Morgunblaðið - 21.12.2019, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 21.12.2019, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 2019 Það hefur sýnt sig að íslenska þjóðin stendur saman, sýnir stuðning og samhug eftir bestu getu. Hægt er að leggja framlög inn á reikning nr. 0101-26-35021, kt. 470269-1119 S. 551 4349, 897 0044, maedur@simnet.is Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur JÓLASÖFNUN Aukaaðalfundur Búmanna hsf. Aukaaðalfundur Búmanna hsf. verður haldinn á Grand Hótel við Sigtún 38 í Reykjavík í fundarsalnum Hvammi, fimmtu- daginn 23. janúar 2020 og hefst kl. 15.00. Dagskrá: 1. Kjör fundarritara og fundarstjóra. 2. Tillögur stjórnar Búmanna hsf. um breytingar á samþykktum Búmanna hsf. 3. Önnur mál. Tillögur að breytingum á samþykktum Búmanna hsf. hafa verið birtar á heimasíðu Búmanna, www.bumenn.is. Einnig er hægt að nálgast tillögur að breyttum samþykktum á skrifstofu Búmanna að Lágmúla 7, 5. hæð, Reykjavík. Stjórn Búmanna hsf. Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is „Þetta er búinn að vera ansi langur tími og eiginlega orðið gott. Á þess- um árum hafa orðið miklar breyt- ingar á blaðaútgáfunni og dreifingin um leið tekið breytingum,“ segir Ólöf Jósepsdóttir, leikskólakennari á Sauðárkróki og umboðsmaður Morgunblaðsins, en hennar síðasta dreifing með blaðið til blaðbera var í gærmorgun, eftir að hún hafði vakn- að klukkan fjögur um nóttina og sótt blaðið í Varmahlíð ásamt eiginmanni sínum, Sigurgísla Kolbeinssyni. Ólöf hefur verið umboðsmaður Morgunblaðsins á Sauðárkróki í 35 ár og þar áður var móðir hennar, Anna Soffía Jónsdóttir, með umboð- ið í tíu ár. Fjölskyldan hefur því haft þetta hlutverk, lengst af samfara annarri vinnu, í 45 ár. Þegar Ólöf tók við dreifingu blaðsins á svæðinu var hún áfram nokkur ár í viðbót með rukkun áskriftargjalda, líkt og aðrir um- boðsmenn. Var þá rukkað á tveggja mánaða fresti og rukkanir voru í fyrstu handskrifaðar. Hún segir þennan tíma hafa verið mjög skemmtilegan. „Í sum hús varð ég að fara að degi til en þá var búið að baka handa mér og kaffi tilbúið þeg- ar ég kom. Þá var setið og spjallað um daginn og veginn. Þetta var virkilega gaman.“ Ólöf segir dreifinguna ekki þrautalausa yfir vetrartímann, líkt og tíðarfarið hefur verið að undan- förnu. Hér áður fyrr hafi þó oftar komið óveður og stundum tekið marga daga að koma blöðunum út. Á þessum árum kom Mogginn norður annaðhvort með flugi eða Norður- leið. Það var svo árið 1996 sem byrj- að var að aka með blaðið frá Reykja- vík norður til Akureyrar og Ólöf hefur þá vaknað eldsnemma morg- uns og sótt skammtinn í Varmahlíð og ekið með hann út á Krók. „Með þessu breyttist starfið tölu- vert, fór úr aukavinnu á daginn í næturvinnu. Núna er blaðið yfirleitt komið í hendur áskrifenda fyrir klukkan sjö á morgnana og ég hef oft heyrt að fólk hér fái blaðið jafn- vel fyrr í hendur en á höfuðborg- arsvæðinu, þannig að þetta hefur verið mjög góð þjónusta við áskrif- endur,“ segir hún. Umboðið hefur ekki aðeins verið í höndum sömu fjölskyldu heldur segir Ólöf blaðber- ana hafa komið úr sömu fjölskyldum og starfið flust á milli ættliða. Síðustu tíu árin hefur Ólöf fengið góða aðstoð frá Þórdísi Þórisdóttur, mágkonu sinni, og hafa þær skipst á að sækja blöðin í Varmahlíð. „Auð- vitað verða þetta viðbrigði, ég mun áreiðanlega halda áfram að vakna klukkan fjögur á nóttunni. Það mun taka tíma að vinda ofan af þessu,“ segir Ólöf að endingu. Boðið í kaffi og kökur er rukkað var fyrir áskrift  Ólöf hættir eftir 35 ár sem umboðsmaður á Sauðárkróki Ljósmynd/Sigurgísli Kolbeinsson Síðasta dreifing Ólöf Jósepsdóttir kom Morgunblaðinu í hendur blaðbera á Sauðárkróki í síðasta skipti í gærmorgun. Húsin vel skreytt fyrir jólin. Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is Enginn skortur er á Íslendingum sem velja að verja jólafríinu í sól- ríkum löndum en einn vinsælasti dagur til slíkra ferðalaga er einmitt í dag samkvæmt upplýsingum frá mörgum ferðaskrifstofum. Jólafríið í ár er einstaklega hagstætt hvað frí- daga varðar og margir virðast hafa kosið að nýta það til ferðalaga. Tenerife og Kanaríeyjar tróna, líkt og síðastliðin ár, efst sem helstu áfangastaðir Íslendinga yfir hátíð- arnar en ferðaskrifstofurnar Vita, Úrval Útsýn og Heimsferðir bjóða allar upp á jólaferðir þangað. Voru nánast allar slíkar ferðir orðnar full- bókaðar mörgum mánuðum fyrir jól. Samkvæmt upplýsingum frá Vita voru ferðir til Tenerife og Kanarí- eyja orðnar uppseldar strax í júní en 50 manns skráðu sig á biðlista hjá skrifstofunni í framhaldi. Eva Rakel Jónsdóttir, ferðaráð- gjafi hjá Vita, segist aðspurð telja líklegt að jólaferðirnar hafi verið sérstaklega vinsælar í ár út af hag- stæðum frídögum. Bókanir óvenjutímanlegar Tómas Gestsson, framkvæmda- stjóri ferðaskrifstofunnar Heims- ferða, sem einnig býður upp á jóla- ferðir til Tenerife og Kanaríeyja, tekur undir með Evu en hann segir fólk hafa verið óvenjutímanlega í að bóka jólaferðirnar í ár en þær voru allar orðnar uppseldar snemma í haust. „Það getur verið að fólk hafi tekið ákvörðun snemma þar sem það hef- ur verið búið að skoða dagatalið og hafi þess vegna ákveðið að dvelja er- lendis. Það kemur mér ekki á óvart,“ segir Tómas en bætir við aðjólatím- inn sé þó alltaf afar vinsæll til ferða- laga. Vilja komast úr skammdeginu „Þetta hefur annars verið með hefðbundnum hætti. Þetta hefur alltaf verið vinsæll tími hjá okkur, páskar og jól. Sérstaklega í sólina. Fólk vill komast út úr skammdeg- inu,“ segir hann. Ferðir ferðaskrifstofunnar Úrval Útsýn til Tenerife og Kanaríeyja seldust einnig upp snemma í haust að sögn Ingibjargar Elsu Eysteins- dóttur forstöðumanns. Hún segir að nýlega hafi þó losnað örfá sæti í ára- mótaferð ferðaskrifstofunnar 27. desember til Tenerife vegna forfalla. „Það er alltaf milt og gott veður þarna. Ég var þarna sjálf í síðustu viku. Þá var 25 stiga hiti og þvílíkt „næs“. Ekkert jólastress og allt í jólaskrauti. Þetta er eitthvað sem ég get hugsað mér að gera næstu ára- mót,“ segir Ingibjörg. Skíðaferðir Úrvals Útsýn til Austurríkis yfir jól- in eru einnig afar vinsælar þó að þær toppi ekki sólarlandaferðirnar að sögn Ingibjargar. Það eru þó ekki einungis sólar- ferðir til Tenerife og Kanaríeyja sem hafa slegið í gegn hjá Íslend- ingum því margir ætla að njóta jóla- frísins á skemmtisiglingu í Kar- íbahafi en Norræna ferðaskrifstofan býður upp á slíka ferð. Hefur hún verið fullbókuð síðan í maí að sögn Skúla Unnars Sveinssonar ferðaráð- gjafa. Segir hann að sá hópur Íslendinga sem velja að fara í slíkar ferðir hafi breyst mikið. „Hér í gamla daga var þetta bara fólk yfir 85 ára sem átti helling af peningum en ég er búinn að fara í 49 siglingar síðan við byrjuðum árið 2010 og ég hef farið með 6 mánaða barn og 93 ára gamla konu og allt þar á milli,“ segir Skúli og hlær. Íslendingar flykkjast til Tenerife og Kanarí  Flestar jólaferðir seldust upp fyrir mörgum mánuðum Morgunblaðið/Brynjar Gauti Hátíðaflakk Margir Íslendingar halda jólin hátíðleg í sólarlöndum eins og á Tenerife og Kanaríeyjum til að flýja skammdegið og njóta hitans. Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is Afar jólalegt er í Grímsey um þess- ar mundir að sögn Grímseyingsins Svafars Gylfasonar en hann segist búast við að hátt í 50 manns muni verja jólunum á eynni. Segir hann að fólki fjölgi yfirleitt í Grímsey yfir hátíðarnar. „Þá kemur fólk meira heim, er hérna um jólin og áramótin og fer svo aftur til baka. Brottfluttir Grímseyingar og svona,“ segir Svafar sem kveðst ekki vita til þess að margir heimamenn ætli að verja jólunum erlendis. Segir hann meiri „þvæling“ vera á fólki fyrir og eftir hátíðarnar. „Við vorum frekar fá hérna í þar- síðustu viku, í vonda veðrinu. Þá voru sjö manneskjur á eynni þannig að þetta verður orðið bara hell- ingur af fólki miðað við það,“ segir Svafar og hlær. Hann viðurkennir að veðrið hafi ekki verið upp á sitt besta upp á síð- kastið og segir veðurspána fyrir helgina frekar leiðinlega. „Þetta lítur ekkert allt of vel út á sunnudaginn. Maður verður bara að vona að það verði hægt að fljúga. Ég held að þá séu að koma svona tíu manneskjur,“ segir Svafar. Jólahefðirnar á sínum stað Segir hann jólastemninguna góða í bænum og að jólahefðir Grímseyinga verði á sínum stað í ár. Hann staðfestir að kvenfélagið Baugur og Kiwanisklúbburinn bjóði öllum íbúum til jólahlaðborðs í dag og íbúum sé einnig boðið upp á skötu á Þorláksmessu. „Allir eru með. Það mæta yfir- leitt allir í eynni í skötuna,“ segir Svafar sem vonast eftir að minnsta kosti 40 manns. Segir hann að íbúar séu afar dug- legir að skreyta og flest hús á eynni séu böðuð jólaljósum. Svafar segist aðspurður tvímæla- laust mæla með því að halda jól í Grímsey. „Þú færð þetta ekki afslappaðra en hér. Ferð ekki neitt og færð bara að gera það sem þú vilt,“ segir hann. Ljósmynd/Karen Nótt Halldórsdóttir Grímseyjarjól Mikil jólastemning ríkir hjá Grímseyingum um þessar mund- ir en langflest húsin í bænum eru nú böðuð jólaljósum. Fólki fjölgar í Grímsey á jólum  Býst við hátt í 50 manns í bænum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.