Morgunblaðið - 21.12.2019, Síða 56

Morgunblaðið - 21.12.2019, Síða 56
Gleðilega hátíð Ragnheiður Gröndal, Kristjana Stefánsdóttir og Svavar Knútur halda árlega jólatónleika sína undir yfirskriftinni Eitthvað fallegt í kvöld kl. 21 í Fríkirkjunni í Reykjavík. Tón- leikarnir heita eftir samnefndri hljómplötu þeirra sem kom út árið 2014. Munu þau flytja bæði sígild íslensk jólalög og frumsamin eftir þau sjálf og er áhersla lögð á lát- leysi, einfaldleika og einlægni í flutningi. Hluti ágóða af miðasölu rennur til góðgerðarmála. Eitthvað fallegt LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 355. DAGUR ÁRSINS 2019 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í lausasölu 1.150 kr. Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr. PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr. Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Guðrún Ósk Ámundadóttir hefur náð góðum árangri með kvennalið Skallagríms í körfubolta í vetur en hún var ráðin þjálfari liðsins fyrir tímabilið. Hún er önnur tveggja kvenna sem þjálfa í deildinni í vet- ur og segir þá þróun góða. Þetta er stór áskorun, en á sama tíma frábært tækifæri,“ segir Guðrún Ósk. »44 Stór áskorun og frábært tækifæri Pólska sendiráðið á Íslandi stend- ur fyrir tónleikum í Hallgríms- kirkju í dag kl. 17. Á þeim kemur fram fjölmennur, pólskur listhópur sem nefnist Mazowsze og hefur hann á að skipa kór, hljómsveit og döns- urum. Er hópurinn einn sá fjölmennasti sinnar tegundar í heiminum. Flutt verða pólsk lög og einnig íslensk og pólskir þjóð- dansar verða stignir. Stjórnandi hópsins er Jacek Bo- niecki. Mazowse kemur fram í Hallgrímskirkju ÍÞRÓTTIR MENNING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Undirbúningur fyrir jólin stendur nú víða sem hæst og í Stonewall, tæplega 5.000 manna bæ rétt norður af Winnipeg í Kanada, er íslensk fjölskylda með hefðirnar að heiman á hreinu. „Ég bakaði að vísu bara átta tegundir af smákökum að þessu sinni og það er aðeins minna en ég var vön að baka á Íslandi,“ segir Ís- firðingurinn Sigríður Elín Guðjóns- dóttir. Hjónin Sigríður, sem starfar sem þjónn, og Súgfirðingurinn Helgi Unnar Valgeirsson byggingatækni- fræðingur fluttu til Kanada 2011. Börn þeirra eru Benóní Hjörtur Helgason, 22 ára, Embla Dís Helga- dóttir, 15 ára, og Hekla Sigrún Helgadóttir, átta ára og fædd vestra. „Ætli ástæðan fyrir flutn- ingnum hafi ekki aðallega verið ævintýraþrá,“ segir Sigríður. „Okk- ur langaði að reyna nýja hluti og læra betur enskuna. Við ætluðum upphaflega að vera í fimm ár en hér erum við ennþá.“ Lagkakan í uppáhaldi Hefðbundinn jólaundirbúningur hefst venjulega hjá þeim í byrjun að- ventu. „Þá fer ég að huga að bakstr- inum,“ segir Sigríður. „Sigrún Þórey Ágústsdóttir, mamma mín, er fyrir- myndin enda nota ég flestar upp- skriftir frá henni og uppáhalds- tegundin mín er brúna lagkakan. Einnig hef ég alltaf verið að prófa mig áfram með nýjar uppskriftir eins og marengstoppana.“ Sigríður segir að jólabaksturinn sé sérstakur og miklu skemmtilegri en bakstur á öðrum tíma. „Mun- urinn felst í því að á þessum tíma er jólatónlistin á fullu og svo fæ ég að- stoð frá að minnsta kosti yngsta barninu. Auk þess eru jólakökurnar auðvitað bara bakaðar einu sinni á ári þannig að ákveðin eftirvænting ríkir og það er extra sérstakt að borða þær.“ Sigríði finnst jólin í Kanada ekki mjög frábrugðin jólahaldi á Íslandi. Kanadamenn geri að vísu ekki mikið úr aðfangadegi heldur leggi allt upp úr jóladegi. „Svo er bara einn jóla- sveinn, sem heimsækir krakkana, en hjá okkur koma íslensku jólasvein- arnir til okkar krakka á hverju kvöldi frá aðfaranótt 12. desember til 24. desember eins og á Íslandi.“ Borðhald hjá íslensku fjölskyld- unni í Stonewall hefst klukkan sex á aðfangadag. „Við höldum okkur al- gjörlega við íslenskar jólahefðir, byrjum bara jólin okkar sex tímum á eftir ykkur,“ segir Sigríður. „Við höfum oftast haft léttreykt svínakjöt á aðfangadag en það er engan veg- inn nógu mikið reykt miðað við það sem við erum vön heima og núna verðum við með fylltan kalkún með öllu tilheyrandi. Síðan höfum við yf- irleitt fengið sent hangikjöt frá Ís- landi, en það er alltaf hætta á því að það verði tekið í tollinum og því hent. Hangikjötið fer eitthvað illa í tollinn!“ Fjölskyldan að vestan bjó fyrst á Gimli en flutti síðan til Stonewall, sem er nær Winnipeg, höfuðborg Manitoba. „Okkur finnst mjög gott að búa hérna og stelpurnar eru í göngufæri við skólann,“ segir Sigríð- ur. „Átta íslenskar fjölskyldur fluttu til Manitoba á svipuðum tíma. Við kynntumst öll mjög vel en síðustu árin hafa sumir flutt aftur til Íslands og aðrir fært sig um set í Kanada. En við erum alltaf af og til í sam- bandi við þau sem eftir eru.“ Halda í jólahefðirnar Bakstur Sigríður við hrærivélina.  Vestfirsk fjölskylda heldur íslensk jól í Stonewall í Kanada  Sigríður E. Guðjónsdóttir notar kökuuppskriftir frá móður sinni Fjölskyldan Sigríður og Helgi standa fyrir aftan. Börn þeirra Benóní Hjört- ur, Hekla Sigrún og Embla Dís sitja fyrir framan.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.