Morgunblaðið - 24.12.2019, Qupperneq 28
28 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. DESEMBER 2019
Grikkland
PAOK – Atromitos .................................. 5:1
Sverrir Ingi Ingason lék allan leikinn
með PAOK og skoraði tvö mörk.
Efstu lið: PAOK 40, Olympiacos 38, AEK
Aþena 28, OFI Krít 23, Larissa 22, Aris Sa-
loniki 22, Panathinaikos 22.
England
B-deild:
Blackburn – Wigan................................... 0:0
Staðan:
WBA 23 14 8 1 46:24 50
Leeds 23 14 5 4 36:15 47
Sheffield Wed. 23 11 6 6 34:20 39
Fulham 23 11 5 7 35:25 38
Preston 23 11 5 7 35:27 38
Brentford 23 11 4 8 34:18 37
Swansea 23 10 7 6 30:27 37
Blackburn 23 10 5 8 30:28 35
Bristol City 23 9 8 6 34:33 35
Nottingham F. 22 9 7 6 28:23 34
Hull 23 9 6 8 37:31 33
Cardiff 23 8 9 6 34:32 33
Millwall 23 8 9 6 29:30 33
QPR 23 9 5 9 37:44 32
Birmingham 23 8 4 11 24:34 28
Reading 22 7 5 10 28:27 26
Derby 23 6 8 9 21:31 26
Charlton 23 6 7 10 30:32 25
Huddersfield 23 6 7 10 26:35 25
Middlesbrough 23 5 9 9 21:32 24
Luton 23 6 2 15 28:47 20
Barnsley 23 4 7 12 31:46 19
Wigan 23 4 7 12 20:35 19
Stoke 23 5 3 15 25:37 18
KNATTSPYRNA
Enski boltinn á Síminn Sport
Leikir á öðrum degi jóla:
Tottenham – Brighton ......................... 12.30
Bournemouth – Arsenal............................ 15
Aston Villa – Norwich ............................... 15
Chelsea – Southampton ............................ 15
Crystal Palace – West Ham........ (mbl.is) 15
Sheffield United – Watford ........ (mbl.is) 15
Manchester United – Newcastle......... 17.30
Leicester – Liverpool................................ 20
UM HELGINA!
NBA-deildin
Toronto – Dallas ............................... 110:107
Boston – Charlotte ............................. 119:93
Milwaukee – Indiana.......................... 117:89
Oklahoma City – LA Clippers......... 118:112
LA Lakers – Denver ........................ 104:128
Staðan í Austurdeild:
Milwaukee 27/4, Boston 20/7, Miami 21/8,
Toronto 21/8, Philadelphia 21/10, Indiana
20/10, Brooklyn 16/13, Orlando 12/17,
Charlotte 13/20, Chicago 12/19, Detroit 11/
19, Washington 8/20, Cleveland 8/21, New
York 7/23, Atlanta 6/24.
Staðan í Vesturdeild:
LA Lakers 24/6, Denver 20/8, Houston
20/9, LA Clippers 22/10, Dallas 19/10, Utah
18/11, Oklahoma City 15/14, Portland 14/
16, Sacramento 12/17, San Antonio 11/17,
Phoenix 11/18, Memphis 11/19, Minnesota
10/18, New Orleans 7/23, Golden State 6/24.
KÖRFUBOLTI
UPPBYGGING
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Yngri landslið Íslands í fótbolta léku
61 leik á árinu 2019 og af þeim voru
54 spilaðir erlendis en sjö á heima-
velli. Um er að ræða sex landslið
drengja og stúlkna á aldursbilinu
U15 ára til U19 ára og reyndar má
segja að þau séu tíu talsins því í raun
eru tvö lið í gangi í hvorum eldri ald-
urshópanna, U17 ára og U19 ára sem
kallast U16 og U18 á ákveðnum
tímabilum.
Árangur liðanna var líka með
besta móti en þrjú af þeim fjórum
sem taka þátt í Evrópukeppni kom-
ust í gegnum sína riðla og spila í
milliriðlum fyrripart næsta árs. Það
voru U19 ára og U17 ára lið kvenna
og U19 ára lið karla sem þar með
verða öll í baráttu um sæti í loka-
keppni EM 2020 í sínum aldurs-
flokki.
Þá komst U17 ára landslið karla
alla leið í úrslitakeppni EM síðasta
vor og var hársbreidd frá sæti í átta
liða úrslitum.
Arnar Þór Viðarsson, sem tók við
starfi yfirmanns knattspyrnumála
hjá KSÍ í lok apríl á þessu ári, segir
að umfangið í kringum alla þessa
landsleiki sé mikið og nú séu fimm
þjálfarar í fullu starfi hjá samband-
inu til að þjálfa og halda utan um öll
yngri landsliðin og sjái auk þess um
allt það afreksstarf sem unnið er af
sambandinu.
„Einhverjum finnst það eflaust
skrýtið að við séum með þjálfara
yngri landsliða í fullu starfi. En þeir
fjórir sem eru hver með sitt landslið,
Þorvaldur Örlygsson, Jörundur Áki
Sveinsson, Þórður Þórðarson og
Davíð Snorri Jónasson, eru allir að-
alþjálfarar í einu liði og aðstoðar-
þjálfarar í öðru. Þannig eru Þorvald-
ur og Davíð Snorri saman í öllum
verkefnum U19 og U17 ára karla og
þeir Þórður og Jörundur í öllum
verkefnum U19 ára og U17 ára
kvenna. Síðan er Lúðvík Gunnarsson
með U15 ára liðin, bæði drengi og
stúlkur, ásamt því að sjá um hæfi-
leikamótunina.
Þjálfararnir vinna ennfremur í
sameiningu við afrekshópana okkar,
eru á úrtaksæfingum á Norðurlandi,
Austurlandi, Vestfjörðum og í Vest-
mannaeyjum nokkrum sinnum á ári,
og halda því utan um alla leikmenn
yngri landsliðanna ásamt því að
fylgjast með efnilegum leikmönnum
um allt land,“ sagði Arnar við
Morgunblaðið.
Mikið af landsliðsferðum
Eins og fram kemur í byrjun
greinarinnar léku yngri landsliðin
54 leiki af 61 á þessu ári erlendis.
Þannig voru stúlknaliðin, undir
stjórn Þórðar og Jörundar, á mót-
um á Spáni, Ítalíu, Hollandi, Króat-
íu, Svíþjóð (tvisvar) og Hvíta-
Rússlandi á árinu, ásamt því að
leika vináttuleiki á heimavelli og
einn undanriðil fyrir EM sem var
leikinn hér á landi í haust. Piltaliðin,
undir stjórn Þorvaldar og Davíðs,
voru á mótum í Hvíta-Rússlandi,
Þýskalandi, Króatíu, Írlandi, Dan-
mörku, Lettlandi, Finnlandi, Skot-
landi og Belgíu frá janúar og fram í
nóvember.
Samstarf við skólana stórt
skref fyrir yngri landsliðin
Fimm þjálfarar yngri landsliða í fullu starfi hjá KSÍ Arnar Þór Viðarsson
segir að gæði þjálfunarinnar hafi aukist verulega með samvinnu við skólana
Morgunblaðið/Eggert
U19 Yngri landslið Íslands spila sjaldan á heimavelli en Karólína Lea Vil-
hjálmsdóttir og samherjar í U19 kvenna léku í undankeppni EM á Íslandi.
UPPBYGGING
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
„Ég veit að fólk gerir sér ekki grein
fyrir því hve umfangsmikið starf
þjálfara yngri landsliðanna er. Ég
var sem dæmi um eða yfir 100 daga
erlendis á þessu ári vegna verkefna
landsliðanna, sá 120-130 leiki og
þannig var þetta með okkur alla
sem þjálfum
yngri liðin,“
sagði Þorvaldur
Örlygsson þjálf-
ari U19 og U18
ára landsliða
karla við Morg-
unblaðið.
Hann hefur
þjálfað U19 ára
liðið frá 2015 en
var fyrstu tvö ár-
in með það í
hlutastarfi ásamt því að þjálfa
meistaraflokkslið karla hjá HK og
Keflavík á þessum tíma.
„Ég var ráðinn í fullt starf hjá
KSÍ í árslok 2016 og hef verið í því
síðan. Hugmyndin var sú að fyrir
aldursflokkinn 16-19 ára væru tveir
þjálfarar með karlaliðin og tveir
með kvennaliðin, einn með ábyrgð
sem aðalþjálfari hjá hverju liðanna.
Það var sett í okkar hendur að búa
þessi störf til og þróa þau og það
hefur gengið upp. Þessir fimm þjálf-
arar sem nú eru í fullu starfi með
yngri landsliðin hafa unnið mjög vel
saman og ég get fullyrt að það hafi
allir gert heilshugar og af miklum
áhuga,“ sagði Þorvaldur.
Byrja að fylgjast með 5. flokki
Auk þjálfunar landsliðanna og áð-
urnefndra keppnisferða erlendis er
margt fleira á borði þjálfaranna sem
eru til dæmis farnir að fylgjast með
yngri leikmönnum en áður var gert.
„Ég byrjaði fyrir þremur árum að
fylgjast með N1-mótinu í 5. flokki
drengja og nú förum við markvisst á
þetta mót á hverju sumri þar sem við
byrjum að fylgjast með strákunum
þegar þeir eru 11-12 ára gamlir. Þá
eru þeir að taka fyrstu skrefin í rétta
átt og þá er gott fyrir okkur að byrja
að fylgjast með þeim. Á þessu móti
sjáum við leikmenn alls staðar að af
landinu og um leið hvernig umgjörð-
in er hjá félögunum.
Við sjáum líka um úrtaksæfingar í
hverjum landshluta fyrir sig og för-
um um allt land til að sinna þeim, og
eins erum við að hluta til í skrif-
stofustörfum í ýmisskonar sam-
skiptum við aðila innanlands og ut-
an. Í það fara margir klukkutímar í
vinnuvikunni. Þetta er í heild sinni
hellingsvinna og mun umfangsmeira
en að vera þjálfari í efstu deild.
Ég held að þessi landsliðsþjálfara-
störf hafi þróast á réttan hátt og fyr-
irkomulagið sé komið til að vera.
Fyrir sjálfan mig get ég sagt að
þetta er líklega það skemmtilegasta
sem ég hef gert á öllum mínum ferli í
fótboltanum. Í vinnunni í kringum
yngri landsliðin hef ég séð svo margt
sem maður gleymdi að njóta þegar
maður var að spila sjálfur.“
Fámennið er líka kostur
Þorvaldur er bjartsýnn á að sú
vinna sem nú er unnin í kringum
yngri landsliðin skili sér vel.
„Við erum að reyna að hækka
getustig okkar landsliðsfólks sem er
nauðsynlegt til að við höldum í við
aðrar þjóðir. Okkar staða verður
alltaf sú að við höfum úr færri leik-
mönnum að velja en aðrar þjóðir en
það er líka kostur. Við þekkjum fyrr
og betur okkar umhverfi og leik-
menn og leikmennirnir þekkjast bet-
ur. Þetta eru kostir sem þarf að nýta
og okkar verkefni er að þróa betri
leikmenn og nýta sem best það fjár-
magn sem KSÍ veitir til unglinga-
starfsins,“ sagði Þorvaldur.
Þróun í öllum afreksíþróttum
Honum er samstarf KSÍ við
skólana í landinu afar hugleikið en
eins og fram kemur hjá Arnari Þór
Viðarssyni yfirmanni knattspyrnu-
mála hjá KSÍ hér í opnunni var nýtt
fyrirkomulag tekið upp í haust varð-
andi landsliðsæfingar yngri liðanna
á veturna.
„Undanfarin ár höfum við æft í
Kórnum og Egilshöll um helgar, frá
föstudagskvöldi til sunnudagsmorg-
uns. Þetta voru ekki bestu tímarnir
og við vildum skoða í samvinnu við
skólana og menntamálaráðuneytið
hvort ekki væri hægt að fá betri tíma
fyrir afreksfólkið okkar og þá í sam-
vinnu við skólana. Vera í miðri viku
og æfa á mánudögum til föstudags.
Arnar fór af stað með okkur við að
ýta þessu í gang og það hefur farið
vel af stað. Við höfum í vetur fengið
tækifæri til að vera með lengri og
fleiri æfingar, getað nýtt tímana bet-
ur og nýtt okkar frábæru knatt-
spyrnuhús betur. Við höfum verið í
„Skemmtilegasta starfið“
Þorvaldur Örlygsson og Jörundur Áki Sveinsson eru afar ánægðir með
fyrirkomulagið á þjálfun yngri landsliðanna Um eða yfir 100 daga erlendis
Morgunblaðið/Golli
U19 Strákarnir í U19 ára liðinu fyrir einn leikjanna í Belgíu í nóvember en
þeir eru komnir í milliriðil EM 2020, undir stjórn Þorvalds Örlygssonar.
Þorvaldur
Örlygsson
Aron Elís Þránd-
arson samdi í gær
við danska knatt-
spyrnufélagið OB
til hálfs fjórða árs
og þar með leika
sjö Íslendingar í
dönsku úrvals-
deildinni um
þessar mundir.
Aron mun
væntanlega mæta
einum þeirra strax í fyrsta leik eftir
vetrarfríið en þá á OB heimaleik við
Bröndby, lið Hjartar Hermannsson-
ar. OB er í níunda sæti af fjórtán lið-
um eftir 20 umferðir af 26 í hefð-
bundinni deildakeppni, en er aðeins
einu stigi frá sjötta sætinu. Sex efstu
liðin leika áfram um meistaratitilinn
síðustu mánuði tímabilsins.
Aron kemur til OB frá Aalesund í
Noregi þar sem hann hefur leikið
undanfarin fimm ár, þrjú í úrvals-
deildinni og tvö í B-deildinni sem lið
hans vann með yfirburðum í ár.
Hann lék áður í fjögur ár með meist-
araflokki Víkings í Reykjavík. Aron
hefur leikið tvo A-landsleiki fyrir Ís-
lands hönd. vs@mbl.is
Aron Elís fer
beint í Íslend-
ingaslag
Aron Elís
Þrándarson