Fréttablaðið - 14.12.2002, Side 44
44 14. desember 2002 LAUGARDAGUR
Útgáfutónleikar í kvöld!
Í kvöld kl. 20 í Austurbæ, Snorrabraut.
Miðasala í verslunum Skífunnar. Miðaverð aðeins 2.000 kr.
Hljóðfæraleikarar:
Óskar Einarsson - hljómborð
Gunnlaugur Briem - trommur
Jóhann Ásmundsson - bassi
Guðmundur Péturssoon - gítar
Þórir Baldursson - orgel
Sigurður Flosason - saxófónn, flauta, slagverk
Kjartan Hákonarson - trompet
Páll Rósinkranz
- Nobody Knows,
fæst í verslunum Skífunnar
aðeins 1.899 kr.
LAUGAVEGI 15 • Sími 511 1900
www.michelsen.biz
Kíktu á úrvalið á
Stórglæsilegir
skartgripir
Ídag er upplagt að vera heimavið og reyna að koma að ein-
hverjum af þeim verkum sem
setið hafa á hakanum undanfarna
daga. Ekki er seinna vænna að
fara að hefjast handa við jóla-
hreingerninguna og ef tími
vinnst til má skella í eina
smákökuuppskrift eða jafnvel
enska jólaköku þegar maður hef-
ur fengið nóg af sápuvatni og
gúmmíhönskum. ■
JÓLAMATURINN MINN
JÓLAMATUR „Jólin eru frið-
arhátíð og þess vegna er
mjög heppilegt að borða
jurtafæði einmitt á jólun-
um. Þá er ekki búið að
drepa neinn eða neitt,“
segir Spessi ljósmyndari,
sem ætlar að kokka í nafni
friðar á Næstu grösum í
kvöld.
Fyrir átta árum rak
Gunnhildur Emilsdóttir
veitingastaðinn og þá kom
sú hugmynd upp að Spessi
eldaði jólamatinn á sama
hátt og heima hjá sér.
Hefðinni hefur verið viðhaldið
síðan. „Þetta er í áttunda
skipti sem ég elda jólamat
á Næstu grösum í nafni
friðar. Ég er búinn að vera
jurtaæta í 22 ár; ekki af
heilsufarsástæðum heldur
út af því að mér finnst það
vera rétt gagnvart dýrun-
um og lífinu í heild sinni.“
Spessi segir að ýmsir
kostir fylgi því að vera
jurtaæta, til að mynda sé
hann laus við sóðaskapinn
sem fylgi því að elda kjöt:
„Eldhúsið verður allt löðr-
andi í dýrafitu, bakaraofn-
ar þaktir allsherjar fitu og það
kemur vond lykt í húsið. Að auki
væri helmingi ódýrara fyrir
mannkynið að lifa á jurtafæði því
jurtaætan sleppir einum hlekk.
Hún setur niður fræ og borðar af-
urðina á meðan kjötætan setur
niður fræ, lætur dýrið éta afurð-
ina og étur svo sjálf dýrið. Jafn-
framt þarf mun stærra landsvæði
fyrir sláturgripi á beit en til þess
að rækta jurtir.“
Jólaveisla Spessa verður æði
fjörug, létt djasssveifla mun svífa
yfir borðhaldinu og ýmsir
skemmtikraftar ætla að halda
uppi sönnum jólaanda. Gleðin
hefst klukkan 18. ■
Spessi eldar jólamat á Næstu grösum í kvöld
Jurtafæði á jólunum
SPESSI
Býður upp á
hnetuhleif með
villisveppasósu,
sætum kartöflum
og steinseljurót.
JÓLASTEMNING
JÓLIN KOMA Á ALÞINGI
Jólatréð í Alþingishúsinu er fagurlega
skreytt og til þess fallið að gleðja starfs-
menn hússins.
10 DAGAR TIL JÓLA
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/IN
G
Ó
Hamborgar-
hryggur
enginn uppá-
haldsmatur
„Það er nú ekki ákveðið hvað
verður í matinn, ég býst þó við að
það verði lambahryggur,“ segir
Heimir Már Pét-
ursson, upplýs-
ingafulltrúi
Flugmálastjórn-
ar. Hvað hefðirn-
ar varðar segist
hann hafa borð-
að hjá foreldrum
og tengdafor-
eldrum í gegn-
um tíðina og
fengið þar svína-
hamborgar-
hrygg. „Það er nú samt enginn
sérstakur uppáhaldsmatur, þan-
nig að nú þegar ég er heima hjá
mér borða ég bara lamb,“ segir
Heimir, sem ekki gerir mikið
veður út af jólunum en segist þó
njóta þeirra vel.
Jólaskraut:
Toppar
á jólatré
Áður fyrr voru flestir með jóla-
stjörnu eða gyllta strýtu á toppi
jólatrésins í stofunni en nú hefur
fjölbreytnin á þessu sviði aukist
nokkuð. Ýmis tilbrigði við stjörn-
una hafa komið á markað og
strýturnar fást nú í ýmsum litum.
Englar eru alltaf að verða vin-
sælli sem jólatréstoppar og nú er
sums staðar hægt að fá heilagan
Nikulás í fullum skrúða til að
kóróna tréð. Einnig hefur færst í
aukana að fólk fari sínar eigin
leiðir og útbúi sjálft skrautið á
jólatréð og þá auðvitað toppa í
sama stíl.
HEIMIR MÁR
PÉTURSSON
Vill frekar lamb en
svín.