Morgunblaðið - 21.12.2019, Qupperneq 1
Vaxtagjöld af lánum
2007-2024, milljarðar kr.
100
75
50
25
0
2007 2024
84 ma.kr. 2009
34 ma.kr. 2019
Meiri skattalækkun í bígerð
Fjármálaráðherra boðar frekari skattalækkanir næstu ár
Á næstu árum mun skapast svigrúm fyrir stórverkefni
Bjarni Benediktsson, fjármála- og
efnahagsráðherra, segir að eftir-
stöðvunum verði ráðstafað til að
greiða 62 milljarða skuld í febrúar.
Óseldar eignir á 200 milljarða
Að auki eru Íslandsbanki og aðrar
eignir metnar á um 200 milljarða.
„Við höfum létt vaxtabyrði okkar á
undanförnum árum um 40 milljarða.
Við eigum að geta minnkað hana
aftur um þriðjung á næstu sex ár-
um,“ segir Bjarni um horfurnar.
Áætlað er að ríkissjóður hafi greitt
alls um 672 milljarða í vexti 2010-19.
Árin 2020-24 er hins vegar gert ráð
fyrir 168 milljarða vaxtagreiðslum.
Bjarni segir að þegar ríkissjóður
fari að njóta hagstæðari lánakjara
innan fárra ára muni skapast tæki-
færi til að lækka skatta enn frekar
og ráðast í ýmis stórverkefni.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Endurmetnar áætlanir gera ráð
fyrir að stöðugleikaframlög slitabú-
anna muni skila ríkissjóði um 458
milljörðum, eða um 74 milljörðum
hærri fjárhæð en fyrst var talið.
Rekja má rúman 21 milljarð af
hækkuninni til eigna í umsýslu Lind-
arhvols. Um 12 milljarðar í lausu fé
eru nú eftir á stöðugleikareikningi. MSkuldir munu áfram minnka »14
L A U G A R D A G U R 2 1. D E S E M B E R 2 0 1 9
Stofnað 1913 300. tölublað 107. árgangur
Gáttaþefur kemur í kvöld
3 dagartil jóla
jolamjolk.is
SAMKENNDIN
BJARGAR
MANNKYNINU LEIKHÚS OG MYNDLIST
ENGILLINN SÝNDUR Í KASSANUM 46UPPGJÖR Í LJÓÐUM 12
Vetrarsólstöður verða á morgun, 22. desember,
en ekki í dag, á 21. degi mánaðar eins og oftast
er. Í Reykjavík verða vetrarsólstöður kl. 04:19
að morgni, sólin rís kl. 11:22 og verður hæst á
lofti 2,7 gráður yfir sjóndeildarhring kl. 13:26.
Sólin sest svo kl. 15:31 og ekki löngu síðar er
orðið myrkt. Í mínútum mælt verða tímasetn-
ingar þessar þær sömu á Þorláksmessu, en
nokkrum sekúndum í sólarátt munar þó. Á Norð-
urlandi er birtutíminn enn skemmri en syðra. Á
Akureyri kemur sólin í dag upp kl. 11:38 og sest
kl. 14:42.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vetrarsólstöður á morgun
Fjárfestar hafa keypt að minnsta
kosti 17 einbýlishús á svæðinu í
kringum Kópavogsskóla.
Þar af hafa þeir keypt 8 einbýlis-
húsalóðir við Skólatröð og Álftröð
en reiturinn er mitt á milli Kópa-
vogsskóla og Menntaskólans í
Kópavogi. Á reitnum verður
heimilt að byggja allt að 180 íbúðir.
Ármann Kr. Ólafsson, bæjar-
stjóri Kópavogs, segir uppkaupin á
viðkomandi reit hafa hafist fyrir
þremur til fjórum árum.
„Nú er þetta komið í ferli. Málið
er búið að fá forkynningu og er á
leið í auglýsingu. Viðkomandi sendi
inn erindi í skipulagsráð að lausn
fyrir blettinn sem er að mörgu leyti
mjög vel útfærð og tekur að ein-
hverju marki tillit til byggðar sem
fyrir er,“ segir Ármann. »10-11
Einbýlishús víkja
fyrir þéttari byggð
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Reiturinn Einbýlishús víkja fyrir blokkum.
Haustið 2014 lenti Bryndís Björk
Kristjánsdóttir í slysi við Þríhnúka-
gíg. Hún féll með höfuðið á undan
sex metra ofan í grýtta sprungu.
Skjót viðbrögð björgunarfólks urðu
henni til lífs en hún hlaut mikla höf-
uðáverka. Eftir slysið var Bryndís
nokkrar vikur á sjúkrahúsi og það-
an lá leiðin á Grensás. Þar bjó hún í
mánuð í stífri endurhæfingu en
mætti svo á dagdeild í hálft ár.
„Ég þurfti að læra ýmislegt upp á
nýtt; ég missti jafnvægið út af aug-
anu og bólgum í heila. Ég gekk með
göngugrind eins og gamla fólkið.
Ég gekk lengi með sjóræningja-
lepp, rosa flott. Án hans endaði ég
bara á hliðinni,“ segir hún og bros-
ir.
Nú fimm árum síðar hefur Bryn-
dís náð góðum bata og fer í fjall-
göngur og á skíði. Hún glímir enn
við höfðuverk, þreytu, orkuleysi og
minnisleysi en lætur ekkert stöðva
sig.
„Ég hef sætt mig algjörlega við
þetta. Ég er voða lítið fyrir drama
og sé litla ástæðu til að velta mér
upp úr því sem ekki er hægt að
breyta. Ég er jákvæð og þrjósk. En
það er hægt að segja: lífið fyrir slys
og lífið eftir slys,“ segir Bryndís
sem segir sögu sína í Sunnudags-
blaði Morgunblaðsins um helgina.
Morgunblaðið/Ásdís
Jákvæðni Bryndís fékk sér tíkina Kríu eftir slysið og segir hana hjálpa sér
mikið í endurhæfingunni, bæði líkamlega og andlega.
Lífið fyrir slys og lífið eftir slys
Datt sex metra ofan í sprungu
Glímir við eftirköst árum síðar
Hlaðbær Colas
og aðrir malbiks-
framleiðendur
hér á landi munu
áfram fá bik frá
sænska fyrir-
tækinu Nynas
AB á næsta ári,
þrátt fyrir að Ny-
nas hafi óskað
eftir greiðslustöðvun í heimaland-
inu. Ástæða vandræða Nynas er
viðskiptabann Bandaríkjanna á
Venesúela. Venesúelska ríkið á
helmingshlut í Nynas AB, og Nynas
getur ekki lengur keypt venesú-
elska hráolíu í bik sitt. »22
Malbikun í uppnámi
vegna viðskiptabanns