Fréttablaðið - 14.12.2002, Blaðsíða 30
MATUR „Það er nú ekkert sérstakt í
mataræði fjölskyldunnar nema ef
vera skyldi mín persónulega sér-
viska,“ segir Guðmundur Andri
Thorsson rithöfundur. „Ég hef
nefnilega þann sið að borða aldrei
morgunmat, og helst ekkert fram
eftir degi. En svo borða ég vel í
kvöldmatnum og gjarnan eitthvað
aftur fyrir svefninn.“
Þegar blaðamaður spyr hik-
andi hvor hann sé ekki örugglega
að grínast, segist hann gallharður
á þessu. Nema hvað hann sé að-
eins farinn að linast í miðnætur-
snarlinu. „Áður var ég liðtækur í
mjólkinni og kexinu fyrir svefn-
inn, nú er það meira brauð og
álegg. En ég eftir að ég fullorðn-
aðist steinhætti ég að borða morg-
unmat, minnugur þess hvað ég
kúgaðist alltaf yfir súrmjólkinni.“
Guðmundur Andri segir hann
og konu sína, Ingibjörgu Eyþórs-
dóttur, leggja mikið upp úr kvöld-
matnum. „Við reynum að leggja
áherslu á að kvöldmaturinn sé
stund fyrir fjölskylduna, heilög
stund, þó sjónvarpsstöðvarnar
séu mikið að reyna að fá okkur til
að leggja þetta niður og horfa
frekar á sjónvarpið. En við stönd-
um fast á því að öll fjölskyldan
sitji saman við borðið klukkan sjö,
matist og spjalli saman.“
Guðmundur og Ingibjörg eiga
tvær dætur, Svandísi Roshni, 7
ára, og Sólrúnu Lízu, 3 ára. „Þær
fá auðvitað morgunmat, morgun-
verðarfælnin gildir bara um sjálf-
an mig,“ segir Guðmundur Andri.
„Maturinn er svo yfirleitt með
hefðbundum hætti. Við reynum að
dreifa þessu svo við fáum alla al-
menna næringu, kjöt, fisk, græn-
meti og jafnvel pasta, sem er
mjög þægilegur matur. Og þá
verð ég eiginlega að monta mig
aðeins af mömmu, Margréti Ind-
riðadóttur, því hún var fyrsta kon-
an á íslandi sem eldaði spaghetti
bolognese. Venjan var að sletta
bara tómatsósu á spaghettíið, en
mamma bjó sko til alvöru kjöt-
sósu.“
Guðmundur Andri líkir elda-
mennskunni á kvöldin við jóga-
upplifun. „Mér finnst ofsalega
gott þegar ég kem heim úr vinn-
unni á kvöldin að vera í eldhúsinu
við matseld og hlusta á kvöldfrétt-
irnar og Spegilinn. Það er hreint
frábært, næstum eins og jóga.“
Guðmundur Andri býður les-
endum upp á gómsætan indversk-
an kjúklingarétt.
edda@frettabladid.is
30 14. desember 2002 LAUGARDAGUR
MINN STÍLL
SKÓR
Ég er í bestu skóm í
heimi, þeir eru úr búð-
inni 38 þrep. Þetta eru
mjög vandaðir og góðir
skór og mjög þægilegir.
Þeir minna dálítið á
Húsið á sléttunni hvað
varðar útlitið.
SKYRTA
Ég er í dökkblárri stutt-
ermaskyrtu. Hún er ör-
lítið gegnsæ svo ég
verð að vera í svörtum
stuttermabol undir
henni. Þannig líður mér
betur í skyrtunni.
ÚR
Ég er með
Continental-úr sem
lítur út eins og kafara-
úr. Það var sérstak-
lega keypt í þung-
lyndiskasti til þess að
öðlast hamingju.
FRAKKI
Þetta er ullarfrakki
sem ég keypti mér
nýverið í Prag. Hann
nær niður á læri
með örlitlu sixties-
sniði og í honum
finnst mér að ég
eigi heiminn. Fyrir
nú utan það hvað
hann er hlýr og
góður.
BUXUR
Buxurnar eru beislitaðar
og beinar niður. Þetta
eru sömu buxurnar og
ég var í þegar ég horfði
á eigur mínar brenna
um daginn á Laugarveg-
inum. Það er einmitt
ástæðan fyrir því að ég
er í þessum buxum.
Flott ...
LAUGAVEGI 15 • Sími 511 1900
www.michelsen.biz
Kíktu á úrvalið á
HEILÖG STUND
Guðmundur Andri Thorsson, Ingibjörg Ey-
þórsdóttir, Svandís Roshni og Sólrún Líza.
Fjölskyldan safnast alltaf saman við kvöld-
verðarborðið klukkan sjö og spjallar.
Sérviska Guðmundar Andra Thorssonar er það eina óvenjulega í matarvenjum fjölskyldunnar.
Þessi stórfenglegi kjúklinga-réttur er ættaður frá ind-
versku leik- og matkonunni Mad-
hur Jaffrey en hún hefur réttinn
einhvers staðar úr uppsveitum
Hyderabad-héraðs. Indverjar eru
ósparir á hvítlauk og salt. Athug-
ið að hér á eftir eru ekki prent-
villur. Og í öllum bænum notið
ferskt dill en ekki þurrkað.
1 1/2 kg af kjúklingi
2 1/2 cm engifer-kubbur
8-10 hvítlauksrif
1 tsk. túrmerik
6 msk. grænmetisolía
3 stórir laukar, skornir fyrst langs-
um og svo í hálfhringi
300 ml hrein jógúrt
1 1/2 tsk. salt
1 bolli/250 ml ferskt kóríander
6 grænir chili-piprar, gróft skornir
1 bolli/250 ml ferskt dill
Hlutið niður kjúklinginn og fjar-
lægið skinn og fitu; skerið bringur
í tvennt og læri frá leggjum. Setj-
ið engifer, hvítlauk og túrmerik
ásamt 125 ml af vatni í mat-
vinnsluvél eða blandara og bland-
ið vel. Steikið laukinn í olíunni á
víðri pönnu þar til hann er farinn
að brúnast svolítið út til hliðanna.
Setjið síðan kjúklingabitana út í
og látið þá steikjast þar til þeir
hafa líka tekið á sig gullinn lit með
brúnum skellum. Hrærið á meðan.
Bætið engifer- og hvítlauksgums-
inu út í þetta, hrærið og látið
malla í tíu mínútur, þar til blandan
er farin ögn að brúnast. Setjið nú
jógúrtina út í og saltið. Hrærið og
skrapið upp það sem kann að hafa
fest við pönnuna. Látið suðuna
koma upp og réttinn malla við
vægan hita undir loki í um fimmt-
án mínútur. Á meðan skuluð þið
setja kóríanderið og chili-piprana
í matvinnsluvél eða blandara með
125 ml af vatni og blanda. Þegar
kjúklingurinn hefur soðið í fimmt-
án mínútur skuluð þið taka lokið
af pönnunni og hækka undir matn-
um til að láta hann sjóða ögn nið-
ur. Skellið síðan út í kóríander og
chili-blöndunni ásamt niðurskornu
dillinu. Látið malla í fimm mínút-
ur og takið svo af eldavélinni og
látið rjúka úr matnum svo hann sé
ekki of heitur. Skemmtilegast er
að borða svona mat með puttunum
og einhverjum grænmetisrétti en
við skulum láta nægja í bili að
mæla með að borið sé fram með
hrísgrjónum, hreinu jógúrti og
naanbrauði. Sjálfum finnst mér
kaldur bjór bestur með indversk-
um mat en sjálfsagt er líka að
benda fólki á að drekka Lassi, ind-
verskan jógúrtdrykk sem samsett-
ur er úr 125 ml af hreinni jógúrt,
300 ml af ísköldu vatni, hálfri
teskeið af steyttu og ristuðu
kúmíni (sem er annað en kúmen!),
1/4 teskeið salti og 1/4 teskeið
þurrkaðri mintu og allt er þetta
sett í blandara og búinn til drykk-
ur. ■
Græni kjúklingurinn hennar frú Matur
Agnar Jón Egilsson, leikari og leikskáld, vakti mikla athygli á síð-
asta ári fyrir leikritið Lykill um hálsinn, sem hann samdi og leikstýrði. Þessa
dagana hefur hann í nógu að snúast, enda annar tveggja leikstjóra í verkinu
Rómeó og Júlía, sem nú er sýnt í Borgarleikhúsinu. Fyrir stuttu síðan missti
hann allar eigur sínar í bruna á Laugaveginum og á því fátt annað en fötin
sem hann klæddist þegar húsið brann.
Frábærar gjafavörur frá
Austurlöndum fjær á gjafverði
í Bæjarlind 1-3, Kópavogi
CAPTAIN THAI
Eldamennskan eins og jóga