Morgunblaðið - 21.12.2019, Side 48
48 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 2019
Kvikmyndin
Cats, eða Kettir,
sem byggist á
samnefndum
söngleik, fær
heldur neikvæða
dóma hjá flestum
þeim gagnrýn-
endum sem hafa
ritað dóma um
hana. Nokkrir gagnrýnenda sjá ekk-
ert jákvætt við myndina. Gagnrýn-
andi The Telegraph segir engan
sleppa óskaddaðan frá myndinni og
sá sem skrifar fyrir Chicago Tribune
veltir fyrir sér hvort hún sé versta
mynd ársins eða bara nýjasta feil-
skotið. Rýnir Playlist segir tölvu-
grafíkina gera út af við myndina og
gagnrýnandi New York Post óskar
þess að kvikmyndin verði þurrkuð
út úr minni hans.
Kvikmyndin hlýtur meðaltals-
einkunnina 31 af 100 mögulegum á
Metacritic og aðeins ein gagnrýni af
35 er talin jákvæð, gagnrýni USA
Today sem segir Kettina vissulega
ekki allra en þeir sem horfi á hana
með opnum huga muni eflaust njóta
hennar. Af rýnum sem fara með-
alveginn má nefna þá sem skrifa fyr-
ir Indiewire, The Washington Post
og Entertainment en þeir eru álíka
margir og hinir neikvæðu. Ekki
vantar stjörnur í myndina því meðal
leikara eru Taylor Swift, Ian McKel-
len, Idris Elba, Jennifer Hudson og
Judi Dench. Leikstjóri er svo óskars-
verðlaunahafinn Tom Hooper sem á
m.a. að baki The King’s Speech.
Köttum lógað
Læðan Taylor Swift.
Blúsfélag Reykjavíkur stendur fyr-
ir blús- og jólaviðburðinum Jólablús
á VOX Club annað kvöld, 22. des-
ember, kl. 21.Guðmundur Péturs-
son gítarleikari, Ásgeir Óskarsson
trommuleikari, Jón Ólafsson bassa-
leikari og Þorleifur Gaukur munn-
hörpuleikari koma fram ásamt
fleirum. Segir í tilkynningu að jóla-
blúsinn hafi notið mikilla vinsælda
árum saman enda sé hann gott
tækifæri til að hvíla sig á verald-
legu amstri aðventunnar.
Jólablús hvíld frá
veraldlegu amstri
hef ég svarað þessu án þess að
svara. Það hefði Stefán Bjarnason
líka gert svona.“
Kvenfólk ræður ríkjum
– Stefán er um margt gallaður
maður, sérstaklega á hann erfitt
með sig þegar konur eru annars
vegar. Í Dýrbítum á hann sér-
staklega erfitt með sig – hann ber
sterkar tilfinningar til sambýlis-
konu sinnar, en á samt erfitt með
standast freistingarnar.
„Kvenfólk ræður ríkjum í lífi
Stefáns, það er rétt. Þegar fallegar
konur eiga í hlut hrasar hann niður
í fyrstu vök en er samt í hjarta sínu
trúr sambýliskonu sinni og kærir
sig ekki um þennan breyskleika.
Þetta er dálítið eins og með freist-
ingarnar og brennivínið, en í stað-
inn er Stefán ekki drykkfelldur. Að
minnsta kosti ekki enn þá.“
– Þú þarft að feta einstigið milli
þess að halda Stefáni sem líkustum
sjálfum sér, en líka láta hann taka
út einhvern þroska, er það glíma?
„Hann þroskast lítið. Gildi hans
eru gamaldags. Hann heldur sig
mjög við þau. Þroskinn má því vera
hægur enda eldist hann hægt, er
áfram hávaxinn, teinréttur, ljós-
hærður, myndarlegur, klæðir sig
eins og er íhaldssamur á flest. Það
kemur til dæmis fram að hann er
ekki parketmaður. Ég á ekki von á
að hann þroskist yfir í það, ef það
kallast þá þroski.“
Stefán ræður ferðinni
– Þetta er önnur bókin um Stef-
án og í ljósi þess hve vel bókin hef-
ur selst þykir mér líklegt að þriðja
bókin sé í vændum, er það rétt?
„Ég hef fengið dýra hvatningu
lesenda um að láta ekki við þetta
sitja og geri ráð fyrir að halda
áfram samferð með Stefáni Bjarna-
syni. Minni þó enn á að hann ræður
sjálfur ferðinni og lætur sér detta
ýmislegt í hug. Eina nóttina var
hann til dæmis staðráðinn í að taka
meiraprófið. Ekki veit ég hvað
hann ætlaði sér með það. Hann um
það.“
– Nú ert þú önnum kafinn maður
í þinni heimasveit og tekur sitthvað
að þér annað. Er snúið að finna
tíma til að skrifa?
„Sveitamennska og ritstörf fara
vel saman. Ég skrifa fyrri part
dags en svo tekur við líkamleg
vinna. Það er góð hressing þegar
skáldlegum þrautum linnir. Þá er
gott að dytta að girðingum, keyra
möl í veg á sturtuvagni að ekki sé
talað um heyskap.
Það er unun ein að keyra á
dráttarvél hring eftir hring á sama
túninu, slá, snúa og raka. Ráða
öllu sjálfur, hafa engar áhyggjur,
malla áfram með síbylju í útvarp-
inu og meitlaðar hugsanir í höfð-
inu. Hafa engar áhyggjur nema
náttúrlega af béaðri ótætis rign-
ingunni. Skyldi rigna í flatt?“
Morgunblaðið/Ófeigur
Hressing „Ég skrifa fyrri part dags en svo tekur við líkamleg vinna. Það er góð hressing þegar skáldlegum þrautum linnir,“ segir Óskar Magnússon.
Sveitamennska og ritstörf fara vel saman
Lögmaðurinn Stefán Bjarnason snýr aftur í Dýrbítum Höfundur segir Stefán ráða ferðinni
VIÐTAL
Árni Matthíasson
arnim@mbl.is
Í bók Óskars Magnússonar, Verj-
andinn, var aðalsögupersónan
hæstaréttarlögmaðurinn Stefán
Bjarnason, sem glímdi við snúið
sakamál með rætur vestur um haf.
Stefán snýr aftur í Dýrbítum, sjálf-
stæðu framhaldi, sem hefst með
því að mannslík og tvö hundshræ
finnast á víðavangi í Fljótshlíð.
– Snúum okkur að Stefáni
Bjarnasyni, þú hefur ekki getað
sagt skilið við hann?
„Stefán er leynifyrirbrigði i ís-
lenskum bókmenntum sem gagn-
rýnendur og sagnfræðingar munu
átta sig á þegar þeir síðar meir
skrifa lærðar bækur um sögur mín-
ar. Dýrbítar eru nefnilega ekki
önnur bókin þar sem hann kemur
við sögu heldur sú þriðja. Og nú
læt ég öðrum eftir að finna út úr
því. En Stefán hefur langt því frá
sungið sitt síðasta. Hann er rétt að
leggja af stað en þó kemur fram í
bókarlok að hann veltir því fyrir
sér að verða rithöfundur síðar
meir. Eins og glöggt birtist í
kvennamálum hans þá er hann
reikull maður á því svelli. Kannski
á það við víðar en framsóknarmað-
ur er hann þó ekki.“
Sækir í eigin reynslusjóð
– Í Verjandanum nýtir þú sem
efnivið að hluta mál sem þú þekkir
vel til, enda komst þú að því á sín-
um tíma. Er eins farið með Dýr-
bíta, þ.e. ertu að sækja í eigin
reynslusjóð?
„Ég sæki í eigin reynslusjóð að
því leyti að ég starfaði við lög-
mennsku sjálfur á árum áður og
finnst sá heimur á margan hátt
áhugaverður. Það finnst lesendum
greinilega líka en bækur af þessu
tagi eru ekki algengar hér. Lög-
maðurinn er í aðalhlutverki en ekki
lögreglan eða blaðamenn, og mál
leysast að verulegu leyti fyrir
snjalla framgöngu í réttarsal og
lögfræðilega útsjónarsemi. En
söguþráðurinn á sér ekki beina
hliðstæðu nema að hluta. Þar með
Vinkonurnar
Skoppa og
Skrítla frum-
sýna nýja
þáttaröð á
Stöð 2 og verð-
ur fyrsti þáttur
sýndur á
morgun, 22. des-
ember. Vinkon-
urnar munu að þessu sinni ferðast á
póstkorti um ævintýraeyjuna Ís-
land með það fyrir augum að fræð-
ast, skoða og upplifa allt það
skemmtilega sem Ísland hefur upp
á að bjóða fyrir ferðaglaðar fjöl-
skyldur eins og segir í tilkynningu.
Í fyrsta þætti upplifa þær aðvent-
una.
Nýir þættir með
Skoppu og Skrítlu
Skoppa og Skrítla.