Fréttablaðið - 14.12.2002, Síða 46
46 14. desember 2002 LAUGARDAGUR
ÓKEYPIS
Taka fólk tali. Heilsa því meðhandabandi. Smella jafnvel
kossi. Á förnum vegi. Góð saga í
samtali tveggja þarf ekki að vera
löng. Handabandið skapar ná-
lægð. Kossinn veitir nauðsynlega
snertingu. Kostar ekki neitt. Bæt-
ir lífið – ókeypis.
Fimmti heið-
ursfélaginn
VIÐURKENNING Gísli Halldórsson
arkitekt var kjörinn heiðursfé-
lagi í Arkitektafélagi Íslands á
aðalfundi þess í nóvember.
Heiðursfélagana má telja á
fingrum annarrar handar en
Gísli er sá fimmti í 60 ára sögu
félagsins. „Það er sérstök ánæg-
ja að fá slíka viðurkenningu frá
starfsfélögum sínum og ég met
það mikils,“ segir Gísli, sem
starfaði sem arkitekt í rúm 60
ár. „Ég opnaði fyrstu stofuna
þann 1. desember 1940 og stóð í
slíkum rekstri fram að aldamót-
um.“
Gísli fæddist á Kjalarnesi
þann 12. ágúst 1914 og er því
orðinn 88 ára gamall. Hann er
einn afkastamesti arkitekt
landsins og hefur látið að sér
kveða í félagsmálum arkitekta
og á opinberum vettvangi á sviði
íþrótta- og stjórnmála um ára-
tuga skeið. „Ég er þó farinn að
draga mig í hlé og tek því rólega
en ég hitti félaga mína ennþá og
rabba um daginn og veginn og
fagið.“
Gísli sat í borgarstjórn
Reykjavíkur fyrir hönd Sjálf-
stæðisflokksins í 20 ár og gegndi
embætti forseta borgarstjórnar
á síðasta kjörtímabili sínu. „Ég
var í borgarstjórn á mínum bestu
árum og sinnti mest skipulags-
málum og íþróttum. Það var
ágætt að geta komið áhugamál-
unum þarna inn.“ Gísli var ekki
síður virkur innan íþróttahreyf-
ingarinnar en hann var í Ólymp-
íunefnd Íslands í 41 ár og þar af
formaður hennar í 21 ár. Hann
var einnig forseti ÍSÍ í 18 ár frá
1962-1980.
Meðal verkefnalista stofu
Gísla má nefna Íþróttahús Há-
skóla Íslands, sem hann vann
með Sigvalda Thordarson,
íþróttaleikvanginn í Laugardal,
Hótel Loftleiði, Hótel Esju, íbúð-
arhús sitt við Tómasarhaga 31,
Lögreglustöðina og Tollstöðina.
Honum er afar hlýtt til Tollstöðv-
arbyggingarinnar. „Það var mik-
ið gleðiefni að við fengum að
skreyta húsið með myndarlegu
listaverki eftir Gerði Helgadótt-
ur. Það tók langan tíma að fá það
í gegn og verkið kom ekki upp
fyrr en tveimur árum eftir að
húsið var klárað. Ég geymdi
þetta pláss alltaf fyrir listaverk
og naut þess að tollstjórinn var
áhugasamur um að skreyta húsið
og lagði til hluta af þeim miklu
peningum sem hann innheimti í
þá daga.“ ■
TÍMAMÓT
Lítil vinkona mín, tæpra 3 ára,sem þá bjó á Raufarhöfn, hafði
komið að máli við mig vegna þess
að hana vanhagaði um ýmsan varn-
ing. Til dæmis Baby Born hús,
Baby Born gluggatjöld, Baby Born
potta og Baby Born mat. Þetta var
meira en hægt var að standast, þan-
nig að norður fór pakki með Baby
Born dóti. Einhverjum dögum sein-
na hringdi síminn.
„Hæ! Þetta er Bryndís,“ sagði
hún skýrmælt miðað við aldur. „Sæl
elskan mín“, sagði ég. „Hvað segir
þú í fréttum?“ „Allt gott.“ Síðan
kom þögn. Svo sagði hún allt í einu.
„Sjáðu hvað ég get.“
Í kjölfarið heyrðist í símanum
brölt, vafstur og sífellt hraðari and-
ardráttur barnsins, sem varði í dá-
góða stund.
„Sástu hvað ég gat,“ segir hún
svo. „Nei, Bryndís mín, ég sé ekki
neitt.“
Aftur heyrðust skruðningar og
dynkur þegar síminn datt í gólfið,
og más í krakkanum.
„Hvað ertu eiginlega að gera?“
spyr ég. „Sko ég gat það“ segir hún
móð. „Hvað gastu eiginlega?“ segi
ég og fannst símtal þetta orðið frek-
ar undarlegt. „Ég gat hoppað á
einni löpp.“
Eftir að ég var búinn að jafna
mig eftir mikla hláturroku heyri ég
í mömmu hennar í bakgrunninum:
„Þú verður að þakka Tryggva þús-
und milljón sinnum fyrir pakkann
með Baby Born dótinu.“
Ekki stóð á svari frá þeirri
stuttu, því hvíslað var í símtólið:
„Takk, takk, takk, Aaaaaa,
takk,.......“
Tengdamamma mín sem er
langamma Bryndísar er orðin
nokkuð fullorðin þótt sáralítil elli-
merki sjáist á þeirri „lekkeru“
konu.
Samt þegar maður er orðinn 86
ára er ekkert eðlilegra en að eitt-
hvað smávegis sé farið að daprast.
Frúin átti afmæli. Ekkert stóraf-
mæli en ágætis tilefni var að fara í
heimsókn og færa henni eitthvað.
Keyptur var blómvöndur, rjóma-
peli og dýrindis Sacerterta. Hún
tók glaðlega á móti okkur, ég heilsa
henni og spyr hvort hún eigi eitt-
hvað, til að þeyta með rjóma.
„Ha?“ var svarið.
„ÁTTU EITTHVAÐ TIL AÐ
ÞEYTA MEÐ RJÓMA?“
„Nei, ég hef bara ekkert heyrt í
þeim.“ ■
Tryggvi Gunnarsson Flateyjarjarl segir frá
undarlegu símtali frá Raufarhöfn og skorar
á Ingibjörgu Pétursdóttur iðjuþjálfa að
segja næstu sögu.
Sagan
Einfættar þakkir og óþeyttur rjómi
TÍMAMÓT
GÍSLI HALLDÓRSSON
„Það er of mikið um dökka liti í byggingum í dag. Svört hús eiga ekki við í
dimmunni hérna og ég hef alltaf verið fyrir það að halda ljósum litum í húsum.
Það lífgar upp á bæinn.“
MEÐ SÚRMJÓLKINNI
Að gefnu tilefni skal tekið fram að nýbúar
eru íbúar eins og aðrir síbúar.
Leiðrétting
TRYGGVI GUNNARSSON
„Hvað gastu eiginlega?“, segi ég og fannst
símtal þetta orðið frekar undarlegt.
Stúlka kemur hlaupandi heimúr skólanum og kallar í
mömmu sína: Mamma, mamma,
í dag lærðum við að telja og all-
ir hinir krakkarnir kunnu bara
upp í fimm. Ég kunni upp í tíu.
Er ég ekki dugleg, mamma? Jú,
segir mamman. Er það af því
ég er ljóska? Já, segir mamm-
an. Daginn eftir kemur stúlkan
aftur heim úr skólanum og seg-
ir: Í dag lærðum við stafrófið.
Ég kunni að H, hinir krakkarnir
bara að E. Er ég ekki dugleg?
Jú, segir mamma. Er það af því
ég er ljóska? Já, segir mamma.
Þriðja daginn kemur stúlkan
hlaupandi heim úr skólanum og
segir: Í dag fórum við í leik-
fimi. Allar stelpurnar voru með
lítil brjóst nema ég. Er það af
því ég er ljóska, mamma? Nei,
það er af því þú ert 25 ára. ■
Stóra
tölvuorðabókin
8 tungumál: íslenska - enska - danska
þýska - spænska - franska - sænska og ítalska.
F A S T P R O
H U G B Ú N A Ð U R
Íslenska
Enska Spænska
Sænska
Danska Franska
Ítalska Þýska
Heimilisútgáfan á 11,990 kr. er
tilvalin jólagjöf fyrir alla sem
eru að læra nýtt tungumál eða þurfa
að þýða á milli tungumála.
Við sendum í póstkröfu samdægurs.
Ókeypis uppfærslur á orðasafni og hugbúnaði
fylgja í 2 ár frá kaupdegi, einnig ókeypis þjónusta.
Heimasíða: www.fastpro.com
Tölvupóstur: sales@fastpro.com
Sími: 698-7978
* Yfir 1 milljón uppflettiorð (á 8 tungumálum).
* Talsetning (notendur geta hlustað á framburð á milljón
orðum og þannig tileinkað sér rétta notkun á málinu).
* Glósa (hægt er að glósa á 8 tungumálum).
* Yfirlestur (með FastPro tölvuorðabókinni fylgir 31
orðasafn sem hægt er að nota við yfirlesturinn).
* Ritvinnsla (notendur geta hlustað á texta eða skjöl á 8
tungumálunum sem eru í tölvuorðabókinni).
* Tölvupóstur (hægt er að láta tölvuorðabókina lesa
póstinn á þessum átta tungumálum)
* Dagbók og minnisatriði
* Fallbeygingar
* Orðaskýringar (kyn, tegund og tala).
* Hægt að þýða á milli allra tungumálanna.
Heimilisútgáfa verð
11,990 kr.
Hægt að
setja inná 5
tölvur á heimilinu.
Fyrirtækjaútgáfa verð
3,600 pr/útstöð.
Verð m.v
lágmark
10 notendaleyfi.
Internetútgáfa verð
360,000 kr.
Ótakmarkaður
notendafjöldi, þessi útgáfa er
sett á heimasíðufyrirtækisins.
Gísli Halldórsson var gerður að
heiðursfélaga í Arkitektafélagi Íslands.
Hann er sá fimmti sem hlotnast þessi
heiður í sextíu ára sögu félagsins.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
JARÐARFARIR
13.00 Guðbjörg Jóhannesdóttir, Birki-
völlum 5, Selfossi, verður jarð-
sungin frá Selfosskirkju.
13.30 Jón Haraldur Ólafsson, Karls-
rauðatorgi 12, Dalvík, verður jarð-
sunginn frá Dalvíkurkirkju.
14.00 Kristborg Jónsdóttir, Hásteins-
vegi 53, Vestmannaeyjum, verður
jarðsungin frá Landakirkju.
14.00 Kristján Sigurður Gunnlaugsson,
Miðfelli 1, Hrunamannahreppi,
verður jarðsunginn frá Hrepphóla-
kirkju.
14.00 Þórður Gestsson, Kálfhóli, Skeið-
um, verður jarðsunginn frá Skál-
holtskirkju.
AFMÆLI
Skáldið Hannes Pétursson er 71 árs.
Guðmundur Ólafsson, leikari og rithöf-
undur, er 51 árs.
ANDLÁT
Rósa Vagnsdóttir Davis, Fairbanks,
Alaska, lést 8. desember.
Berglind Jana Ásgrímsdóttir lést 11.
desember.
Úr fjölmiðlaheiminum berastþær fréttir að Páll Þorsteins-
son, auglýsingastjóri DV til
margra ára, sé að yfirgefa skút-
una og hafi ráðið sig til almanna-
tengslafyrirtækisins Inntaks. Páll
hefur víða komið við í fjölmiðlum
og var einn af burðarásum frjáls-
ra útvarpsstöðva þegar þær hófu
göngu sína hér á landi og um
langt skeið útvarpsstjóri Bylgj-
unnar. Óvíst er hver fyllir pláss
Páls á DV.
FÓLK Í FRÉTTUM