Morgunblaðið - 20.12.2019, Page 30
30 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 2019
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
F
rystitogarinn Júlíus Geirmundsson ÍS
270 er líklega þekktur víða, einna
helst á Vestfjörðum, en 10. nóvember
síðastliðinn voru liðin þrjátíu ár frá því
að togarinn kom til hafnar á Ísafirði í
fyrsta sinn. Hefur togarinn verið talinn mikið
happaskip enda hefur hann borið að landi 135
þúsund tonn að verðmæti 50 milljarða króna.
Það var árið 1987 sem Gunnvör hf. samdi við
skipasmíðastöðina Gryfia í Stettin í Póllandi
um smíði á skuttogara byggða á teikningu Ís-
firðingsins Bárðar Hafsteinssonar, skipaverk-
fræðings hjá Skipatækni hf. Þá þekktu eigend-
ur Gunnvarar hf. vel til Bárðar, en eitt fyrsta
verkefni hans sem skipaverkfræðings var eftir-
lit með smíði fimm skuttogara fyrir Vestfirð-
inga í Flekkefjord í Noregi á árunum 1971 til
1974.
Á heimasíðu Hraðfrystihússins Gunnvarar
er sagt frá því að strangar reglur hafi gilt um
endurnýjun skipa á Íslandi á þessum tíma og
ekki hafi verið mögulegt að fá veiðileyfi á nýtt
skip nema að taka annað úr rekstri. Þá voru
einnig takmarkanir á stærð nýrra skipa og
máttu ný skip vera þriðjungi stærri en þau
gömlu, en hinn nýi togari var hannaður með til-
liti til þess. Af þessum sökum þurfti Júlíus
Geirmundsson, eldri og sá þriðji, að hverfa úr
rekstri til þess að hægt yrði að fá veiðileyfi fyrir
nýja skipið.
Eldra skipið var selt Síldarvinnslunni hf. í
Neskaupstað og við það hlaut það nafnið Barði
NK 120. Upp í kaupin fékk Gunnvör hf. gamla
Barða NK 120 sem var talsvert minna skip, en
það hafði verið smíðað í Póllandi 1975.
Undir lok kommúnismans
Ákvæði samningsins við Gryfia um smíði nýja
skipsins voru nokkuð frábrugðin því sem hefð-
bundið var á þessum tíma. Var skipasmíðastöð-
inni gert að smíða skrokkinn, en Gunnvör hf.
lagði til mestallan búnað. Ástæða þessa fyrir-
komulags var meðal annars að miklar takmark-
anir voru í gjaldeyrisviðskiptum í Póllandi á
tímum kommúnismans og ekki síst mikið reglu-
fargan. Miklar breytingar á þessu urðu á bygg-
ingartíma skipsins enda hafði Mikhaíl Gorbat-
sjev, leiðtogi Sovétríkjanna, árið 1988 þrýst á
austantjaldslöndin að hrinda í framkvæmd um-
bótastefnurnar glasnost og perestroika.
Þegar smíði skipsins lauk voru aðeins níu
dagar í fall Berlínarmúrsins og 10. nóvember
1989 kom nýr Július Geirmundsson ÍS 270 til
heimahafnar á Ísafirði.
Við hönnun skipsins var gert ráð fyrir að Júl-
íus Geirmundsson yrði ísfisktogari með mögu-
leika á að heilfrysta afla, en á byggingartíman-
um var ákveðið að breyta því í flakafrystiskip.
Vinnslugetu á við sjávarþorp
Hinn 12. nóvember 1989 var fjallað um komu
skipsins til landsins í Morgunblaðinu: „Skipið
hefur vinnslugetu á við lítið sjávarþorp, en við
það starfa einungis 27 menn, 25 um borð og 2 á
skrifstofu í landi. Skipið fer til veiða í næstu
viku, en það á um 1.000 tonna kvóta á þessu ári.
Það var skipasmíðastöð í Stettin í Póllandi sem
smíðaði skipið en Skipatækni hf. hannaði.
Vinnslulínur eru að mestu danskar og þýskar,
en vogir eru frá Pólstækni á Ísafirði. Framleitt
er undir eigin nafni, Júlíus Brand, og selt er
beint á erlenda markaði.“
Var einnig haft eftir Kristjáni Jóhannssyni,
þáverandi útgerðarstjóra skipsins, að það hafi
verið „1.403 brúttótonn eftir nýju mælingunni,
57,5 m á lengd, 12 metra breitt og hefur með-
aldjúpristu upp á 5 metra. Vélin er 3.342 hest-
afla Wártsilá, vindur frá Briisseles, tölvutroll-
stýribúnaður frá Rafboða, frystibúnaður frá
Söby og fiskvinnsluvélar frá Baader.“
Fram kom í umfjöllun Morgunblaðsins að
kaupverð skipsins hafi verið 470 milljónir króna
sem er ígildi 1,7 milljarða króna á núvirði miðað
við verðlagsreiknivél Hagstofu Íslands. Þá var
Hermann Skúlason fyrsti skipstjóri skipsins,
yfirvélstjóri Þorlákur Kjartansson og 1. stýri-
maður Ómar Ellertsson.
Ekki óeðlilegt að þykja vænt um skip
„Auðvitað er hann orðinn gamall, en hann
stendur enn fyrir sínu,“ segir Sveinn Geir Arn-
arsson, núverandi skipstjóri Júlíusar Geir-
mundssonar, og bendir á að talsverðar endur-
bætur hafa verið gerðar á skipinu í gegnum
tíðina. Meðal annars var það í kringum alda-
mótin sem settur var flokkari í skipið, 2018 var
settur nýr autobúnaður frá Naust Marine og
svo var millidekkinu breytt í apríl á þessu ári.
„Við löguðum aðeins til og þetta er allt í rétta
átt.“
Skipstjórinn segir skipið hafa reynst vel og
að ánægjulegt hafi verið að stýra skipinu. Hann
kveðst ekki hafa einhverja sögu af skipinu sem
hann muni sérstaklega enda séu þær orðnar
svo margar í gegnum árin. „Ég er búinn að vera
þarna síðan ’96. Þannig að maður þekkir nú lítið
annað. […] Ég byrja að leysa af sem annar
stýrimaður ’99, 2007 fer ég að leysa af sem
fyrsti stýrimaður og svo er það 2015 sem ég fer
að leysa af sem skipstjóri. Þannig að maður er
búinn að vera með mörgum góðum mönnum
þarna og skemmtilegum karakterum.“
Spurður hvort megi segja að Júlíus Geir-
mundsson sé hálfgerður lífsförunautur svarar
Sveinn Geir því játandi. Þá sé alls ekki óeðlilegt
að byrja að þykja vænt um skip þegar maður
hefur fylgt því í langan tíma, að sögn skipstjór-
ans. „Þetta er manns annað heimili þannig að
manni er ekki alveg sama hvernig er gengið um
skipið. Og auðvitað vill maður hafa alla hluti í
lagi.“
Hann segir togarann vera mikilvægan þátt í
heimabyggðinni enda stór vinnustaður þar til
fjölda ára.
Morgunblaðið/Úlfar Ágústsson
Júlíus Geirmundsson þrjátíu ára
Togarinn, sem smíðaður var í
Póllandi undir lok kommúnism-
ans, þótti með flottustu skip-
um landsins. Kostnaðurinn
nam 470 milljónum króna,
ígildi 1,7 milljarða að núvirði.
Ljósmynd/Sigurður Bergþórsson
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Óhætt er að segja að fyrirtækið sé rótgróið en hraðfrystihúsið í Hnífsdal er 76 ára.
Júlíus var tilbúinn níu dögum
fyrir fall Berlínarmúrsins og
hefur til þessa borið að landi
afla fyrir 50 milljarða.
Nýr togari Gunnvarar hf. vakti
mikla athygli við komu til lands-
ins ekki síst þar sem afkasta-
getan þótti með ólíkindum.