Fréttablaðið - 14.12.2002, Síða 35
35LAUGARDAGUR 14. desember 2002
SÍMI 553 2075
RED DRAGON kl. 4, 6, 8 og 10Sýnd kl. 6, 8 og 10
Sýnd kl. 4.30, 7 og 10 b.i. 12 áraSýnd kl. 5, 7, 9 og 11 VIT 487
Kl. 12.40, 2,40, 4.45, 6.50, 9, 11.10 VIT 485
HARRY POTTER 1, 2, 4, 7 og 10 VIT468 ASH WEDNESDAY kl. 10.30
SWIMFAN kl. 6, 8 og 10
IMP. OF BEING EARNEST kl. 6 og 8
Sýnd kl. 5.30, 8.30 og 11.10 bi. 12 ára
hljómsveit og hefði verið gift
rokkaranum herra C, sem nú væri
dáinn“. Þetta fór að minnsta kosti
það mikið fyrir brjóstið á Love að
hún leitaði til lögfræðinga sinna til
þess að athuga rétt sinn í málinu.
Klámfyrirtæki sem kom eintök-um af kynlífsspólu Pamelu
Anderson og fyrrum eiginmanns
hennar Tommy
Lee í almenna
dreifingu hefur
verið skipað að
borga þeim 1,5
milljónir dollara í
skaðabætur. Það
er kannski ekki
svo ýkja mikið í
ljósi þess spólan
er söluhæsta klámspóla frá upp-
hafi.
Fjórir hjálmar sem notaðir voruvið gerð fyrstu Stjörnustríðs-
myndarinnar, kafla 4 frá 1977,
verða seldir á upp-
boði í London í
næstu viku.
Hjálmarnir eru
allir af mismun-
andi gerð. Einn er
af Stormtrooper
gerðinni, fót-
gönguliðum í her
keisarans, einn af
flugsveit keisarans, einn af tækni-
manni dauðastjörnunnar og einn
af uppreisnarmanni. Búist er við
því að hver og einn hjálmur seljist
fyrir meira en 130 þúsund krónur.
MOBY
Á heimasíðu sinni gefur Moby í skyn að
líkamsárásin hafi verið fyrir fram ákveðin.
Moby:
Á spítala
eftir líkams-
árás
FÓLK Tónlistarmaðurinn Moby end-
aði á spítala eftir að ráðist var á
hann úti á götu í Boston.
Hann var nýkominn út af tón-
leikum í borginni þegar hann var
stöðvaður fyrir utan hótel sitt af
aðdáendum sem vildu eiginhandar-
áritun hans. Þá kom aftan að hon-
um hettuklæddur maður og réðst á
hann. Maðurinn kýldi hann
nokkrum sinnum í höfuðið og braut
gleraugu hans. Annar maður réðst
á dyravörð með piparúða.
Moby fékk skurði á andlit sem
þurfti að sauma. Á heimasíðu sinni
sagði hann meðal annars: „Nú sit
ég hérna alblóðugur og barinn og
bíð þess að fylla út lögreglu-
skýrslu. Ég er mjög forvitinn að
vita af hverju þessir menn hafi vilj-
andi ákveðið að ráðast á mig? Ég er
varla mjög líkamlega ógnandi ein-
staklingur.“ ■