Morgunblaðið - 20.12.2019, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 20.12.2019, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2019 Pétur Hreinsson peturh@mbl.is Þ að er auðvitað spennandi að fara úr tveimur sölu- mönnum í um það bil 792. En ég myndi segja að stóra málið frá mínum bæjardyrum séð sé að samnýta þró- unar- og tæknisviðin. Að stytta okk- ur leið og flýta fyrir fæðingu á nýj- um tækjum. Það er örugglega ekki langt í það að það fæðist sameig- inlegar vörur,“ segir Elliði Hreins- son, framkvæmdastjóri og stofnandi Curio, um samstarf fyrirtækisins við Marel sem festi kaup á 40% hlut í Curio fyrir stuttu. Við þann hlut bætast 10% árið 2021 auk for- kaupsréttar á stærri hlut síðar meir. Elliði hefur í nógu að snúast þessa dagana og er blaðamaður sló á þráðinn hafði hann nýlok- ið fundahöldum með „stóra bróður“ í Garðabæ, eins og hann kallar Marel. „Það er verið að hrista saman deildirnar. Við keyrum áfram sem sjálfstæð eining en gerum sam- starfssamninga í sölu-, markaðs- og þróunarmálum. Marel verður sjálf- krafa umboðsaðili alls staðar þar sem við erum ekki með umboðsaðila fyrir. Við bætum því við okkur stóru markaðssvæði. Jafnvel nokkrum heimsálfum,“ segir Elliði og hlær og bætir því við að Curio hafi verið tannhjól sem fellur vel inn í starf- semi Marels. „Við rekumst hvergi á Marel í framleiðslu. Marel vantaði okkar vöru inn í hvítfiskslínurnar hjá sér til þess að loka pakkanum. Það að bjóða heildarlausnir er alltaf að aukast; að einn aðili komi og skaffi allt í verksmiðjurnar. Þá lá beinast við að draga okkur að borðinu. Við höfðum unnið með Marel áður í verkefnum sem heppnuðust mjög vel bæði innanlands og utan.“ Heppilegur tímapunktur Að hans sögn er þó mikilvægt fyrir Curio, sem hlaut nýsköpunarverð- laun Íslands í ár, að fara skipulega og rólega af stað. „Svo við verðum ekki kafkeyrð,“ segir Elliði sem stofnaði Curio árið 2008. Aðalstarfsemi fyrirtækisins, sem framleiðir og þróar fiskvinnsluvélar, fer fram hér á landi. Curio er starf- andi í fjórum húsum í Hafnarfirði og hefur auk þess útibú, þjónustu- og framleiðsludeild á Húsavík. Spurður hvort fyrirtækið geti nýtt sér hið mikla sölunet Marels um all- an heim og annað allri þeirri eft- irspurn sem slíkt net býður upp á, segir Elliði að fyrirtækið sé í góðri stöðu. „Það vill svo skemmtilega til með þennan tímapunkt að við höfum ný- lega lokið við fimm ára uppbygg- ingu. Við vorum að byggja hérna tvö hús og bæta við okkur fjölda framleiðsluvéla og tækja. Við vorum líka að taka í notkun nýja þjónustu- og framleiðsludeild í Skotlandi. Þetta passar því vel og við erum klár til þess að gefa ansi vel í núna,“ segir Elliði en fyrirtækið hefur hreiðrað um sig í Peterhead í Skot- landi, skammt frá Aberdeen. Ástæðan fyrir þeirri staðsetningu er einföld. „Þar er stærsti fiskmarkaður í Evrópu. Við sjáum fram á að þar verði mikil uppbygging í fiskvinnslu á næstu árum.“ Klár í slaginn í janúar Að sögn Elliða hefur sala á vélum ekki stjórnað veltu fyrirtækisins heldur er það framleiðslugetan sem hefur verið í botni. Þrátt fyrir fyrr- nefnd orð um að vilja fara skipulega og rólega af stað hyggst fyrirtækið aftur á móti nýta sér aukinn tækja- kost og rými og stefnir á að tvöfalda framleiðsluna á næsta ári. „Akkúrat núna erum við að taka í notkun rúmlega 1.300-1.400 fer- metra í viðbót og erum að fá meira af nýjum framleiðsluvélum. Á næsta ári hugsa ég að við ættum að geta farið létt með að tvöfalda fram- leiðslugetu okkar. Við verðum klár í slaginn strax í janúar,“ segir Elliði. Tekjur Curio munu að sögn El- liða nema 10-12 milljónum evra í ár, eða um 1,4 til 1,7 milljörðum króna. Stærstur hluti tekna fyrirtækisins felst í sölu á flökunarvélum sem að- greindar eru í sex mismunandi út- færslum. Fyrirtækið framleiðir um það bil eina vél á viku, eða um 52-54 vélar á ári, en þar af nemur fjöldi flökunarvéla um 17-20, sem jafn- framt eru dýrustu vörur fyrir- tækisins. „Við erum að flaka fisk í dag með mismunandi útfærslum á vélinni frá 300 grömmum upp í 20 kíló. Fisk sem er 300 grömm með haus; horn- síli. Stærsti fiskurinn sem við getum flakað er 20 kíló. Við ráðum því við ofboðslega breitt svið. Um er að ræða fimm vélar fyrir hvítfisk, frá „extra small“ til „extra large“. Svo erum við með eina vél fyrir lax og silung sem verið er að leggja loka- hönd á,“ segir Elliði, en auk þess framleiðir fyrirtækið fjöldann allan af öðrum vélum. „Svo framleiðum við hausara fyr- ir hvítfisk og lax í nokkrum útgáfum sem sker hausinn af. Og svo erum við að framleiða roðflettivélar, brýn- ingarvélar og ýmislegt annað í kringum þetta. En flökunarvélarnar eru aðalvaran,“ segir Elliði. Langur listi þróunarverkefna Í ofanálag eru ýmis þróunarverk- efni í gangi hjá Curio. Fyrirtækið hlaut fyrr á þessu ári 2,3 milljóna evra styrk frá Evrópusambandinu um nýja klumbuskurðarvél, sem sker klumbubeinið af bolfiski. „Klumban er beinið sem liggur aftan við hausinn, frá hnakkastykki og niður á maga og er svolítið stórt bein. Þeir sem flaka fiskinn svona þurfa að byrja á því að skera þetta bein af. Það hefur ýmist verið gert í höndum eða þá í breyttum vélum sem eru kannski ekki beint til þess ætlaðar, og oft með lélegum ár- angri. Þessi vél tekur fiskinn inn, tölvumælir þykkt hans, hæð, og lengd og er svo með tölvustýrða ró- bóta sitt hvorum megin sem skera beinið af í ákveðnu bogaskurðarferli til þess að hámarka nýtingu,“ segir Elliði. Aðspurður hvort fyrirtækið geti haldið endalaust áfram að þróa nýj- ar vélar og hvort fiskiðnaðurinn sé að nálgast endastöð hvað þessa þró- un varðar, segir Elliði það af og frá. „Við erum með mjög langan lista af þróunarverkefnum,“ segir Elliði og hlær. „Það sem er að eiga sér stað í fiskiðnaði er hin umtalaða fjórða iðnbylting. Það er verið að vélvæða mörg störf. Þetta hélt innreið sína í kjöt- og kjúklingaiðnaði fyrir rúm- um 20 árum. Og núna er þetta farið á fullt í fiskiðnaði. Það opnar nátt- úrlega gífurlega mikið af tækifær- um til að hanna og þróa nýjan vél- búnað. Það er nóg eftir. Þetta byggist allt á því að byrja á því að taka erfiðustu störfin út þar sem hægt er að auka nýtinguna. Svo er hreinlega verið að minnka leiðigjörn störf þar sem fólk er kannski að raða bitum allan daginn,“ segir El- liði. Hann nefnir einnig mikilvægi þessarar sjálfvirknivæðingar fyrir íslenska fiskvinnslu í heild sinni. „Við verðum náttúrlega að horf- ast í augu við það að Ísland er með mjög dýrt vinnuafl miðað við t.d. Austur-Evrópu eða Kína. Menn þurfa að leita allra leiða hér ef þeir ætla að geta keppt. Þá þarf að finna leiðir til þess að fjölga kílóum á tím- ann í gegnum vinnslurnar þannig að launakostnaður hér sé sambærilegt hlutfall við það sem gerist annars staðar,“ segir Elliði. Tvöfalda framleiðslugetuna Afar spennandi tímar eru framundan hjá tæknifyrirtækinu Curio. Marel festi nýlega kaup á stórum hluta í fyrir- tækinu sem getur nú með aukinni fram- leiðslugetu nýtt sér víð- feðmt sölunet Marels. Stofnandi Curio segir ekki langt þar til sam- eiginlegar vörur fyr- irtækjanna verði til. Fjórða iðnbyltingin hefur hafið innreið sína í fiskiðnaðinn. Sjálfvirkar vélar leysa margar af hólmi leiðingjörn og erfið störf. Curio flakar fisk frá 300 grömmum upp í 20 kíló með sex mismunandi útgáfum af flökunarvélum. Fyrirtækið framleiðir um eina vél á viku, eða um 52-54 vélar á ári. Elliði Hreinsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.