Morgunblaðið - 05.12.2019, Qupperneq 75
Að breyta lífsstílnum er langtímavinna sem
best er að skipta niður í mörg lítil verkefni.
Með þrautseigju og hjálp meltingarensíma og
mjólkursýrugerla verður það árangursríkara.
Núna er
tíminn til
að njóta
Við getum gert meltingunni okkar og líkamanum stóran greiða með því
að taka inn bæði ensím og mjólkursýrugerla reglulega.
Grænn og vænn:
1 lúka blönduð græn blöð, spínat eða
grænkál
½-1 banani (má vera frosinn)
1 bolli frosið mangó eða t.d. ananas
1-2 cm engifer
Smá sítrónusafi
1,5 bolli vatn eða t.d. möndlu- eða
haframjólk
Ýmislegt má svo nota til að „poppa
drykkinn aðeins upp“ en það getur
verið smá kanill, turmerik, 1 msk
hörfræ eða chiafræ, smá epladjús
eða 2 döðlur til að sæta aðeins.
Berjadrykkir eru líka góðir og um að
gera að finna hvað hentar.
Hair Volume inniheldur jurtir og bætiefni sem sem er
mikilvæg fyrir hárið og getur gert það líflegra og falle
Sölustaðir: Flest apótek, heilsuhús og heilsuhillur stórmarkaða
Hair Volume– fyrir líflegra há
Aldrei haft jafn þykkt hár.
– Edda Dungal
Falleg gjöf sem gleður
Aðlíða vel í eigin skinni ogvera sáttur við sjálfan sig ereftirsóknarvert en við eigum
kannski misauðvelt eða erfitt með að
komast á þann stað. Þegar við viljum
bæta heilsufar og vellíðan almennt
er gott að huga vel að nokkrum
grundvallaratriðum sem geta skipt
sköpum varðandi árangursríkt
framhald.
Jafnvægi á líkama og sál
Það skiptir öllu máli að andleg líðan
sé góð en þegar við erum ekki í góðu
jafnvægi getur verið erfitt að koma
mataræðinu í gott horf og svo öfugt. Við
verðum að fara yfir nokkra þætti sem
skipta okkur öll miklu máli og finna
hvar þarf að laga hlutina til að vera í
jafnvægi en þetta eru atriði eins og:
n Sambönd (hjónaband,
fjölskylda og vinir)
n Atvinna – erum við sátt?
n Fjármál / fjármálaáhyggjur
n Hreyfing
n Andleg líðan
Samhliða skoðum við svo mataræðið
og fyrstu skrefin þar snúast alltaf um
það að taka út óæskilega næringu eins
og sykur, unna matvöru og þau matvæli
sem valda vanlíðan ásamt því að koma
reglu á máltíðir.
Meltinging er grunnurinn
Nýjustu rannsóknir staðfesta alltaf
betur og betur hversu mikilvægt það
er að hafa meltingarfærin í lagi og
hvaða áhrif þarmaflóran hefur bæði
á líkamlega og andlega líðan. Að auki
spilar hún stórt hlutverk í að viðhalda
öflugu ónæmiskerfi. Við þurfum að
geta brotið fæðuna vel niður til að
næringarefnin frásogist en til þess að
það gerist þarf þarmaflóran að vera í
jafnvægi.
Meltingarfærin eru því það fyrsta
sem við þurfum að huga að til að geta
nærst vel því um leið og upptakan
er góð og við skilum frá okkur
eðlilegum hægðum kemst betra
jafnvægi á og höfum við stigið stórt
skref í átt að heilbrigðara lífi. Það má
líkja þessu við að við séum að byggja
hús og við byrjum á grunninum.
Því traustari og vel gerðari sem
grunnurinn er, þeim mun auðveldara
verður að byggja ofan á þannig að allt
haldi vel.
Góður og grænn á
morgnana
Til að koma sér af stað á morgnana
getur hentað vel að gera sér
góðan grænan drykk fullann af
næringarefnum og trefjum sem er gott
fyrir meltinguna. Vel samsettir drykkir
hafa líka jákvæð áhrif á blóðsykurinn
og hjálpa í baráttunni við sykurpúkann.
Það þarf ekki að vera flókið að skella í
góðan drykk og tekur varla meira en
2-3 mínútur.
Þreyta eftir máltíðir
Ensím eru nauðsynleg í öllum
efnaskiptum í líkamanum en í
hráu fæði eru ensím sem verða
óvirk við eldun. Þegar við borðum
eldaðan og unninn mat notar
líkaminn orkuna að finna og flytja
ensím til meltingarvegarins en hver
hefur ekki fundið fyrir þreytu eftir
stórar máltíðir. Með hækkandi
aldri gerist það líka að framleiðsla
ensíma í líkamanum minnkar en
ensímaskortur getur lýst sér í eftir
farandi:
n Brjóstsviði
n Vindverkir
n Uppþemba
n Kviðverkir & ógleði
n Bólur
n Nefrennsli
n Krampar í þörmum
n Ófullnægt hungur
n Exem
n Höfuðverkur
n Skapsveiflur
n Liðverkir
n Húðkláði
n Húðroði
n Svefnleysi
Það er alltaf mikilvægt að borða
„lifandi fæðu“ eins og grænmeti og
ávexti með elduðum mat og fjölmargir
hafa einnig fundið lausn í að taka
inn meltingarensím til að auðvelda
líkamanum verkið og nýta fæðuna
betur. Þetta er einnig grundvallaratriði
í átt að heilbrigðari lífsstíl.
Meltingarensímin frá Enzymedica eru
tekin inn með mat og hafa losað fólk
við ótrúlegustu óþægindi og aukið
orku til muna. Aðferð við vinnslu á
ensímunum kallast Thera-Blend og er
það einkaleyfisvarin aðferð sem gerir
þeim kleyft að vinna á mismunandi
pH- gildum í líkamanum og gerir
þau 5-20 sinnum öflugri en önnur
meltingarensím.
Öflugasta viðbótin
Fyrir utan bæði D-vítamín og Omega-3
fitusýrur sem er okkur lífsnauðsynlegt,
eigum við að taka inn öfluga
mjólkursýrugerla. Það er stöðugt álag
á meltingunni okkar og atriði eins og
streita, lyf, áfengi, sykur og koffein sem
valda því að þarmaflórann er ekki í
nógu góðu jafnvægi.
Bio Kult mjólkursýrugerlarnir eru
mjög öflugir og til að efla ónæmiskerfið
enn frekar núna þegar kvef og pestir
herja á okkur getur Bio Kult Candéa
hjálpað mikið til. Auk 7 gerlastofna
innheldur Candéa hvítlauk sem er
bakteríudrepandi og öflugur fyrir
ónæmiskerfið og GSE (Grapefruit
Seed Extract) sem inniheldur öflug
efnasambönd sem vinna gegn
fjölmörgum bakteríutegundum, veirum
og sveppum.
Ávísun að betri líðan
Byrjum árið vel og gerum smá
aðgerðarplan. Tökum út sykurinn
með hjálp græna drykksins til að byrja
með og hugum svo að mataræðinu
ásamt því að fara almennt yfir líðan
okkar í leik og starfi. Vel valin bætiefni
geta styrkt og auðveldað ferlið.
Hér eru svo nokkrar reglur sem hægt
er að hafa til hliðsjónar.
n Borðum mat sem við þolum
n Borðum reglulega, ekki eftir
kvöldmat
n Áfengi í hófi
n Sykur í hófi
n Sleppum unnum matvælum
n Drekkum vatn
n Sofum nóg
n Forðumst streitu
n Hreyfum okkur – ferskt loft
n Ræktum sálina
Sölustaðir: Flest apótek, heilsubúðir
og heilsuhillur verslana