Morgunblaðið - 24.12.2019, Síða 29
ÍÞRÓTTIR 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. DESEMBER 2019
Ragnar Sigurðsson, landsliðs-
maður í fótbolta, er án félags en hann
komst að samkomulagi við Rostov í
Rússlandi um riftun á samningi. Ragn-
ar gekk í raðir Rostov frá Fulham árið
2018 og lék yfir 50 leiki með liðinu og
var fyrirliði þess um tíma. Samningur
hans gildi til næsta sumars.
Jóhann Berg Guðmundsson verður
að öllum líkindum í leikmannahópi
Burnley er liðið mætir Everton í ensku
úrvalsdeildinni í fótbolta á annan dag
jóla. Jóhann hefur verið frá keppni í
tvo mánuði vegna meiðsla sem hann
varð fyrir í landsleik gegn Frakklandi.
Knattspyrnumaðurinn Guðmundur
Þórarinsson mun ganga í raðir Levski
Sofia í Búlgaríu um áramótin, þegar
samningur hans við Norrköping í Sví-
þjóð rennur út. Norrköping Tidningar
greinir frá. Hólmar Örn Eyjólfsson
leikur með Levski Sofia.
Sverrir Ingi Ingason skoraði tvö
mörk fyrir PAOK í 5:1-sigri á Atromitos
í grísku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær.
Með sigrinum náði PAOK tveggja stiga
forskoti á Olympiacos á toppi deild-
arinnar. Sverrir skoraði eitt mark í 2:0-
sigri á Panionios í síðustu umferð og
gerði hann einnig mark PAOK í 1:1-
jafntefli við Olympiacos á dögunum.
Sverrir er því kominn með fjögur mörk
á skömmum tíma.
Isaiah Thomas, bakvörður Wash-
ington Wizards, hefur verið úrskurð-
aður í tveggja leikja bann af NBA-
deildinni í körfuknattleik fyrir sam-
skipti við áhorfendur í leik
Philadelphia 76ers og Washington.
Thomas mislíkaði eitthvað í framkomu
tveggja stuðningsmanna Philadelphia-
liðsins sem lék á heimavelli og gerði
sér ferð í áhorfendastúkuna til að ríf-
ast við þá. Í reglum NBA er skýrt kveð-
ið á um að fari leikmaður inn í áhorf-
endastæðin í miðjum leik skuli reka
hann í bað og refsa frekar með sekt,
leikbanni eða hvoru tveggja.
Duncan Ferguson og Freddie
Ljungberg sem stýrðu liðum Everton
og Arsenal til bráðabirgða á meðan
leitað var að nýjum knattspyrnustjór-
um félaganna verða áfram í þjálf-
arateymum liðanna. Everton hefur til-
kynnt að Ferguson verði Carlo
Ancelotti til aðstoðar og Arsenal að
Ljungberg muni aðstoða Mikel Arteta.
Suðurkóreski sóknarmaðurinn
Heung-Min Son hjá Tottenham getur
að óbreyttu slakað aðeins á yfir jólin
því hann mun ekki spila jóla- og ára-
mótaleiki Lundúnaliðsins í ensku úr-
valsdeildinni í knattspyrnu. Hann hef-
ur verið úrskurðaður í þriggja leikja
bann fyrir rauða spjaldið sem hann
fékk í leik liðsins við Chelsea á sunnu-
daginn og verður ekki
með í jólaleikjunum
þremur sem eru
gegn Brighton
26. desember,
Norwich 28. des-
ember og South-
ampton 1. janúar.
Tottenham tilkynnti
í gær að félagið
hefði áfrýjað
úrskurð-
inum.
Eitt
ogannað
Skipulagt samstarf við skólana
Arnar segir að í haust hafi KSÍ
jafnframt tekið upp skipulagt sam-
starf við skólana í landinu þar sem
stórt skref hafi verið stigið til að
bæta enn þjálfunina hjá efnilegasta
knattspyrnufólki landsins.
„Það fyrsta sem ég heyrði frá
þjálfurunum þegar við ræddum um
hvernig væri hægt að bæta vinnuna
okkar í kringum yngri landsliðin var
að þeir vildu reyna að breyta æf-
ingakerfinu á veturna þannig að æft
væri á skólatíma á virkum dögum en
ekki um helgar eins og gert hafði
verið um árabil.
Þetta var sett í
forgang, við
keyrðum verk-
efnið í gang og
breyttum alveg
skipulaginu. Áður
voru landsliðsæf-
ingarnar í sex
törnum á vetri
þar sem æft var á
föstudagskvöldi,
laugardagseft-
irmiðdegi og sunnudagsmorgni.
Núna eru þetta fjórar tarnir á vetri,
þrír virkir dagar í einu, en þar sem
æft er á skólatíma er hægt að vera
með tvær æfingar á dag, og vera með
eina „tempóæfingu“ og eina taktíska
æfingu á hverjum degi. Þetta eru því
færri skipti en fleiri æfingar sem
leikmennirnir fá meira út úr. Við höf-
um því fækkað skiptunum en fjölgað
æfingunum.
Viðbrögðin eru mjög góð
Þetta hefur gengið frábærlega
hingað til og orðið til þess að þjálf-
ararnir hafa enn og aftur getað tekið
næsta skref. Núna geta þeir æft
tvisvar á dag, verið með eina „tempó-
æfingu“ og eina taktíska æfingu á
dag. Þetta er það sem afreksfólkið
okkar á þessum aldri þarf á að halda,
það þarf að geta æft á sem mestu
„tempói“ með þeim bestu þannig að
þessar æfingar eiga eftir að bæta
þau enn meira en áður.
Núna í desember hef ég ekki feng-
ið eina einustu kvörtun yfir þessum
breytingum, aðeins nokkur símtöl
frá foreldrum sem hafa velt því fyrir
sér hvort yrði mikið um æfingar á
meðan próf standa yfir.
Ég sendi bréf á skólana í sumar og
kynnti verkefnið fyrir þeim og fékk
mjög góð viðbrögð. Samvinnan við
skólana er á þá leið að æfingarnar
eru boðaðar í gegnum félögin. Leik-
mennirnir fá síðan leyfisbréf til að
fara með í skólana. Síðan fylgjumst
við með náminu hjá þeim og skól-
arnir láta okkur vita ef þau sinna
ekki náminu sem skyldi. Ef við erum
látnir vita að nemandi frá okkur
mæti illa eða sé að fá lakari einkunn-
ir en eðlileg er, þá er okkar fyrsta
verk að tala við viðkomandi og gera
honum grein fyrir því að ef hann
bæti sig ekki hvað námið varðar
verði hann ekki valinn aftur í hóp hjá
okkur.“
Kennslustundir og
próftaka í lokakeppni EM
„Þetta hefur gengið algjörlega upp
og er góð sönnun fyrir því að íþrótta-
fólkið okkar er oft lengst komið sam-
anborið við jafnaldra sína í skipulagi
og hugsun. Þegar U17 ára lið
drengja var í lokakeppni EM á Ír-
landi síðasta vor voru kennarar með í
för þannig að leikmennirnir gátu
stundað sitt nám og tekið sín próf í
Dublin. Það var mjög ánægjulegt að
fylgjast með hvernig það gekk, þar
voru allir duglegir við að nýta dauðu
tímana til að læra og allir náðu sínum
prófum.
Það hefur líka komið á daginn að
skólarnir, hvort sem það eru grunn-
skólarnir, menntaskólarnir eða há-
skólarnir, eru margir hverjir með af-
reksdeildir fyrir íþróttafólkið og
aðrir sem eru ekki með slíkt eru með
mikla reynslu af því í gegnum tíðina
að hafa haft afreksfólk í íþróttum, og
skólastjórnendur eru því sjóaðir í því
að vinna með því. Fyrir vikið var
mun auðveldara að tækla þetta verk-
efni en ég bjóst við og stuðningur
skólanna við okkur hefur verið frá-
bær,“ sagði Arnar Þór Viðarsson,
yfirmaður knattspyrnumála hjá KSÍ.
Arnar Þór
Viðarsson
Kórnum í Kópavogi þar sem er frá-
bær aðstaða og samstarf við fólkið
sem þar starfar og höfum síðan verið
í Skessunni í Kaplakrika frá síðasta
hausti. Þar hefur líka verið tekið vel
á móti okkur.
Við sjáum fram á að bæta sam-
starfið við skólana enn frekar í fram-
tíðinni og draumurinn er að geta
verið með skólakennslu á milli æf-
inga á æfingasvæðinu. Krakkar utan
af landi koma að sjálfsögðu á vegum
KSÍ og eiga að standa jafnfætis hin-
um. Þetta sjáum við fyrir okkur að
gæti orðið þróunin í öllum afreks-
íþróttum á Íslandi, ekki bara í fót-
boltanum.“
Skólanám í landsliðsferðum
„Okkar áhersla er sú að krakk-
arnir séu að læra og standi sig í
skóla. Afreksfólk í íþróttum er al-
mennt gott námsfólk og stendur sig
vel á báðum sviðum.
Annar liður í þessu er að vera með
kennara með í för í landsliðsferðum
erlendis. Þegar U17 ára lið drengja
lék í úrslitum Evrópukeppninnar á
Írlandi síðasta vor var það á prófa-
tíma, og við það voru öll sextán þátt-
tökuliðin í keppninni að glíma. Við
höfum búið svo vel að í öllum níu
keppnisferðum ársins 2019 var ein-
hver kennaramenntaður með í för,
hvort sem það var liðsstjóri, mark-
varðaþjálfari, læknir eða sjúkra-
þjálfari sem gat þá sinnt kennslu-
hlutverkinu í leiðinni. Þetta munum
reyna að þróa áfram og vera með
kennara með í okkar ferðum,“ sagði
Þorvaldur Örlygsson.
Virkar ótrúlega vel
Jörundur Áki Sveinsson þjálfar
U17 ára lið stúlkna ásamt því að vera
aðstoðarþjálfari Þórðar Þórðarsonar
hjá U19 ára landsliðinu. Hann er
mjög ánægður með þetta fyr-
irkomulag.
„Mér finnst þetta hafa virkað
ótrúlega vel. Með þessari samvinnu
þjálfaranna verður góð samfella á
milli liðanna og þeir eru með puttann
á púlsinum. Þórður sér hverjar eru á
leiðinni í U16 og U17 ára liðunum og
þekkir stúlkurnar vel þegar þær
koma til hans í 19 ára liðið. Ég að-
stoða síðan Lúðvík með U15 ára liðið
og kem inn í hæfileikamótunina hjá
honum,“ sagði Jörundur við
Morgunblaðið.
„Við vinnum líka saman allir þjálf-
ararnir, þvert á kyn, og ég ræði til
dæmis málin mikið við Davíð Snorra
sem er með U17 ára lið karla. Við
pælum í hlutunum saman og deilum
reynslu okkar og hugmyndum. Við
Davíð vinnum með sömu aldurs-
flokka og gerum flest það sama.
Þetta er fótbolti og lítill munur á því
hvernig þú vinnur með stelpur eða
stráka á þessum aldri. Helsti mun-
urinn liggur í því að þjálfarar stráka-
landsliðanna eru með meira af sínum
leikmönnum erlendis á meðan stelp-
urnar eru nær allar heima á Íslandi.
Þeir hitta því marga sinna manna
aðeins í verkefnum erlendis á meðan
við getum séð um allan undirbúning-
inn hér heima.“
Byrjar á Símamótinu
Eins og fram kemur hjá Þorvaldi
Örlygssyni byrja landsliðsþjálfarnir
að fylgjast með leikmönnunum mjög
snemma og Jörundur sagði að sama
ætti þar við um stúlkurnar og dreng-
ina.
„Já, ég fer til
dæmis mikið á
Símamótið á
sumrin og fylgist
með ungum leik-
mönnum þar. Síð-
an fer ég á mikið
af leikjum í 4.
flokki og reyni að
sjá sem flestar
stúlknanna spila
með sínum fé-
lagsliðum. Þetta skiptir miklu máli,
til dæmis fyrir leikmann sem kemur
á landsliðsæfingu og nær sér ekki á
strik en síðan sé ég viðkomandi
blómstra í leik með sínu félagsliði.
Það gefur meiri möguleika á að fá
annað tækifæri,“ sagði Jörundur
sem kvaðst fara á 120-150 leiki ár-
lega.
Yngri stúlknalandsliðin hafa nán-
ast verið með áskrift að sæti í milli-
riðlum undankeppni EM og hafa
undantekningalítið komist áfram úr
sínum undanriðlum á haustin um
langt árabil. Jörundur segir að það
sé gríðarlega dýrmætt fyrir upp-
bygginguna.
„Við höfum verið heppin að þessu
leyti því þá fá stúlkurnar fleiri verk-
efni yfir veturinn og spila við sterk-
ari andstæðinga í milliriðlinum á
næsta vori. Fyrir vikið verða þær
enn betur undirbúnar fyrir framtíð-
ina. Árgangar sem komast ekki
áfram úr undankeppninni geta því
misst mikið úr og það er lykilatriði
hjá hverjum árgangi fyrir sig að fara
í milliriðla. En það verður erfiðara
með hverju ári því Austur-Evrópu-
þjóðirnar eru stöðugt að bæta í hjá
sér og samkeppnin hefur því aukist
gríðarlega síðustu árin. Við þurfum
því að vera enn betur á tánum og
vinna vel í okkar málum.“
Öðruvísi áherslur þegar
vantar 21-árs landslið
Hjá stúlkum er engin Evrópu-
keppni 21-árs liða og því hefur þurft
að miða þjálfun yngri landsliðanna
við það að þaðan fari stúlkurnar
beint í A-landsliðið. Jörundur segir
að þetta kalli á aðeins öðruvísi nálg-
un en hjá strákunum.
„Flestir eru á því að það vanti
millistig hjá stúlkunum og við Þórð-
ur höfum setið fund hjá UEFA þar
sem fram kom að reyna ætti að
koma á keppni U21 árs landsliða. En
það getur tekið langan tíma. U19 ára
liðið er því stökkpallurinn fyrir A-
landsliðið og við þurfum að miða
okkar störf við það. Við hugsum þess
vegna að vissu leyti frekar um að
þróa einstaka leikmenn en að há-
marka árangur liðsins. Til dæmis
getum við fært leikmann í U17 ára
liði, sem talinn er vera skammt frá
því að spila með A-landsliðinu, upp í
U19 ára liðið þannig að hann fái
verkefni við hæfi og sé betur undir-
búinn.“
Jörundur tekur undir með Þor-
valdi og Arnari að samstarfið við
skólana fari vel af stað.
„Já, að mínu mati er það reynslan
af þessu fyrstu mánuðina og ég held
að þetta sé komið til að vera. Það er
allt annað að fá leikmenn til æfinga í
miðri viku en á erfiðum tímum um
helgar og þetta gerir okkur kleift að
æfa tvisvar á dag, funda og bæta um-
gjörðina á ýmsan hátt og lyfta þjálf-
uninni á hærra stig. Þetta er mjög
gott sem komið er og verður vonandi
áfram,“ sagði Jörundur Áki.
Ljósmynd/KSÍ
U17 Stúlkurnar í U17 ára liðinu sem eru komnar í milliriðlakeppni EM
2020, undir stjórn Jörundar Áka Sveinssonar, fyrir leik í undankeppninni.
Jörundur Áki
Sveinsson
U19 ára landslið karla lék sjö
landsleiki á árinu 2019 og alla er-
lendis. Tvo í Lettlandi (U18 ára lið),
tvo í Finnlandi og þrjá í Belgíu. Liðið
varð í öðru sæti í undanriðli EM í
Belgíu í nóvember, vann Grikkland
5:2 og Albaníu 4:2, og leikur í milli-
riðli EM 2020 næsta vor.
Þjálfari er Þorvaldur Örlygsson
og aðstoðarþjálfari Davíð Snorri
Jónasson.
U17 ára landslið karla lék 20
landsleiki á árinu 2019, alla erlendis.
Þar af voru sex leikir eldra liðsins frá
2018 sem vann sinn milliriðil í Þýska-
landi í mars, sló út Þýskaland, Slóv-
eníu og Hvíta-Rússland og komst í
lokakeppnina í Dublin í maí 2019.
Þar vann liðið Rússland en tapaði
fyrir Ungverjalandi og Portúgal og
missti naumlega af sæti í 8-liða úr-
slitum. Hinir 14 leikirnir fóru fram í
Hvíta-Rússlandi, Króatíu, Dan-
mörku og Skotlandi.
Þjálfari er Davíð Snorri Jónasson
og aðstoðarþjálfari Þorvaldur Ör-
lygsson.
U15 ára landslið karla lék þrjá
leiki á móti í Póllandi í október þar
sem það tapaði fyrir Bandaríkjun-
um, Rússlandi og Póllandi.
Þjálfari er Lúðvík Gunnarsson.
U19 ára landslið kvenna lék 13
landsleiki á árinu 2019, átta þeirra
erlendis. Liðið lék í milliriðli EM
2019 í Hollandi í apríl, vann Búlg-
aríu, gerði jafntefli við Rússland og
tapaði fyrir Hollandi. Ísland er kom-
ið í milliriðla EM 2020 næsta vor eft-
ir að hafa sigrað Grikkland og Ka-
sakstan í undanriðli í Reykjavík í
október.
Þjálfari er Þórður Þórðarson og
aðstoðarþjálfari Jörundur Áki
Sveinsson.
U17 ára landslið kvenna lék 15
landsleiki á árinu 2019, alla erlendis.
Liðið lék í milliriðli EM 2019 á Ítalíu
í mars, vann Ítalíu en tapaði fyrir
Danmörku og Slóveníu. Ísland er
komið í milliriðla EM 2020 næsta vor
eftir að hafa sigrað Hvíta-Rússland
og Möltu í undanriðli í Hvíta-Rúss-
landi í september.
Þjálfari er Jörundur Áki Sveins-
son og aðstoðarþjálfari Þórður Þórð-
arson.
U15 ára landslið kvenna lék þrjá
leiki á móti í Víetnam í september,
vann tvo og gerði eitt jafntefli og
vann mótið.
Þjálfari er Lúðvík Gunnarsson.
Ljósmynd/KSÍ
U17 Hópur U17 ára liðs karla sem lék í lokakeppni EM í Dublin 2019.
Yngri landslið Íslands 2019