Morgunblaðið - 24.12.2019, Page 21

Morgunblaðið - 24.12.2019, Page 21
Hún átti velviljaðan frænda á Siglufirði. Þannig kom þessi litli bær við nyrsta haf inn í líf þeirra. Strax að lokinni hjónavígslunni lögðu þau af stað þangað norður. Þetta var óvenjulegur brúðkaupsdagur. Hún var viss um að frændinn tæki þeim vel og gæti jafnvel útvegað þeim ein- hverja vinnu. Þau skildu hestana eftir á Akureyri og létu senda skeyti heim með skila- boðum um hvar þá væri að finna áður en þau lögðu af stað til Siglufjarðar. Þau fengu far þangað með vingjarn- legum manni sem sinnti póstflutn- ingum á hestum um Norðurland. Ferðin sóttist afar seint en að lokum komust þau yfir torfært fjallskarðið og tignarlegur fjörðurinn blasti við þeim. Hún vildi fara ein á fund frænda síns og gera honum grein fyrir stöðu mála. Hann gekk um byggðarlagið á meðan, skoðaði sig um og settist svo loks í flæðarmálið og horfði út á sjó- inn. Honum leið vel þarna, fann það strax á sér að þarna myndu þau setj- ast að. Hann andaði að sér sjávarlyktinni og starði út á lygnan hafflötinn, eins og fagurlega ofið teppi. Hafið svo friðsælt og lokkandi, en bjó þó yfir ógnarkrafti. Fuglarnir flugu yfir höfði hans. Hann lokaði augunum og reyndi að leggja þetta allt saman á minnið, útsýnið, lyktina, hljóðin. Andartak sem kæmi ekki aftur. Hann hugsaði um stúlkuna sína. Konuna sína. Hvað það var nú sér- kennileg tilfinning að vera skyndilega kvæntur maður. Sá hana fyrir sér, fallegt brosið. Hlustaði á hafið, sjávarniðurinn eins og hjartsláttur hennar. Og svo stóð hún skyndilega við hlið hans og brosti. Hann vissi strax hvað þetta bros þýddi. Frændi hennar, smiður að mennt, útvegaði þeim gistingu, vinnu, ódýra lóð til að byggja á og hjálpaði svo til við húsbygginguna. Húsið var ekki stórt en þeim þótti vænt um það, byggt af litlum efnum en stórum hug. Það hvarflaði aldrei að þeim að flytja þaðan. Þessar minningar sóttu nú á hann í kuldanum og myrkrinu. Bærinn hafði auðvitað tekið stakkaskiptum síðan þau fluttu þang- að. Síldin hafði fært gull í greipar bæjarbúa og nú þurfti ekki lengur að notast við fjallskarðið; tekin höfðu verið í notkun jarðgöng inn í bæinn. Hann hafði þó ekki nýtt sér þau og átti aldrei eftir að gera það úr því sem komið var. Hann hafði aldrei sótt sjóinn af neinni alvöru, hafði gert heiðarlega tilraun til þess en var ekki þannig gerður að hann gæti þolað öldugang- inn. Samt gat hann ekki hugsað um neitt annað núna en sjóinn – hann sá fyrir sér þennan fallega sumardag þegar hann hafði setið og beðið eftir eiginkonunni, nýkvæntur. Fann sterka lyktina af hafinu. Heyrði andardrátt þess. Þóttist meira að segja heyra í fuglunum. Hann upplifði nú þetta andartak eins og það hefði aldrei liðið hjá. Hann hafði séð snjóflóðið koma þegar hann var að fara að byrja á jólamatnum. Hann hafði setið við stofuborðið og ætlað að fá sér fyrsta bitann af hangikjötinu, horft út um gluggann, í áttina að fjallshlíðinni. Hann hafði ekkert getað gert, setið stjarfur við borðið og beðið þess sem verða vildi. Flóðið kom eins og alltumlykjandi hönd og sópaði honum og húsinu með sér. Hann var í rauninni undrandi á því að hann skyldi enn vera með fullri meðvitund. Gerði sér engar vonir um björgun. Enginn var úti í svona stórhríð og hvað þá í nágrenni við afskekkta kof- ann á ódýru lóðinni. Veðrið gengi vonandi yfir í nótt og einhver myndi finna hann á jóladag. Hann fengi svo að hvíla við hliðina á konunni sinni. Hann var sáttur. Lífið hafði verið honum gott. Hann hafði fundið ástina og náð að halda í hana – og nú, á sinni hinstu stundu, var hann enn jafnástfanginn og daginn sem þau hittust fyrst. Gat hann í rauninni farið fram á meira? Ragnar Jónasson rithöfundur. UMRÆÐAN 21 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. DESEMBER 2019 V E R S L U N S N O R R A B R A U T 5 6 · 1 0 5 R E Y K J A V Í K · F E L D U R . I S Suðurlandsbraut 52 Sími 533 6050 www.hofdi.is Óskum viðskiptavinum okkar og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári Starfsfólk Höfða fasteignasölu Gjörningaveður gekk yfir landið í síð- ustu viku og er kraftaverki líkast að ekki skyldu tapast fleiri mannslíf en það sem raungerðist í Eyjafirði. Það er merkilegt að upplifa að nú keppast alþingismenn og ráð- herrar við að ræða styrkingu innviða á landsbyggðinni og telja að alltof langt hafi verið gengið hvað varðar niðurskurð hjá hinu opinbera á flestum sviðum. Þetta hljómar næstum eins og engin landshluta- samtök eða sveitarstjórnir hafi nokkurn tímann bent á einmitt þessar staðreyndir. Í þessu samhengi er áhugavert að skoða hvernig góðum nágrönn- um okkar Skagstrendinga hér á Skaga gekk í óveðrinu um daginn. Skagabyggð, sem er sveitarfélag á vestanverðum Skaga, styrkti sína innviði á eigin kostnað fyrir nokkr- um árum. Sveitarfélagið, sem er eitt það fámennasta á landinu, greiddi RARIK ríflega 30 milljónir í svokallað flýtigjald til þess að hægt væri að leggja þriggja fasa rafmagn í jörð strax en ekki bíða í áratug eða lengur. Sú framkvæmd tryggði íbúunum birtu og yl í óveðrinu og hefur að öllum lík- indum sparað RARIK og samfélag- inu öllu mikla fjármuni sem sveitar- félagið greiddi í raun sjálft í formi fyrrgreinds flýtigjalds. Illu heilli var málum öðru vísi háttað á aust- anverðum Skaga þar sem íbúar á sumum bæjum voru án rafmagns og hita í heila viku. Gjörningaveðrin, sem beinast að landsbyggðunum, eru þó víðar en flesta grunar. Fyrir Alþingi liggur tillaga sem lýtur að framtíð- arskipan sveitarfélaga á Íslandi. Meirihluti umhverfis- og sam- göngunefndar Alþingis afgreiddi til- lögu ráðherra úr nefndinni að mestu óbreytta. Tillögu, sem felur í sér lögþvingunarákvæði, þar sem minni sveitarfélögum er gert að sameinast þeim stærri án íbúakosn- inga. Ef tillagan nær fram að ganga verður því réttur íbúa til þess að taka afstöðu til hugsanlegra sam- eininga ekki til staðar nema sam- einingar eigi sér stað fyrir árið 2022 og 2026. Samband íslenskra sveitarfélaga hélt sérstakt aukalandsþing til þess að fjalla um tillöguna. Þar voru það að langmestu leyti þau sveitarfélög, sem tillagan mun ekki hafa áhrif á, sem veittu henni stuðning. Eft- irtaldir fyrirvarar voru þó sam- þykktir í tengslum við fjárhags- legan stuðning jöfnunarsjóðs: „Í tillögunni er gert ráð fyrir verulegum fjárhagslegum stuðningi jöfnunarsjóðs sveitarfélaga við sam- einingar sveitarfélaga og því mik- ilvægt að ríkissjóður veiti sérstök fjárframlög til sjóðsins til að fjár- magna þann stuðning.“ Þegar síðan kemur í ljós hvernig umhverfis- og sam- göngunefnd hyggst breyta lögum jöfn- unarsjóðs þarf Sam- band íslenskra sveitar- félaga að senda frá sér eftirfarandi umsögn: „Heildaráhrif frum- varpsins verði þau að árleg framlög úr jöfn- unarsjóði, önnur en sameiningarframlög, kunni að lækka um 973 m.kr. næstu sex árin og síðan um 700 m.kr. næstu níu ár þar á eft- ir, eða samtals um nærri 12 millj- arða kr. á næstu 15 árum. Að meg- inhluta kemur þessi lækkun annarra framlaga til vegna stórauk- inna sameiningarframlaga.“ Það lítur sem sagt út fyrir að það séu ekki að koma nein ný framlög inn í Jöfnunarsjóð til þess að standa undir kostnaði við vænt- anlegar sameiningar. Fjármagnið verður tekið af öðrum framlögum sjóðsins sem annars hefðu verið nýtt t.d. til reksturs grunnskóla, málefna fatlaðs fólks eða til tekju- jöfnunar. Í mínum huga er hægt að færa rök fyrir því að hér hafi hlutir verið unnir í öfugri röð. Hefði ekki verið nær að halda aukalandsþing Sam- bandsins þegar lægi fyrir að búið væri að tryggja „nýja fjármuni“ til þess að fjármagna væntanlegar sameiningar, sem öllum er ljóst að munu kosta mikla peninga? Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga vildi hins vegar tryggja að tillaga samgöngu- og sveitarstjórn- arráðherra fengi umfjöllun á yf- irstandandi löggjafarþingi og því var málið keyrt áfram með þessum hætti. Meginhlutverk Sambands ís- lenskra sveitarfélaga er að vera sameiginlegur málsvari sveitarfé- laganna í landinu og vinna að sam- eiginlegum hagsmunamálum þeirra. Ég get ekki betur séð en að gangi hlutir eftir með þeim hætti sem ég hef gert að umtalsefni sé í raun verið að veikja innviði sveitarfélag- anna í landinu og stjórn sambands- ins sé beinlínis meðsek í þeirri veg- ferð. Með þessum skrifum er ég ekki endilega að halda fram að það kunni ekki að vera skynsamlegt að stuðla að sameiningum sveitarfé- laga á Íslandi með það að markmiði að gera þau öflugri og því burðugri til þess að takast á við áskoranir framtíðar. Í grunninn held ég að andstaða smærri sveitarfélaga snúi að trausti eða skorti á trausti, ein- mitt í ljósi þess hvernig hið op- inbera hefur með beinum og óbein- um hætti veikt innviði og dregið úr slagkrafti byggða landsins. Í óveðrinu um daginn voru það íbúarnir sjálfir, björgunarsveitir og aðrir viðbragðsaðilar sem ekki brugðust, í flestum tilfellum fólk sem þekkir aðstæður á hverjum stað fyrir sig og veit hvað íbúum er fyrir bestu. Alþingi Íslendinga á að treysta þessu fólki fyrir sinni fram- tíð og fella úr gildi ákvæði sem heimila lögþvingaðar sameiningar sveitarfélaga. Eftir Halldór Gunnar Ólafsson Halldór Gunnar Ólafsson » Í grunninn held ég að andstaða smærri sveitarfélaga snúi að trausti eða skorti á trausti, einmitt í ljósi þess hvernig hið op- inbera hefur með bein- um og óbeinum hætti veikt innviði og dregið úr slagkrafti byggða landsins. Höfundur er oddviti Sveitarfélagsins Skagastrandar. Gjörningaveðrin Matur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.