Morgunblaðið - 24.12.2019, Page 18

Morgunblaðið - 24.12.2019, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. DESEMBER 2019 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Óveðrið sem lagðist svoþungt á hluta landsinsokkar rétt fyrir miðj- an desember minnti okkur í senn á íslenskan veruleika eins og hann var í meira en þúsund ár, en ekki síður á hitt hversu langt hefur mið- að í hvers kyns framförum. Það er sama á hvað er horft. Samgöngur hafa gjörbreyst. Maður og hestur í þúsund ár lokaðir af torfærum og óbrú- uðum ám og fljótum. Nú bif- reiðar, sem verða sífellt öfl- ugri og sérhæfðari, og flugvélar og þá ekki síst þyrlur sem gera kraftaverk flesta daga ársins. Sjúkrahús með sérhæfðu fólki sem stenst samanburð við það besta eru því núna á næstu grösum. Rafmagn, sem kem- ur alls staðar við sögu og heitt vatn úr „iðrum jarðar“ og endalaust má áfram telja. Veðrið á dögunum var vissulega alvarleg aðvörun um að veikleikarnir eru enn þá fleiri en flest okkar höfðu gengið út frá. Það voru von- brigði en á móti kom aflið og viljinn til að bregðast við óvæntum og illviðráðanlegum aðstæðum. Eftir stendur að þrátt fyr- ir að áfallið hafi verið veru- legt þá hefur hin þúsund ára einangrun sem varð al- gjörlega að lúta dyntum stórviðra verið rofin. Slík veður munu áfram koma, tjón verða áfram veruleg og sum óviðráðanleg og óbæt- anleg. En viðbrögðin verða sífellt öflugri og varnarsigr- arnir stærri. Húsakosturinn sem kominn er til á örfáum áratugum, innbyrðis tenging landsins og tæknivæðing þess stendur áföllin af sér að langmestu leyti, þótt það sé ekki myndin sem blasir við í ofsanum miðjum. Öflugt varðskip sem siglir inn á fjörð og tryggir lág- marks rafmagn á þétt- býlisstað er táknrænt við- bragð. Vissulega víkur það úr hefðbundnum verkefnum en það val er rétt. Dugnaður og úthald þess fólks sem af djörfung reyndi að bjarga því sem það mátti, hvort sem það var bústólpi, hús eða búnaður vakti aðdáun. Björgunarsveitir og mann- skapur sem sinnir öryggis- störfum sýndi að þótt veður færð og myrkur hamli mjög og tefji mun lágmarks aðstoð berast fyrr en síðar. Í slíkum ofsa og andbyr er biðin löng og óþolandi en miklu skiptir þó vitneskjan um að hjálpin muni koma. Og tjónið af sambærilegum ofsa mun, ef rétt verður haldið á, og réttur lærdómur dreginn, verða mun minni næst þegar honum verður mætt. Áfram verður að gera ráð fyrir aftakaveðri eins og þetta var og þess verður helst von þegar dagur er stystur og myrkrið yfirþyrm- andi. Myrkur, kuldi, fárviðri og tjón fylgjast gjarnan að. Á Íslandi eru skilin á milli ljóss og myrkurs gleggri en hjá þeim sem búa við aðra náttúrulega afstöðu. Í hálfa elleftu öld frá upphafi byggðar mætti myrkrið stundvíst og andófið gegn því breyttist furðu lítið. Jólunum er lýst sem komu ljóss í myrkvaðan heim. Þá líkingu eigum við Íslend- ingar auðvelt með að skilja enda hún runnin okkur flest- um í merg og blóð, sem hluti af háskalegum veruleika. Með komu jólanna í svart- asta skammdeginu þykir okkur mörgum eins og myrkrið slaki á undirtökum sínum um hríð. Ljós þeirra lýsir upp hjörtu, geð og huga og vonandi er það hverju orði sannara að þá daga sé einnig glatt í döprum hjört- um. Í hundruð ára geymdu Ís- lendingar eldinn, ljósið. Hann var falinn á kvöldin, oft í svonefndri feluholu og að morgni var hann glæddur á ný. Það var vandaverk og mikið í húfi og hin mikla ábyrgð hvíldi oftast á hús- móðurinni. Þótt ekki hafi margir aðrir ráðið við að synda eftir eldi um óraveg eins og Grettir sterki gerði var það mikið áfall hverjum bæ ef ekki tókst að geyma eldinn. Fæðing Krists, inntak jólanna, hið eilífa lifandi ljós, var svo grípandi táknmynd í hinu íslenska myrkri að vart þurfti aðra. Sr.Valdimar Briem, sveita- klerkur á Stóra-Núpi og síð- ar vígslubiskup, hugsar á há- vetrar tíð til miskunnar Guðs sem … „birtist á vori sem vermandi sól, sem vöxtur í sumarsins blíðum, í næðingum haustsins sem skjöldur og skjól, sem skínandi himinn og gleðirík jól í vetrarins helkuldahríðum.“ Hið eilífa ljós, sem kvikn- aði með fæðingu barns í Betlehem, bægði burt sorta, er vonandi enn þá mörgum sá vonargeisli og það hald- reipi eins og heitið var að það yrði þeim sem tækju á móti því. Gleðileg jól. Gleðileg jól STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen Gjarnan er sagt á hátíðisstundum að jólin séu hátíð barnanna. Það er ekki ofmælt því jólaböllin, jólasveinarnir, pakkarnir og annað sem fylgir hátíð- inni hjálpast að við að skapa gleði og eftirvæntingu meðal yngstu kynslóð- arinnar. Vissulega hafa ekki allir tækifæri til að njóta gleðinnar en hjá flestum færa jólin okkur birtu og yl í hjarta. Ljósmyndarar og fréttaritarar Morgunblaðsins hafa verið á ferðinni á aðventunni, um borg og bý, og fang- að stemninguna á filmu. Jólaböll í leik- og grunnskólum landsins eru fastur liður í aðdraganda jóla, þar sem sungið er og dansað í kringum jólatré og gjarnan mæta jólasveinar með eitt- hvað gott í poka. Á jólamörkuðum er skemmtilegt og afslappað andrúmsloft, eins og í Jóla- þorpinu í Hafnarfirði og hjá Skóg- ræktarfélagi Reykjavíkur í Heið- mörk. Gömlu sveinarnir kæta alltaf börnin sem heimsækja Þjóðminja- safnið í desember og eru þá örfá dæmi tekin þar sem jólagleðin er við völd meðal barna og fullorðinna. Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir Þórshöfn Þórhalla Lilja Jónsdóttir spjallar hér við Stúf er hann heimsótti leik- skólann Barnaból á litlu jólunum. Stúfur og félagar gáfu börnunum bók og mandarínu. Taldi Stúfur líklegt að hann kæmi í skólann til að læra að lesa. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Spilað Hurðaskellir og kertasníkir heimsóttu þær Hugrúnu Eddu, Kolfinnu og Írisi Thelmu og tóku nokkur létt lög. j Jólin færa okkur yl og birtu í hjarta

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.