Morgunblaðið - 20.12.2019, Page 12
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Ö
ssur Kristinsson stoðtækjafræð-
ingur leiðir nú bátahönnun hjá
Rafnari, fyrirtækinu sem hann
stofnaði árið 2005. Bátarnir sem um
ræðir eru nýir
og stærri bátar sem hugs-
aðir eru með þarfir Slysa-
varnafélagsins Lands-
bjargar í huga. Hingað til
hefur fyrirtækið þróað og
selt báta sem eru 8,5 metra
og 11 metra langir, og komu
fyrst á markaðinn árið 2015,
en þessi nýi bátur verður 14
metra langur. 8,5 metra og
11 metra bátarnir voru báð-
ir hannaðir í nánu samstarfi
við Landhelgisgæslu Ís-
lands og Landsbjörg.
Byltingarkennd þróun
Tilgangurinn með stofnun
Rafnars á sínum tíma var
að þróa, framleiða og selja
nýja byltingarkennda gerð
báta. Um er að ræða nýja
hönnun á skrokklagi hrað-
skreiðra báta og smærri
skipa sem dregur verulega
úr höggum þegar bátnum er siglt við að-
stæður sem alla jafna væru taldar erfiðar
eða ófærar fyrir báta með hefð-
bundnu skrokklagi. Haukur Al-
freðsson framkvæmdastjóri fyrir-
tækisins segir í samtali við 200 mílur að
samanburðarprófanir hafi til dæmis sýnt
að skrokklagið dragi allt að 95% úr höggum,
bátarnir séu hagkvæmir, minnki orkuþörf og
eldsneytiseyðslu. Eins og Haukur bendir á
hafa bátarnir hlotið fjölda viðurkenninga vegna
sinna sérstöku eiginleika og mikillar sjóhæfni.
Hann segir að unnið hafi verið markvisst að
því með Landsbjörg að þróa nýja 14 metra bát-
inn með þessu nýja skrokklagi og í samræmi
við þarfir Slysavarnafélagsins.
Segir hann að til standi á næstu árum að
endurnýja allan bátaflota Landsbjargar, en fé-
lagið rekur á annan tug björgunarskipa hring-
inn í kringum landið. Sem dæmi segir Haukur
að björgunarskipið Ásgrímur í Reykjavík sé
núna um 40 ára gamalt skip en við komuna
hingað til lands var skipið þá þegar nálægt því
tuttugu ára gamalt. „Þetta eru góð skip, en þau
eru barn síns tíma,“ segir Haukur. „Þau eru
hæggeng og eiga til að þyngjast með aldri-
num.“
Stóri bróðir á teikniborðinu
Aðspurður segir Haukur að ekki sé kominn á
bindandi samningur við Landsbjörg um kaupin
á bátunum. Landsbjörg skoði einnig skip frá
öðrum framleiðendum en bátar Rafnars komi
vonandi sterklega til greina til að taka við af
núverandi bátaflota, enda sé um að ræða ís-
lenska hönnun
og framleiðslu.
Haukur segir að byggt sé á
8,5 og 11 metra bátunum við hönnun á
14 metra bátunum fyrir Landsbjörg, en þeir
séu skalaðir upp og lagaðir að þörfum Slysa-
varnafélagsins. „Við keyrum þrívíddarlíkan af
bátnum í sífellu í fullkomnu hermilíkani og
þannig náum við sífellt betri árangri hvað varð-
ar, eiginleika og orkuþörf bátanna, til dæmis.“
Aðspurður segir Haukur að nýi báturinn
verði sá stærsti sem fyrirtækið hefur sett í
fjöldaframleiðslu. „Við höfum áður sérsmíðað
einn bát sem er 15 metra langur. Svo erum við
með stóra bróður á teikniborðinu, 17 metra
langan bát, en í honum geta verið rúmgóðar
káetur, þannig að skipverjar geta búið um
borð.“
Eins og sagt var frá í Morgunblaðinu í nóv-
ember sl. seldi fyrirtækið nýlega 10 báta af
gerðinni Rafnar 1100, sem eru 11 metra langir
bátar, til grísku strandgæsl-
unnar og samtaka grískra
skipaeigenda. Byrjað verð-
ur að afhenda þá báta á
næsta ári að sögn Hauks.
Þá er Landhelgisgæsla Ís-
lands með bæði 8,5 metra
bát og 11 metra bát í notk-
un. Ennfremur er Hjálpar-
sveit skáta í Kópavogi með 11
metra bát í notkun og sömu-
leiðis Björgunarsveitin Geisli á
Fáskrúðsfirði með einn 11 metra
bát. Þá hafa nokkrir bátar Rafnars ver-
ið seldir til einkaaðila, t.d. í Norður-
Skotlandi og víðar um heiminn. Báturinn í
Skotlandi hefur reynst sérstaklega vel, að
sögn Hauks. Hann hefur það verkefni meðal
annars að ferja fólk á milli skoskrar eyjar og
meginlandsins.
Ísland verði vöruþróunarmiðstöð
Næsta ár lítur nokkuð vel út hjá Rafnari að
sögn Hauks. „Við erum bjartsýn fyrir kom-
andi ár. Auk sölunnar til Grikklands finnum
við fyrir töluverðum áhuga á 14 metra bátn-
um. Þá má nefna að hafin er smíði á 8,5 metra
bátum í Bretlandi, sem þýðir að við erum kom-
in með framleiðslu í gang á tveimur stöðum ut-
an Íslands. Við hugsum Ísland sem vöruþró-
unarmiðstöð og verðum með framleiðslu hér á
landi fyrir heimamarkaðinn og nágrenni. Það
er mjög mikilvægt að halda framleiðslu hér á
landi og þannig halda áfram þróun bátanna í
samræmi við kröfur markaðarins. Einnig er
mikilvægt að þróa hagkvæmar framleiðslu-
aðferðir, eiga þátt í uppbyggingu þekkingar-
iðnaðar auk þess að sinna þjónustu við núver-
andi eigendur Rafnars báta.“
Össur leiðir þróunarferli nýrra báta
Skipasmíðafyrirtækið Rafnar
í Kópavogi þróar núna stærri
báta en það hefur áður
fjöldaframleitt, bæði 14
metra og 17 metra langa.
Eru bátarnir meðal annars
hugsaðir með þarfir Slysa-
varnafélagsins Landsbjargar
í huga.
Morgunblaðið/RAX
Tölvugerð ljósmynd af nýja fjórtán metra langa bátnum frá Rafnari, í litum íslensku Landhelgisgæslunnar.
Bátar Rafnars þykja
byltingarkenndir, en
skrokklagið hefur sér-
staka eiginleika og
mikla sjóhæfni.
Össur
Kristinsson
Haukur
Alfreðsson
12 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2019
Merry Christmas Gleðileg Jól Feliz Navidad God Jul FroheWeihnachten
Gleðilega hátíð