Morgunblaðið - 24.12.2019, Síða 12

Morgunblaðið - 24.12.2019, Síða 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. DESEMBER 2019 Háaleitisbraut 58–60 • 108 Reykjavík • Sími: 553 1380 Sofðu betur í hreinum rúmfötum STOFNAÐ 1953 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Hin mikla von og kærleikur sem felst í fæðingu frelsarans gera þann atburð að tíðindum allra tíma. Boð- skapur jólanna er fyrir alla. Enginn er undanskilinn, fagnaðarerindið stendur öllu mannkyni til boða,“ segir Jarþrúður Árnadóttir, prestur á Þórshöfn á Langanesi. Á annan tug guðfræðinga hefur á þessu ári tekið vígslu og er farinn til starfa úti á akrinum. Jarþrúður er þeirra á meðal en hún kom til þjón- ustu á Þórshöfn í september síðast- liðnum. Hún segist lukkuleg með að hafa fengið tækifæri til starfa á Þórshöfn þar sem hún ólst upp til átta ára aldurs en flutti þá til Akur- eyrar. Fæðing barns er mikið undur „Foreldrar mínir, þau Árni Þór- hallsson og Esther Þorbergsdóttir, eru bæði af svæðinu. Hér á ég því fjölda ættingja og æskuvini sem ég er að kynnast aftur núna. Hér hefur mér verið mjög vel tekið og fyrstu mánuðirnir í prestsstarfinu hafa ver- ið gefandi og góðir,“ segir Jarþrúður sem sinnir Þórshafnar-, Sauðanes- og Svalbarðssókn sem á fjórða hundrað manns tilheyra. Sjálf hefur hún svo að undanförnu verið að koma sér fyrir á nýjum stað, en hún er ein og barnlaus en á köttinn Frú Agnesi, læðu sem er nefnd eftir biskupi Íslands. „Já, að vissu leyti trúi ég því að fæðingu Jesús hafi borið að eins og guðspjöllin lýsa því,“ segir Jar- þrúður. „Við teljum frá fæðingu Jesú, „á því herrans ári“ eins og sagt var fyrr. Þetta hugtak er tilbúinn tímapunktur sem menn ákváðu í byrjun 6. aldar, eða 500 árum eftir fæðingu Krists. Það er hlutverk okk- ar presta að endursegja og miðla sögunni um fæðingu frelsarans og segja hana þannig að hún hreyfi við fólki. Fæðing barns er alltaf mikið undur. Mestu máli skiptir að fólk þarf að skynja að þessi atburður snertir líf okkar í núinu.“ Vé í veröldinni Boðskapur kirkjunnar og helgi- sögur Biblíunnar segir Jarþrúður að rími við margt í samfélagi líðandi stundar. Kristnin eigi alltaf erindi við fólk í daglegum aðstæðum þess, en hún eigi þó að vera vé í varg- öldinni. „Kærleikur, von og trú eru erindi kirkjunnar, sem á að vera staður þar sem fólk finnur frið,“ seg- ir Jarþrúður. „Kirkjan hefur látið málefni flóttamanna sig varða og haldið hef- ur verið uppi sérstöku starfi fyrir flóttamenn á höfuðborgarsvæðinu sem er til fyrirmyndar. Ég tel hins- vegar að kirkjan ætti ekki að skipta sér af pólitík eða viðskiptalífi, ef hún gerði það væri hinn margumræddi friður úti. Margir vilja líka að kirkj- an sé staður þar sem við finnum fyr- ir hinum æðri mætti, sem hlýtur þó að vera mjög mismunandi milli fólks. Hver og einn hlýtur að svara því fyr- ir sig sjálfan hvort og þá hvernig trú- og trúarlífi hann lifir. Eins er með hátíðleikann. Ekki er hægt að staðhæfa allir hafi þörf fyrir það sama.“ Guðfræðin kom ein til greina Átta ára gömul ákvað Jarþrúður að verða prestur og segir það í raun hafa komið af sjálfu sér. „Sem stelpa fór ég í sumarbúðirnar að Ástjörn í Kelduhverfi og fannst gaman. Þar mótaðist líka mín trúarlega afstaða svo aldrei kom annað til greina en lesa guðfræði,“ segir Jarþrúður sem hóf nám við Háskóla Íslands 2010 og lauk því á síðasta ári. Á námstím- anum var hún einn vetur í skipti- námi í Osló. Náði þar norskunni og eftir að námi lauk fór hún til Norður- Noregs og þjónaði í um misseri á Lófóten-svæðinu. „Í Noregi sinnti ég öllum prests- verkum sem þurfti, nema að aðeins vígðir prestar máttu gefa saman brúðhjón. Hér á Þórshöfn verð ég hins vegar að sinna öllu sem er bara gaman,“ segir Jarþrúður sem jafn- hliða helgihaldi og almennum prestsverkum heimsækir leikskól- ann reglulega, er með ferming- arfræðslu, foreldramorgna og heim- sækir Naust, dvalarheimili aldraðra, reglulega. Sunnudagaskóli og æsku- lýðsstarf hefst svo fljótlega eftir ný- árið. Fagnaðarerindið er fyrir alla  Fæðing frelsarans er tíðindi allra tíma  Kristnin á erindi við fólk í daglegum aðstæðum  Séra Jarþrúður Árnadóttir er nýr prestur á Þórshöfn á Langanesi  Góðir og gefandi tímar á nýjum stað Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir Prestur „Kærleikur, von og trú eru erindi kirkjunnar,“ segir Jarþrúður Árnadóttir prestur. Hér heldur hún á kettinum sínum, Frú Agnesi. „Já, ég er fyrir nokkru búin að skrifa predikanirnar fyrir hátíð- arnar en hér verður messað bæði á aðfangadagskvöld og jóladag,“ segir sr. Jarþrúður Árnadóttir „Á dögunum hitt- umst við prestar hér á Norður- landi eystra á predikunarfundi, þar sem við ræddum guð- spjöllin, boðskapinn og miðl- uðum milli okkar hugmyndum að stólræðum. Það var virki- lega gefandi – rétt eins og mér finnst áhugavert að eiga samfélag við sóknarbörnin og þjóna þeim í blíðu og stríðu. Það er kjarninn í starfi presta.“ Hugmyndir og samfélag PREDIKANIRNAR TILBÚNAR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.