Morgunblaðið - 20.12.2019, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2019
Á um tveimur árum hefur Skinney-Þinganes á
Höfn í Hornafirði fjárfest fyrir um 4,5 milljarða í
skipum og búnaði í landi. Sókn er besta vörnin,
segir Ásgeir Gunnarsson, framkvæmdastjóri veiða
hjá Skinney-Þinganesi, en talsverðar breytingar
hafa orðið á útgerðarmynstri og vinnslu hjá fyrir-
tækinu.
Fyrirtækið á meðal annars tvö nýju skipanna
sem smíðuð voru hjá Vard í Noregi fyrir íslenskar
útgerðir, en samningar um smíði skipanna voru
undirritaðir í desember 2017. Steinunn SF kom til
landsins í lok nóvember og á morgun er Þinganes
SF væntanlegt til Hornafjarðar. Nesfiskur í Garði
keypti Hvanney og eldri Steinunni, en þau skip
voru smíðuð í Kína 2001. Gamla Þinganes ÁR er á
söluskrá.
Þá hafa Þórir SF og Skinney SF verið lengd um
tíu metra og lauk því verkefni í Póllandi síðasta
vor. Jafnframt voru gerðar ýmsar aðrar endur-
bætur á skipunum, einkum hvað varðar meðhöndl-
un afla og aðbúnað áhafna. Þau voru bæði smíðuð
í Taívan 2008.
„Með breytingum á skipakosti verður sú grund-
vallarbreyting hjá fyrirtækinu að við hættum að
veiða í net og snurvoð og verðum eingöngu með
togskip,“ segir Ásgeir. Þetta er mikil breyting hjá
fyrirtæki sem hefur stundað netaveiðar af krafti í
um 70 ár.
Á sama tíma höfum við tekið landvinnslu fyrir-
tækisins í gegn með áherslu á ferskfisk og dregið
verulega úr saltfiskvinnslu. Við keyptum fyrir-
tækið Auðbjörgu í Þorlákshöfn 2015 og réðumst
fljótlega í breytingar á vinnslunni þar og breyttum
yfir í ferskfiskhús. Hér á Höfn tókum svo nýja
vinnslulínu í notkun um síðustu páska og reiknum
með að taka þriðju línuna í notkun um næstu
páska.“
Brugðist við breyttum markaðsaðstæðum
Ásgeir segir að alls nemi fjárfestingar fyrirtækis-
ins á síðustu tveimur árum um 4,5 milljörðum.
Hann segir að eðlilega taki slík verkefni í þegar
haft sé í huga að ekki var veidd loðna síðasta vetur
og brestur hefur orðið í humarveiðum.
„Auðvitað reiknuðum við ekki með því að við
fengjum á okkur tvo skelli þegar við byrjuðum á
þessu. Gamla sagan er samt sú að sókn sé besta
vörnin og með þessum umsvifum vildum við
bregðast við breyttum markaðsaðstæðum í bol-
fiski,“ segir Ásgeir. aij@mbl.is
Sókn er besta vörnin segja Hornfirðingar
Miklar fjárfestingar hafa verið síðustu ár hjá Skinney-
Þinganesi í skipum og vinnslu. Með endurnýjun á
skipaflotanum hafa togskip komið í stað netabáta.
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
F
rá miðjum júlí hafa sex syst-
urskip komið hvert af öðru
frá Noregi og sjöunda og
síðasta systirin er væntan-
leg til Hafnar í Hornafirði á
morgun. Fleiri ný skip hafa bæst í
flotann á síðustu vikum, meðal ann-
ars stærsti plastbáturinn, Bárður
SH, til samnefndrar útgerðar sem
skráð er á Arnarstapa. Þá var línu-
skipið Páll Jónsson GK væntanlegt
til Grindavíkur fyrir jól, en nú er
ákveðið að skipið leggi af stað heim
frá Póllandi í byrjun nýs árs.
Það er ekki aðeins í útgerðinni
sem sjávarútvegurinn hefur fjárfest
á árinu því stöðugt er unnið að end-
urnýjun á búnaði í landi þar sem
tækniframfarir líta dagsins ljós.
1.500-1.600 milljónir á skip
Þegar greint var frá samningum um
smíði systurskipanna sjö fyrir tveim-
ur árum kom fram að hvert skip
kostaði um 100 milljónir norskra
króna eða sem nemur um 1.365 millj-
ónum íslenskra. Ótalinn er kostn-
aður við búnað á millidekk og lest og
að gera skipin klár til veiða. Sá
kostnaður gæti alls verið í námunda
við 200 milljónir á hvert skip og er
búnaðurinn að mestu í höndum ís-
lenskra hátæknifyrirtækja. Ef þetta
er allt lagt saman má áætla að hvert
skip klárt á veiðar kosti 1,5-1,6 millj-
arðar.
Systurskipin sem koma til lands-
ins í ár eru með tvær vélar og tvær
skrúfur og mun það nýmæli í skipum
af þessari stærð. Öll eru þau búin
fullkomnustu tækjum og áhersla er
lögð á umhverfissjónarmið, spar-
neytni, meðferð afla og aðbúnað
áhafnar. Fyrsta reynsla þykir lofa
góðu og sérstaklega er haft á orði
hvað þau eru hljóðlát.
Systurnar voru smíðaðar hjá
Vard-skipasmíðafyrirtækinu, þrjár í
Noregi og fjórar í Víetnam, en
lokafrágangur þeirra allra var hjá
Vard í Aukra í Noregi. Skipin eru
tæplega 30 metrar að lengd og tólf
metrar á breidd.
Búnaður á millidekk skipa Gjög-
urs og Skinneyjar-Þinganess verður
settur upp í Hafnarfirði undir for-
ystu fyrirtækisins Micro. Slippurinn
á Akureyri sér um búnað í skip Út-
gerðarfélags Akureyringa og Bergs-
Hugins.
Vestmannaey VE, skip Bergs-
Hugins, dótturfélags Síldarvinnsl-
unnar, kom fyrst skipanna til lands-
ins, 17. júlí og Bergey VE, til sama
fyrirtækis, var önnur í röðinni. Vörð-
ur ÞH og Áskell ÞH komu til Gjög-
urs á Grenivík í september og októ-
ber, Harðbakur EA kom til Útgerð-
arfélags Akureyringa í nóvember og
síðar í þeim mánuði kom Steinunn
SF til Skinneyjar-Þinganess á
Hornafirði. Síðasta skipið, Þinganes
SF, er væntanlegt til Hafnar á morg-
un, eins og áður var nefnt.
Margir nota tækifærið
til að endurnýja skip sín
Hringekja fer af stað þegar sjö ný
skip koma til landsins og aðrir nota
tækifærið og endurnýja í flota sínum.
Þannig er gamla Bergey, smíðuð í
Póllandi 2007, nú Runólfur SH og er í
eigu Guðmundar Runólfssonar hf. í
Grundarfirði.
Togskip Gjögurs, Áskell EA, smíð-
aður á Taiwan 2009, og Vörður EA,
smíðaður í Póllandi 2007, voru seld
Fisk Seafood. Skipin eru gerð út frá
Grundarfirði og bera nú nöfnin Far-
sæll SH og Sigurborg SH. Skip
Skinneyjar-Þinganess, Hvanney SF
og Steinunn SF, bæði smíðuð í Kína
2001, voru seld Nesfiski í Garði.
Fyrrnefnda skipið ber nú nafnið Sig-
urfari GK og Steinunn fékk í vikunni
nafnið Pálína Þórunn GK 49. Gamla
Vestmannaey, smíðuð í Póllandi
2007, ber nú nafnið Smáey og er enn í
eigu Bergs/Hugins.
Páll Jónsson GK, sérhæft línuskip
sem smíðað var hjá Alkor í Gdansk í
Póllandi, fyrir Vísi hf. í Grindavík er
væntanlegt fljótlega eftir áramót.
Skipið er 45 metra langt og 10,5
metrar á breidd og er fyrsta nýsmíði
Vísis af þessari stærðargráðu í yfir
50 ára sögu fyrirtækisins. Samning-
urinn við skipasmíðastöðina í Pól-
landi nam 7,5 milljónum evra eða
sem nemur rúmlega einum milljarði
króna. Á undanförnum árum hefur
Vísir látið endurbyggja línuskipin
Fjölni og Sighvat hjá Alkor.
Annað skip bættist í flota Grind-
víkinga í sumar er Þorbjörn hf. fékk
frystitogarann Tómas Þorvaldsson
GK. Um gamlan kunningja er að
ræða, en togarinn var smíðaður árið
1992 fyrir Skagstrending hf. og bar
þá nafnið Arnar HU en var seldur
fjórum árum síðar til Royal Green-
land sem gerði hann út undir nafninu
Sisimiut þar til fyrr á þessu ári. Skip-
ið er 67 metra langt og 14 metra
breitt og vel tækjum búið.
27 metra plastbátur
Stærsti plastbáturinn í flotanum, nýr
Bárður SH, er nú í Hafnarfirði þar
sem verið er að setja búnað um borð.
Báturinn var smíðaður í Bredgaard-
bátasmiðjunni í Rødby í Danmörku
og er 26,9 metra langur og sjö metrar
á breidd. Hann verður gerður út frá
Ólafsvík á net og snurvoð, en útgerð-
in er skráð til heimilis á Arnarstapa.
Systurnar settu hringekju af stað
Raðsmíðaskip sem smíðuð eru hjá norska fyrirtækinu Vard hafa verið áberandi í endurnýjun skipastólsins á þessu ári. Sérhannað
línuskip, óvenjustór plastbátur og gamall kunningi úr hópi frystitogara koma einnig við sögu.
Ljósmynd/Vard
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Bárður SH er stærsti plastbáturinn í flotanum og er verið að setja búnað um borð. Fyrir aftan Bárð eru skip Gjögurs, Vörður
og Áskell, og þar fyrir aftan húsið sem Hafrannsóknastofnun flytur í á næsta ári, en það er byggt úr timbureingum.
Sjö ný skip til landsins frá sama
framleiðanda á aðeins rúmum
fimm mánuðum hefði einhvern
tímann þótt saga til næsta bæjar.
Upp í hugann kemur koma þýska
flutningaskipsins Wiebke til Hafn-
arfjarðar í júlí 2001. Innanborðs
voru níu systurskip sem smíðuð
höfðu verið í Kína, 21,5 metra
löng, 6,4 metra breið. Útgerðir
víðs vegar um land létu smíða
bátana og gerðu út.
Níu bátar
um borð
Stóru raðsmíðaverkefni íslenskra
útgerða lýkur á morgun en þá er
síðasta systirin, skipið Þinganes
SF, væntanleg til Hornafjaðar.