Seyðis-
firði röltir ungur maður út í sjoppu í
leit að hressingu. Hann á sér draum
um að verða tónlistarmaður en vant-
ar listamannsnafn. Hvað er það sem
allir Íslendingar elska skilyrðislaust?
Hann kaupir sér Prins Póló og fer
heim að semja lög.
Tíu árum síðar lítur Prinsinn til
baka yfir ferilinn, flettir gömlum dag-
blöðum og skissubókum og reynir
með aðstoð góðra vina að meta stöð-
una. Útkoman er litrík og hjarta-
styrkjandi.“
Svo hljómar lýsingin á innihaldi
bókarinnar Falskar minningar sem
hinn fjölsnærði listamaður Svavar
Pétur Eysteinsson hefur gefið út
undir nafni hliðarsjálfs síns, Prins
Póló. Eða Forlagið gefur bókina út,
öllu heldur og prinsinn setti hana
saman en skapari hans, Svavar, er
grafískur hönnuður að mennt. „Ég
reyndi að raða þessu upp í einhvers
konar tímaröð, sögu þessa fyrir-
bæris,“ segir Svavar og á þar við fyr-
irbærið Prins Póló. Bókinni fylgir
hljómplata með nýrri hátíðarútgáfu
af skástu lögum prinsins og verður
hún fáanleg frá og með deginum í
dag, 5. desember.
Mamma dugleg að safna
Svavar segir bókina leið til að
fletta skissubókum og mynda-
albúmum og raða saman með
blaðaúrklippum og fleiru. Hann
segist heppinn með að móðir hans
hafi verið dugleg að safna blaða-
úrklippum um prinsinn undan-
farin tíu ár. „Ég skannaði allar
þessar úrklippur og persónurnar
ráða ferðinni og sögunni líka. Svo tók
ég saman flesta texta, gleymdi
nokkrum og þetta er því í rauninni
eins og stórt plötuumslag og það er
gaman að geta flett einhverju þegar
maður er að hlusta á tónlist. Kredit-
listarnir af hverri plötu eru þarna líka
og allir sem komu að verkunum.
Þegar maður er að hlusta á tónlist í
þessum stafræna heimi veit maður
svo lítið um hana, veit ekkert hver
hljóðblandaði eða spilaði. Það vantar
ýmislegt í þessa stafrænu dreifingu,“
segir Svavar og að gaman sé að pakka
sögunni allri niður í bókarform og
horfa yfir það sem búið er að gerast.
„Ég var alltaf að leita að leið til að
kála prinsinum og þetta er kannski
ekki rétta leiðin en alla vega tímamót,
tíu ára afmæli,“ segir Svavar og er
spurður frekar út í þessa löngun til að
drepa prinsinn. Yrði það þá konung-
legt andlát? „Jú, aftaka, eitthvað svo-
leiðis,“ segir Svavar kíminn og bætir
við að hann hafi fengið þá hugmynd
að kála prinsinum með því að fara í
Eurovision-söngvakeppnina. Hann
segir þó heldur ólíklegt að prinsinn
taki þátt í þeirri keppni.
Góð upprifjun
Prins Póló spratt fram haustið
2009 og hefur margt gerst á þessum
tíu árum. „Þegar það rann upp fyrir
mér í janúar eða febrúar að prinsinn
ætti tíu ára afmæli í ár hafði ég sam-
band við Forlagið og spurði hvort það
vildi gefa út afmælisrit prinsins,“ seg-
ir Svavar og að vel hafi verið tekið í
þá hugmynd. Var þá hafist handa við
að safna efni í bókina. „Þetta var
mjög góð upprifjun fyrir mig að
skoða hvað prinsinn hefur verið að
bauka,“ segir Svavar. Bókin hafi
fyrst verið 3-400 blaðsíður og hann
hafi því þurft að skera hressilega nið-
ur.
„Það flóknasta við þetta er að
greina á milli mín sjálfs og prinsins
því þetta er ekki sami maðurinn.
Stundum eru mörkin ekki skýr en
það sem ég er að gera með þessari
bók er að skýra þau. Ekki má blanda
þessum sjálfum saman,“ segir Svav-
ar. En hver er þá munurinn á Svavari
og prinsinum? „Prinsinn er náttúr-
lega prins en ég er bara einhver deli
úr Breiðholti. Það er nú helsti mun-
urinn,“ svarar Svavar sposkur að
bragði.
Prinsinn vill breyta til
Líkt og fyrr var getið kemur út
plata á netinu samhliða bókinni með
hátíðarútgáfum af skástu lögum
prinsins. Að mati prinsins, auðvitað,
sem Svavar segir „svolítið einráðan“.
Aðallega snúist útgáfan þó um hvaða
lög sé gaman að spila og setja í nýjar
útsetningar, gaman að fikta í. Svavar
segir prinsinn hafa tilhneigingu til að
fá leiða á því að spila lögin sín alltaf í
sömu útsetningum. „Hann vill breyta
til,“ segir Svavar og að Benni Hemm
Hemm eigi sinn þátt í hinni hátíð-
legu útgáfu. Þegar Benni hafi komið
í heimsókn hafi hann átt til að setj-
ast við píanóið og leika á það hæg-
lætisútsetningar af lögum prinsins.
Úr varð sú rútína að spila lögin
þannig og setjast niður og hafa það
kósí. „Síðan fengum við fleira fólk
inn í það dæmi, hljóðfæraleikara
og þetta vatt upp á sig og við end-
uðum í Hljóðrita þar sem við tók-
um þessa plötu upp „live“,“ út-
skýrir Svavar.
Blásturshljóðfæraleikarar
voru fjarri góðu gamni en heyra
má í harmonikku, rafmagnsgítar og
-bassa. Þar spilar Örn Eldjárn af
mikilli lagni, að sögn Svavars og af
öðrum þátttakendum má nefna Björn
Kristjánsson og Margréti Bjarna-
dóttur. Kiddi „Hjálmur“ var upp-
tökustjóri og sá um hljóðblöndun.
Að lokum má við bæta að Prins
Póló heldur jólatónleika laugardag-
inn 14. desember í Gamla bíói og bera
þeir yfirskriftina Prins Jóló.
Morgunblaðið/Eggert
Prins en ekki deli úr Breiðholti
Prins Póló sendir frá sér afmælisritið Falskar minningar Skástu lögin í hátíðarútgáfum
„Mjög góð upprifjun fyrir mig að skoða hvað prinsinn hefur verið að bauka,“ segir skapari hans
10 ára Tvær opnur úr afmælisriti Prins Póló.
Heimalningur Prins Póló með kórónuna sína í heimahúsi á hátíðinni Heima í Hafnarfirði í apríl síðastliðnum.
Japanskir kvikmyndadagar hefjast
í dag í Bíó Paradís og standa yfir til
og með 10. desember. Þeir eru
haldnir í samstarfi við Japan
Foundation og japanska sendiráðið
á Íslandi og verða allar kvikmynd-
irnar sýndar á frummálinu, jap-
önsku, með enskum texta.
Ása Baldursdóttir, dagskrár-
stjóri í Bíó Paradís, segir Japanska
kvikmyndadaga mikilvæga í kvik-
myndamenningu landsmanna og að
á árinu sem er að líða hafi kvik-
myndahúsið boðið upp á tvo jap-
anska viðburði; OZY-kvikmynda-
daga og Ástarsögur frá Japan.
„Við greinum mikinn áhuga fyrir
japönskum kvikmyndum, við t.d.
auglýstum eftir uppáhaldskvik-
mynd fólks á samfélagsmiðlum og
það komu yfir 300 tillögur. Við sýn-
um þrjár myndir sem voru allar á
topp 10 þessara tillagna, Howl’s
Moving Castle, Perfect Blue og
Your Name,“ segir Ása.
Opnunarmyndin eftir Herzog
Opnunarmynd daganna er eftir
hinn heimskunna og mikilsvirta
leikstjóra Werner Herzog og nefn-
ist Family Romance, LCC. Myndina
tók hann upp í Japan með japönsk-
um leikurum og á japönsku. „Þetta
er leikin mynd sem fjallar um þetta
stórfurðlega fyrirbæri að leigja sér
ástvin eða fjölskyldumeðlim en í
myndinni fylgjumst við með ungri
stúlku sem fær nýjan pabba í gegn-
um slíka leigu,“ segir Ása.
Á Japönskum kvikmyndadögum
verða frumsýndar fjórar nýjar
kvikmyndir, tvær sígildar og ein
nýleg sem sló öll aðsóknarmet vest-
anhafs.
Upplýsingar um myndirnar og
sýningartíma má finna á vef kvik-
myndahússins, bioparadis.is.
Mikill áhugi fyrir jap-
önskum kvikmyndum
Japanskir bíódagar í Bíó Paradís
Japan Úr opnunarmynd Japanskra
kvikmyndadaga, Family Romance,
LCC, eftir Werner Herzog.