Morgunblaðið - 20.12.2019, Síða 12

Morgunblaðið - 20.12.2019, Síða 12
Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Ö ssur Kristinsson stoðtækjafræð- ingur leiðir nú bátahönnun hjá Rafnari, fyrirtækinu sem hann stofnaði árið 2005. Bátarnir sem um ræðir eru nýir og stærri bátar sem hugs- aðir eru með þarfir Slysa- varnafélagsins Lands- bjargar í huga. Hingað til hefur fyrirtækið þróað og selt báta sem eru 8,5 metra og 11 metra langir, og komu fyrst á markaðinn árið 2015, en þessi nýi bátur verður 14 metra langur. 8,5 metra og 11 metra bátarnir voru báð- ir hannaðir í nánu samstarfi við Landhelgisgæslu Ís- lands og Landsbjörg. Byltingarkennd þróun Tilgangurinn með stofnun Rafnars á sínum tíma var að þróa, framleiða og selja nýja byltingarkennda gerð báta. Um er að ræða nýja hönnun á skrokklagi hrað- skreiðra báta og smærri skipa sem dregur verulega úr höggum þegar bátnum er siglt við að- stæður sem alla jafna væru taldar erfiðar eða ófærar fyrir báta með hefð- bundnu skrokklagi. Haukur Al- freðsson framkvæmdastjóri fyrir- tækisins segir í samtali við 200 mílur að samanburðarprófanir hafi til dæmis sýnt að skrokklagið dragi allt að 95% úr höggum, bátarnir séu hagkvæmir, minnki orkuþörf og eldsneytiseyðslu. Eins og Haukur bendir á hafa bátarnir hlotið fjölda viðurkenninga vegna sinna sérstöku eiginleika og mikillar sjóhæfni. Hann segir að unnið hafi verið markvisst að því með Landsbjörg að þróa nýja 14 metra bát- inn með þessu nýja skrokklagi og í samræmi við þarfir Slysavarnafélagsins. Segir hann að til standi á næstu árum að endurnýja allan bátaflota Landsbjargar, en fé- lagið rekur á annan tug björgunarskipa hring- inn í kringum landið. Sem dæmi segir Haukur að björgunarskipið Ásgrímur í Reykjavík sé núna um 40 ára gamalt skip en við komuna hingað til lands var skipið þá þegar nálægt því tuttugu ára gamalt. „Þetta eru góð skip, en þau eru barn síns tíma,“ segir Haukur. „Þau eru hæggeng og eiga til að þyngjast með aldri- num.“ Stóri bróðir á teikniborðinu Aðspurður segir Haukur að ekki sé kominn á bindandi samningur við Landsbjörg um kaupin á bátunum. Landsbjörg skoði einnig skip frá öðrum framleiðendum en bátar Rafnars komi vonandi sterklega til greina til að taka við af núverandi bátaflota, enda sé um að ræða ís- lenska hönnun og framleiðslu. Haukur segir að byggt sé á 8,5 og 11 metra bátunum við hönnun á 14 metra bátunum fyrir Landsbjörg, en þeir séu skalaðir upp og lagaðir að þörfum Slysa- varnafélagsins. „Við keyrum þrívíddarlíkan af bátnum í sífellu í fullkomnu hermilíkani og þannig náum við sífellt betri árangri hvað varð- ar, eiginleika og orkuþörf bátanna, til dæmis.“ Aðspurður segir Haukur að nýi báturinn verði sá stærsti sem fyrirtækið hefur sett í fjöldaframleiðslu. „Við höfum áður sérsmíðað einn bát sem er 15 metra langur. Svo erum við með stóra bróður á teikniborðinu, 17 metra langan bát, en í honum geta verið rúmgóðar káetur, þannig að skipverjar geta búið um borð.“ Eins og sagt var frá í Morgunblaðinu í nóv- ember sl. seldi fyrirtækið nýlega 10 báta af gerðinni Rafnar 1100, sem eru 11 metra langir bátar, til grísku strandgæsl- unnar og samtaka grískra skipaeigenda. Byrjað verð- ur að afhenda þá báta á næsta ári að sögn Hauks. Þá er Landhelgisgæsla Ís- lands með bæði 8,5 metra bát og 11 metra bát í notk- un. Ennfremur er Hjálpar- sveit skáta í Kópavogi með 11 metra bát í notkun og sömu- leiðis Björgunarsveitin Geisli á Fáskrúðsfirði með einn 11 metra bát. Þá hafa nokkrir bátar Rafnars ver- ið seldir til einkaaðila, t.d. í Norður- Skotlandi og víðar um heiminn. Báturinn í Skotlandi hefur reynst sérstaklega vel, að sögn Hauks. Hann hefur það verkefni meðal annars að ferja fólk á milli skoskrar eyjar og meginlandsins. Ísland verði vöruþróunarmiðstöð Næsta ár lítur nokkuð vel út hjá Rafnari að sögn Hauks. „Við erum bjartsýn fyrir kom- andi ár. Auk sölunnar til Grikklands finnum við fyrir töluverðum áhuga á 14 metra bátn- um. Þá má nefna að hafin er smíði á 8,5 metra bátum í Bretlandi, sem þýðir að við erum kom- in með framleiðslu í gang á tveimur stöðum ut- an Íslands. Við hugsum Ísland sem vöruþró- unarmiðstöð og verðum með framleiðslu hér á landi fyrir heimamarkaðinn og nágrenni. Það er mjög mikilvægt að halda framleiðslu hér á landi og þannig halda áfram þróun bátanna í samræmi við kröfur markaðarins. Einnig er mikilvægt að þróa hagkvæmar framleiðslu- aðferðir, eiga þátt í uppbyggingu þekkingar- iðnaðar auk þess að sinna þjónustu við núver- andi eigendur Rafnars báta.“ Össur leiðir þróunarferli nýrra báta Skipasmíðafyrirtækið Rafnar í Kópavogi þróar núna stærri báta en það hefur áður fjöldaframleitt, bæði 14 metra og 17 metra langa. Eru bátarnir meðal annars hugsaðir með þarfir Slysa- varnafélagsins Landsbjargar í huga. Morgunblaðið/RAX Tölvugerð ljósmynd af nýja fjórtán metra langa bátnum frá Rafnari, í litum íslensku Landhelgisgæslunnar. Bátar Rafnars þykja byltingarkenndir, en skrokklagið hefur sér- staka eiginleika og mikla sjóhæfni. Össur Kristinsson Haukur Alfreðsson 12 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2019 Merry Christmas Gleðileg Jól Feliz Navidad God Jul FroheWeihnachten Gleðilega hátíð

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.