Morgunblaðið - 10.12.2019, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. DESEMBER 2019
atnsheldir
Kuldaskór
SMÁRALIND
www.skornirthinir.is
V
Verð 11.995
Stærðir 36 - 47
• Hlýir og léttir
• Waterproof filma
• Rennilás að framan
• Grófur stamur sóli
Þegar hlustað er á foringjaverkalýðsfélaganna, sumra
þeirra að minnsta kosti, mætti ætla
að félögin ættu félagana með húð
og hári. Fólk gengur í verkalýðs-
félög vegna þess
að það telur að
það gagnist því á
vinnumark-
aðnum en full-
yrða má að fáir
ef nokkrir geri
það til að styðja
pólitíska baráttu foringja félag-
anna. Slíka baráttu styðja flestir,
sem á annað borð láta sig slíkt
varða á milli kosninga, með allt
öðrum hætti.
Foringjar verkalýðsfélagannasem hæst láta í dag hafa
ákveðið að reyna að beita þessum
félögum vegna mála sem hafa ekk-
ert með kjör félagsmannanna að
gera. Þeir taka til dæmis þátt í úti-
fundum um mál sem snerta félags-
menn þeirra ekkert umfram aðra
landsmenn. Sumir félagsmenn eru
sennilega sammála þeim, aðrir
ósammála.
Þannig bætti formaður VR félag-inu í hóp samtaka sem stóðu að
mótmælafundi á Austurvelli um
helgina. Sá fundur var haldinn
tveimur vikum eftir annan sam-
bærilegan fund. Foringjarnir virt-
ust telja þessa þátttöku mikil tíð-
indi og til marks um að nú hefðu
tugir þúsunda bæst í hóp mótmæl-
enda. En svo virðist sem fjöldi mót-
mælenda, sem er mjög óviss eins og
jafnan og tölur almennt mjög ýkt-
ar, hafi um það bil helmingast við
að VR bættist í hópinn.
Er það til marks um að félagar íVR kæri sig um að láta for-
ingjann teyma sig í málum sem
snerta kjaramál ekki neitt? Eða
ætti hann að taka þessu sem skila-
boðum um að halda sig við það sem
félaginu er ætlað að sinna?
Eiga félögin
félagsmennina?
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur
dæmt þrjá menn í samtals nítján
ára fangelsi fyrir stórfellda amfeta-
mínframleiðslu og kannabisrækt.
Alvar Óskarsson hlaut þyngsta
dóminn, eða sjö ára fangelsi, og
þeir Einar Jökull Einarsson og
Margeir Pétur Jóhannsson hlutu
sex ára fangelsisdóm hvor.
Mennirnir neituðu því allir að
hafa framleitt amfetamín í sum-
arbústað í Borgarfirði en bústað-
urinn er í eigu föður Margeirs.
Einar Jökull neitaði sök í kanna-
bisframleiðslu sem fór fram í úti-
húsi bóndabæjar í Þykkvabæ. Mar-
geir Pétur játaði sök og Alvar
játaði að hluta.
Þrjú önnur höfðu áður játað sök
vegna kannabisframleiðslunnar og
fengið innan við ársdóma hvert og
eitt. Á meðal þeirra voru íbúarnir á
bænum.
Margeir, sem einn var viðstaddur
dómsuppkvaðningu, og Alvar hafa
ákveðið að áfrýja dómnum en Einar
hefur tekið sér frest til að ákveða
sig.
Alvar og Einar Jökull fengu
þunga dóma í Pólstjörnumálinu fyr-
ir rúmum áratug. Einar Jökull var
þá dæmdur í níu og hálfs árs fang-
elsi en Alvar í sjö ára fangelsi. Mar-
geir Pétur á ekki að baki sakaferil.
Einn fékk sjö ára fangelsisdóm
Þrír fundnir sekir um mikla amfeta-
mínframleiðslu og kannabisrækt
Morgunblaðið/Eggert
Héraðsdómur Þungir dómar
kveðnir upp yfir þremur mönnum.
„Þetta er náttúrlega niðurstaðan sem
ég vonaðist eftir, en maður náttúr-
lega býr sig undir það versta. Þetta
er búið að taka þrjú ár og búið að
taka mikið á mig og sérstaklega fjöl-
skyldu mína, sem hefur mátt þola alls
konar hótanir og leiðindi undanfarin
þrjú ár, en ég vona að þetta sé loka-
hnykkurinn í þessu máli,“ sagði Atli
Már Gylfason blaðamaður eftir að
máli Guðmundar Spartakusar Óm-
arssonar gegn honum var vísað frá af
Hæstarétti Íslands í gærmorgun.
Með frávísuninni féllst Hæstirétt-
ur á aðalkröfu Atla Más í málinu en
hann og lögmaður hans hafa allt frá
því málareksturinn hófst í Héraðs-
dómi Reykjaness sagt að vísa ætti
málinu frá þar sem Guðmundur
Spartakus var hvergi nafngreindur í
umfjöllunum Atla Más um óútskýrt
hvarf Friðriks Kristjánssonar í Suð-
ur-Ameríku árið 2013. „Ég held að
það séu næstum því upp á dag komin
þrjú ár síðan þetta mál hófst með
birtingu þessara frétta sem ég skrif-
aði um hvarf Friðriks, sem hefur
ekkert spurst til síðan 2013. Það eru
komin sex ár síðan hann hvarf, þrjú
ár síðan þetta mál fór af stað og ég vil
árétta það og ég hvet alla til þess að
hafa samband við lögregluna á höf-
uðborgarsvæðinu ef þeir telja sig búa
yfir einhverjum upplýsingum sem
geta hjálpað fjölskyldu Friðriks sér-
staklega, að fá einhvern endapunkt á
þetta mál,“ segir Atli Már. Niður-
staða Hæstaréttar setur væntanlega
punkt fyrir aftan þetta mál en ef
Guðmundur Spartakus vill enn lög-
sækja Atla Má þarf hann að byrja
slíkt mál algjörlega á byrjunarreit.
Hann var dæmdur til að greiða Atla
Má eina milljón króna í málskostnað
fyrir héraðsdómi, auk þess sem hon-
um er gert að greiða 1,6 milljónir í
málskostnað fyrir Landsrétti og
Hæstarétti.
Atli Már hafði betur
fyrir Hæstarétti
Meiðyrðamáli
gegn blaðamanni
vísað frá í gær
Morgunblaðið/Kristinn
Frávísun Atli Már Gylfason með
lögmanni sínum, Gunnari Inga Jó-
hannssyni, er málið var í Landsrétti.