Morgunblaðið - 20.12.2019, Side 6
6 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2019
Pétur Hreinsson
peturh@mbl.is
Þ
að er auðvitað spennandi
að fara úr tveimur sölu-
mönnum í um það bil 792.
En ég myndi segja að
stóra málið frá mínum
bæjardyrum séð sé að samnýta þró-
unar- og tæknisviðin. Að stytta okk-
ur leið og flýta fyrir fæðingu á nýj-
um tækjum. Það er örugglega ekki
langt í það að það fæðist sameig-
inlegar vörur,“ segir Elliði Hreins-
son, framkvæmdastjóri og stofnandi
Curio, um samstarf fyrirtækisins
við Marel sem festi kaup á 40% hlut
í Curio fyrir stuttu. Við þann hlut
bætast 10% árið
2021 auk for-
kaupsréttar á
stærri hlut síðar
meir.
Elliði hefur í
nógu að snúast
þessa dagana og
er blaðamaður
sló á þráðinn
hafði hann nýlok-
ið fundahöldum
með „stóra bróður“ í Garðabæ, eins
og hann kallar Marel.
„Það er verið að hrista saman
deildirnar. Við keyrum áfram sem
sjálfstæð eining en gerum sam-
starfssamninga í sölu-, markaðs- og
þróunarmálum. Marel verður sjálf-
krafa umboðsaðili alls staðar þar
sem við erum ekki með umboðsaðila
fyrir. Við bætum því við okkur stóru
markaðssvæði. Jafnvel nokkrum
heimsálfum,“ segir Elliði og hlær og
bætir því við að Curio hafi verið
tannhjól sem fellur vel inn í starf-
semi Marels.
„Við rekumst hvergi á Marel í
framleiðslu. Marel vantaði okkar
vöru inn í hvítfiskslínurnar hjá sér
til þess að loka pakkanum. Það að
bjóða heildarlausnir er alltaf að
aukast; að einn aðili komi og skaffi
allt í verksmiðjurnar. Þá lá beinast
við að draga okkur að borðinu. Við
höfðum unnið með Marel áður í
verkefnum sem heppnuðust mjög
vel bæði innanlands og utan.“
Heppilegur tímapunktur
Að hans sögn er þó mikilvægt fyrir
Curio, sem hlaut nýsköpunarverð-
laun Íslands í ár, að fara skipulega
og rólega af stað. „Svo við verðum
ekki kafkeyrð,“ segir Elliði sem
stofnaði Curio árið 2008.
Aðalstarfsemi fyrirtækisins, sem
framleiðir og þróar fiskvinnsluvélar,
fer fram hér á landi. Curio er starf-
andi í fjórum húsum í Hafnarfirði
og hefur auk þess útibú, þjónustu-
og framleiðsludeild á Húsavík.
Spurður hvort fyrirtækið geti nýtt
sér hið mikla sölunet Marels um all-
an heim og annað allri þeirri eft-
irspurn sem slíkt net býður upp á,
segir Elliði að fyrirtækið sé í góðri
stöðu.
„Það vill svo skemmtilega til með
þennan tímapunkt að við höfum ný-
lega lokið við fimm ára uppbygg-
ingu. Við vorum að byggja hérna
tvö hús og bæta við okkur fjölda
framleiðsluvéla og tækja. Við vorum
líka að taka í notkun nýja þjónustu-
og framleiðsludeild í Skotlandi.
Þetta passar því vel og við erum
klár til þess að gefa ansi vel í núna,“
segir Elliði en fyrirtækið hefur
hreiðrað um sig í Peterhead í Skot-
landi, skammt frá Aberdeen.
Ástæðan fyrir þeirri staðsetningu
er einföld.
„Þar er stærsti fiskmarkaður í
Evrópu. Við sjáum fram á að þar
verði mikil uppbygging í fiskvinnslu
á næstu árum.“
Klár í slaginn í janúar
Að sögn Elliða hefur sala á vélum
ekki stjórnað veltu fyrirtækisins
heldur er það framleiðslugetan sem
hefur verið í botni. Þrátt fyrir fyrr-
nefnd orð um að vilja fara skipulega
og rólega af stað hyggst fyrirtækið
aftur á móti nýta sér aukinn tækja-
kost og rými og stefnir á að tvöfalda
framleiðsluna á næsta ári.
„Akkúrat núna erum við að taka í
notkun rúmlega 1.300-1.400 fer-
metra í viðbót og erum að fá meira
af nýjum framleiðsluvélum. Á næsta
ári hugsa ég að við ættum að geta
farið létt með að tvöfalda fram-
leiðslugetu okkar. Við verðum klár í
slaginn strax í janúar,“ segir Elliði.
Tekjur Curio munu að sögn El-
liða nema 10-12 milljónum evra í ár,
eða um 1,4 til 1,7 milljörðum króna.
Stærstur hluti tekna fyrirtækisins
felst í sölu á flökunarvélum sem að-
greindar eru í sex mismunandi út-
færslum. Fyrirtækið framleiðir um
það bil eina vél á viku, eða um 52-54
vélar á ári, en þar af nemur fjöldi
flökunarvéla um 17-20, sem jafn-
framt eru dýrustu vörur fyrir-
tækisins.
„Við erum að flaka fisk í dag með
mismunandi útfærslum á vélinni frá
300 grömmum upp í 20 kíló. Fisk
sem er 300 grömm með haus; horn-
síli. Stærsti fiskurinn sem við getum
flakað er 20 kíló. Við ráðum því við
ofboðslega breitt svið. Um er að
ræða fimm vélar fyrir hvítfisk, frá
„extra small“ til „extra large“. Svo
erum við með eina vél fyrir lax og
silung sem verið er að leggja loka-
hönd á,“ segir Elliði, en auk þess
framleiðir fyrirtækið fjöldann allan
af öðrum vélum.
„Svo framleiðum við hausara fyr-
ir hvítfisk og lax í nokkrum útgáfum
sem sker hausinn af. Og svo erum
við að framleiða roðflettivélar, brýn-
ingarvélar og ýmislegt annað í
kringum þetta. En flökunarvélarnar
eru aðalvaran,“ segir Elliði.
Langur listi þróunarverkefna
Í ofanálag eru ýmis þróunarverk-
efni í gangi hjá Curio. Fyrirtækið
hlaut fyrr á þessu ári 2,3 milljóna
evra styrk frá Evrópusambandinu
um nýja klumbuskurðarvél, sem
sker klumbubeinið af bolfiski.
„Klumban er beinið sem liggur
aftan við hausinn, frá hnakkastykki
og niður á maga og er svolítið stórt
bein. Þeir sem flaka fiskinn svona
þurfa að byrja á því að skera þetta
bein af. Það hefur ýmist verið gert í
höndum eða þá í breyttum vélum
sem eru kannski ekki beint til þess
ætlaðar, og oft með lélegum ár-
angri. Þessi vél tekur fiskinn inn,
tölvumælir þykkt hans, hæð, og
lengd og er svo með tölvustýrða ró-
bóta sitt hvorum megin sem skera
beinið af í ákveðnu bogaskurðarferli
til þess að hámarka nýtingu,“ segir
Elliði.
Aðspurður hvort fyrirtækið geti
haldið endalaust áfram að þróa nýj-
ar vélar og hvort fiskiðnaðurinn sé
að nálgast endastöð hvað þessa þró-
un varðar, segir Elliði það af og frá.
„Við erum með mjög langan lista
af þróunarverkefnum,“ segir Elliði
og hlær.
„Það sem er að eiga sér stað í
fiskiðnaði er hin umtalaða fjórða
iðnbylting. Það er verið að vélvæða
mörg störf. Þetta hélt innreið sína í
kjöt- og kjúklingaiðnaði fyrir rúm-
um 20 árum. Og núna er þetta farið
á fullt í fiskiðnaði. Það opnar nátt-
úrlega gífurlega mikið af tækifær-
um til að hanna og þróa nýjan vél-
búnað. Það er nóg eftir. Þetta
byggist allt á því að byrja á því að
taka erfiðustu störfin út þar sem
hægt er að auka nýtinguna. Svo er
hreinlega verið að minnka leiðigjörn
störf þar sem fólk er kannski að
raða bitum allan daginn,“ segir El-
liði.
Hann nefnir einnig mikilvægi
þessarar sjálfvirknivæðingar fyrir
íslenska fiskvinnslu í heild sinni.
„Við verðum náttúrlega að horf-
ast í augu við það að Ísland er með
mjög dýrt vinnuafl miðað við t.d.
Austur-Evrópu eða Kína. Menn
þurfa að leita allra leiða hér ef þeir
ætla að geta keppt. Þá þarf að finna
leiðir til þess að fjölga kílóum á tím-
ann í gegnum vinnslurnar þannig að
launakostnaður hér sé sambærilegt
hlutfall við það sem gerist annars
staðar,“ segir Elliði.
Tvöfalda framleiðslugetuna
Afar spennandi tímar
eru framundan hjá
tæknifyrirtækinu Curio.
Marel festi nýlega kaup
á stórum hluta í fyrir-
tækinu sem getur nú
með aukinni fram-
leiðslugetu nýtt sér víð-
feðmt sölunet Marels.
Stofnandi Curio segir
ekki langt þar til sam-
eiginlegar vörur fyr-
irtækjanna verði til.
Fjórða iðnbyltingin hefur hafið innreið sína í fiskiðnaðinn. Sjálfvirkar vélar leysa margar af hólmi leiðingjörn og erfið störf.
Curio flakar fisk frá 300 grömmum upp í 20 kíló með sex mismunandi útgáfum af flökunarvélum. Fyrirtækið framleiðir um eina vél á viku, eða um 52-54 vélar á ári.
Elliði Hreinsson