Morgunblaðið - 05.12.2019, Blaðsíða 75

Morgunblaðið - 05.12.2019, Blaðsíða 75
Að breyta lífsstílnum er langtímavinna sem best er að skipta niður í mörg lítil verkefni. Með þrautseigju og hjálp meltingarensíma og mjólkursýrugerla verður það árangursríkara. Núna er tíminn til að njóta Við getum gert meltingunni okkar og líkamanum stóran greiða með því að taka inn bæði ensím og mjólkursýrugerla reglulega. Grænn og vænn: 1 lúka blönduð græn blöð, spínat eða grænkál ½-1 banani (má vera frosinn) 1 bolli frosið mangó eða t.d. ananas 1-2 cm engifer Smá sítrónusafi 1,5 bolli vatn eða t.d. möndlu- eða haframjólk Ýmislegt má svo nota til að „poppa drykkinn aðeins upp“ en það getur verið smá kanill, turmerik, 1 msk hörfræ eða chiafræ, smá epladjús eða 2 döðlur til að sæta aðeins. Berjadrykkir eru líka góðir og um að gera að finna hvað hentar. Hair Volume inniheldur jurtir og bætiefni sem sem er mikilvæg fyrir hárið og getur gert það líflegra og falle Sölustaðir: Flest apótek, heilsuhús og heilsuhillur stórmarkaða Hair Volume– fyrir líflegra há Aldrei haft jafn þykkt hár. – Edda Dungal Falleg gjöf sem gleður Aðlíða vel í eigin skinni ogvera sáttur við sjálfan sig ereftirsóknarvert en við eigum kannski misauðvelt eða erfitt með að komast á þann stað. Þegar við viljum bæta heilsufar og vellíðan almennt er gott að huga vel að nokkrum grundvallaratriðum sem geta skipt sköpum varðandi árangursríkt framhald. Jafnvægi á líkama og sál Það skiptir öllu máli að andleg líðan sé góð en þegar við erum ekki í góðu jafnvægi getur verið erfitt að koma mataræðinu í gott horf og svo öfugt. Við verðum að fara yfir nokkra þætti sem skipta okkur öll miklu máli og finna hvar þarf að laga hlutina til að vera í jafnvægi en þetta eru atriði eins og: n Sambönd (hjónaband, fjölskylda og vinir) n Atvinna – erum við sátt? n Fjármál / fjármálaáhyggjur n Hreyfing n Andleg líðan Samhliða skoðum við svo mataræðið og fyrstu skrefin þar snúast alltaf um það að taka út óæskilega næringu eins og sykur, unna matvöru og þau matvæli sem valda vanlíðan ásamt því að koma reglu á máltíðir. Meltinging er grunnurinn Nýjustu rannsóknir staðfesta alltaf betur og betur hversu mikilvægt það er að hafa meltingarfærin í lagi og hvaða áhrif þarmaflóran hefur bæði á líkamlega og andlega líðan. Að auki spilar hún stórt hlutverk í að viðhalda öflugu ónæmiskerfi. Við þurfum að geta brotið fæðuna vel niður til að næringarefnin frásogist en til þess að það gerist þarf þarmaflóran að vera í jafnvægi. Meltingarfærin eru því það fyrsta sem við þurfum að huga að til að geta nærst vel því um leið og upptakan er góð og við skilum frá okkur eðlilegum hægðum kemst betra jafnvægi á og höfum við stigið stórt skref í átt að heilbrigðara lífi. Það má líkja þessu við að við séum að byggja hús og við byrjum á grunninum. Því traustari og vel gerðari sem grunnurinn er, þeim mun auðveldara verður að byggja ofan á þannig að allt haldi vel. Góður og grænn á morgnana Til að koma sér af stað á morgnana getur hentað vel að gera sér góðan grænan drykk fullann af næringarefnum og trefjum sem er gott fyrir meltinguna. Vel samsettir drykkir hafa líka jákvæð áhrif á blóðsykurinn og hjálpa í baráttunni við sykurpúkann. Það þarf ekki að vera flókið að skella í góðan drykk og tekur varla meira en 2-3 mínútur. Þreyta eftir máltíðir Ensím eru nauðsynleg í öllum efnaskiptum í líkamanum en í hráu fæði eru ensím sem verða óvirk við eldun. Þegar við borðum eldaðan og unninn mat notar líkaminn orkuna að finna og flytja ensím til meltingarvegarins en hver hefur ekki fundið fyrir þreytu eftir stórar máltíðir. Með hækkandi aldri gerist það líka að framleiðsla ensíma í líkamanum minnkar en ensímaskortur getur lýst sér í eftir farandi: n Brjóstsviði n Vindverkir n Uppþemba n Kviðverkir & ógleði n Bólur n Nefrennsli n Krampar í þörmum n Ófullnægt hungur n Exem n Höfuðverkur n Skapsveiflur n Liðverkir n Húðkláði n Húðroði n Svefnleysi Það er alltaf mikilvægt að borða „lifandi fæðu“ eins og grænmeti og ávexti með elduðum mat og fjölmargir hafa einnig fundið lausn í að taka inn meltingarensím til að auðvelda líkamanum verkið og nýta fæðuna betur. Þetta er einnig grundvallaratriði í átt að heilbrigðari lífsstíl. Meltingarensímin frá Enzymedica eru tekin inn með mat og hafa losað fólk við ótrúlegustu óþægindi og aukið orku til muna. Aðferð við vinnslu á ensímunum kallast Thera-Blend og er það einkaleyfisvarin aðferð sem gerir þeim kleyft að vinna á mismunandi pH- gildum í líkamanum og gerir þau 5-20 sinnum öflugri en önnur meltingarensím. Öflugasta viðbótin Fyrir utan bæði D-vítamín og Omega-3 fitusýrur sem er okkur lífsnauðsynlegt, eigum við að taka inn öfluga mjólkursýrugerla. Það er stöðugt álag á meltingunni okkar og atriði eins og streita, lyf, áfengi, sykur og koffein sem valda því að þarmaflórann er ekki í nógu góðu jafnvægi. Bio Kult mjólkursýrugerlarnir eru mjög öflugir og til að efla ónæmiskerfið enn frekar núna þegar kvef og pestir herja á okkur getur Bio Kult Candéa hjálpað mikið til. Auk 7 gerlastofna innheldur Candéa hvítlauk sem er bakteríudrepandi og öflugur fyrir ónæmiskerfið og GSE (Grapefruit Seed Extract) sem inniheldur öflug efnasambönd sem vinna gegn fjölmörgum bakteríutegundum, veirum og sveppum. Ávísun að betri líðan Byrjum árið vel og gerum smá aðgerðarplan. Tökum út sykurinn með hjálp græna drykksins til að byrja með og hugum svo að mataræðinu ásamt því að fara almennt yfir líðan okkar í leik og starfi. Vel valin bætiefni geta styrkt og auðveldað ferlið. Hér eru svo nokkrar reglur sem hægt er að hafa til hliðsjónar. n Borðum mat sem við þolum n Borðum reglulega, ekki eftir kvöldmat n Áfengi í hófi n Sykur í hófi n Sleppum unnum matvælum n Drekkum vatn n Sofum nóg n Forðumst streitu n Hreyfum okkur – ferskt loft n Ræktum sálina Sölustaðir: Flest apótek, heilsubúðir og heilsuhillur verslana
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.