Morgunblaðið - 21.12.2019, Side 32

Morgunblaðið - 21.12.2019, Side 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 2019 ✝ Anna Erla Ey-mundsdóttir fæddist á Seyð- isfirði 17. október 1934. Hún lést á HSN á Siglufirði 9. desember 2019. Foreldrar Erlu voru Sigurborg Gunnarsdóttir saumakona, f. 9.4. 1906, d. 22.11. 1983, og Eymund- ur Ingvarsson sjómaður og verkamaður, f. 31.5. 1883, d. 9.6. 1959. Systkini Erlu eru Garðar, Hartmann, Stella og Arabella. Eiginmaður Erlu var Jón Dýrfjörð, f. 16.3. 1931 á Siglufirði, d. þar 14.6. 2019. Börn þeirra eru fimm. 1) Sigfús, f. 2.8. 1952, giftur Önnu Maríu Guðmundsdóttur, dóttir þeirra Anna Kristín, gift Þorleifi Sigurþórssyni, þau eiga tvo drengi. 2) Sól- veig, f. 4.7. 1955, d. 2.8. 2013. 3) Helena, f. 20.7. 1960, gift og Björk, sambýlismaður Magnús Heiðdal. 5) Þórgnýr, f. 16.12. 1967, giftur Aðal- heiði Hreiðarsdóttur. Börn þeirra: Styrmir, sambýliskona Alex Steinþórsdóttir, Bjarmi og Embla. Erla ólst upp á Seyðisfirði, bjó og starfaði þar uns hún flutti með Jóni til Siglu- fjarðar 1955. Sem barn og unglingur fór hún öll sumur í sveit til ættingja sinna fyrst á Grund í Borgafirði eystra en síðar að Hrolllaugsstöðum á Héraði og vann þar öll sveita- störf. Á Seyðisfirði hóf hún ung störf á elliheimilinu og kynntist þar tengdamóður sinni, Þorfinnu Sigfúsdóttur forstöðumanni og síðar Jóni þegar hann kom austur. Á fyrstu búskaparárunum bjuggu þau í Hlíð hjá afa og ömmu Jóns og tóku uppeldið og húsmóðurstörfin mikinn tíma. Erla og Jón tóku árið 1957 við húsvarðarstöðu við Gagnfræðaskólann til ársins 1962. Erla starfaði sem fisk- verkakona í Siglósíld og í Hraðfrystihúsinu Ísafold í fjölda ára. Samhliða sinnti hún einnig bókhaldsvinnu og reikningagerð við vélaverk- stæði þeirra hjóna en síðar, þegar fyrirtækið óx og dafn- aði og starfsmönnum fjölgaði, varð skrifstofustjórnin þar hennar aðalstarf þar til þau seldu fyrirtækið við starfslok. Erla var mjög virk í fé- lagslífi Siglfirðinga. Starfaði í Kvennafélaginu Von, var þar formaður og stjórn- armaður. Hún sat í sókn- arnefnd, í stjórn Systra- félagsins, starfaði með Slysavarnardeildinni Vörn og Rauða krossfélaginu. Hún var virk í starfi Alþýðuflokksins og sat sem fulltrúi hans í nefndum bæjarins. Síðast en ekki síst voru Erla og Jón ötulir baráttumenn fyrir auknum réttindum fatlaðra og tóku virkan þátt í starfi Þroskahjálpar og gegndu þar ýmsum trúnaðarstörfum. Jón og Erla voru heiðruð af Sjómannadagsráði fyrir störf sín í þágu sjávarútvegs um áratugaskeið. Þá hefur Rauði krossinn einnig heiðrað þau fyrir störf sín í þágu samtakanna. Útför Erlu fer fram frá Siglufjarðarkirkju í dag, 21. desember 2019, kl. 14. Meira: mbl.is/andlat Birni Jónssyni. Börn þeirra: Erla, gift Gauta Þór Grétarssyni, þau eiga fjögur börn. Jón Ingi, giftur Þórgunni Lilju Jó- hannesdóttur, þau eiga þrjú börn. Rakel Ósk, sam- býlismaður Gísli Sigurðsson. 4) Baldur, f. 5.8. 1962, giftur Bergþóru Þór- hallsdóttur. Börn Baldurs með Ástu Hrönn Jónasdóttur, María Rut, gift Halldóri Hauksssyni, þau eiga tvær dætur. Friðrik Bragi, sam- býliskona Hildur Sigurð- ardóttir, þau eiga eina dótt- ur. Kristján Atli, sambýliskona Kristín Björg Emilsdóttir. Börn Bergþóru og fósturbörn Baldurs eru fjögur. Svala, sambýlismaður Páll Pálsson, þau eiga tvær dætur, Gísli Steinar, Telma Stundum hvarflar að okkur að á milli samrýndra og sterkra hjóna liggi þráður sem heldur hvað sem á gengur og jafnvel milli þessa heims og annars. Þannig leið okkur þegar mamma kvaddi eftir stuttan lokakafla lífsins – að hún sameinaðist nú pabba sem lést fyrir tæplega hálfu ári. Sjálf hafði hún innilega sannfæringu fyrir að svo yrði, hann hafði beinlínis birst henni ljóslifandi. Mamma var fædd og uppalin á Seyðisfirði. Þar átti hún við- burðarík uppvaxtarár, gekk mjög vel í skóla, var í sveit hjá ættingjum á Borgarfirði eystra og uppi á Héraði öll sumur, að- stoðaði ömmu saumakonu við verkin, söng í kirkjukórnum, raddaði vinsæl popplög með systrum sínum og fór ung að vinna á elliheimilinu. Árin sem mótuðu hana og lögðu grunn að þeirri heilsteyptu konu sem hún var. Á elliheimilinu kynnist mamma forstöðumanninum og verðandi tengdamóður sinni – henni ömmu Þorfinnu – áður en hún kynntist pabba. Það var svo á leið af vertíð í Vestmannaeyj- um árið 1951 sem pabbi kom við hjá ömmu og átti bara að vera stutt stopp. En ástin greip í taumana og til varð dúettinn órjúfanlegi Jón og Erla. Ári síð- ar fæddist fyrsta barnið, Sigfús Hlíðar. Á Seyðisfirði var litla fjölskyldan til ársins 1955 þegar hún fluttust til Siglufjarðar sem varð heimabær upp frá því. Við minnumst þess hversu ljúf kona mamma var, eiginlega mildin uppmáluð. En hún hafði líka til að bera hugrekki til að takast á við áskoranir, hvort sem hún fann upp á þeim sjálf eða fékk óvænt í fangið. Hún tók af kappi þátt í fé- lagsstörfum og var oft í ábyrgð- arhlutverkum, með kvenfélag- inu, slysavarnafélaginu, Rauða krossinum og Alþýðuflokknum. Í fyrirtækjarekstrinum með pabba tókst hún á við sífellt stærri hlutverk með viðeigandi námi og nýjungum. Mamma og pabbi voru mjög virk í starfi Þroskahjálpar á löngu tímabili og börðust ötul- lega fyrir réttindum fatlaðra. Sólveig heitin systir okkar fædd- ist með umtalsverða fötlun sem var fjallstórt verkefni fyrir ung hjón á einangruðum stað að tak- ast á við. En það gerðu þau sam- an af kjarki og áræðni. Mamma var að öllu þessu leyti glæsileg fyrirmynd. Lét að sér kveða og hafði jákvæð áhrif í samfélaginu en af háttvísi og virðingu gagnvart náunganum. Betra veganesti er vart hægt að hugsa sér. Oft hló mamma að því hvað hún hafði miklar áhyggjur af sín- um nánustu og við brostum í kampinn. Ekki kom til greina að fara að sofa fyrr en fólk á ferða- lagi var komið heilt í höfn og hafði látið vita af sér. En í áhyggjunum birtist þessi tak- markalausa elska sem hún átti handa okkur öllum. Og það er notalegt að ímynda sér að kannski sé hún að kíkja eftir okkur úr eilífðinni. Við sendum svo SMS í huganum að ferðalok- um. Við þökkum frá dýpstu hjarta- rótum þá umhyggju og ástúð sem hún sýndi okkar börnum og þeirra börnum. Hún á heilmikið í þeim öllum. Við þökkum starfsfólki sjúkrahússins á Siglufirði inni- lega fyrir þá umönnun sem mamma naut síðustu mánuði. Ættingjum og vinum þökkum við innlitin og gæskuna sem þeir sýndu á ögurstundu. Blessuð sé minning þín elsku mamma og takk fyrir allt. Sigfús Hlíðar, Helena, Baldur og Þórgnýr. „Þegar fuglinn er floginn þá er ég farin,“ hafði amma mín sagt. Fuglinn hafði hún í glugg- anum heima í Hlíð þar til hún fór úr húsi þá tók hún fuglinn úr glugganum. Það gaf vinkonum hennar sem ætluðu að verða henni samferða merki um að hún væri farin í kirkjuna að undirbúa kaffisamsæti hjá kvenfélaginu. Þessa sögu sagði amma mér oft. Þegar amma hafði kvatt afa sl. sumar fluttist hún á Heilbrigð- isstofnun Norðurlands, okkur ömmu fannst þá tilvalið að fugl- inn fylgdi með henni og fékk hann sérstakan stað í herberg- isglugganum. Hinn 9. desember sl. flaug fuglinn og kvaddi amma þar með þetta jarðneska líf, nú er hún farin í faðm afa sem hefur eflaust verið afar feginn að sjá hana. Dauðinn er fugl Sem starir á tungl Og hefur sig hægt til flugs (Hildur Eir Bolladóttir) Amma mín og nafna var engill í mannsmynd, ljúfari og betri ömmu er varla hægt að hugsa sér. Amma var hæglát og bar umhyggju fyrir öllum mönnum og dýrum. Hún hafði einstakt jafnaðargeð og gott eyra. Amma var jafnframt þolinmóðasta kona sem ég þekki. Afi minn var uppátækjasamur og fram- kvæmdaglaður, hann birtist oft með ótrúlegustu hluti heima fyr- ir og/eða dró ömmu með sér um fjöll og firnindi í allskonar æv- intýraferðir. Hann átti það jafn- vel til að bregða sér frá ömmu með myndavélina í marga klukkutíma á meðan beið hún við bílinn, jafnvel upp á fjöllum við aðstæður þar sem ekki alltaf var símasamband. Alltaf brást amma við af stóískri ró, jú ég man eftir nokkrum skiptum þar sem hún sagði „Jón Dýrfjörð“ en þá vissi afi líka nákvæmlega meiningu orða hennar. Hjá ömmu og afa í Hlíð var alltaf opið hús fyrir öllum. Þaðan á ég svo ótal margar minningar, t.a.m. átti amma ritvél sem við vinkonurnar notuðum til þess að útbúa okkar fyrstu ljóðabók, en hana seldum við auðvitað bæj- arbúum á Siglufirði og fengum lof fyrir. Amma og afi bjuggu líka mjög nálægt skólanum, í há- deginu gat ég alltaf treyst því að amma gæfi mér eitthvað gott í gogginn, ég gat reyndar alltaf treyst á það. Amma bakaði líka heimsins bestu mömmukossa, gerði heimsins besta jólakakó og nennti að eyða endalausum tíma í að dunda með mér, hvort sem það var að hlusta á mig tala tím- unum saman eða sauma, spila eða föndra. Þannig var amma. Það verður skrýtið að hafa þig ekki hér, elsku amma mín. Ég hef staðið mig að því síðustu daga í veðrinu eins og það hefur verið, að bíða við símann eftir símtali frá þér. Ef von var á vondu veðri þá gat ég verið viss um að ég fengi símtal um hvort ég væri heima og hvort það væri í lagi hjá öllum. Ef ég var á ferðalagi þá gilti það sama, amma fékk að vita þegar lagt var af stað og þegar heim var komið. Mikið munum við sakna ykkar afa. Gauti og börnin mín segja mér svo oft hversu þakklát við getum verið fyrir að hafa átt ykkur að. Það eru forréttindi að eiga ömmu og afa sem bera slíka umhyggju fyrir sínu fólki, um- hyggjan var svo áþreifanleg og hrein, í Hlíð var gott að koma og vera. Takk fyrir að bera umhyggju fyrir öllum alltaf, við munum sannarlega reyna að gera það líka. Þín nafna og barnabarn, Erla. Amma mín í Hlíð. Það er kveðjustund, minning- arnar streyma fram og það er erfitt að hugsa til þess að þær verða ekki fleiri. Ég man eftir því að hafa setið við eldhúsborðið í Hlíð sem lítil stúlka að rembast við að klára fiskinn minn (sem mér fannst ekki góður), allir búnir að borða, amma að ganga frá og við bara tvær í eldhúsinu. Án orða kemur hún og tekur diskinn minn, lumar að mér brauðbita og kinkar kolli um að ég megi stökkva frá borðinu í leik með frændsystkinum mín- um. Góðvild og ómældur kær- leikur, þannig var amma. Þolinmæði hennar átti sér engin takmörk. Ég fékk að brasa með henni í eldhúsinu við bakst- ur og matseld, sitja við hlið hennar á skörinni þar sem hún vélritaði minningarkort, lýsti fyrir mér mikilvægi þess að gera engar stafsetningarvillur og sýndi hvernig vélin virkaði. Hún var líka einstaklega vandvirk. Saman deildum við áhuga á handavinnu og áttum margar samverustundir í saumaherberg- inu, natni og nákvæmni í hverju handtaki. Á meðan ræddum við heima og geima, lífið og til- veruna, amma og barnabarn. Í seinni tíð hringdumst við mikið á til að huga að hvor ann- ari milli heimsókna. Oft hringdi önnur þegar hin var búin að hugsa sér að slá á þráðinn, þá hlógum við að þeirri dásamlegu tilviljun. Ömmu var umhugað um okk- ur hjónin og dæturnar, spurði frétta af vinnu, velferð og dag- legu lífi, „er tönnin dottinn?, gekk ferðin vel? hvernig er veðr- ið?“. Hún var sönn ættmóðir sem hugsaði vel um fólkið sitt og leiddi með góðu fordæmi. Amma vildi öllum vel, stórum sem smáum, í hennar huga áttu allir rétt á tækifæri, hjálparhönd og góðu lífi. Betri mannveru er erf- itt að finna, hún var í senn nægjusöm, gjafmild, brosmild og hlý – hugrakkari en hún vildi viðurkenna og sönn hvunndags- hetja. Himnarnir opnast! Mig leiddir þú og gafst mér kraft þinn, ást þína og trú. Elsku amma, það hefur verið dýrmætt að fá að verja gæða- stundum með þér síðastliðna mánuði, vera til taks fyrir þig, rifja upp tíma okkar saman og ævi þína fyrir mína tíð. Hver kveðjustund full af þakklæti, tár í augum okkar beggja, önnur okkar hrædd við að kveðja, hin að missa. Nú gætum við minn- ingar þinnar eins og þú hefur ávallt gætt okkar allra. Það er huggun að vita af þér í öruggum faðmi afa og Sólveigar. Hjartað er fullt af söknuði og augun tár- um, en umfram allt er ég svo ósköp þakklát fyrir að hafa átt þig að. Himnarnir opnast! Lýsir af þér, myrkrið það hverfur úr hjarta mér. Anna Erla Eymundsdóttir Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, ÁSTA SIGRÍÐUR ÞORLEIFSDÓTTIR, Álfaskeiði 36, Hafnarfirði, lést á Sólvangi, Hafnarfirði, 17. desember. Útför auglýst síðar. Baldvin Halldórsson Margrét Halldórsdóttir Björgvin Halldórsson Helga Halldórsdóttir Oddur Halldórsson og fjölskyldur Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUNNAR SIGURÐSSON löggiltur endurskoðandi, Naustabryggju 54, Reykjavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut laugardaginn 14. desember. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju föstudaginn 27. desember klukkan 13. Guðný Leósdóttir Margrét Gunnarsdóttir Guðrún Gunnarsdóttir Sigurður Gunnar Sveinsson Þóra Gunnarsdóttir Matthías Einarsson Hildur Gunnarsdóttir Héðinn Friðjónsson og barnabörn Elsku pabbi minn, fóstri og afi, HALLDÓR SIGURÐUR GUÐMUNDSSON, Kópavogsbraut 1b, áður Fögrubrekku 24, Kópavogi, lést á Landspítalanum í Fossvogi föstudaginn 13. desember. Útför hans fer fram frá Kópavogskirkju mánudaginn 23. desember klukkan 13. Halla Ósk Halldórsdóttir og synir Jónas H. Bragason og fjölskylda Elín Hulda Halldórsdóttir og fjölskylda Stefán Halldórsson Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐMUNDA NIELSEN, Gógó, Lækjasmára 2, Kópavogi, lést 15. desember. Útförin fer fram frá Fossvogskapellu mánudaginn 23. desember klukkan 11. Kristín Halldórsdóttir Ferdinand Schmitt Stefán Halldórsson Kolbrún L. Sveinbjörnsdóttir og ömmubörn Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, EYJÓLFUR HELGASON, Tunguvegi 2, Njarðvík, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja þriðjudaginn 17. desember. Útförin mun fara fram í kyrrþey að ósk hins látna. Ingibjörg Eyjólfsdóttir Anna E. Knudsen Elías Þórmarsson Agatha Ásta Erludóttir Helgi Gísli Eyjólfsson Sigríður Sigurðardóttir barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg móðir okkar, INGIBJÖRG S. EGILSDÓTTIR, Blómsturvöllum, Súðavík, lést á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða, mánudaginn 16. desember. Útförin fer fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Frosti, Steinunn, Fjalar, Kolbrún, Hulda, Dagný og fjölskyldur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.