Fréttablaðið - 17.12.2002, Blaðsíða 2
2 17. desember 2002 ÞRIÐJUDAGUR
ERLENT
Ögmundur Jónasson, þingflokksformaður vinstri
grænna, var ræðukóngur á Alþingi í haust. Fjórir af
fimm þingmönnum sem töluðu mest úr ræðustól
Alþingis eru þingmenn Vinstrihreyfingarinnar -
græns framboðs.
Ætli það sé ekki frekar hitt að menn hafi
mikið til málanna að leggja. Því miður þá
búa landsmenn við ríkisstjórn sem sér
stjórnarandstöðu fyrir stöðugum verkefnum.
SPURNING DAGSINS
Eru vinstrimenn svona lengi
að koma sér að efninu?
STJÓRNMÁL Hlynur Hallsson mynd-
listarmaður mun skipa þriðja sæt-
ið á lista Vinstrihreyfingarinnar –
græns framboðs í Norðaustur-
kjördæmi samkvæmt tillögu upp-
stillingarnefndar sem verður lögð
fyrir fund kjördæmisráðs í næsta
mánuði.
Ragnar Stefánsson jarð-
skjálftafræðingur hafði lagt
mikla áherslu á að skipa þriðja
sæti framboðslistans, hann naut
hins vegar ekki stuðnings í kjör-
nefnd og tapaði fyrir Hlyni í kosn-
ingu. Samkvæmt heimildum
blaðsins furða ýmsir félagar í VG
í Norðausturkjördæmi sig á fram-
göngu Ragnars, sem átti sæti í
uppstillingarnefnd og vék ekki úr
henni þó hann sæktist eftir sæti á
listanum.
Steingrímur J. Sigfússon og
Þuríður Backman skipa tvö efstu
sæti listans.
Hlynur vakti athygli þegar
myndlistarsýning hans í Texas
vakti miklar deilur í ágúst síðast-
liðnum. Listaverk hans þar sem
orðum George W. Bush Banda-
ríkjaforseta um öxulveldi hins illa
var snúið upp á Bandaríkin, Bret-
land og Ísrael fóru fyrir brjóstið á
heimamönnum. Hlynur segir til-
ganginn hafa verið að vekja um-
ræðu og það hafi tekist en sjálfur
sé hann ekki sammála öllum yfir-
lýsingunum sem birtust í lista-
verkum hans og deilur stóðu um. ■
RÚTUFERÐIR LEYFÐAR Palestínu-
menn hafa fengið leyfi til að
aka langferðabifreiðum á ný
milli bæja og borga á Vestur-
bakkanum. Farþegar í þeim
þurfa þó að sæta tímafreku eft-
irliti af hálfu Ísraelsmanna.
Þessar samgöngur hafa verið
bannaðar í tvö ár.
SVIKAHRAPPUR BIÐST AFSÖK-
UNAR Peter Foster, ástralski
svikahrappurinn sem veitti
Cherie Blair, eiginkonu breska
forsætisráðherrans, ráðlegging-
ar um íbúðakaup nýverið, hefur
nú beðist afsökunar á því. Málið
hefur valdið miklu fjaðrafoki í
breskum fjölmiðlum. Foster ætl-
ar þó að segja alla sólarsöguna í
ævisögu sinni.
VIÐSKIPTI
Hasar á Siglufirði:
Ölvaður í
eltingarleik
LÖGREGLUMÁL Ökumaður um þrítugt
reyndi að stinga lögregluna á Siglu-
firði af þegar hún gaf honum stöðv-
unarmerki þar sem hann ók of
hratt. Bifreiðin mældist á 94 kíló-
metra hraða þar sem hámarkshraði
er 35 kílómetrar á klukkustund.
Lögreglan veitti manninum eft-
irför og stóð eltingarleikurinn í
rúma klukkustund. Maðurinn ók út
úr bænum en sneri svo við. Hann
stöðvaði bifreiðina og hugðist
hlaupa inn á skemmtistað á Siglu-
firði en lögreglan hafði hendur í
hári hans áður en hann komst inn.
Maðurinn var fluttur í fanga-
geymslur og látinn sofa úr sér.
Hann er grunaður um ölvunar-
akstur. ■
Lögreglan á Selfossi:
Sex teknir
með hass
LÖGREGLUMÁL Sex menn voru hand-
teknir á Selfossi um helgina grun-
aðir um fíkniefnaneyslu. Um mið-
nætti var lögreglan á hefðbundnu
eftirliti og stöðvaði bifreið á
Austurvegi. Lögreglumenn urðu
varir við að einhverju var kastað út
úr bifreiðinni sem reyndist vera lít-
ilræði af hassi. Þrír menn voru í
bifreiðinni. Þeir voru handteknir og
færðir í fangageymslur.
Um klukkustund síðar stöðvaði
lögreglan aðra bifreið á Suður-
landsvegi. Eitt gramm af hassi
fannst við leit í þeim bíl, sem falið
var á milli sæta. Þrír menn voru í
bifreiðinni og voru þeir einnig
handteknir.
Mennirnir reyndust allir að-
komumenn og var húsleit gerð í
kjölfarið á heimilum þeirra í
Reykjavík og Hveragerði án þess
að efni fyndust. Mönnunum var
sleppt að yfirheyrslum loknum og
er málið til frekari rannsóknar. ■
SAMGÖNGUÁÆTLUN Tæplega 240
milljarðar króna fara í samgöngu-
mál næstu 12 árin, samkvæmt
samræmdri samgönguáætlun.
Upphæðin skiptist nokkuð jafnt á
þrjú fjögurra ára tímabil.
Langstærstur hluti fjármunanna
fer í að byggja upp samgöngu-
mannvirki og bæta þau. Langmest
fer til vegamála, enda má segja að
uppbygging vegakerfisins sé
skemmst á veg komin. Tæplega
169 milljarðar fara til vegamála
eða 70% upphæðarinnar allrar.
Meðal annars er stefnt að því að
ljúka lagningu bundins slitlags á
hringveginn 2007 til 2008, ráðist
verður í jarðgangagerð fyrir
norðan og austan og flýtt fyrir
ýmsum brýnum stærri verkefn-
um á höfuðborgarsvæðinu og
landsbyggðinni. Þá er við það mið-
að að hefja uppbyggingu helstu
landsvega yfir hálendið, það er
Sprengisandsleiðar, Kjalvegar,
Fjallabaksleiðar nyrðri og Kalda-
dalsvegar.
Til flugmála fara tæpir 46
milljarðar á tímabilinu. Af því
fara einungis 4 milljarðar í stofn-
kostnað, enda allir aðalflugvellir í
meginatriðum í góðu lagi, með ný-
lega uppbyggðum flugbrautum og
nýjum eða nýendurbyggðum
flugstöðvum sem og tækjabúnaði.
Framkvæmdir á flugvöllum miða
því flestar að því að auka öryggi
þeirra eða þjónustu. Eitt brýnasta
verkefnið er bygging nýrrar flug-
stöðvar á Reykjavíkurflugvelli en
stefnt er að því að hefja fram-
kvæmdir innan fjögurra ára. Al-
þjóðaflugþjónustan kostar um-
talsverða fjármuni, og þá mun eft-
irlit með flugumferðarþjónustu
og flugvöllum taka til sín aukna
fjármuni, en uppbygging eftirlits-
ins þarf að gerast hratt, með hlið-
sjón af kröfu Alþjóðaflugmála-
stofnunarinnar um að starfsleyfi
skuli gefin út fyrir alla flugvelli
fyrir 27. nóvember 2003.
Til siglingamála fara rúmir 22
milljarðar króna á næstu 12 árum.
Af því fer um helmingur í stofn-
kostnað eða tæpir 10 milljarðar. Á
næstu fjórum árum verða meðal
annars settar 845 milljónir í stór-
iðjuhöfn á Reyðarfirði, tæpar 600
milljónir í hafnarframkvæmdir í
Grindavík og rúmar 400 milljónir
í Vestmannaeyjum.
the@frettabladid.is
KÖGUN GERIR SAMNING Stjórn
Mannvirkjasjóðs Atlantshafs-
bandalagsins samþykkti á föstu-
dag að taka tilboði Thales Raythe-
on Systems og Kögunar hf. í smíði
svokallaðs Link 16. Verkið hefur
verið í undirbúningi undanfarin
þrjú ár en gert er ráð fyrir að
heildarverktími verði um þrjú ár.
Samningum er ekki lokið og ligg-
ur því fjárhæð samningsins ekki
fyrir.
HARALDUR AFSKRÁÐUR Hlutabréf
í útgerðarfélaginu Haraldi Böðv-
arssyni á Akranesi eru ekki leng-
ur skráð í Kauphöll Íslands. Í gær
var síðasti viðskiptadagur með
bréf félagsins. Eimskipafélag Ís-
lands hefur sem kunnugt er inn-
limað félagið í útgerðarstoð sína.
Félagið eru nú hluti af sjávarút-
vegsstarfsemi Eimskipafélagsins.
Páfagarður um
kynferðisbrot:
Samþykkir
stefnu
biskupanna
PÁFAGARÐUR, AP Ágreiningur milli
Páfagarðs og bandarísku bisk-
upanna í kynferðisbrotamálum
hefur verið
leystur.
Páfinn og
bandarísku bisk-
uparnir ætla að
berjast gegn
kynferðisbrot-
um gegn börn-
um. Þeir ætla
um leið að verja
„góðan orðstír
y f i r g n æ f a n d i
meirihluta pres-
ta og djákna.“
Stutt er síðan
Bernard Law, kardináli kaþólsku
kirkjunnar í Boston, sagði af sér
vegna ásakana um að hafa reynt
að hlífa prestum sem höfðu brotið
af sér. ■
Vinstri grænir í Norðausturkjördæmi:
Myndlistarmaður lagði
jarðskjálftafræðing
HLYNUR HALLSSON FYRIR FRAMAN
ENDURUNNIÐ LISTAVERK
Listaverk Hlyns fóru fyrir brjóstið á Texas-
búum sem kunnu ekki að meta gagnrýn-
ina á Bandaríkjaforseta. Þegar banna átti
sýninguna setti hann upp nýja þar sem
hann sneri gagnrýninni á haus.
Sjöunda hver
króna í vegamálin
170 milljarðar af þeim 240 milljörðum sem ætlaðir eru í samgöngumál
á næstu tólf árum fara til vegamála. Jarðgöng, stórframkvæmdir á
höfuðborgarsvæðinu og hálendisvegir á áætlun.
SAMGÖNGUR Áhugahópur um bætt-
ar samgöngur milli lands og Eyja
mótmælir því harðlega að ekki sé í
nýrri samgönguáætlun fyrir
næstu tólf árin áætlað fjármagn til
kaupa á nýrri og hraðskreiðri ferju
í stað Herjólfs. Því er einnig mót-
mælt að engar fjárveitingar séu
ætlaðar sérstaklega til rannsókna
á ferjuaðstöðu við Landeyjasand.
Hópurinn segir ljóst að samgöngu-
ráð hafi ekki kynnt sér Byggða-
áætlun ríkisstjórnarinnar fyrir
2002-2005 þar sem skýrt sé kveðið
á um að leita skuli allra leiða til að
bæta samgöngur milli lands og
Eyja. Þá segir hópurinn að sam-
gönguráðherra virðist einnig
hunsa byggðaáætlun og veiti sára-
litlu fé til Eyja af þeim hundruðum
milljarða sem fari í samgöngubæt-
ur um land allt.
Í samræmdri samgönguáætlun
næstu tólf árin segir að óskir um
styttingu ferðatíma milli lands og
Eyja hafi verið ofarlega á baugi
undanfarið. Tvær leiðir komi til
álita í þeim efnum, annars vegar
að kaupa stærra og hraðskreiðara
skip og hins vegar að gera höfn við
Landeyjasand. Báðir kostir séu
dýrir og krefjist vandaðs undir-
búnings. Höfn við Landeyjasand
hefði miklu meiri breytingu í för
með sér en kaup á nýju skipi og því
ætti að skoða þann kost vel áður en
stefnan er mörkuð. Í samgöngu-
áætlun er miðað við að þessir kost-
ir verði kannaðir áfram en ekki er
gerð tillaga um fjárfestingu, enda
ekki raunhæft á þessu stigi. ■
Ekkert fjármagn í nýjan Herjólf:
Fýla í Eyjamönnum
HERJÓLFUR
Eyjamenn eru súrir yfir því að ekki séu í
12 ára samgönguáætlun eyrnamerktir
aurar í nýja og hraðskreiðari ferju.
SAMGÖNGUÁÆTLUN – FRAMLÖG Í MILLJÖRÐUM KRÓNA
Tímabil I Tímabil II Tímabil III
2003-2006 2007-2010 2011-2014 Samtals
Flugmál 14,718 15,361 15,594 45,673
Siglingamál 8,663 6,829 6,907 22,399
Vegamál 55,698 57,265 55,756 168,719
Samtals: 79,079 79,455 78,257 236,791
STÓRFRAMKVÆMDIR Á AUSTFJÖRÐUM
Mikið verður framkvæmt fyrir austan á næstunni. Auk virkjunarframkvæmda og vegagerð-
ar í tengslum við þær hefst jarðgangagerð milli Reyðarfjarðar og Fáskrúðsfjaðrar í byrjun
nýs árs. Gerð stóriðjuhafnar í Reyðarfirði er sömuleiðis fyrirhuguð. Kostnaður við göng og
höfn er áætlaður tæpir fimm milljarðar króna.
PÁFINN VEIFAR
Jóhannes Páll II páfi
sat við gluggann á
skrifstofu sinni í
Páfagarði á sunnu-
daginn.