Morgunblaðið - 21.12.2019, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 21.12.2019, Qupperneq 24
BAKSVIÐ Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Lítill árgangur þorsks frá2013 setti svip á niður-stöður haustralls og einn-ig gekk illa að veiða stóra þorskinn. Niðurstaðan er sú að stofnvísitala þorsks hefur lækkað töluvert frá árinu 2017 þegar hún mældist sú hæsta frá upphafi haust- mælingarinnar og er nú svipuð því sem hún var árið 2012. Vísitölur ýsu og ufsa lækkuðu frá fyrra ári eftir að hafa farið hækkandi frá 2014. Já- kvæð tíðindi eru hvað varðar ýsuna, en fyrstu vísbendingar um árgang- inn frá 2019 gefa til kynna að hann sé sá næststærsti síðan 1996, aðeins árgangurinn frá 2003 sé stærri. Minna af loðnu í fæðunni Stofnmæling botnfiska að haustlagi eða haustrall fór fram í 23. sinn 26. september-3. nóvember. Rannsóknasvæðið var umhverfis Ís- land allt niður á 1.350 metra. Alls var togað með botnvörpu á 373 stöðvum. Helsta markmið haust- rallsins er að styrkja mat á stofn- stærð botnlægra nytjastofna á Ís- landsmiðum eins og þorsks, ýsu og gullkarfa auk djúpfiska eins og grá- lúðu, djúpkarfa, blálöngu og gulllax. Haust- og vorrall eru meðal helstu stoða við mat á stærð stofna og fisk- veiðiráðgjöf, ásamt netaralli. Tog- ararnir Ljósafell SU og Gnúpur GK voru notaðir til rannsóknarinnar og var Kristján Kristinsson, verkefn- isstjóri. Stofnvísitala þorsks hækkaði nær samfellt árin 2007-2017 sem má rekja til aukins magns af stórum þorski. Í marsralli er ferli stofn- vísitölunnar mjög svipað og kom fram sambærileg lækkun frá 2017 til 2019. Lækkunina í haustmælingunni í ár má rekja til þess að nú fékkst minna af 80-110 cm þorski en fyrri ár. Einnig var vísitala 60-75 cm þorsks undir meðaltali rannsókn- artímabilsins. Hluti af breytingunni skýrist af því að litli árgangurinn frá 2013 er nú á þessu stærðarbili. Vísi- tölur þorskárganga frá 2014 benda til að þeir séu nálægt meðaltali. Fæða þorsks að hausti er fjöl- breytt og mismunandi milli stærðar- flokka. 1996-2002 var loðna mikil- vægasta fæðutegundin hjá 26-85 cm þorski en hlutdeild hennar hefur minnkað mikið á síðari árum. Magn rækju, sem er mikilvæg fæða hjá 26- 85 cm þorski, hefur einnig minnkað með árunum. Hjá 56-85 cm þorski hefur ísrækja oft verið algeng fæða en lítið var af henni í þorskmögum í ár. Uppistaða í fæðu þorsks stærri en 85 cm er fiskbráð eins og síld og kolmunni en einnig ýsa, skrápflúra og þorskur. Ýsa fyrir vestan og norðan Stofnvísitala ýsu lækkaði frá fyrra ári eftir að hafa hækkað tvö ár á undan. Árgangar 2014-2017 eru mun stærri en árgangarnir á undan og er 2014 árgangurinn þeirra stærstur. Stofnvísitalan er þó mun lægri en hún var á árunum 2002- 2008 þegar nokkrir stórir árgangar voru í stofninum. Fyrstu vísbending- ar um árganginn frá 2019 gefa til kynna að hann sé sá næststærsti síð- an 1996. Ýsa veiddist á landgrunninu allt í kringum landið en eins og und- anfarin ár fékkst mest af henni fyrir vestan og norðan landið. Meðal- þyngd ýsu eftir aldri hefur hækkað umtalsvert síðan 2010, en með- alþyngd eftir aldri er yfirleitt minni hjá stórum árgöngum en litlum og vöxtur er hægur þegar stofninn er stór. Stofnvísitala gullkarfa hefur hækkað frá árinu 2000 og hafa vísi- tölur síðustu sex ár sveiflast töluvert en eru þær hæstu frá 1996. Nýliðun gullkarfa, djúpkarfa og blálöngu hefur verið mjög léleg undanfarin ár. Vísitala nýliðunar hjá grálúðu hefur lækkað hratt frá hámarkinu árin 2009-2013. Lægri vísitölur þorsks og fleiri fisktegunda 24 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 2019 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Biðlistar íheilbrigð-iskerfinu heyra ekki til und- antekninga heldur virðast þeir inn- byggðir í kerfið, svo þrálátir eru þeir. Í Morgunblaðinu í gær birtist frétt um að yfir 90% þeirra, sem væru á biðlista eftir brennsluaðgerð á hjarta í byrj- un október, hefðu beðið lengur en þrjá mánuði. Kom einnig fram að miðgildi biðtíma á tímabilinu væri 42 vikur. Þessar tölur eru úr greinar- gerð embættis landlæknis um stöðu á biðlistum. Landlæknir hefur sett viðmið um viðunandi biðtíma. Hann er þrír mánuðir og gert ráð fyrir að 80% sjúk- linga komist í aðgerð fyrir þann tíma. Í greinargerðinni kemur fram að af 16 aðgerðum sem metnar voru hafi biðin verið viðunandi í þremur tilfellum. Meira að segja þar sem gert hefur verið sérstakt átak til að stytta biðlistana er biðin lengri en telst viðunandi. Það eru skurðaðgerðir á augasteini, valdar aðgerðir á kviðarhols- líffærum kvenna og brottnám legs. Tekið er þó til þess að biðlist- ar eftir skurðaðgerðum á auga- steinum hafi styst verulega frá því að átakið hófst. Engu að síð- ur höfðu 36% beðið lengur en í þrjá mánuði í byrjun október. Þegar tölurnar eru greindar vekur athygli að biðlistinn eftir augnsteinaaðgerðum er lengst- ur hjá Landspítala, 326, en eng- inn hjá LaserSjón. Sérstaklega er tekið til þess í úttektinni að lengri biðlistar séu hjá Landspítala en einkastofum. Augnsteina- aðgerðir eru gott dæmi um það hvað kerfið er öfugsnúið. Biðlistar eftir slíkum aðgerðum helgast alfarið af því að í raun er kvóti á slíkar aðgerðir. Þeir eru ekki spurning um að kerfið hafi ekki undan. Hæglega mætti vinna á biðlistanum ef peningar fengj- ust til að gera aðgerðirnar. Augnsteinaaðgerðir snúast um lífsgæði, myrkur eða ljós, að geta lesið, séð á sjónvarp eða einfaldlega vera sjálfbjarga. Þessar aðgerðir snúast um út- gjöld, sem koma fyrr eða síðar. Liðskiptaaðgerðir eru sér á parti. Þær verða teknar fyrir síðar hjá embætti landlæknis, en í Morgunblaðinu í gær var aðsend grein eftir Kjartan Halldór Antonsson þar sem hann lýsir níu mánaða bið eig- inkonu sinnar eftir liðskipta- aðgerð og segir frá því að nú sé hún eftir mikið vafstur í aðgerð í Danmörku, sem hægt hefði verið að gera með mun einfald- ari og fyrirhafnarminni hætti í Klínikinni. Viðureign þess einkafyrirtækis við ríkið er kapítuli út af fyrir sig. Biðlistum fylgir enginn sparnaður. Iðulega eru þeir sem eru á biðlistum óvirkir þar til þeir komast að. Þeir detta út af vinnumarkaði og þurfa margir dýra aðhlynningu á meðan þeir bíða. Það tapa allir á biðlistum, en engu að síður virðist ógerningur að þurrka þá út. Það er óviðunandi. Enn er biðtími of langur eftir aðgerðum} Sagan endalausa Írafárið og út-úrsnúningarnir í kringum skipan dómara í Lands- rétt voru með ólíkindum og verð- ur að vona að púk- inn á fjósbitanum hafi ekki verið í megrun þegar mest lét. Málflutningur þeirra, sem lýstu yfir mestri vanþóknun í málinu var á þann veg að nið- urstaða dómnefndarinnar um umsækjendur hefði verið með öllu óbrigðul – gerð af slíkum óskeikulleika að þar mætti engu hagga. Mátti ætla að þar hefðu verið á ferð jarteikn slík að annað eins hefði ekki gerst síðan Mósesi voru rétt- ar steinplöturnar á fjallinu forðum daga. Svo vill til að enn er sótt um dómarastöður og enn þarf að meta hæfni umsækjenda. Í haust var auglýst laust til um- sóknar embætti hæstaréttardóm- ara og sóttu átta um. Þar þóttu þrír umsækjendur hæfastir og gat nefndin ekki gert upp á milli þeirra. Þegar þessir sömu umsækjendur voru mældir á kvarðanum, sem notaður var við hæfnis- matið í Landsrétt, skeikaði hins vegar talsverðu milli þessara umsækjenda, eða rúmlega einum heilum. Fátt hafa þessir umsækjendur gert í millitíðinni, sem skýrir að þá hafi verið hægðarleikur að gera upp á milli þeirra, en sé ógerningur nú. Þetta vekur óþægilegar spurningar um óskeikulleik- ann og hvað sé til ráða þegar skeikar í niðurstöðum óskeik- ulla dómnefnda. Hver á að dæma um dómgreind dóm- nefndarinnar? Látið hefur verið sem dómnefndir séu óskeikular, en hvað er til ráða þegar þær skila ólíkum niðurstöðum?} Óskeikulleiki í uppnámi? V ið Íslendingar erum ýmsu vön þegar kemur að náttúru landsins. Að- ventustormurinn sem gekk yfir stóran hluta landsins nýverið af- hjúpaði þó hversu varnarlaus við raunverulega erum þegar kemur að veðrinu og hversu veikir innviðir okkar eru, ekki síst hvað varðar raforkuflutninga í landinu. Á síðustu áratugum hafa lifnaðarhættir okkar breyst mikið og erum við orðin sífellt háðari raf- magni við okkar daglegu störf. Jafnvel húshitun á hitaveitusvæðum treystir í mörgum tilfellum á rafmagn, sem og heimasímar, ólíkt því sem áður var. Það er því ekki að undra þegar langvarandi rafmagnsleysi kemur upp að heilu samfélögin lamist á meðan. Það er skýrt að ríkisstjórn Íslands og Alþingi ber að grípa inn í þær aðstæður sem hafa skap- ast og tryggja fjármagn og leiðir til að byggja upp og styrkja bæði raforkuflutnings- og fjarskiptakerfi landsins. Því miður hefur núverandi ríkisstjórn ekki nýtt þau tæki- færi sem hafa boðist til að skýra línurnar en nú er ekki hægt að bíða lengur. Við þurfum að spyrja okkur – eru leikreglurnar sem lög- gjafinn og framkvæmdavaldið hafa sett sanngjarnar? Erum við til dæmis með of stífar reglur hvað varðar kostnaðarmat á jarðstrengjum? Við eigum að setja okkur skýra stefnu um að leggja allar línur á lægri spennu í jörðu og áætlun um að vinna það hraðar en ætlað var. Sömuleiðis ættum við að hraða styrkingu byggðalínuhringsins, samhliða því að styrkja tengivirkin. Slíkar aðgerðir myndu ekki aðeins auka flutningsöryggi, heldur einnig draga úr sóun orku í kerfinu sem er of mikil í veiku kerfi auk þess að auka raforkuöryggi með tengingu landshlutanna. Við verðum að horfast í augu við það að það kostar beinharða peninga að vera ekki með innviðina í lagi, hverjir sem þeir eru. Samfélagslegir innviðir, hvort sem átt er við raforku, menntakerfi, samgöngur eða heilbrigð- isþjónustu, eiga sömuleiðis að vera með þeim hætti að sem minnstu máli skipti hvar fólk kýs að búa. Það á því að vera forgangsverkefni stjórnvalda að jafna búsetuskilyrði og stuðla að velferð og öryggi fólks um allt land. Hér er um að ræða mál sem snertir óvenju marga og sem skiptir máli að við lærum af. Þetta er mál sem ekki á að vera pólitískt bitbein misviturra stjórnmálamanna eða hlaupa með í skotgrafir tvíhyggjunnar; höfuðborg á móti landsbyggð, umhverfi á móti nýtingu. Allt getur þetta farið saman en við þurfum að leggjast á eitt og breyta bæði kerfinu og umræðunni. Nú þegar stormurinn er genginn yfir og sá næsti á leið- inni er að lokum vert að þakka innilega öllum þeim sem stóðu vaktina á meðan veðrið gekk yfir, en ekki síður öllum þeim sem unnu dag og nótt við að lagfæra og endurbyggja allt það sem aflaga fór í storminum til að sem flest getum við átt gleðileg jól. albertinae@althingi.is Albertína Friðbjörg Elíasdóttir Pistill Forgangsröðum rétt Höfundur er þingmaður Samfylkingarinnar. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen Um helmingur stöðva haustralls er á djúpslóð í landgrunnshall- anum umhverfis landið og þar er að finna heimkynni allmargra lítt þekktra djúpsjávartegunda, tegunda sem lifa að öllu jöfnu ekki á grynnra dýpi en 400 metrum. Fjöldi djúpsjávartegunda sem fást í haustralli er um 90, þar af eru um 20 tegundir brjóskfiska (hámýs, háfar og skötur). Teg- undir eins og dílamjóri, tvíráka- mjóri, krækill og skjótta skata þrífast helst í köldum og djúp- um sjó norður, norðaustur og austur af landinu. Krækill og skjótta skata 90 DJÚPSJÁVARTEGUNDIR Stofnmælingar á þorski og ýsu í haustralli 2019 Heimild: Hafrannsóknastofnun Þorskur Ýsa Útbreiðsla Útbreiðsla

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.