Fréttablaðið - 14.12.2002, Page 14
SAMGÖNGUR „Ef við lítum nokkur ár
aftur í tímann þá má segja að for-
gangsröðun og verkefnaval í vega-
framkvæmdum hafi verið kolröng
að mörgu leyti. Skoðum bara lagn-
ingu bundins slitlags á þjóðveg eitt.
Við hefðum náð miklu meiri hag-
kvæmni með því að taka lengri
samfelldari spotta heldur en að
skipta þessu upp í óteljandi smá-
framkvæmdir hringinn í kringum
landið. En sem betur fer er þessi
hugsunarháttur sé að baki. Menn
eru að átta sig á nauðsyn þess að
stilla saman strengi sína, því fjár-
munirnir eru af skornum
skammti,“ segir Guðmundur Hall-
varðsson, formaður samgöngu-
nefndar Alþingis.
Hann hefur verið ódeigur við að
þrýsta á um framkvæmdir á höfuð-
borgarsvæðinu og nú hillir undir
að af þeim verði.
Tugur stórframkvæmda
Fyrir liggur að ráðist verður í að
minnsta kosti átta til tíu stórfram-
kvæmdir í vegamálum á næstu
tveimur til þremur árum, sem er
óvenju mikið í einu. Flestar eru á
suðvesturhorninu og er áætlaður
kostnaður við þessar framkvæmd-
ir 28 til 30 milljarðar króna. Þar
vega þyngst áform um Sundabraut.
Umhverfismat er væntanlegt í
febrúar en tvær leiðir eru til skoð-
unar, brú yfir Leiruvog eða land-
fylling.
Ríki og borg hafa ekki komið
sér saman um hvor kosturinn verð-
ur fyrir valinu en kostnaður við
fyrsta áfanga er áætlaður á bilinu
6,7 til 9,7 milljarðar króna og heild-
arkostnaður á bilinu 13 til 16 millj-
arðar. Fyrsti áfangi Sundabrautar
kemst vart í gagnið fyrr en um eða
eftir 2008 en með brautinni styttast
vegalengdir frá Vesturlandsvegi á
Kjalarnesi til Reykjavíkur vestan
Elliðaáa.
Reykjanesbraut, jarðgöng og
Suðurstrandarvegur
Upp úr áramótum verður hafist
handa við fyrsta áfanga tvöföldun-
ar Reykjanesbrautar. Í fyrsta
áfanga verða rúmir 8 kílómetrar
tvöfaldaðir og lýkur verkinu í lok
árs 2004. Endanlegri tvöföldun
Reykjanesbrautar lýkur hins veg-
ar ekki fyrr en árið 2010.
Þá verða jarðgöng milli Ólafs-
fjarðar og Siglufjarðar og Reyðar-
fjarðar og Fáskrúðsfjarðar boðin
út á næstunni. Þar er um fram-
kvæmdir upp á tæpa ellefu millj-
arða að ræða og eru verklok áætl-
uð 2005 fyrir austan en 2008 fyrir
norðan. Suðurstrandarvegur milli
Grindavíkur og Þorlákshafnar er í
pípunum en framkvæmdum var
slegið á frest meðan Reykjanes-
braut er tvöfölduð.
Ótalin eru mislæg gatnamót á
mótum Kringlumýrarbrautar og
Miklubrautar og færsla Hring-
brautar. Allir eru sammála um
nauðsyn þessara tveggja fram-
kvæmda en dagsetningar vantar
þó enn á báðar. Og þá er ekki allt
talið, verkefnin eru óþrjótandi
hringinn í kringum landið en fjár-
munir af skornum skammti.
„En það er hins vegar umhugs-
unarefni hve stór hluti af því fjár-
magni sem við þó ætlum til vega-
mála fer til viðhalds á hverju ári.
Við setjum um það bil 12 milljarða
króna í vegasamgöngur á hverju
ári. Þar af fara um 40% í viðhald
vega eða nálægt 4,8 milljörðum
króna. Einungis 7,2 milljarðar eru
til skiptanna í nýframkvæmdir
um allt land. Við getum ekki látið
nýframkvæmdir líða fyrir við-
haldsframkvæmdir og þar er af
nógu að taka. Það er alveg ljóst að
verulegar breytingar hafa orðið á
flutningsmáta, sjóflutningar hafa
dregist saman en landflutningar
aukist að sama skapi. Við verðum
því að hraða uppbyggingu vega-
kerfisins, einkum þjóðvegar núm-
er eitt. Á honum er til dæmis 71
brú sem þarf að tvöfalda eða lag-
færa vegna þungaflutninga og ég
held að menn séu vel meðvitaðir
um þessa þörf. Einnig þurfum við
að horfa á allar tengingar ein-
stakra byggðarlaga við þjóðveg
númer eitt,“ segir Guðmundur.
Átök um skiptingu kökunnar
Nú er í fyrsta sinn lögð fram
heilsteypt áætlun um samræmda
samgönguáætlun sem þýðir að litið
er á heildarmyndina, flugvelli,
hafnir og vegi sem eina heild. Það
gerir að verkum að auðveldara er
að færa fjármuni milli einstakra
samgönguþátta, gerist þess þörf.
„Nú eru til að mynda 700 millj-
ónir króna teknar af svokölluðu
hafnafé og settar í vegafram-
kvæmdir. Það skiptir mjög miklu
máli að allt sé undir í einu og hefur
í för með sér umtalsverða hagræð-
ingu. Hugsunarhátturinn er ger-
breyttur gagnvart samgöngumál-
um og það kemur öllum til góða,“
segir Guðmundur en viðurkennir
að þótt kjördæmapot sé fyrir bí slái
oft í brýnu þegar kemur að skipt-
ingu fjármunanna.
„Það er oft erfitt þegar verið er
að skipta þessari köku. Auðvitað
takast þingmenn á um hana og telja
að sín byggðarlög eða sitt kjör-
dæmi hafi orðið út undan miðað við
önnur. En ég held að það sé þing-
mönnum hollt og nauðsynlegt, hvar
sem þeir kunna að vera til húsa, að
horfa á þá upphæð sem við höfum
til skiptanna og hugsa fyrst og
fremst um það hvar og hvernig við
getum nýtt þessa peninga sem best
til að minnka slysatíðni og auka ör-
yggi. Síðast en ekki síst eiga menn
að horfa á hagkvæmni fram-
kvæmdanna sem ráðist er í.“
Og þótt niðurstaða sé fengin eru
þingmenn ekki alltaf sáttir við
framkvæmdaröðina.
„Nei, nei, menn eru ekki sáttir
og telja að það fari of mikið hingað
á suðvesturhornið. Það er kannski
ekkert óeðlilegt miðað við það
hvernig mál hafa þróast á undan-
förnum árum. En þó menn séu
ósáttir í eðli sínu þá held ég að þeir
séu sáttir í hjarta sínu. Við sjáum
öll hve umferðarþunginn hefur
aukist hér í Reykjavík og nágrenni.
Það verður auðvitað að mæta þessu
með einhverjum hætti.
Ég hefði til dæmis sjálfur viljað
sjá framkvæmdir við tvöföldun
Vesturlandsvegar á undan tvöföld-
un Reykjanesbrautar, þar munar
töluverðu á umferðarþunga.
Reykjanesbrautin er nauðsynlegt
verkefni en við verðum að for-
gangsraða og gera það sem réttast.“
Hafna aukinni skattheimtu
vegna vegabóta
Guðmundur segir að fjármunir
til vegaframkvæmda þyrftu að
vera miklu meiri ef vel ætti að
vera. Hann sér þó ekki fyrir sér að
ökumenn verði látnir bera allan
þungann af stórframkvæmdunum
með brúartollum eða jarðganga-
sköttum.
„Þegar ákvörðun um jarðganga-
gerð var tekin var gert ráð fyrir
því að fjármunir sem fengjust með
sölu ríkiseigna, banka og annarra
eigna, yrðu nýttir til slíkra fram-
kvæmda. Við það verður staðið.
Aukin skattlagning vegna ein-
stakra stórframkvæmda í vega-
málum er að svo komnu máli ekki
inni í myndinni. Hins vegar hafa
menn lengi rætt um hvernig standa
eigi að breytingum á innheimtu
þungaskatts, hvort eigi að inn-
heimta hann með dísilolíu. Það er í
sjálfu sér ekki fráleit hugmynd, þá
greiða menn í samræmi við notkun
á vegakerfinu. En á móti kemur að
landflutningar hafa aukist, mat-
vara og önnur nauðsynjavara er
flutt um þjóðvegina í auknum
mæli. Innheimta þungaskatts
gegnum dísilolíuna myndi leiða til
verulegrar hækkunar á flutnings-
kostnaði og þar með hækkunar á
vöruverði á landsbyggðinni.
Stjórnvöldum er því nokkur vandi
á höndum því öll viljum við standa
vörð um byggðir landsins. Þó við
séum öll sammála um að greiða
skuli skatta og skyldur í samræmi
við notkun þá er þetta langt í frá
auðleyst mál. Það hangir fleira á
spýtunni.“
Næstu brýnu verkefni
Guðmundur þarf ekki langan
umhugsunartíma þegar hann er
spurður um næstu stórverkefni í
vegamálum, segir listann nær
ótæmandi.
„Þegar nauðsynlegum stórfram-
kvæmdum hér á suðvesturhorninu
lýkur og gerð Fáskrúðsfjarðar-
ganga og Héðinsfjarðarganga er
lokið er þörf á stórátaki í styttingu
þjóðvegar númer eitt. Þá þarf
einnig að ljúka jarðgangagerð á
Vestfjörðum, meðal annars milli
Arnarfjarðar og Dýrafjarðar, en
þau eru skilyrði fyrir heilsárssam-
göngum innan landshlutans. Loks
má nefna frekari jarðgangagerð
fyrir austan og undir Vaðlaheiði,
allt í þessari röð.“
the@frettabladid.is
14 14. desember 2002 LAUGARDAGUR
JARÐGÖNG
Reyðarfj.-Fáskrúðsfj. m/vegtengingum
Lengd: 5,3 km
Stytting milli þéttbýlisstaða: 30 km
Umferð: 200-300 bílar á dag
Kostnaður: 3,8 milljarðar
Kostnaður pr. kílómetra: 717 milljónir
Arðsemi: 4-8%
Útboð: desember 2002
Upphaf framkvæmda: apríl 2003
Verklok: lok árs 2005
JARÐGÖNG
Siglufj.-Ólafsfj. m/vegtengingum
a) göng Siglufjörður-Héðinsfjörður
b) göng Héðinsfjörður-Ólafsfjörður
Lengd: 4,0 km og 6,2 km
Stytting milli þéttbýlisstaða: 45 km
Umferð: 350 bílar á dag
Kostnaður: 6,8 milljarðar
Kostnaður pr. kílómetra: 667 milljónir
Arðsemi: 14,5%
Útboð: febrúar 2003
Upphaf framkvæmda: 2004
Verklok: 2008
SUÐURSTRANDARVEGUR
Grindavík-Þorlákshöfn
Lengd: 58 kílómetrar
Stytting milli þéttbýlisstaða: 15-16 km
Umferð: óvíst
Kostnaður: 1,0 milljarður
Kostnaður pr. kílómetra: 17,2 milljónir
– Framkvæmdum frestað meðan unn-
ið er að tvöföldun Reykjanesbrautar
REYKJANESBRAUT
- Tvöföldun Reykjanesbær-Hafnarfj.
1. áfangi Hvassahraun að Strandarheiði
Lengd samtals: 24 kílómetrar
- 1. áfangi: 8,1 kílómetrar
Umferð: 7.000 bílar á dag
Kostnaður samtals: 6-7 milljarðar
- 1. áfangi: 850 milljónir
Kostnaður pr. km: 250-290 milljónir
- 1. áfangi: 105 milljónir
Upphaf framkvæmda:
- 1. áfangi: janúar 2003
Verklok allra áfanga: 2010
- 1. áfangi: 1. nóvember 2004
KRINGLUMÝRARBRAUT –
MIKLABRAUT
- mislæg gatnamót
Umferð: 80.000 bílar á dag
Kostnaður: 1,5 milljarðar
Arðsemi: ómæld
Útboð: ?
Upphaf framkvæmda: ?
Verklok: ?
- Einn milljarður hefur um skeið verið
ætlaður til undirbúnings framkvæmda.
- Ekki liggur enn fyrir ákvörðun
borgaryfirvalda um framkvæmdir.
- Má í fyrsta lagi búast við fram-
kvæmdalokum um áramót 2005/2006.
HRINGBRAUT
- færsla vegar og stokkur
Umferð: 80.000 bílar á dag
Kostnaður: 2,8 milljarðar
Arðsemi: ómæld
Útboð: ?
Upphaf framkvæmda: ?
Verklok: ?
- Sameiginleg ákvörðun Reykjavíkur,
ríkis og Ríkisspítala.
- Ekki liggur enn fyrir nein ákvörðun
um framkvæmdir.
Vönduð
karlmannsúr
LAUGAVEGI 15 • Sími 511 1900
www.michelsen.biz
Kíktu á úrvalið á
Vitlaus forgangsröð
í allt of langan tíma
Formaður samgöngunefndar Alþingis segir hugsunarhátt gagnvart samgöngumálum nú allt annan en áður,
kjördæmapot sé fyrir bí og forgangsröðun verkefna önnur. Á næstunni verður ráðist í óvenju margar stórfram-
kvæmdir í vegamálum. Tvenn jarðgöng eru á teikniborðinu og skammt er í að ráðist verði í tugmilljarða
samgöngubætur, flestar í og kringum Reykjavík.
SUNDABRAUT
1.áfangi – Þverun Kleppsvíkur frá Sæbraut
ásamt tengingu Hallsvegar að Strandvegi
1. áfangi Öll framkvæmdin
Leið 1 – Hábrú á Kleppsvík 9,7 milljarðar 16,2 milljarðar
Leið 3 – Landfyllingar + stokkur frá Sæbraut 6,7 milljarðar 13,2 milljarðar
Arðsemi Leið 1 10,0%
Arðsemi Leið 3 14,0%
- Umhverfismat væntanlegt í febrúar 2003.
- Þegar ríki og Reykjavíkurborg hafa komið sér saman
um leið og tekið ákvörðun tekur undibúningur u.þ.b. 2 ár.
- Framkvæmdir við 1. áfanga taka 2 ár.
- Í fyrsta lagi hægt að taka 1. áfanga í notkun árið 2008.
GUÐMUNDUR HALLVARÐSSON
Formaður samgöngunefndar segir
umhugsunarefni að 40% af því fjármagni
sem ætlað er til vegamála
fari til viðhalds á hverju ári.
Leðursófasett
með tveimur
hægindastólum
á 350.000 kr.
20-50% afsláttur
af öðrum vörum.
Mikið úrval.
MiCasa • Síðumúla 13 sími 588 5108
Jólaútsala