Fréttablaðið - 14.12.2002, Page 34
34 14. desember 2002 LAUGARDAGUR
kl. 2 og 4LIKE MIKE kl. 2, 4, 6, 8 og 10
Sýnd kl. 2, 5, 6, 8, 9, 11 og 12.15
Sýnd í lúxus kl. 4, 7 og 10 Sýnd kl. 3, 5.30, 8, 10.10 og 12.15
kl. 8 og 10.05POSSESSION
SANTA CLAUSE 1.45, 3.50, 5.55, 8, 10.10
Sýnd kl. 6, 8 og 10
Sýnd kl. 2, 5 og 8
THE TUXEDO kl. 8 VIT474 SWEET HOME ALABAMA 2, 4, 6
VIT
461
LILO OG STITCH/ísl.tal kl. 2 og 4 VIT429
SANTA CLAUS 1.40, 3.40, 5.50, 8, 10.10 VIT485
CHANGING LANES kl. 10.10 VIT479
Sýnd kl. 2, 6 og 9.15 VIT 469
kl. 2LILO OG STITCH/ísl.tal
kl. 10.05DAS EXPERIMENT
kl. 2 og 4Í SKÓM DREKANS
kl. 3.45, 5.50 og 8HAFIÐ
FÓLK Brynjólfi Kristinssyni, vakt-
manni á Hlemmi, var boðið á frum-
sýningu heimildarmyndar Ólafs
Sveinssonar, „Hlemmur“, á
fimmtudag. Þó að hann hafi ekki
verið kominn til starfa við gerð
myndarinnar fannst honum vel far-
ið með efnið og segir hana gefa
raunsæja mynd af tilveru sem
hann upplifir á hverjum degi. Þeg-
ar blaðamaður heimsótti hann á
Hlemm var nef hans brákað og
bólgið eftir átök við ungling sem
hann þurfti að hafa afskipti af deg-
inum áður.
„Unglingarnir eru eiginlega
verstir við að eiga hérna,“ segir
Brynjólfur, sem segist hafa lent í
ýmsu í störfum sínum. „Ég ætlaði
að vísa þessum dreng út og hann
var ósáttur við það. Unglingunum
fylgja oft eiturlyfjavandamál.
Miklu frekar en þessum „rónum“.
Þeir þekkja mikið frekar sín tak-
mörk. Við verðum samt að ýta við
þeim, þannig að þeir séu ekki að
hanga hérna of lengi.“
Þar sem myndin var tekin fyrir
tveimur árum er ekkert farið í ung-
lingavandamálið á Hlemmi.
Brynjólfur segir til dæmis að pilt-
urinn sem hafi veitt honum
áverkann hafi verið nappaður
inni á klósetti tveimur tímum síð-
ar þar sem hann hafi verið að
sprauta sig ásamt tveimur félög-
um sínum. Hann segir það ekki al-
gengt, þó að það komi annað slag-
ið fyrir, að gestir neyti eiturlyfja
á Hlemmi.
Brynjólfur segir að leitað hafi
verið til Öryggisgæslu Íslands til
þess að svara þessu vaxandi
vandamáli og sér hún núna um
gæslu á Hlemmi eftir kl. 16 á dag-
inn. „Þeir eru betur í stakk búnir
til þess að sinna svoleiðis. Þeir
geta kallað á aðstoðarfólk sem
mætir strax ef eitthvað kemur
upp á. Því þó að lögreglan sé
hérna hinum megin við götuna þá
höfum við oft þurft að bíða í 2-3
tíma eftir því að hún mæti.“
Brynjólfur vill þó taka fram að
þetta eigi aðeins við um lítið brot
af þeirri mannflóru sem heim-
sækir Hlemm á hverjum degi.
Hann er orðinn málkunnugur
mörgum af þeim 20-30 einstak-
lingum sem geta talist til „fasta-
gesta“ staðarins og kallar marga
þeirra góðkunningja eða vini. „Ég
var nú að frétta af einum sem var
að deyja núna í fyrrakvöld. Ég
sakna hans þó nokkuð,“ segir
Brynjólfur og er auðsjáanlega
hrærður. „Hann kom hingað alltaf
á vissum tímum og fékk sér kaffi.
Hann var kallaður Dalli dómari
og var mjög góður maður.“
biggi@frettabladid.is
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 9.15 VIT 468 Sýnd kl. 6, 8 og 10.10 VIT 487
MASTER OF DISGUISE
Milli 20 og 30 fasta-
gestir á Hlemmi
Á fimmtudag var heimildarmyndin Hlemmur frumsýnd. Brynjólfur Kristinsson
hefur verið vaktmaður á Hlemmi í 2 ár og segir hana gefa raunsanna mynd af
þeirri mannflóru sem þar gefur að líta.
BRYNJÓLFUR KRISTINSSON
Brynjólfur segir að Hlemmur geti á köflum verið hættulegur. „Ég lenti einu sinni í því að
hingað labbaði inn maður sem réðst beint á næsta mann og lamdi hann. Ég reyndi að
tala við hann og var sem betur fer snöggur að víkja mér undan því hann kýldi í átt til mín
en hitti dyrakarminn. Ég held að hann hafi brotið á sér höndina. Stuttu síðar frétti ég að
þessi drengur hefði verið að koma beint af Hrauninu.“
Glæsileg tónlist!
1. ÚTGÁFA
UPPSELD!
2. ÚTGÁFA
KOMIN Í VERSLANIR
Tónleikar á vegum
Pars Pro Toto í Borgar-
leikhúsinu í kvöld kl. 20.00
Rússíbanar – Cyrano
tónlist eftir
Hjálmar H. Ragnarsson
FRÉTTIR AF FÓLKI
Framleiðslufyrirtæki leikaransNicolas Cage ákvað að ná laga-
sáttum við sjónvarpsþáttahöfund
sem kærði það fyrir ritstuld. Mað-
urinn hélt því
fram að höfundur
kvikmyndahand-
rits myndarinnar
„Sonny“, sem er
leikstjórnar-
frumraun Cage,
hafi stolið af sér
hugmyndinni. Höf-
undurinn hafði
verið nemi hjá sjónvarpsþáttahöf-
undinum á níunda áratuginum og
gat fyrrum kennarinn borið fram
ýmsar sannanir þess að fyrrum
nemandi sinn hefði stolið hug-
myndinni. Hann náði að minnsta
kosti að fullvissa framleiðslufyrir-
tæki Cage og því var brugðið á
það ráð að borga manninum væna
fjárupphæð.
Rokkekkjan Courtney Love hót-ar nú að lögsækja slúðurvef-
síðu sem birti lista yfir þau lyf
sem læknir henn-
ar skrifaði út fyrir
hana. Þar kom
meðal annars
fram að Love not-
aði mikið af deyfi-
lyfjum á borð við
vicódín, demeról
og xanax. Þó að
hún hafi hvergi
verið nefnd á nafn á listanum var
þó gefið sterklega í skyn að um
hana væri að ræða. Til dæmis tal-
að um „Frú C.L. sem væri í rokk-
Lífið getur verið yndislegt.Þegar ég var alveg viss um
það að fátt merkilegt væri að
gerast í breskri rokktónlist um
þessar mundir, og að allt snerist
um að halda í Bítlahefðina, mæta
á svæðið ungir menn sem eru
hreinlega að springa úr greddu.
Breska rokksveitin The Music
nær alla leið með samnefndri
frumraun sinni. Þeir hafa valið
sér svipaðan farveg og sveitirnar
Ride, The Stone Roses, The
Verve og jafnvel Led Zeppelin en
ná einhvern veginn að gera það
með slíku sakleysi og ungæðis-
krafti að ómögulegt er að heillast
ekki með.
Þeir virðast líka staðráðnir í
því að skemmta hlustandanum í
leiðinni og auðvelt er að ímynda
sér að sveitin sé afbragð áheyrn-
ar á tónleikum.
Þótt aðall sveitarinnar sé
vissulega lifandi spilamennska
eru þeir ekkert smeykir við að
nýta sér nýjustu tækni og vísindi
þegar það á vel við. Fyrir vikið
má heyra svipaðar tilraunir og
Curver gerði með Mínus á „Jesus
Christ Bobby!“. Svo minnir
söngvarinn um margt á Cedric úr
At the Drive-in, og það er ekki
leiðum að líkjast!
Uppáhaldslög voru „Take the
Long Road and Walk It“,
„Getaway“ og „Human“.
Aldrei missa trú á æskunni.
Hún kemur alltaf til með að slá
okkur reglulega utanundir. Sem
betur fer.
Birgir Örn Steinarsson
Guð blessi æskuna!
THE MUSIC:
The Music