Morgunblaðið - 05.12.2019, Blaðsíða 80
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is
laugardaga og sunnudaga 12-18
mánudaga - föstudaga 11-18:30
TAX
FREE
Að sjálfsögðu fær ríkissjóður 24%
virðisaukaskatt af þessari sölu. Verðlækkunin
19,36% er alfarið á kostnað ILVA
5.- 9.
DESEMBER
*Gildir ekki um vörur
á áður niðursettu verði.
Gildir á meðan
birgðir endast.
AF ÖLLUM
VÖRUM*
Meistarar barokksins er yfirskrift
aðventutónleika Sinfóníuhljóm-
sveitar Íslands í Eldborg Hörpu í
kvöld kl. 19.30. Rússneski hljóm-
sveitarstjórinn Maxim Emelyany-
chev stjórnar hljómsveitarsvítu nr.
4 eftir Bach, Alster-svítu eftir Tele-
mann, svítunni Les Bourgeois
gentilhomme eftir Lully og þáttum
úr Les Indes galantes eftir
Rameau. Tónleikakynning hefst kl.
18 í Hörpuhorni og tónleikarnir eru
að vanda sendir út beint á Rás 1.
Meistarar barokksins
hjá Sinfóníunni í kvöld
FIMMTUDAGUR 5. DESEMBER 339. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
Alexander Petersson gefur kost á
sér í íslenska landsliðið í hand-
knattleik á nýjan leik fyrir EM sem
fram fer í janúar. Alexander lék síð-
ast með landsliðinu á EM í Póllandi
árið 2016. Ómar Ingi Magnússon og
Stefán Rafn Sigurmannsson eru
ekki í 28 manna hópnum vegna
meiðsla en tilkynnt var í gær hverjir
eru í hópnum. »69
Alexander síðast með
á stórmóti árið 2016
ÍÞRÓTTIR MENNING
Jólatónleikar til styrktar Lífi –
styrktarfélagi kvennadeildar Land-
spítalans verða haldnir í Fríkirkj-
unni í Reykjavík í dag kl. 12. Um
50 flytjendur koma fram á tónleik-
unum sem taka um 50 mínútur.
Fluttar verða jólaperlur frá ýmsum
tímum, bæði íslenskar og erlendar.
Meðal flytjenda eru Ingi-
björg Aldís Ólafsdóttir
sópran, Sigríður Ósk
Kristjánsdóttir
mezzosópran, Egill
Árni Pálsson tenór,
Kvennakórinn Con-
cordia og
píanóleikarinn
Lilja Eggertsdóttir
sem jafnframt
stjórnar hljóm-
sveit.
Jólatónleikar til
styrktar Lífi í dag
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Bókin Sólardansinn eftir Þóru Jóns-
dóttur er enn ein staðfesting þess
að aldur getur verið afstæður. Þóra
verður 95 ára í janúar og hún samdi
örsögurnar í bókinni á nýliðnum
tveimur árum. Bókaútgáfan Sæ-
mundur gefur út.
Leit að tjaldsvæði, fyrsta ljóða-
bók Þóru, kom út 1973. Síðan hefur
hún sent frá sér margar bækur,
fyrst og fremst ljóðabækur, en
einnig þýðingar og fleira, meðal
annars þýðingu á ljóðum eftir
pólska rithöfundinn Wislöwu Szym-
borska, sem kom út á sama tíma og
hún fékk Nóbelsverðlaunin 1996.
„Mér fannst tímabært að búa til
örsögur,“ segir hún um nýju bókina
og vekur athygli á því að 2010 hafi
komið út bókin Hversdagsgæfa,
sem sé einnig safn örsagna. „Bæk-
urnar eru af sama meiði,“ segir hún.
Í Sólardansinum eru 62 örsögur
og er nafn bókarinnar það sama og
titill einnar sögunnar. „Mér finnst
þetta fallegt orð,“ segir Þóra.
Þóra fæddist á Bessastöðum en
flutti þriggja ára með foreldrum
sínum að Laxamýri í Suður-
Þingeyjarsýslu og ólst þar upp.
Hún segist ekki hafa kynnst skáld-
um í sveitinni, en Guðmundur á
Sandi hafi reyndar búið á næsta
bæ. „Ég þekkti hann ekki enda var
ég bara smábarn, en ég ætlaði mér
alltaf að skrifa skáldsögur,“ segir
hún um æskudraumana. Bætir við
að hún þekki yfirhöfuð ekki mörg
skáld og hitti þau sjaldan. „Ég hef
samt gaman af því að vera innan
um fólk en í mér býr einhver
feimni.“
Kann vel við fáorð ljóð
Eiginmaður Þóru var Páll Fly-
genring verkfræðingur og eiga þau
þrjú börn. Hún lauk kennaraprófi
og vann meðal annars á Borg-
arbókasafni Reykjavíkur 1975 til
1982. Hún segir að þegar börnin
hafi flutt að heiman hafi hún byrjað
að semja ljóð. „Ljóðin höfða best til
mín af öllu rituðu máli, þau eru svo
fáorð og það líkar mér vel.“
Örsögurnar byggjast að ein-
hverju leyti á minningarbrotum.
„Þær eru skáldsögur en margar
styðjast við eitthvað verulegt,“ út-
skýrir hún. „Þetta eru stuttorðar
frásagnir.“
Þóra tekur daginn snemma og
segir að sér verði mest úr verki við
skáldskapinn á morgnana. „Ég er
best upplögð um miðjan morgun,
það finnst mér besti tíminn.“ Þegar
andinn komi yfir hana sé hún fljót
að koma hugsunum sínum á blað og
sitji því ekki lengi við hverju sinni.
„Þetta er allt saman svo stutt,“ seg-
ir hún og leggur áherslu að hún sé
ekki sérstaklega vel skipulögð við
skriftirnar, en það komi ekki að sök.
„Ég verð 95 ára í janúar og senni-
lega læt ég ekki meira ritað mál frá
mér.“
Ljósmynd/Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir
Útgáfuhóf Þóra Jónsdóttir og Iðunn Steinsdóttir, sem verður 80 ára í næsta mánuði, með nýjar bækur.
Aldrei of seint að skrifa
og gefa út bækur og rit
Þóra Jónsdóttir með örsögur skömmu fyrir 95 ára afmælið