Fréttablaðið - 14.12.2002, Qupperneq 39
Magaþjálfinn
Þjálfun án fyrirhafnar
Einföld og fljótleg leið til að fá stinnari og
sléttari magavöðva.
Á þessu frábæra þjálfunarbelti
eru 6 stillingar.
5.989
almennt verð
á
magaþjálfa 19
.900kr
kr
Kynningar á tækinu verða
laugardag og sunnudag
frá kl: 1200 -1700 í Hagkaupum
Kringlunni, Skeifunni og Smáralind.
Verðsprengja
Magaþjálfinn fæst í Hagkaupum
Smáralind, Skeifu, Kringlu og á Akureyri.
Ragnar Sólberg, söngvari oglagahöfundur í hljómsveitinni
Sign, fékk jólagjöf í fyrra sem var
honum mikils virði. „Ég fékk
Kiss-box með fimm geisladiskum,
bæði áður útgefið og óútgefið efni
og bók fylgdi. Það var meirihátt-
ar,“ segir Ragnar og viðurkennir
fúslega að þeir félagar í Sign sæki
sína fyrirmynd í Kiss. „Ég hef
náttúrulega alist upp með þá á
veggnum frá því ég var þriggja
ára, þeir eru í æðunum.“
Ragnar segist vera sannkallað
jólabarn. „Ég á afmæli 2. desem-
ber og fer alltaf í jólaskap fljót-
lega upp úr því. Þá förum við á
Hard Rock öll fjölskyldan og
borðum og þar með er ég kominn
í jólastuð.“
Ragnar segist ekki byrjaður að
skreyta en hann muni gera það
bráðlega. „Nei,“ segir hann. „Það
eru ekki beint jólasveinar í bland
við Kiss, en ég á jólamynd með
hljómsveitinni. Hún er ekki uppi
árið um kring heldur er svona
jóla-spari. Svo á ég líka Kiss-
jólakúlu sem fer auðvitað upp á
næstu dögum.“
Á Þorláksmessu borðar rokk-
arinn ungi skötu með öllu tilheyr-
andi. „Ég er tiltölulega nýbyrjað-
ur að borða skötuna, en finnst hún
þrælgóð eftir að ég komst upp á
bragðið,“ segir Ragnar hress að
lokum ■
Alinn upp með
Kiss á veggnum
Ragnar Sólberg í Sign er heilmikill jólastrákur
og er alltaf kominn í jólastuð í byrjun desember.
LAUGARDAGUR 14. desember 2002
EFTIRMINNILEGASTA
jólagjöfin